Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Enski boltinn - Augnablikið sem allir eru að tala um 12.05.2026
Arsenal er með pálmann í höndunum þegar liðið á tvo leiki eftir í ensku úrvalsdeildinni. Núna þarf bara eitthvað ótrúlegt að gerast svo þeir verði ekki meistarar. Arsenal vann 0-1 sigur á West Ham um helgina þar sem einn stærsti VAR-dómur sögunnar leit dagsins ljós. Mikið var rætt um þetta í Enski boltinn hlaðvarpinu sem og um aðra leiki helgarinnar en það er barátta á flestöllum vígstöðum þegar l...
Uppbótartíminn - Grátlegt fyrir Val og slakir sóknarmenn 11.05.2026
Fjórðu umferð Bestu deildar kvenna er lokið og þá er kominn tími á nýjan Uppbótartíma til að fara yfir allt það helsta. Grátleg niðurstaða fyrir Val á Kópavogsvelli þar sem tvö mörk voru skoruð í uppbótartíma, frábærir nýliðar, slakir sóknarmenn og margt fleira til umræðu. Guðmundur Aðalsteinn stýrir þættinum og með honum eru Magnús Haukur Harðarson og Snæbjört Pálsdóttir. Þátturinn er í boði Atla...
Útvarpsþátturinn - Úrslitaleikur um starfið 09.05.2026
Sjötta umferðin í Bestu deildinni er aðalmálið í þessum þætti. Elvar Geir, Tómas Þór, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke gera upp leikina fimm í Bestu deildinni sem fóru fram á föstudagskvöld. Lengjudeildin fær einnig sitt pláss, Mjólkurbikarinn er framundan og í lok þáttar kíkjum við út fyrir landsteinana.
Besta spjallið - KR fer með himinskautum og martraðabyrjun FH 07.05.2026
Ragnar Bragi Sveinsson og Arnór Gauti Ragnarsson voru gestir í Besta spjallinu að þessu sinni. Í þættinum var farið yfir fyrsta mánuðinn í Bestu deildinni, staða liðanna rædd og helstu sögulínur teknar fyrir.
Uppbótartíminn - Geta Vestmannaeyingar leyft sér að dreyma? 06.05.2026
Þriðja umferðin í Bestu deild kvenna kláraðist í kvöld og þá er kominn tími á nýjan Uppbótartíma. Nýliðar ÍBV fóru á Hlíðarenda fóru á Hlíðarenda og tóku þar sigur, eru með fullt hús stiga og spurning hvort Vestmannaeyingar geti leyft sér að dreyma um toppbaráttu í sumar. Breiðablik er einnig með fullt hús stiga eftir sigur í Víkinni. Stjarnan missti sigurinn úr höndum sér á Akureyri, FH tók sinn...
Fótbolta nördinn: Undanúrslit - Njarðvík vs Fótbolti.net 06.05.2026
Seinni undanúrslitaþáttur Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Guðmundur Magnússon fyrir Njarðvík og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson fyrir Fótbolti.net. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni
Enski boltinn - Kobbie, Chelsea lúserar og Coventry fær sviðsljós 04.05.2026
Kobbie Mainoo var hetja Manchester United gegn Liverpool, Chelsea lét varalið Nottingham Forest flengja sig og Arsenal gerði afar vel í titilbaráttunni. Þá var Coventry sérstaklega mikið sviðsljós þennan þáttinn þar sem liðið er komið upp í ensku úrvalsdeildina eftir meira en 20 ár í burtu. Arnar Sæberg, Hemúllinn, er gestur í þættinum en hann er mikill Coventry stuðningsmaður. Guðmundur Aðalstein...
