Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Heimavöllurinn: Hættir á toppnum eftir 21 tímabil 05.04.2023
Landsliðsmarkvörðurinn Sandra Sigurðardóttir tilkynnti fyrir rétt um mánuði að hanskar og skór væru komnir á hilluna. Sandra mætir á Heimavöllinn og fer yfir ferilinn sem spannar 21 tímabil í efstu deild en hún hættir sem langleikjahæsti leikmaður efstu deildar, tvöfaldur meistari og einn besti leikmaður landsliðsins á síðasta ári.
Niðurtalningin - Stefnt á Íslandsmeistaratitilinn 05.04.2023
Niðurtalningin heldur áfram og nú er komið að fjórða sætinu. KA menn enda þar ef spáin rætist. Til þess að ræða um KA mætti Egill Sigfúson eðlilega í Þorpið og fór yfir það helsta; Evrópuleikir í sumar, síðasta tímabil, nýju leikmennina og hvar hann sér KA enda í sumar. Í seinni hlutanum er rætt við Svein Margeir Hauksson, miðjumann KA, um undirbúningstímabilið, síðasta tímabil, landsliðið, komand...
Niðurtalningin - Allt fyrir neðan fyrsta sæti er vonbrigði 04.04.2023
Besta deildin byrjar að rúlla næsta mánudag og upphitun okkar er í fullum gangi. KR er spáð fimmta sæti deildarinnar í spá Fótbolta.net fyrir mótið. Atli Jónasson, fyrrum markvörður KR, var gestur á skrifstofu .net í dag og fór yfir stöðuna hjá félaginu. Árangurinn var ekki góður hjá karlaliði KR í körfuboltanum í vetur og því eru miklar vonir bundnar við fótboltann í sumar. Þá var Aron Þórður Alb...
Upphitun Innkastsins - Arnar Grétarsson 04.04.2023
Síðasti þátturinn í þríleik Innkastsins fyrir Bestu deildina. Nú er Arnar Grétarsson, þjálfari Vals, gestur. Arnar tók við Val í vetur og ræðir um fyrstu mánuði sína í starfi og hvernig hefur gengið að rétta úr kútnum á Hlíðarenda eftir vonbrigðin á síðasta tímabili. Umsjónarmaður: Elvar Geir Magnússon.
Niðurtalningin - Framtíðin björt en titilbarátta óraunhæf núna 03.04.2023
Besta deildin byrjar að rúlla þar næsta mánudag og upphitun okkar er komin á fullt. Stjörnunni er spáð sjötta sæti deildarinnar í spá Fótbolta.net. Til þess að ræða Stjörnuna þá heyrði Guðmundur Aðalsteinn í fjölmiðlamanninum Þorkeli Mána Péturssyni en hann er Stjörnumaður mikill. Máni er hrifinn af því verkefni sem er í gangi í Garðabænum þessa stundina. Þá var einnig hringt í Jóhann 01, Jóhann Á...
Enski boltinn - Rígheldur í miðann þrátt fyrir gylliboð 03.04.2023
Það eru endurfundir í Enska boltanum þessa vikunar þar sem Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz ræða um leiki helgarinnar og rifja upp gamla tíma. Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson er með þeim og er meðal annars rætt um brottrekstra gærdagsins en Leicester og Chelsea tóku fram stígvélið. Daníel er stuðningsmaður Arsenal og á miða á lokaleik tímabilsins, þar sem bikarinn gæti farið á loft.
Niðurtalningin - Síðasta tímabil eins og spænsk sápuópera 01.04.2023
Besta deildin byrjar að rúlla þar næsta mánudag og upphitun okkar er komin á fullt. FH er spáð sjöunda sæti deildarinnar eftir að hafa átt mjög svo brösugt tímabil í fyrra. Til þess að ræða FH mætti fótboltaþjálfarinn Magnús Haukur Harðarson á skrifstofu Fótbolta.net. Magnús Haukur er mikill stuðningsmaður FH en í þessu hlaðvarpi fer hann yfir síðasta tímabil, endurkomu Heimis Guðjónssonar í Kapla...
Niðurtalningin - Eiður Aron og Palli Magg í Eyjaspjalli 31.03.2023
Innan við tvær vikur eru í það að Besta deild karla rúlli af stað og upphitun okkar er komin á fullt. ÍBV er spáð áttunda sæti deildarinnar. Til þess að ræða ÍBV þá mætti Páll Magnússon, fyrrum alþingismaður og fyrrum útvarpsstjóri, á skrifstofu Fótbolta.net. Páll er mikill stuðningsmaður ÍBV og hefur verið það alla tíð. Hann reynir að mæta á alla leiki og styðja sitt lið. Hann er bjartsýnn fyrir...
