Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Heimavöllurinn: Beint úr Bestu á EM í Englandi 16.06.2022

Dominos, Hekla og Orka Náttúrunnar bjóða upp á fótboltaveislu á Heimavellinum. Landsliðskonurnar Elísa Viðarsdóttir, fyrirliði Vals, og Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir, leikmaður Breiðabliks, komu í gott spjall um Bestu-deildina og mál málanna: Úrslitakeppni Evrópumótsins sem er rétt handan við hornið.

Ástríðan - 6. umferð - Línur skýrast aldrei í 3. deild og Ægir fékk á sig mark 14.06.2022

Sverrir Mar, Gylfi Tryggva og maðurinn sem skrifar löngu viðtölin, Sæbjörn Steinke, settust niður og fóru yfir sjöttu umferðina í 2. og 3. deild karla. Meðal umræðuefnis: ÍR harka inn öðrum sigri í röð, Luka Jagacic gæti fengið sparkið frá Reyni S., Ægismenn fengu á sig sitt fyrsta mark en unnu þó, Rafael Victor er hinn nýji Cristofer Rolin, fyrsti sigur ÍH stoppaði Augnablik, Víðir með virðingu e...

Innkastið - Landsliðið kvatt og Besta deildin boðin velkomin 14.06.2022

Landsliðsuppgjör í Innkastinu að þessu sinni og einnig hitað upp fyrir komandi umferð í Bestu deildinni sem fer aftur af stað á miðvikudaginn. Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke ræða um jafnteflið gegn Ísrael og landsleikjagluggann í heild. Dráttur íslensku liðanna í Evrópu og U21 landsliðið eru einnig til umræðu ásamt því að Lengjudeildarhornið er á sínum stað.

Útvarpsþátturinn - Landsliðin og Víkingar með Arnari Gunnlaugs 11.06.2022

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 11. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Rætt um harða gagnrýni á landsliðið og landsliðsþjálfarann, síðustu leiki og ákvörðunina að spila gegn Sádi-Arabíu. Gestur er Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara Víkings. Hann ræðir um landsliðið, U21 og Bestu deildina. Þá skoðar Mist Rúnarsdóttir valið á kvennalandsliðshópnum fyrir EM. Sérfræð...

Ástríðan - 5. umferð - ÍH og Reynir S. einu stigalausu liðin 08.06.2022

Sverrir Mar, Óskar Smári og Gylfi Tryggva settust niður þrátt fyrir allt og fóru yfir fimmtu umferðina í 2. og 3. deild karla. Meðal umræðuefnis:Pollið á Twitter sagði að Gylfi bullaði mest en hann var með svör við því. Erfitt að lesa í nokkur lið og aðeins tvö lið eru eftir stigalaus. Vanmat hjá Víði? Hvort eru Dalvík eða Sindri besta liðið í 3.deild? Stígandi fyrir austanÞátturinn er í boði Bola...

Bjarni Helgason um Dætur Íslands og kvennalandsliðið - „Á alltaf að vera í þessum hóp" 07.06.2022

Bjarni Helgason, blaðamaður á Morgunblaðinu, ræddi við Sæbjörn Steinke um nýja þætti sem sýndir eru á mbl.is. Bjarni heimsótti leikmenn í kvennalandsliðinu og eru tveir þættir þegar komnir út. Þættirnir heita Dætur Íslands. Rætt er um þættina og þá er einnig tekinn snúningur á landsliðshópnum sem tilkynntur verður á föstudag. Hverjar verða valdar?

Þórðardætur eru alltaf saman - „Kötlu finnst ég svolítið erfið að búa með" 07.06.2022

Þær Íris Una og Katla María Þórðardætur hafa farið saman í gegnum ferilinn til þessa, þær búa saman og vinna á sama vinnustað. Þær ræddu við Sæbjörn Steinke og fóru fyrir ferilinn til þessa. Af hverju að fara á Selfoss? Árin með Fylki og Keflavík eru rætt og þá eru þær spurðar út í vinkonu sína hana Sveindísi Jane. Þetta og margt fleira á um tuttugu mínútum.

Synir Andrésar hins sterka ræddu málin - Sverðó og Jökull til Örebro? 06.06.2022

Andréssynir, þeir Axel Óskar og Jökull ræddu við Sæbjörn Steinke en þeir eru staddir á Íslandi í fríi. Axel er leikmaður Örebro í Svíþjóð og Jökull er leikmaður Reading á Englandi. Þeir fóru yfir liðið tímabil og Axel um byrjunina á tímabilinu með Örebro. Axel segir frá því að hann hafi komið Jökli úr því að leika sér með sverð og í að standa milli stanganna í markinu. Er möguleiki á því að Jökull...

