Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Niðurtalningin - Ekki meiri Forsetabikar 26.03.2026
KA er spáð 7. sæti í spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina sem er heldur betur farið að styttast í. Haraldur Örn Haraldsson og Egill Sigfússon, tveir miklir KA stuðningsmenn, komu í hljóðver og fóru yfir komandi tímabil hjá sínum mönnum.
Fótbolta nördinn - 433 vs RÚV 25.03.2026
Annar þátturinn í 8-liða úrslitum Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Helgi Fannar Sigurðsson fyrir 433 og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson fyrir RÚV. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni.
Niðurtalningin - Er verið að vanmeta Framara? 25.03.2026
Fram er spáð 8. sæti Bestu deildarinnar í spá Fótbolta.net fyrir komandi tímabil. Sagnfræðingurinn Stefán Pálsson og fyrrum fjölmiðlamaðurinn Snorri Már Skúlason mættu í hljóðver og fóru yfir stöðuna í Úlfarsárdal fyrir komandi tímabil.
Niðurtalningin - Horft fram á við með Magga Hödd og Frikka Dór 24.03.2026
FH er spáð 9. sæti Bestu deildarinnar í spá Fótbolta.net fyrir tímabilið sem er framundan. Fótboltaþjálfarinn Magnús Haukur Harðarson og tónlistarstjarnan Friðrik Dór Jónsson mættu í hljóðver þar sem þeir fóru yfir komandi tímabil í Kaplakrika.
Hugarburðarbolti GW 31 Met í rauðum spjöldum! 23.03.2026
Beto og Danny Welbeck voru á eldi um helgina. Liverpool, Chelsea og Newcastle töpuðu öll sínum leikjum um helgina. Blóðug fallbarátta framundan þar sem Notthingham Forest skelltu Tottenham í London 0-3. Aston Villa vöknuðu af Þyrnirósarsvefninum og Bournemouth og Man Utd gerðu 2-2 jafntefli á suðurströndinni.
Enski boltinn - Allir íslenskir stuðningsmenn í fýlu 23.03.2026
Manchester City vann deildarbikarinn um helgina með 2-0 sigri gegn Arsenal, og fyrsti bikarinn farinn á loft á þessu tímabili. Það var í raun ekkert lið sem flestir íslenskir stuðningsmenn halda með sem unnu um helgina. Aðeins átta leikir fóru fram í deildinni en þar tapaði Liverpool gegn Brighton, Chelsea tapaði fyrir Everton, Tottenham tapaði fyrir Nottingham Forest, Newcastle tapaði fyrir Sunde...
Niðurtalningin - Tólf ára bið senn á enda 23.03.2026
Þór er komið aftur í efstu deild eftir tólf ára fjarveru og er liðinu spáð 10. sæti í spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina. Samfélagsmiðlastjarnan Logi Páll Aðalsteinsson og íþróttafréttamaðurinn Aron Elvar Finnsson mættu í hljóðver þar sem þeir fóru yfir komandi tímabil í Þorpinu.
Útvarpsþátturinn - Uppfærð spá og fiðringurinn magnast 21.03.2026
Elvar Geir og Benedikt Bóas sjá um þáttinn þessa vikuna Baldvin Már Borgarsson opinberar uppfærða ótímabæra spá fyrir Lengjudeildina. Valur Páll Eiríksson íþróttafréttamaður kemur í hljóðver og fer yfir fótboltafréttir vikunnar og Þóroddur Hjaltalín hjá KSÍ ræðir um hvernig tækla eigi leiktafir.
Niðurtalningin - Serbneskir andar svífa yfir vötnum 20.03.2026
Sléttar þrjár vikur eru í að Besta deildin hefjist og Eyjamenn mæta kokhraustir til leiks. ÍBV er spáð 11. sæti í spá Fótbolta.net. Ýmislegt hefur gengið á hjá ÍBV í vetur og komu Eyjamennirnir Óliver Magnússon og Arnar Gauti Grettisson í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net þar sem þeir fóru yfir stöðuna á liðinu fyrir komandi tímabil.
Niðurtalningin - Keflvíkingar láta sig dreyma um Forsetabikarinn 19.03.2026
Það styttist óðfluga í að Besta deildin fari af stað en 22 dagar eru til stefnu. Nýliðum Keflavíkur er spáð neðsta sætinu í spá Fótbolta.net. Þeir Egill Darri Einarsson og Helgi Bergmann Hermannsson, stuðningsmenn Keflavíkur, komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og ræddu um komandi tímabil hjá sínum mönnum.
Fótbolta nördinn - Draumaliðið vs Stjarnan 18.03.2026
Fyrsti þátturinn í 8-liða úrslitum Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Jóhann Skúli Jónsson fyrir Draumaliðið og Alex Þór Hauksson fyrir Stjörnuna. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni.
Enski boltinn - Þetta er búið og er Bruno bestur? 16.03.2026
Þetta var góð helgi fyrir stuðningsmenn Arsenal og Manchester United. Arsenal er komið langleiðina með að vinna ensku úrvalsdeildina og United er í frábærum málum hvað varðar Meistaradeildarsæti. Þetta var hins vegar ekki góð helgi fyrir Liverpool sem gerði jafntefli við Tottenham og Manchester City sem missteig sig gegn West Ham. Er Bruno Fernandes besti leikmaður deildarinnar? Guðmundur Aðalstei...