Útvarpsþátturinn - Arnar rekinn og rýnt í Bestu 31.03.2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpi þessa vikuna. Elvar Geir og Tómas Þór stýra þættinum en sérstakur sérfræðingur er Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar og fyrrum ritstjóri á .Net. Rætt er um stórfrétt vikunnar en Arnar Þór Viðarsson var rekinn sem landsliðsþjálfari í gær. Hver tekur við? Þá er rýnt í liðin fyrir Bestu deildina í sumar. Liðunum er skipt upp í þrjá fl...
Ólafur Ingi Skúlason - Miklu stærra en margir átta sig á 31.03.2023
Ólafur Ingi Skúlason ræddi um U19 ára landsliðið sem tryggði sér sæti í lokakeppni EM í vikunni. Ólafur er þjálfari liðsins og fór yfir milliriðilinn, umgjörðina, uppleggið, hárlitinn og allt mögulegt í kringum afrekið magnaða. „Ég held að enginn fyrir fram hafi búist við því að við stæðum uppi sem sigurvegarar í riðlinum. Þetta er miklu stærra en margir átta sig á," sagði Ólafur m.a. í þættinum....
Upphitun Innkastsins - Óskar Hrafn Þorvaldsson 30.03.2023
Innkastið hitar upp fyrir Bestu deildina með hlaðvarpsviðtölum við þjálfara þeirra þriggja liða sem spáð er efstu sætum Bestu deildarinnar, Í þætti tvö er Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Íslandsmeistara Breiðabliks, gestur og fer yfir undirbúning Kópavogsliðsins og samkeppnina sem liðið fær í sumar Í spjallinu er einnig rætt um Evrópudrauma, markmið Óskars í þjálfun, árangur U19 liðsins og fleir...
Niðurtalningin - Fimmta sætið fínt ef bikarinn fylgir með 30.03.2023
Frömurum er spáð 9. sæti í Bestu deildinni í ár, þremur sætum ofar en í fyrra. Til þess að ræða um málefni Fram kom sagnfræðingurinn Stefán Pálsson í spjall. Hann fór yfir síðustu ár hjá Fram, þjálfarann Jón Sveinsson og ýmislegt annað skemmtilegt. Hann er á því að 5. sætið sé fínasti árangur ef Framarar taka bikarinn. Seinni hluti þáttarins er svo símaviðtal við sautján marka manninn Guðmund Magn...
Upphitun Innkastsins - Arnar Gunnlaugsson 29.03.2023
Innkastið hitar upp fyrir Bestu deildina með hlaðvarpsviðtölum við þjálfara þeirra þriggja liða sem spáð er efstu sætum Bestu deildarinnar, Í fyrsta upphitunarþættinum er Arnar Gunnlaugsson, þjálfari bikarmeistara Víkings, gestur og ræðir um komandi tímabil og undirbúning sinna manna. Í spjallinu er einnig rætt um auglýsingu Bestu deildarinnar, landsliðið, Burnley og fleira. Umsjónarmaður: Elvar G...
Niðurtalningin - Nokkuð blint rennt í sjóinn 29.03.2023
Tólf dagar eru í Íslandsmót og var Keflavík dag spáð 10. sætinu í sumar. Til þess að ræða málefni Keflavíkur voru þeir Frans Elvarsson, reynslumesti leikmaður liðsins og stuðningsmaðurinn Joey Drummer. Leikmanna- og stuðningsmannavinkilinn tekinn, breytingarnar á hópnum, markmiðin í sumar, væntingarnar og ýmislegt annað. Frans flutti á menntaskólaaldri til Njarðvíkur frá Hornafirði á sínum tíma. H...
Niðurtalningin - Munu Fylkismenn svara fyrir sig? 28.03.2023
Innan við tvær vikur eru í það að Besta deild karla rúlli af stað og upphitun okkar er komin á fullt. Fylki er spáð ellefta sæti deildarinnar. Fylkismenn eru í æfingaferð og því var tekið á það ráð að fá stuðningsmann í sett til þess að ræða um Fylkisliðið. Kristján Gylfi Guðmundsson, yngri flokka þjálfari og stuðningsmaður, mætti á skrifstofu Fótbolta.net og fór yfir málin. Þá var hringt í Ragnar...
Milos í stærsta starfi sem íslenskur fótboltaþjálfari hefur gegnt 28.03.2023
Aldrei hefur íslenskur þjálfari verið í eins stóru starfi og Milos Milojevic er í núna. Milos, sem er með íslenskan ríkisborgararétt, kom fyrst til Íslands árið 2006 til að spila með Hamri. Hann spilaði svo með Ægi og Víkingi Reykjavík. Síðar meir varð hann aðstoðarþjálfari Ólafs Þórðarsonar hjá Víkingi og svo aðalþjálfari. Hann stýrði Breiðabliki áður en hann fluttist búferlum til Svíþjóðar. Hann...