Aron Sig um Horsens, Union og landsliðið - „Pæla ekki allir í því eða?" 06.06.2022

Fjölnismaðurinn Aron Sigurðarson gekk í raðir danska félagsins Horsens síðasta haust en þangað kom hann frá belgíska félaginu Royale Union Saint-Gilloise. Aron ræddi við Sæbjörn Steinke um tímabilið í Danmörku, skiptin frá Union, ævintýri Union í Belgíu, framherja Brighton og landsliðið svo eitthvað sé nefnt. Hann lék stórt hlutverk þegar Horsens fór upp úr dönsku B-deildinni á dögunum og verður í...

Útvarpsþátturinn - Ísland, þjálfaramál og Selfoss 04.06.2022

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 4. júní. Í þættinum er fjallað um landsliðið, þjálfaramál á Íslandi, landslið Bestu deildarinnar valið og fleira. Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari er á línunni og einnig Gary Martin en Selfyssingar eru á miklu flugi í Lengjudeildinni.

Ungstirnin: Sumarglugginn og Dagur Dan gestur 01.06.2022

Ungstirnin er hlaðvarpsþáttur á Fótbolta.net þar sem aðaláherslan er lögð á umfjöllun um unga framtíðarleikmenn í boltanum. Umsjónarmenn eru Arnar Laufdal Arnarsson og Kristinn Helgi Jónsson.

Ástríðan - 4. umferð - Til hamingju Njarðvík og Dalvík 31.05.2022

Fullur bátur fór yfir 4. umferðina í 2. og 3. deild karla. Meðal umræðuefnis:Baráttan um 2. sætið í báðum deildum, Garðurinn endurheimti virðinguna, ÍR að leika sér, hver ætlar að skora á móti Ægi, hver ætlar að tapa á móti Reyni, ÍH vantar nýjan fjármálastjóra, bestu vinunum gengur vel. Þátturinn er í boði Bola, Jako, Ice, Pizzunnar þar sem hlustendur geta notað afsláttarkóðann "astridan" til að...

Innkastið - Mjög vont verður enn verra hjá Val og FH 30.05.2022

Sverrir Mar Smárason er umsjónarmaður í Innkastinu eftir 8. umferð Bestu deildarinnar. Með honum eru Baldvin Már Borgarsson og Aron Elí Sævarsson, leikmaður Aftureldingar. Valur lenti í hremmingum gegn Fram og tapaði fjórða leik sínum í röð, Kjartan Henry á skotskónum og hrakfarir FH halda áfram, Breiðablik heldur áfram að vinna og Leiknir heldur áfram að tapa, Víkingar á sigurbraut en KA tapaði ö...

Heimavöllurinn: Þriðjungsuppgjör Bestu og allt eftir bók í bikar 30.05.2022

Það er þegar búið að spila þriðjung Bestu deildarinnar og knattspyrnuþjálfararnir Guðni Þór Einarsson og Guðrún Jóna Kristjánsdóttir mæta og fara yfir deildina til þessa – að sjálfsögðu í boði Heklu og Dominos. Lengjudeildin er einnig til umræðu sem og bikarkeppnin en nú er ljóst hvaða lið verða í pottinum þegar dregið verður í 8-liða úrslit.

Útvarpsþátturinn - Bikardraumar, París og lið ársins 28.05.2022

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 28. maí. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri hlutanum er rætt um íslenska boltann, Mjólkurbikarinn og landsliðið. Í seinni hlutanum velur Kristján Atli lið tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni og heyrt er í Hafliða Breiðfjörð sem verður á úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Hjörvar um Viaplay - Meistaradeildin, landsliðið og margt fleira 26.05.2022

Streymisveitan Viaplay er eitthvað sem margir Íslendingar hafa kynnst í vetur, flestir lesendur eflaust í kringum Meistaradeildina í fótbolta. Framundan er úrslitastund í Meistaradeildinni því á laugardagskvöld fer fram sjálfur úrslitaleikurinn. Þeir Hörður Magnússon og Heimir Hallgrímsson munu lýsa úrslitaleiknum frá Stade de France. Hjörvar Hafliðason er íþróttastjóri Viaplay og ræddi við Sæbjör...

Enski boltinn - Fagnaði titlinum í hjarta samfélagsins 25.05.2022

Titilbaráttan í ensku úrvalsdeildinni var gerð upp í dag með því að fá stuðningsmann Manchester City og stuðningsmann Liverpool í hljóðver. Þeir Eiríkur Þorvarðarson, markmannsþjálfari og stuðningsmaður City, og Sveinn Waage, fyrrum fyndnasti maður Íslands og stuðningsmaður Liverpool, fóru yfir upplifun sína af lokadegi ensku úrvalsdeildarinnar með Sæbirni Steinke. Sveinn var á Anfield á sunnudag...

