Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Enski boltinn - Stefán Páls fer yfir ævintýri Luton Town 23.05.2023

Það eru tíu ár síðan Luton Town lék í ensku fimmtu deildinni, en á laugardaginn getur liðið tryggt sér sæti í ensku úrvalsdeildinni. Gummi og Steinke fengu sagnfræðinginn Stefán Pálsson til að ræða Luton í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag. Stefán hefur verið stuðningsmaður Luton í að verða 40 ár. Þetta er mikil öskubuskusaga en liðið frá flugvallarborginni gæti leikið í deild þeirra bestu á næsta t...

Innkastið - Yfirlýsingagleði og vonbrigði norðan heiða 23.05.2023

Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas í Innkastinu eftir 8. umferð Bestu deildarinnar. Lengjudeildin er einnig skoðuð en þar er dómgæslan áberandi í umræðunni. Víkingar áfram með fullt hús, menn ráða ekki við Gísla Eyjólfs, Valsmönnum tókst ekki að skora gegn Keflavík, yfirlýsingagleðin mikla í Hafnarfirðinum, laskað lið FH vann mikilvægan sigur og fleira.

Ástríðan - 3. umferð - Vesen á mörgum stöðum og nokkrar viðvaranir gefnar út 23.05.2023

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu á heimahaga, í .net stúdíóið, og fóru yfir 3.umferð í ástríðudeildunum. Félagarnir voru mjög ósammála um margt, báðir fóru í fýlu en samt vinir að lokum. Ástríðan er í samstarfi við Jako Sport, Bola léttöl, Unbroken og ICE nikotínlausa púða.

Tiltalið: Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir 22.05.2023

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson. Viðmælandi okkar að þessu sinni  er leikmaður Breiðabliks og landsliðskonan Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir. Við ræddum við hana um hina hliðina og tóku...

Útvarpsþátturinn - Fyrirliði Íslands 20.05.2023

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 20. maí. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið yfir fréttir vikunnar, bikarleikina og næstu umferð Bestu deildarinnar skoðuð. Gestur þáttarins er Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði. Rætt er við hann um lífið í Katar, landsliðið og fleira.

Enski boltinn - Þjálfaraaugað sá fegurðina í sigri City 19.05.2023

Gummi og Steinke komu sér vel fyrir Thule stúdíóinu til þess aðallega að ræða leik Manchester City og Real Madrid í Meistaradeildinni. Frammistaðan hjá City í leiknum var hreint út sagt mögnuð. Halldór Árnason, aðstoðarþjálfari Breiðabliks, var á línunni og fór yfir leikinn frá sjónarhorni þjálfarans. Pep Guardiola er búinn að smíða magnað fótboltalið, það verður að segjast. Þá ræddu Gummi og Stei...

Tiltalið: Höskuldur Gunnlaugsson 18.05.2023

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson. Viðmælandi okkar að þessu sinni var fyrirliði Íslandsmeistara Breiðabliks, Höskuldur Gunnlaugsson. Við ræddum við hina hliðina og tókum létta yfirfer...

Heimavöllurinn: Stuð, stemmning og rafmagnaður Húsvíkingur 16.05.2023

Fjórðu umferð fjörugrar Bestu deildar var að ljúka og þau Jón Stefán Jónsson og Lilja Dögg Valþórsdóttir hentu sér beint í upptöku á Heimavellinum ásamt Mist Rúnarsdóttur eftir að leikir kvöldsins voru flautaðir af.

Enski boltinn - Blessun í dulargervi 16.05.2023

Titilbaráttan í ensku úrvalsdeildinni er búin þó að staðfest sviginn sé ekki mættur. Gummi, Steinke og Hlynur Valsson fóru yfir leiki helgarinnar í Enski boltinn hlaðvarpinu. Arsenal tapaði stórt gegn Brighton á heimavelli um helgina á meðan Manchester City fór illa með Everton. City hefur verið óstöðvandi síðustu vikur og eru að sanna sig sem eitt besta lið í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Á meða...

Ástríðan - 2. umferð - Jafnt í Vogunum og Augnablik sterkir 16.05.2023

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva fara yfir 2. umferð í ástríðudeildunum. Allt saman í boði Bola, Jakosport og Unbroken.

Tiltalið: Guðmundur Magnússon 15.05.2023

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson. Viðmælandi okkar að þessu sinni var Guðmundur Magnússon leikmaður Fram og jafnmarkahæsti leikmaður Bestu deildarinnar 2022. Við ræddum við hina hliði...

Innkastið - KR á botninum og hiti í Hamingjunni 14.05.2023

Innkastið eftir 7. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og sérstakur gestur er Magnús Þórir Matthíasson. Víkingar áfram með fullt hús, Kjartan Henry stálheppinn, Fylkismenn með gríðarlega mikilvægan sigur, Eiður Aron missti hausinn, útlitið dökkt hjá Keflavík, Valur lék sér að KA, draumabyrjun Jökuls og Lengjudeildarhornið.

Útvarpsþátturinn - Það tjáir að deila við dómarann 13.05.2023

Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke fara yfir málin. Lengjudeildin er til umfjöllunar og umtalað atvik þegar dómari dæmdi vítaspyrnu en hætti við eftir mótmæli. Hitað er upp fyrir komandi umferð í Bestu deildinni og rætt um þjálfaraskiptin í Garðabænum. Þá er Adam Ægir Pálsson á línunni.