Harkið - Draugamark á Dalvík 04.05.2026
Harkið fór yfir stærstu atvikin í fyrstu umferð 2. og 3. deildar karla. Ásamt því var farið yfir helstu félagaskiptin og val á leikmanni umferðarinnar í báðum deildum. - Yfirferð yfir 3. deild 3:30 - Yfirferð yfir 2. deild 31:30 - Spá fyrir næstu umferð 01:22 Harkið er í boði Serrano. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
Innkastið - Hemmi svarar og Stjörnuhrap 03.05.2026
Innkastið eftir 5. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Almarr Ormarsson. Tveir rosalegir grannaslagir á laugardegi, Blikar fóru með þrjú stig heim með þyrlunni, ótrúlegur leikur í Kaplakrika, ÍA vann Stjörnuna og Víkingur vann Keflavík. Hermann Hreiðarsson tjáir sig um lætin í göngunum og Tryggvi Guðmundsson er í beinni frá Eyjum.
Útvarpsþátturinn - Maður mánaðarins og gluggadómar 02.05.2026
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 2. maí. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Umferðin framundan í Bestu deildinni er skoðuð og sérstaklega hitað upp fyrir toppslag Vals og KR. Rætt er við Aron Sigurðarson, leikmann KR, sem hefur verið valinn leikmaður mánaðarins fyrir aprílmánuð. Glugganum hefur verið lokað og stærstu kaupin eru skoðuð og dæmd. Lengjudeildin og Meistaradeildin koma e...
Uppbótartíminn - Sögulegur sigur og viðvörunarbjöllur hringja í Hafnarfirði 01.05.2026
Önnur umferð Bestu deildar kvenna er að baki og þá er kominn tími á nýjan Uppbótartíma. Það eru tvö lið með fullt hús stiga, Grindavík/Njarðvík vann heldur betur sögulegan sigur en í Hafnarfirðinum eru viðvörunarbjöllur farnar að hringja. Magnús Haukur Harðarson og Arnar Páll Garðarsson fóru yfir allt það helsta. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.
Hugarburðarbolti GW 34 Var Egypski kóngurinn að spila sinn síðasta leik? 28.04.2026
Rosaleg spenna á toppi sem botni úrvalsdeildarinnar. Fórum yfir alla umferðina. Top 3 og Rauða spjaldið á sínum stað.
Harkið - Maraþon upphitun fyrir 2. og 3. deild 28.04.2026
Harkið er nýr hlaðvarpsþáttur sem fjallar um 2. og 3. deild karla. Þátturinn kemur út vikulega þar sem farið verður yfir úrslit og hápunkta eftir hverja umferð. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson. Í þessum fyrsta þætti er hitað rækilega upp fyrir 2. og 3. deild karla. Farið var yfir hvert lið fyrir sig og spáð í spilin. - Byrjað var á upphitun fyrir 3. deild - 2. dei...
Uppbótartíminn - Féllu á eigið sverð og umræðu svarað 28.04.2026
Besta deild kvenna er farin af stað og var mikið að ræða eftir fyrstu umferðina. Nýliðar í Grindavík/Njarðvík voru betri aðilinn gegn Val á Hlíðarenda en fóru tómhentar heim, leikmenn svöruðu umræðu úr upphitunarþættinum, Breiðablik með meistarasigur, nöfnurnar byrjuðu vel í ÍBV og jafntefli var niðurstaðan fyrir norðan. Þá mættu Magnús Haukur Harðarson og Arnar Páll Garðarsson með áhugaverða heim...
Enski boltinn - Hvað er hægt að segja um Liam Rosenior? 28.04.2026
Liam Rosenior er búinn að kveðja Chelsea eftir stuttan en eftirminnilegan tíma hjá félaginu. Hvað næst hjá Lundúnafélaginu? Hvað næst hjá Rosenior? Guðmundur Aðalsteinn settist niður með Magnúsi Hauki Harðarsyni og Haraldi Erni Haraldssyni og fór yfir það, ásamt öllu því helsta sem hefur gerst í enska boltanum upp á síðkastið.