Landsliðsgluggi sem fær falleinkunn þrátt fyrir stærsta sigur sögunnar 27.03.2023
Íþróttafréttamaðurinn Andri Már Eggertsson, betur þekktur sem Nablinn, var í yfirvinnu á skrifstofu Fótbolta.net í dag. Hann ræddi ekki bara um HK því hann tók líka landsliðsumræðu með Guðmundi Aðalsteini og Sæbirni Steinke. Íslenska karlalandsliðið var að klára sinn fyrsta glugga í undankeppni EM 2024. Liðið vann í gær stærsta sigur sinn í keppnisleik frá uppahafi er liðið vann 7-0 sigur á Liecht...
Niðurtalningin - HK ætlar að fara Framleiðina 27.03.2023
Tvær vikur í Íslandsmót og tími til kominn að hita almennilega upp fyrir Bestu deildina. HK er spáð 12. sætinu í sumar og til þess að ræða málefni HK voru stuðningsmennirnir Andri Már Eggertsson og Árni Þórður Randversson. Einhverjir kannast við Andra (@nablinn) frá Stöð 2 Sport þar sem hann tekur reglulega viðtöl í kringum íþróttakappleiki. Árni er svo einn af þáttarstjórnendum Punkts og basta þá...
Sama ástríða með yngri flokka KA og Öster í Svíþjóð 26.03.2023
Srdjan Tufegdzic er þjálfari sænska liðsins Öster sem spilar í B-deildinni. Liðið hefur verið lengi í næstefstu deild en setur stefnuna á efstu deild. Á síðasta tímabili fór liðið í umspilið um sæti í efstu deild en tapaði þar. Stefnan er sett á sæti í Allsvenskan á komandi tímabili. Túfa, eins og hann er alltaf kallaður, er Serbi sem kom fyrst til Íslands árið 2006 og lék með KA. Hann lagði skóna...
Útvarpsþátturinn - Landsliðið og Besta deildin með Baldri Sig 25.03.2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977. Tómas Þór og Benedikt Bóas sigla flaggskipinu þessa vikuna og með þeim er Baldur Sigurðsson. Farið er yfir landsleikinn, nýja þáttinn hjá Baldri og Bestu deildina sem er handan við hornið.
Hörmungarnar í Bosníu gerðar upp með Einari Guðna 24.03.2023
Ísland fór ekki vel af stað í undankeppni EM 2024 í gær þar sem liðið tapaði 3-0 fyrir Bosníu í Senica. Leikurinn var ekki góður hjá íslenska liðinu, bara alls ekki. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Þór Steinke hringdu til Svíþjóðar í dag og spjölluðu við Einar Guðnason, fyrrum aðstoðarþjálfara Víkings, um vonbrigðin í gær. Farið var yfir uppstillinguna á liðinu, frammistöðu liðsins í leiknum og fr...
Heimavöllurinn: Ótímabær spá fyrir Lengjudeildina 2023 22.03.2023
Heimavöllurinn er hokinn af reynslu að þessu sinni og teiknar upp ótímabæra Lengjudeildarspá þegar 40 dagar eru í mót. Fyrrum landsliðskonurnar og þjálfararnir Guðrún Jóna Kristjánsdóttir og Rakel Logadóttir eru gestir þáttarins að þessu sinni og fara yfir spánna ásamt Mist Rúnarsdóttur.
Enski boltinn - Ræða Conte og Mitrovic ekkert gáfnaljós 20.03.2023
Það var skemmtileg helgi í fótboltanum á Englandi að klárast í gær, en Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Steinke fara yfir hana í hlaðvarpinu Enski boltinn. Hörður Ágústsson, stuðningsmaður Tottenham, kíkti á skrifstofu Fótbolta.net í dag og greindi eldræðu Antonio Conte á fréttamannafundi um liðna helgi. Conte var brjálaður eftir 3-3 jafntefli gegn Southampton í ensku úrvalsdeildinni, en Tottenham...
Útvarpsþátturinn - Albertsmálið, hópurinn og KA 18.03.2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 18. mars. Umsjón Elvar Geir og Tómas Þór. Rætt um Albertsmálið sem hefur tröllriðið öllu og landsliðsvalið fyrir fyrstu leikina í undankeppni EM. Það er áfall að Sverrir Ingi Ingason verður ekki með. Jóhannes Karl Guðjónsson aðstoðarlandsliðsþjálfari er í viðtali. Hitað upp fyrir Bestu deildina. Hallgrímur Jónasson þjálfari KA er kokhraustur fyrir sumrinu...
Enski boltinn - Lengi verið eitrað andrúmsloft á Goodison 17.03.2023
Magnús Geir Eyjólfsson, fréttamaður á RÚV, er gestur í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag. Hann settist niður með Gumma og Steinke og fór yfir stöðuna. Magnús Geir er stuðningsmaður Everton en það er ekki auðvelt í dag og hefur ekki verið síðustu árin. Það ríkir mikið stefnuleysi hjá félaginu og því er illa stjórnað. Í þættinum í dag var farið yfir stöðuna hjá Everton og þá var farið yfir leiki vikun...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.