Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Tiltalið: Birnir Snær Ingason 02.05.2023

Tiltalið er ný hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson. Í þessum þætti fengum við til okkar leikmann bikarmeistara Víkings í tiltal, Birnir Snær Ingason og fórum við yfir ferilinn hjá honum til þessa.

Innkastið - Svartur blettur á trylltri umferð 30.04.2023

Gummi, Steinke og Sverrir Mar fara yfir fjórðu umferð Bestu deildarinnar í Innkastinu. Breiðablik og Valur unnu sigra í algjörum veisluleikjum, HK hafði betur í nýliðaslagnum, ÍBV gerði kaup tímabilsins og fór í góða ferð til Keflavíkur, Víkingar eru meistaralegir á meðan KA er það ekki og Kjartan Henry var í hefndarhug. Þetta var svo sannarlega frábær umferð en miðgrasið í Kaplakrika og allt leik...

Útvarpsþátturinn - Ruglið í kringum FH - KR, Biggi Jó og Gaui Lýðs 30.04.2023

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 29. apríl. Tómas Þór Þórðarson og Benedikt Bóas Hinriksson stýrðu þættinum í dag en Elvar Geir er í pílagrímaferð til fótboltaborgarinnar Munchen í Þýskalandi. Þeir fóru yfir fréttir vikunnar í fótboltanum, ræddu við Birgi Jóhannsson framkvæmdastjóra ÍTF um dramað í kringum leik FH og KR auk útsendinga frá Lengjudeild karla. Guðjón Pétur Lýðsson le...

Enski boltinn - Ekkert lið í heiminum hefði ráðið við City þarna 28.04.2023

Gummi og Steinke hringdu til Svíþjóðar og heyrðu í Einari Guðnasyni, fyrrum aðstoðarþjálfara Víkings og miklum Arsenal stuðningsmanni. Hann gerði upp stórleikinn gegn Manchester City sem fór fram á miðvikudagskvöld. Einar segir að City sé best þjálfaða lið sem hann hefur séð en það er óhætt að segja að lærisveinar Pep Guardiola hafi farið allverulega í bílstjórasætið um enska meistaratitilinn með...

Tiltalið: Adam Ægir Pálsson 27.04.2023

Tiltalið er ný hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Í fyrsta þættinum fengum við til okkar Adam Ægi Pálsson, leikmann Vals í „tiltal". 

Heimavöllurinn: Lokaspá og upphitunarfjör fyrir Lengjudeildina! 27.04.2023

Lengjudeildin hefst þann 1. maí næstkomandi og komið að því að Heimavöllurinn opinberi lokaspá sína og hiti upp fyrir fjörið sem er framundan. Þau Guðrún Jóna Kristjánsdóttir og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson eru gestir þáttarins en besti leikmaður Lengjudeildarinnar í fyrra, Sísí Lára Garðarsdóttir, var veðurteppt í íslenska vorveðrinu, og var á línunni. Þátturinn er í boði Dominos og Orku Náttú...

Heimavöllurinn: Besta deildin og versta veðrið 26.04.2023

Fyrstu umferð Bestu deildarinnar var að ljúka og það er nóg að ræða. Á Heimavöllinn mæta þau Jón Stefán Jónsson og Lilja Dögg Valþórsdóttir og fara yfir umferðina ásamt Mist Rúnarsdóttur.

Innkastið - Víkingur bauð KR upp á raunveruleikatékk 24.04.2023

Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Óskar Smári í Innkastinu eftir 3. umferð Bestu deildarinnar. Víkingur svo miklu betri en KR, Breiðablik tapaði óvænt í Vestmannaeyjum, Fylkir skellti FH, Stjarnan vann handboltaleikinn gegn HK, Valur vann Fram og markalaust var fyrir norðan.

Enski boltinn - Sálfræðihernaður, titilbaráttan og bless Stellini 24.04.2023

Útvarpsmaðurinn Orri Freyr Rúnarsson er gestur í Enski boltinn í dag en það er nóg að ræða að venju. Manchester United og Manchester City mætast í úrslitum enska bikarsins en undanúrslitin voru spiluð í gær. United hafði betur gegn Brighton í gær þar sem David de Gea og Wout Weghorst spiluðu stórt hlutverk í vítaspyrnukeppninni. Þá var einnig leikið í ensku úrvalsdeildinni um helgina þar sem mikla...