Innkastið - Gulir en alls ekki glaðir 27.04.2026
Elvar Geir, Valur Gunnars og Tómas Þór í Innkastinu eftir 4. umferð Bestu deildarinnar. Valur hefur unnið þrjá leiki í röð, KR heldur áfram á skriði en frammistaða ÍA, KA og ÍBV í umferðinni var heldur betur slöpp.
Útvarpsþátturinn - Öflugri en nokkru sinni fyrr 25.04.2026
Lengjudeildin er öflugri en nokkru sinni fyrr og hún fær stóra sviðið í útvarpsþættinum þessa vikuna. Deildin er farin af stað; farið er yfir spá þjálfara og fyrirliða og rýnt í vonir og væntingar. Í þættinum er einnig hitað upp fyrir komandi umferð í Bestu deildinni. Elvar Geir, Baldvin Borgars og Benedikt Bóas í hljóðveri.
Niðurtalningin - Þriðja árið í röð? 24.04.2026
Því er spáð að Breiðabliki verði Íslandsmeistari þriðja árið. Þær eru að koma inn í nýtt tímabil sem tvöfaldir meistarar en þó hafa orðið miklar breytingar á hópnum og teyminu í kringum liðið. Agla María Albertsdóttir og Kristín Dís Árnadóttir, leikmenn liðsins, komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og fóru yfir allt það helsta tengt Blikaliðinu.
Niðurtalningin - Síðasta skrefið í tröppunum 24.04.2026
Það er komið að því, Besta deild kvenna fer af stað í kvöld. FH er spáð öðru sæti deildarinnar. Guðni Eiríksson, þjálfari liðsins, og Katla María Þórðardóttir, fyrirliði, komu í spjall á skrifstofu Fótbolta.net og ræddu um ýmislegt tengt liðinu.
Uppbótartíminn - Gummi, Maggi Hödd, Snæbjört og Arnar Páll rýna í liðin 24.04.2026
Besta deild kvenna fer af stað í kvöld með látum. Til þess að hita upp þá gerði Fótbolti.net stóran upphitunarþátt með góðum gestum. Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson stýrði umræðunni en sérfræðingar með honum voru Snæbjört Pálsdóttir, Arnar Páll Garðarsson og Magnús Haukur Harðarson.
Innkastið - Mega skammast sín og gera það 23.04.2026
Innkastið eftir 3. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn. Víkingur vann stórleikinn, Valsmenn sannfærandi, baráttusigur Þórs, KR rúllaði yfir ÍBV, ÍA og KA er enn án sigurs og bitlausir Blikar gerðu markalaust jafntefli gegn Keflavík.
Niðurtalningin - Langar að upplifa það aftur í Víkinni 23.04.2026
Það er komið að liðinu sem spáð er þriðja sæti í Bestu deild kvenna sumar, Víkingur Reykjavík. Einar Guðnason, þjálfari Víkinga, og Emma Steinsen, leikmaður liðsins, komu við á skrifstofu Fótbolta.net og ræddu um sumarið sem er framundan.
Fótbolta nördinn: Undanúrslit - Draumaliðið vs 433 22.04.2026
Fyrri undanúrslitaþáttur Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Jóhann Skúli Jónsson fyrir Draumaliðið og Helgi Fannar Sigurðsson fyrir 433. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni
Hugarburðarbolti GW 33 Er eitt ríkasta félagslið í heimi að falla? 21.04.2026
Fórum yfir 33 umferð deildarinnar þrátt fyrir 3 óspilaða leiki. Stórleikur umferðarinnar Man City gegn Arsenal stóðst allar væntingar og meira til.
Niðurtalningin - Mun Stjarnan skína bjart í sumar? 21.04.2026
Við höldum áfram að telja niður fyrir Bestu deild kvenna. Veislan fer af stað á föstudag. Núna er komið að liðinu sem er spáð fjórða sæti. Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, og Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir, lykilkona liðsins, mættu í hljóðver og fóru yfir stöðuna.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.