Innkastið - Stefnuleysi og stór lið komin í mikil vandræði 24.05.2022

Innkastið eftir sjöundu umferð Bestu deildarinnar er aðeins seinna á ferðinni en venja er. Þar er þó boðið upp á beinskeytta yfirferð yfir allt það sem skiptir máli. Elvar Geir stýrir þættinum en sérstakir gestir eru Magnús Haukur Harðarson FH-ingur og fjölmiðlamaðurinn Þór Bæring sem fjallar um deildina fyrir Morgunblaðið. Blikar eru í bílstjórasætinu eftir markasúpu gegn Fram, FH-ingar halda sig...

Ástríðan - 3. umferð - Magnaður Kristófer og ekki tala við okkur um virðingu 24.05.2022

Sverrir Mar og Gylfi Tryggva settust niður og fóru yfir þriðju umferðina í 2. og 3. deild karla. Meðal umræðuefnis:Garðurinn fékk virðingu en fleygði henni, KFG heldur áfram að skora eftir þörfum, Káramenn steinlágu á Króknum, Völlarar rændir og nú þurfa nokkur lið að fara að vakna. Þátturinn er í boði Bola, Jako, Ice, Pizzunnar þar sem hlustendur geta notað afsláttarkóðann "astridan" til að fá 40...

Fótboltafréttir vikunnar og spennandi lokaumferð 21.05.2022

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er í óhefðbundnu formi þessa vikuna þar sem þáttastjórnendur eru uppteknir í steggjun. En í staðinn er þessi sérstaka hlaðvarpsútgáfa þar sem Elvar Geir Magnússon ræðir við góða menn. Farið er yfir helstu fótboltafréttir vikunnar með Sæbirni Steinke, Úlfur Blandon skoðar Lengjudeildina og Bestu deildina og Kristján Atli Ragnarsson spáir í lokaumferð ensku úrvalsdeilda...

Fantabrögð - LOKAUMFERÐ 21.05.2022

Þá er komið að því. Þetta skrýtna fantasy tímabil með allar sínar tvöföldu umferðir er að verða búið. Bara ein umferð eftir og eins og venjulega með lokaumferðir þá eru allir leikirnir á sama tíma. Blautir draumar fantasy spilarans. Aron og Heiðmar hittust í stúdíóinu og köstuðu fram alls konar hugmyndum að leikmönnum til að kaupa og capteina. Þeir voru samt eiginlega ósammála um allt. Flippuð fyr...

Enski boltinn - Úrslitastund á sunnudag 18.05.2022

Þeir Albert Hafsteinsson, Arnar Már Guðjónsson og Baldvin Már Morgarsson ræddu málin með Sæbirni Steinke þessa vikuna. Á morgun fara fram þrír leikir en svo er það úrslitastundin á sunnudag þar sem barist verður um efsta sætið, Meistaradeildarsæti, Evrópudeildarsæti og tvö laus sæti í deildinni. Farið var yfir leiki liðinnar helgar í úrvalsdeildinni, bikarúrslitaleikinn, sigur Newcastle á Arsenal...

Ástríðan - 2. umferð - Dalvík og Víðir byrja vel og Njarðvík að pakka saman 2. deildinni 18.05.2022

Sverrir Mar, Óskar Smári og Sæbjörn Steinke settust niður og fóru yfir aðra umferðina í 2. og 3. deild karla. Meðal umræðuefnis:Sterk byrjun Haukanna, Garðurinn óskar eftir virðingu, Njarðvík eru ógnasterkir, Kormákur/Hvöt eru búnir að styrkja sig vel og verða ógn og munu styrkingar Völsungs tryggja þeim í toppbaráttuna? Þátturinn er í boði Bola, Jako, Ice, Pizzunnar þar sem hlustendur geta notað...

Heimavöllurinn: Lokaspá 2.deildar, Lengjusprengja og framtíðarleikmenn Íslands 17.05.2022

Í boði Dominos og Heklu mæta Sunneva Hrönn leikmaður FH í Lengjudeildinni og Arnar Páll Garðarsson aðstoðarþjálfari KR á Heimavöllinn og fara yfir lokaspá fyrir 2.deildina sem hefst á miðvikudaginn. Sunneva er fyrrum leikmaður Hamars og Arnar Páll er fyrrum þjálfari KH. Við förum einnig yfir fyrstu 2.umferðirnar í Lengjudeildinni. 

Innkastið - Enginn á séns í Blika og fallfnykur í Breiðholti og Eyjum 17.05.2022

Innkastið gerir upp 6. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke í hljóðverinu á Krókhálsi. Blikar með fullt hús, allt aðrir Víkingar en í fyrra, KA dansar í takt, Silfurskeiðin vaknar, Valsmenn í vandræðum með að finna taktinn, KR byrjað að safna stigum, Framarar unnu sinn fyrsta leik, fallfnykur í Breiðholti og Eyjum, Lengjudeildarhornið, Rauði baróninn gefur ráð og fle...

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.