Heimavöllurinn: U19 á EM - Metnaður, liðsheild og óbilandi trú 24.04.2023

U19 ára landsliðskonurnar Katla Tryggvadóttir og Sædís Rún Heiðarsdóttir eru gestir Heimavallarins. Þær eru hluti af mögnuðu U19 ára landsliði sem nýverið tryggði sér sæti í lokakeppni EM. Þær eru líka tvær af okkar allra efnilegustu leikmönnum og ætla sér stóra hluti í Bestu deildinni sem hefst á morgun.

Heimavöllurinn: Upphitunarpartý og spá fyrir 2. deild 22.04.2023

Það er rúm vika í að keppni í 2. deild hefjist og Heimavöllurinn hitar upp fyrir fjörið. Til leiks mæta þjálfararnir Aníta Lísa Svansdóttir og Pétur Rögnvaldsson en þau fóru upp úr 2. deild með sín lið, Fram og Gróttu í fyrra, og þekkja því vel til. Þau spá í spilin ásamt Mist Rúnarsdóttur, fara yfir liðin og leikmenn sem gætu gert það gott í sumar.

Útvarpsþátturinn - Besta, KR og landsliðsmál 22.04.2023

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 22. apríl. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir fréttir vikunnar, bikarleikina, hita upp fyrir komandi umferð í Bestu deildinni og Theodór Elmar Bjarnason, leikmaður KR, er á línunni. Gestur þáttarins er Jörundur Áki Sveinsson, yfirmaður fótboltamála hjá KSÍ, en hann var einn þeirra þriggja sem leiddu ráðningu á nýjum landsliðsþjálfara, Age Hareide.

Kári Árnason - Hareide, KR og Gunnar Vatnhamar 22.04.2023

Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi, er einn af tíu Íslendingum sem nýi landsliðsþjálfarinn Age Hareide hefur þjálfað á sínum ferli. Þeir unnu saman hjá Malmö í Svíþjóð. Kári ræddi um hans kynni af norska þjálfaranum. Hann fór einnig yfir þá ákvörðun að víxla á heimaleikjum við KR. Víkingur spilar heimaleik við KR á mánudag en sá leikur átti upprunalega að fara fram í Vesturbænum. Lok...

Heimavöllurinn: Lokaspá og upphitun fyrir Bestu 21.04.2023

Besta deild kvenna hefst á þriðjudag og í dag er komið að því að opinbera lokaspá Heimavallarins fyrir sumarið og hita upp fyrir veisluna sem þetta Íslandsmót verður! Þau Jón Stefán Jónsson og Lilja Dögg Valþórsdóttir eru gestir þáttarins.

Enski boltinn - Er hausinn farinn hjá toppliðinu? 18.04.2023

Hallur Flosason, fyrrum leikmaður Aftureldingar og ÍA, er gestur í þættinum þennan þriðjudaginn. Hallur er mikill stuðningsmaður Arsenal, eins og nokkrir aðrir góðir menn af Akranesi. Í þættinum fer Hallur yfir stöðuna hjá sínum mönnum eftir að liðið missti frá sér tveggja marka forskot annan leikinn í röð. Er hausinn farinn hjá toppliðinu? Einnig er rætt um allt það helsta sem gerðist í ensku úrv...

Innkastið - Græn gleði og gulur völlur 16.04.2023

Innkastið eftir 2. umferð Bestu deildarinnar kemur beint frá Hlíðarenda, eftir flott svar Breiðabliks og 2-0 útisigur gegn Val. Leikir umferðarinnar eru skoðaðir en veður og vallaraðstæður höfðu mikið að segja. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Benedikt Bóas fara eftir málin en Benni er lítill í sér eftir tapið gegn Blikum. Víkingar afskaplega sannfærandi, jafntefli í Kórnum, serbneska blómið blómstr...

Útvarpsþátturinn - Sá norski mættur, Gylfi laus og enski 15.04.2023

Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir stærstu fréttir vikunnar. Norðmaðurinn Age Hareide er tekinn við íslenska landsliðinu og Gylfi Þór Sigurðsson er laus allra mála. Þá er hitað upp fyrir 2. umferð Bestu deildarinnar og Kristján Atli Ragnarsson mætir við enska hringborðið en óhætt er að segja að spennandi lokakafli sé framundan.

