Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Niðurtalningin - Þróttur horfir í Meistaradeildina 20.04.2026
Við höldum áfram að telja niður fyrir Bestu deild kvenna sem fer af stað á föstudaginn. Þrótturum er spáð fimmta sæti deildarinnar en markmiðin eru sett hærra en það í Laugardalnum. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, fyrirliði Þróttar, mætti ásamt Jóhann Kristinni Gunnarssyni, nýjum þjálfara liðsins, í hljóðver og fór yfir stöðu mála.
Enski boltinn - Guð blessi Norður-London 20.04.2026
Enski boltinn á mánudegi eftir stærsta leik tímabilsins til þessa. Manchester City hafði betur gegn Arsenal í svakalegum fótboltaleik í gær. Ef bæði þessi lið vinna rest þá ræðst deildin á markatölu. Hvaða lið verður eiginlega meistari? Manchester United fór langt með að tryggja sér Meistaradeildarsæti, Chelsea er í dimmum dal en ekki dimmari dal en Tottenham. Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur o...
Útvarpsþátturinn - Kallaðir þú mig fokking tussu? 18.04.2026
Innkastið í beinni á X977. Önnur umferð Bestu deildarinnar er gerð upp. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars í fiskabúrinu á Suðurlandsbraut. Mönnum var heitt í hamsi og dómararnir í sviðsljósinu. KR og Stjarnan eru með fullt hús en Keflavík og KA hafa ekki náð að koma sér á blað. Farið er yfir alla leikina og hitað upp fyrir næstu umferð sem verður spiluð á miðvikudag og fimmtudag.
Niðurtalningin - Hver er pælingin hjá Val? 17.04.2026
Við höldum áfram að telja niður fyrir Bestu deild kvenna, Valskonum er spáð sjötta sætinu. Það eru breyttir tímar á Hlíðarenda og verið að móta nýja stefnu. Við ræddum við Matthías Guðmundsson, þjálfara liðsins, og Málfríði Önnu Eiríksdóttur, leikmann liðsins, um stefnuna og komandi tímabil.
Niðurtalningin – Húsvíkingurinn í brúnni á Akureyri 16.04.2026
Við höldum áfram að telja niður fyrir Bestu deild kvenna. Núna er það Þór/KA sem er spáð sjöunda sæti deildarinnar. Við hringdum til Akureyrar og ræddum við Aðalstein Jóhann Friðriksson, þjálfara Þórs/KA, um komandi tímabil. Alli Jói tók við liðinu í vetur og er spenntur fyrir sumrinu.
Niðurtalningin - Himnasending sem kom til Eyja í fyrra 15.04.2026
Við höldum áfram að telja niður fyrir Bestu deild kvenna. Núna er komið að liðinu sem er spáð áttunda sæti, ÍBV. Við hringdum til Vestmannaeyja og ræddum við Jón Óla Daníelsson, þjálfara ÍBV, og Avery Mae Vanderven, fyrirliða liðsins. Viðtalið fer því fram á bæði íslensku og ensku.
Niðurtalningin - Nýliðar sem ætla að spila sambabolta 15.04.2026
Við höldum áfram að telja niður fyrir Bestu deild kvenna. Núna er komið að liðinu sem er spáð níunda sæti, Grindavík/Njarðvík. Natasha Anasi, leikmaður liðsins, og Gylfi Tryggvason, þjálfari liðsins, komu í hljóðver og fóru yfir allt það helsta hjá þessu áhugaverða liði.
Fótbolta nördinn - Njarðvík vs Grindavík 15.04.2026
Fjórði þátturinn í 8-liða úrslitum Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Guðmundur Magnússon fyrir Njarðvík og Damir Muminovic fyrir Grindavík. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni
Hugarburðarbolti GW 32 Rosaleg spenna! 14.04.2026
Við Össi Árnason fórum vel og vandlega yfir 32. umferð í enska. Arsenal tapaði á heimavelli og Man City er á hælum þeirra með 0-3 sigri á Chelsea. Þetta og allt hitt í þætti dagsins.
Niðurtalningin - Nýir vindar blása um í dal draumanna 13.04.2026
Það styttist núna heldur betur í Bestu deild kvenna en hún fer af stað eftir tæpar tvær vikur. Við á Fótbolta.net spáum í spilin fyrir mótið en Fram er spáð tíunda sæti. Við hringdum til Tenerife þar sem Framarar voru í æfingaferð og ræddum við Anton Inga Rúnarsson, þjálfara liðsins, og Hildi Maríu Jónasdóttur, fyrirliða liðsins, um komandi tímabil. Það hafa orðið talsverðar breytingar frá síðustu...
Enski boltinn - Stressið tekur öll völd 13.04.2026
Það er svakaleg helgi að baki í ensku úrvalsdeildinni en hún kláraðist í kvöld með óvæntum sigri Leeds á Manchester United á Old Trafford. Fjölmargir íslenskir stuðningsmenn Leeds gerðu sér ferð á leikinn í Manchester og skemmtu sér væntanlega konunglega. Stuðningsmenn Arsenal og Tottenham skemmtu sér ekki eins vel um helgina, en það fór allt úrskeiðis hjá þessum liðum. Guðmundur Aðalsteinn, Guðmu...
Innkastið - Ferskir nýliðar og vandræðagangur hjá Val 12.04.2026
Elvar Geir, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke gera upp sunnudagsleikina í Bestu deildinni. Fyrstu umferð er lokið. Þórsarar byrja á sigri á Hlíðarenda, KR náði að landa dramatískum sigri gegn nýliðum Keflavíkur og Stjarnan gerði góða ferð til Akureyrar. Jafntefli í Eyjum og í Úlfarsárdal.