Jökull Elísabetarson: Á erfitt með að dæma hver á að taka ábyrgðina 11.05.2023

Ágúst Gylfason var í gær látinn fara sem þjálfari Stjörnunnar, aðstoðarmaður hans, Jökull Elísabetarson, var á sama tilkynntur sem aðalþjálfari. Ágúst fékk Jökul með sér í Stjörnuna þegar hann sjálfur var ráðinn til félagsins eftir tímabilið 2021. Jökull ræddi um breytinguna í viðtali í dag. Hvað hefur vantað upp á hjá Stjörnunni? Hversu miklu hefur Jökull fengið að ráða til þessa?

Tiltalið: Jasmín Erla Ingadóttir 11.05.2023

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson. Viðmælandi okkar að þessu sinni var hún Jasmín Erla Ingadóttir, leikmaður Stjörnunnar úr Bestu deild kvenna og ræddum við hina hliðina og tókum létta...

Heimavöllurinn: 5 spor, olnbogar og Ziemer screamer 11.05.2023

Þriðju umferð Bestu deildarinnar var að ljúka og það er nóg að ræða á Heimavellinum. Orka Náttúrunnar og Dominos bjóða upp á þáttinn en gestir Heimavallarins að þessu sinni eru þeir Jón Stefán Jónsson og Stefán Marteinn Ólafsson. Þáttastýra er Mist Rúnarsdóttir.

Innkastið - Haltrandi í humátt 09.05.2023

Elvar, Gummi og Steinke í Innkastinu eftir 6. umferð Bestu deildarinnar. Nóg að ræða. Draumurinn um fjögurra liða titilbaráttu, Óskar Hrafn ósáttur við spilamennskuna, dómarinn bað Eyjamenn afsökunar, Valsmenn vængjum þöndum, staða Rúnars Kristins, Maradona mark Ásgeirs, Soft Stjörnumenn, Framarar mættir á ballið, Keflavík gaf FH leik og í Lengjudeildarhorninu förum við í Bogann.

Ástríðan - 1. umferð - Augnablik og Reynir unnu toppslagi, KFA með statement 09.05.2023

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva settust niður og fóru yfir fyrstu umferðina í 2.- og 3.deild karla í fótbolta. Ástríðan er í boði Bola, Jakosport og Unbroken.

Enski boltinn - Allt í einu bullandi pressa frá Liverpool 08.05.2023

Gummi og Steinke fengu góðan gest í Enska boltann þennan mánudaginn því fjölmiðlamaðurinn Atli Már Steinarsson ákvað að kíkja í heimsókn. Atli er mikill Liverpool-maður en hans lið er á mikilli siglingu þessa stundina. Liverpool er búið að vinna sex leiki í röð og er komið í bullandi Meistaradeildarbaráttu. Ná þeir að skáka erkifjendum sínum í Manchester United í þeirri baráttu? Hvernig endar þett...

Tiltalið: Ólöf Sigríður Kristinsdóttir 08.05.2023

Tiltalið er ný hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson. Viðmælandi okkar að þessu sinni var hún Ólöf Sigríður Kristinsdóttir, leikmaður Þróttara úr Bestu deild kvenna og ræddum við hina hliðina og tókum...

Útvarpsþátturinn - Lengjudeildin hafin og spenna í Bestu 06.05.2023

Það er ekki verið að flækja hlutina í þætti vikunnar. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta sem er í gangi í boltanum. Byrjað er á því að fara yfir fyrstu umferð Lengjudeildarinnar en deildin fer af stað með dramatík og spennu. Þá er hitað upp fyrir áhugaverða 6. umferð Bestu deildarinnar. Enski boltinn, ferðasaga frá Þýskalandi og smá körfubolti koma líka við sögu.

Innkastið - Ferskir vindar verða fárviðri og Lengjuspáin 04.05.2023

Í þessum þætti Innkastsins er 5. umferð Bestu deildarinnar gerð upp og hitað upp fyrir Lengjudeildina með því að skoða spá þjálfara og fyrirliða deildarinnar. Upphitun fyrir Lengjudeildina hefst á 58:00 Elvar Geir og Sæbjörn Steinke sjá um þáttinn og með þeim er Valur Gunnarsson, fyrrum markvörður og markvarðaþjálfari Leiknis.

Ástríðan - Spá í 3. deild 2023 04.05.2023

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva hittust og spáðu í spilin fyrir komandi átök í 3. deildinni í sumar. Hverjir eru komnir og farnir hjá liðunum? Hverjir eru styrkleikar og veikleikar liðanna? Hvernig gekk á undirbúningstímabilinu? Þátturinn er í boði Bola og er hægt að hlusta á í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

Ástríðan - Spá í 2. deild 2023 04.05.2023

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva hittust og spáðu í spilin fyrir komandi átök í 2. deildinni í sumar. Hverjir eru komnir og farnir hjá liðunum? Hverjir eru styrkleikar og veikleikar liðanna? Hvernig gekk á undirbúningstímabilinu? Þátturinn er í boði Bola, Jako og Ice og er hægt að hlusta á í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.

Enski boltinn - Nær Stóri Sam að bjarga málunum? 03.05.2023

Það voru stór tíðindi í morgunsárið því Sam Allardyce er mættur aftur í enska boltann. Hann er tekinn við Leeds og fær erfitt verkefni að bjarga liðinu frá falli. Gummi og Steinke fengu Jóhann Inga Hafþórsson, blaðamann Morgunblaðsins og stuðningsmann Leeds, til að ræða fréttirnar og tímabilið hjá Leeds. Nær Stóri Sam að bjarga Leeds frá falli? Einnig var rætt um aðra leiki síðustu umferðar. Meðal...

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.