Margrét Magnúsdóttir - Draumurinn sem við ætluðum að stefna á 14.04.2023

U19 landslið kvenna náði því magnaða afreki að enda í efsta sæti í sínum riðli í annarri umferð undankeppni Evrópumótsins 2023. Liðið tekur því þátt í lokakeppninni í sumar. Þetta verður í annað sinn þar sem U19 landslið kvenna tekur þátt í lokakeppni Evrópumótsins. Liðið var í mjög erfiðum riðli í milliriðlunum með Danmörku, Svíþjóð og Úkraínu. Íslensku stelpurnar lögðu bæði Dani og Svía á leið s...

Innkastið - Tryllt byrjun á deild þeirra Bestu 11.04.2023

Innkastið eftir magnaða fyrstu umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Gummi og Sæbjörn Steinke skoða leikina. Sverrir er á línunni. Tryllingur í Kópavogi, Vuk náði í stig fyrir FH í Dal draumanna, endurkomusigrar hjá Val og Keflavík, bikarmeistararnir gerðu góða ferð í Garðabæ og KA og KR skiptu stigunum á milli sín.

Enski boltinn - Hiti á Anfield, lúði helgarinnar og rán um hábjartan dag 10.04.2023

Gummi og Steinke fara yfir stóru málin í enska boltanum eftir skemmtilega páskaumferð. Einn af leikjum tímabilsins fór fram á Anfield í gær þar sem Liverpool kom til baka gegn toppliði Arsenal eftir að hafa lent 2-0 undir. Virgil van Dijk átti ekki sinn besta dag og það átti Mikel Arteta, stjóri Arsenal, ekki heldur. Það var rán um hábjartan dag þegar Totteham lagði Brighton, Frank Lampard byrjaði...

Útvarpsþátturinn - Besta upphitunin og hringt til Lyngby 08.04.2023

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 8. apríl. Elvar Geir og Tómas Þór hita upp fyrir fyrstu umferð Bestu deildarinnar. Með þeim í hljóðveri er Almarr Ormarsson sem lagði skóna á hilluna eftir síðasta tímabil en hann er nú að starfa við íþróttafréttamennsku fyrir RÚV. Í þættinum spjallar Tómas einnig við Frey Alexandersson, þjálfara danska úrvalsdeildarliðsins Lyngby.

Niðurtalningin - Höfðinginn fer yfir stöðuna hjá Íslandsmeisturunum 07.04.2023

Þá er komið að síðasta þættinum í niðurtalningunni fyrir Bestu deild karla þetta árið. Við endum á liðinu sem er spáð sjálfum Íslandsmeistaratitlinum. Breiðablik er ríkjandi meistari og því er spáð af sérfræðingum Fótbolta.net að þeir muni verja titilinn. Kristján Óli Sigurðsson, betur þekktur sem Höfðinginn, kom við á skrifstofu .net í dag og fór yfir stöðuna hjá sínum mönnum. Þá var einnig hring...

Niðurtalningin - Síðasta tímabil er gleymt og grafið 07.04.2023

Besta deildin byrjar að rúlla eftir helgi og í dag klárast niðurtalningin fyrir mótið. Valsmönnum er spáð öðru sæti deildarinnar eftir mikið vonbrigðartímabil í fyrra. Nýtt upphaf er hjá liðinu undir stjórn Arnars Grétarssonar og Sigurðar Heiðars Höskuldssonar. Benedikt Bóas Hinriksson og Jóhann Alfreð Kristinsson mættu á skrifstofu Fótbolta.net á föstudeginum langa og fóru yfir margt og mikið sem...

Niðurtalningin - Er það besta sem hefur komið fyrir Víking mjög lengi 06.04.2023

Besta deildin byrjar að rúlla næsta mánudag og það styttist í annan endann á upphitun okkar fyrir mótið. Víkingum er spáð þriðja sæti deildarinnar. Tómas Guðmundsson, fyrrum leikmaður liðsins, kíkti við á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fór yfir málin í Fossvoginum. Hann lagði skóna á hilluna eftir tímabilið 2021 þegar Víkingar urðu tvöfaldir meistarar. Þá var Viktor Örlygur Andrason, miðjumaður...

Fjármálaspjall - Sævar Pétursson 06.04.2023

Framkvæmdastjóri KA birti tíst í lok síðasta mánaðar þar sem segir: „Innan við tvær vikur í Bestu deildina. Rekstur félaganna verður erfiðari og erfiðari með hverju ári. Niðurstaða 10/12 félaga sem mæta til leiks í sumar er rúmar 230 milljónir í mínus 2022 ef við tökum út fyrir sviga arf sem er ótengdur rekstri. Deildin okkar er ekki sjálfbær." Fréttaritari Fótbolta.net var í heimsókn á Akureyri o...

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.