Hugarburðarbolti GW 30 Mad Max frumsýning í London. 16.03.2026
Styrktaraðilar okkar eru TA Sport Travel , Bílaréttingar Sævars , Bílakompaní , Potturinn og Pannan og Dúos. Arsenal eru komnir með 9 stiga forystu eftir leiki helgarinnar. Förum yfir umferðina og allt það helsta. Top 3 og rauða spjaldið á sínum stað.
Alfons ræðir um endurkomuna til Hollands, landsliðið og ævintýri Bodö Glimt 16.03.2026
Alfons Sampsted færði sig um set í upphafi árs þegar hann gekk til liðs við Go Ahead Eagles í Hollandi frá Birmingham. Hann ræddi við Fótbolta.net um endurkomuna til Hollands, landsliðið, ævintýri gamla liðs síns Bodö Glimt í Meistaradeildinni og fleira.
Útvarpsþátturinn - Bjartara á Brekkunni og heitir í enska 14.03.2026
Farið er yfir fréttir vikunnar úr íslenska boltanum og Valur Gunnarsson er á línunni beint úr Garðabænum þar sem Stjarnan og KR mætast í undanúrslitum Lengjubikarsins. Það voru stór tíðindi frá Akureyri þar sem KA kynnti tvo nýja leikmenn. Rætt er við Hallgrím Jónasson, þjálfara liðsins. Þá er spáð í spilin fyrir seinni leikina í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeir...
Fótbolta nördinn - Dómarar vs Njarðvík 09.03.2026
Áttundi og loka þátturinn í 16-liða úrslitum Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Gunnar Oddur Hafliðason fyrir Dómarastéttina og Guðmundur Magnússon fyrir Njarðvík. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni.
Uppbótartíminn - Landsliðið, stutt í Bestu og hvert fer Sara Björk? 09.03.2026
Uppbótartíminn, hlaðvarp um kvennaboltann á Íslandi, heilsar á mánudegi. Íslenska landsliðið byrjaði undankeppnina fyrir HM á því að mæta tveimur sterkustu þjóðum Evrópu og það gekk heldur brösulega. Það er einn og hálfur mánuður í Bestu deildina og nóg til að ræða um í tengslum við hana. Svo er spurning hvort Sara Björk Gunnarsdóttir, ein besta fótboltakona í sögu Íslands, sé á heimleið. Guðmundu...
Kjaftæðið - Stóra Bestu deildar yfirferðin 08.03.2026
Baldvin Borgars, Nonni Kristjáns og Leon Péturs fóru ofan í saumana á Bestu deildinni nú þegar það er mánuður í mót.
Útvarpsþátturinn - Mánuður í Bestu deildina 07.03.2026
Í útvarpsþættinum Fótbolti.net er síðasta ótímabæra spáin fyrir Bestu deildina 2026 á dagskrá. Rætt er um öll liðin, farið yfir helstu fréttir og frammistöðuna á undirbúningstímabilinu. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars eru í fiskabúrinu og sérstakur gestur er fótboltaþjálfarinn Haraldur Árni Hróðmarsson sem hefur verið að lýsa leikjum undirbúningstímabilsins á Livey.
Hugarburðarbolti GW 29 Svaðalega Salah salan. 06.03.2026
Arsenal eru komnir með 7 stiga forskot í deildinni eftir sigur á Brighton á Amex 0-1. Man City missteig sig í 2-2 jafntefli gegn Nottingham Forest á Etihad. Man Utd og Liverpool lutu bæði í gras gegn andstæðingum sínum og Tottenham er einungis 1 stigi fyrir ofan fallsæti eftir tap í Lundúnaslag gegn Crystal Palace á heimavelli.
Enski boltinn - Hveitibrauðsdagarnir að baki 06.03.2026
Enski boltinn eftir 29. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Kári Snorra í Pepsi Max stúdíóinu. Arsenal styrkti stöðu sína með naumum 1-0 sigri gegn Brighton. Á meðan gerði Manchester City aðeins jafntefli gegn Nottingham Forest. Liverpool tapaði óvænt gegn Úlfunum, Manchester United tapaði loks undir stjórn Michael Carrick og vont verður verra hjá Tottenham sem nálgast...
Kjaftæðið - Tottenham-menn skíthræddir við fall 02.03.2026
Baldvin Borgars, Viktor Unnar og Goggarinn fóru yfir helgina.
Hugarburðarbolti GW 28 Markvörður með stálhönd. 02.03.2026
Arsenal eru áfram með 5 stiga forskot á toppi deildarinnar. Það var markasúpa í leikjum helgarinnar. Liverpool vann West Ham 5-2 á Anfield. Burnley tapaði 3-4 gegn Brentford eftir hetjulega baráttu. Man City unnu sterkan 0-1 sigur gegn góðum Leedsurum og Newcastle tapaði 2-3 heima gegn Everton. Þetta og allt hitt í þættinum.
Enski boltinn - Heimskur Neto, trylltur Sesko og Spurs í djúpum skít 02.03.2026
Það er spenna á öllum vígstöðum í ensku úrvalsdeildinni þessa stundina. Arsenal og Manchester City eru að berjast á toppnum, Meistaradeildarbaráttan er hörð og á hinum enda töflunnar eru nokkur lið í fallbaráttu. Er Tottenham versta lið deildarinnar þessa stundina? Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur og Kári Snorrason fóru yfir allt það helsta eftir umferðina.
Útvarpsþátturinn - Heimir og hættulegar aðstæður 28.02.2026
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net kemur tvíefldur til leiks. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta sem hefur verið í gangi í íslenska boltanum og rætt um landsleik Mexíkó og Íslands. Hanna Símonardóttir er á línunni. Gestur þáttarins er Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis. Víða er komið við í spjalli við hann.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.