Útvarpsþátturinn - Óheppileg mistök og vítakall 11.04.2026
Veislan er byrjuð! Besta deildin er farin af stað. Elvar Geir, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke eru í hljóðveri. Fjallað er um stórmeistarajafntefli Víkings og Breiðabliks, hitað upp fyrir leiki sunnudagsins og farið yfir helstu fréttir og tíðindi.
Enski boltinn - Sjokkerandi lélegt hjá Liverpool 10.04.2026
Lokaspretturinn er framundan í ensku úrvalsdeildinni. Hvaða lið verður meistari? Hvaða lið komast í Meistaradeildina? Hvaða lið fellur með Burnley og Wolves? Guðmundur Aðalsteinn fór yfir það helsta sem hefur gerst að undanförnu og helstu sögulínur með þeim Magnúsi Hauki Harðarsyni og Kára Snorrasyni. Farið var yfir úrslit í enska bikarnum og Meistaradeildinni ásamt því sem er framundan í ensku úr...
Útvarpsþátturinn - Stóri upphitunarþátturinn fyrir Bestu 04.04.2026
Halldór Árnason, fyrrum þjálfari Breiðabliks, er sérstakur álitsgjafi en hitað er rækilega upp fyrir Bestu deildina. Elvar Geir og Tómas Þór stýra þættinum og fara yfir spá Bestu deildarinnar með Halldór sem sérfræðing. Í seinni hluta þáttarins er svo Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, gestur.
Niðurtalningin - Skjöldurinn verður loksins kyrr 03.04.2026
Ríkjandi Íslandsmeistarar Víkings er spáð toppsætinu í spánni hér á Fótbolta.net. Skyldi spáin rætast yrði Víkingur fyrsta liðið til að verja Bestu deildar skjöldinn. Víkingarnir tveir, Tómas Guðmundsson og Ásgeir Frank Ásgeirsson, gerðu sér ferð á skrifstofu Fótbolta.net fyrr í dag og ræddu um komandi tímabil í Víkinni
Hugarburðarbolti - Extra Fantasy fráhvörf 02.04.2026
Jón Pétur Rúnarsson kom í þennan aukaþátt og við fórum yfir sviðið þegar 7.umferðir eru eftir af tímabilinu með fantasy augunum og bara almenn yfirferð. Lofuðum og löstuðum. Hverjir hafa skarað framúr? Mestu vonbrigðin? Hverjir hafa komið mest á óvart? Bestur það sem af er tímabils? Og auðvitað lið tímabilsins hingað til? Drógum að sjálfssögðu út sigurvegara í þættinum.
Besta spjallið: Damir, Jón Þór og Gummi Ben rýna í liðin 02.04.2026
Besta spjallið er nýr þáttur þar sem Kári Snorrason fær til sín góða gesti í settið og fer yfir stærstu málin er varða Bestu deildina. Í þetta sinn komu Jón Þór Hauksson, Damir Muminovic og Guðmundur Benediktsson, og fóru yfir spá okkar fyrir deildina.
Niðurtalningin - Tímabilið í fyrra stórslys í Kópavoginum 02.04.2026
Breiðabliki er spáð öðru sæti í spá Fótbolta.net fyrir komandi tímabil í Bestu deildinni. Við fengum Blikana Guðjón Má Sveinsson og Kristján Óla Sigurðsson í hljóðver til að fara yfir málin hjá sínum mönnum fyrir sumarið.
Niðurtalningin - Pressan í Garðabænum meiri en áður 01.04.2026
Stjörnunni er spáð þriðja sæti í spánni hér á Fótbolta.net, liðið endaði einnig í þriðja sæti á síðasta tímabili en stefnir nú hærra. Stjörnumennirnir tveir, Kristján Másson og Halldór Orri Björnsson, komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og ræddu komandi sumar í Garðabænum.
Fótbolta nördinn - SÝN vs Fótbolti.net 01.04.2026
Þriðji þátturinn í 8-liða úrslitum Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Ágúst Orri Arnarsson fyrir SÝN og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson fyrir Fótbolti.net. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni
Niðurtalningin - Mikil spenna eftir stór leikmannakaup 31.03.2026
ÍA er spáð fjórða sæti Bestu deildarinnar af sérfræðingum Fótbolta.net. Það styttist í sumarið en við fengum Elfu Björk og Brynjólf Þór, stuðningsfólk ÍA, í spjall til að ræða komandi keppnistímabil hjá sínum mönnum.
Niðurtalningin - Skála í kampavíni af öðru tilefni í sumar 30.03.2026
KR-ingum er spáð 5. sæti í spá Fótbolta.net fyrir komandi tímabil í Bestu deildinni. Hilmar Örn Hafsteinsson og Valur Páll Eiríksson, stuðningsmenn KR, mættu í hljóðver og fóru yfir stöðuna hjá sínum mönnum.
Útvarpsþátturinn - Máni og Jökull heimsækja Tómas 28.03.2026
Besta deildin er handan við hornið og Tómas Þór Þórðarson heldur um stýrið í útvarpsþættinum Fótbolti.net þessa vikuna. Máni Pétursson, stjórnarmaður KSÍ, heimsækir Tómas og ræðir við hann um ýmis málefni tengd íslenska boltanum. Máni liggur ekki á skoðunum sínum frekar en fyrri daginn. Þá kemur Jökull Elísabetarson þjálfari Stjörnunnar í heimsókn. Garðabæjarþema í þætti vikunnar.
Niðurtalningin - Hemmi hefur allt að sanna 27.03.2026
Valsmönnum er spáð 6. sæti í spá Fótbolta.net fyrir komandi tímabil. Nafnarnir tveir, þeir Jóhann Már Helgason og Jóhann Skúli Jónsson, mættu í hljóðver og ræddu um tímabilið sem framundan er á Hlíðarenda.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.