Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

HM hringborðið - Línurnar lagðar fyrir komandi átök 10.06.2026

HM hringborðið hefur hafið göngu sína þetta árið og hefur leik á sérstökum upphitunarþætti þar sem farið var yfir helstu lið og spáð í spilin. Sérstakir gestir eru Anton Logi Lúðvíksson, leikmaður Breiðabliks, og Ari Sigurpálsson, leikmaður Elfsborg.

Uppbótartíminn - Rúst í Laugardal, lið fá einkunnir og Sara komin heim 10.06.2026

Uppbótartíminn heilsar í hljóð og mynd að þessu sinni en Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll Garðarsson og Magnús Haukur Harðarson komu sér fyrir í Coke stúdíóinu eftir 1-6 tap Íslands gegn heimsmeisturum Spánar í undankeppni HM í kvöld. Rætt var um þetta rúst á Laugardalsvelli í byrjun þáttarins í kvöld og farið yfir framhaldið hjá landsliðinu. Svo var farið yfir í Bestu deildina og staðan tekin eft...

Harkið - Jón Daði mættur aftur! 08.06.2026

Harkið fór yfir stærstu atvikin í sjöttu umferð 2. og 3. deildar karla. Ásamt því var farið yfir drauma tengdafeður og val á leikmanni umferðarinnar í báðum deildum. - Uppgjör 3 deildar - 05:30 - Uppgjör 2 deildar - 34:00 - Leikmaður umferðarinnar og spá - 01:07 Harkið er í boði Serrano. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.

Besta spjallið - Máni Péturs fer yfir stöðuna í Garðabæ 05.06.2026

Þorkell Máni Pétursson og Magnús Haukur Harðarson voru gestir í Besta spjallinu að þessu sinni. Í þættinum var farið yfir maímánuð í Bestu deildinni og væntanlegar vendingar. Hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni í spilaranum hér að ofan eða á YouTube. Einnig má hlusta á hann á öllum helstu hlaðvarpsveitum. <iframe width="560" height="315" src="https://www.youtube.com/embed/s3Gain7OFSs?si=aJ...

Útvarpsþátturinn - Arnór Ingvi og HM að hefjast 05.06.2026

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpi þessa vikuna. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrsta hluta þáttarins er fjallað um íslenska boltann, val á leikmanni mánaðarins og ýmislegt fleira. Í öðrum hlutanum kemur Arnór Ingvi Traustason, leikmaður KR og fyrrum landsliðsmaður, í heimsókn. Í síðasta hlutanum er svo hitað upp fyrir HM sem hefst á fimmtudaginn. Hverjir eru líklegir ti...

Harkið - Hiti í Vogunum 02.06.2026

Harkið fór yfir stærstu atvikin í fimmtu umferð 2. og 3. deildar karla. Ásamt því var farið yfir drauma tengdasyni og val á leikmanni umferðarinnar í báðum deildum. - Uppgjör 3 deildar - 06:00 - Uppgjör 2 deildar - 30:00 - Leikmaður umferðarinnar og spá - 01:07 - Gatorade bikarinn - 01:17 Harkið er í boði Serrano. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.

Uppbótartíminn - Allt var það eftir bókinni 01.06.2026

Sjöundu umferð Bestu deildar kvenna er lokið og er kominn tími á nýjan Uppbótartíma. Arnar Páll Garðarsson, Magnús Haukur Harðarson og Snæbjört Pálsdóttir komu saman til að fara yfir leikina. Einnig er snert á landsliðinu sem er að koma saman fyrir mikilvægan leik gegn Úkraínu í undankeppni HM. Þátturinn er í boði Atlantsolíu og Coke.

Innkastið - Farið yfir geggjaða umferð með Gulla Jóns 31.05.2026

9. umferð Bestu deildarinnar gerð upp. Elvar Geir Magnússon og Valur Gunnarsson og sérstakur gestur Gunnlaugur Jónsson.

Útvarpsþátturinn - Slot rekinn og þrjú lið í Bestu í lagi 30.05.2026

Í þætti dagsins er íslenski boltinn aðalmálið en þátturinn hefst hinsvegar á stóru tíðindunum sem voru að berast. Arne Slot er farinn frá Liverpool. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Gestasérfræðingur: Baldvin Borgarsson. Rýnt í leiki vikunnar í Bestu deildinni og helstu fréttir skoðaðar. Spáð í næstu leiki og einnig er fjallað um Lengjudeildina. Þá er að sjálfsögðu rætt um úrslitaleik Meistaradeil...

Hugarburðarbolti GW Uppgjörið með Villa Neto og Tönju Sif 28.05.2026

Villi Neto og Tanja Sif komu til okkar og við gerðum upp tímabilið. Lið tímabilsins valið og besti leikmaðurinn auðvitað. Við þökkum ykkur fyrir tímabilið kæru hlustendur.

Harkið X Ásgeir Frank 28.05.2026

Harkið fór yfir stærstu atvikin í fjórðu umferð 2. og 3. deildar karla. Ásamt því var farið yfir flottustu treyjurnar í 2 deild og val á leikmanni umferðarinnar í báðum deildum. Sérstakur gestur var Ásgeir Frank Ásgeirsson, aðstoðarþjálfari Fjölnis. - Uppgjör 3 deildar - 07:00 - Uppgjör 2 deildar - 37:00 - Q&A, leikmaður umferðarinnar og spá - 0:11 - Gatorade bikarinn - 01:28 Þáttastjórnendur eru...

Enski boltinn - Verðlaun fyrir tímabilið 25.05.2026

Ensku úrvalsdeildinni 2025/26 er formlega lokið. Arsenal er meistari, Sunderland og Bournemouth komust í Evrópudeildina og Tottenham náðu að halda sér uppi. Í lokaþætti tímabilsins af Enski boltinn hlaðvarpinu voru ýmis verðlaun gefin, svo sem lið ársins, leikmaður ársins, besti stjórinn og versti stjórinn. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur sjá um þáttinn sem er í boði Coke.

Uppbótartíminn - Algjör sigur fyrir þessa deild 25.05.2026

Það er komið að nýjum Uppbótartíma eftir sjöttu umferðina í Bestu deild kvenna. Breiðablik og FH buðu upp á stórskemmtilegan leik þar sem stórkostlegt málefni var styrkt. Það mættu rúmlega 1200 áhorfendur á leikinn sem fengu frábæran fótboltaleik. Jafnt í nýliðaslagnum, Stjarnan og Valur með sterka útisigra og staðan er ekki góð fyrir norðan. Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll Garðarsson og Magnús H...

Hugarburðarbolti GW 38 Sigurvegarinn krýndur! 25.05.2026

Lokaumferðin og Englandsbikarinn fór á loft. Ræddum umferðina og sigurvegarinn var krýndur!

Útvarpsþátturinn - Blikar kveikja á sér en rýr uppskera á Akranesi 23.05.2026

Áttunda umferð Bestu deildarinnar er aðalmálið í þættinum. Elvar Geir og Valur Gunnars eru í hljóðveri og sérstakir gestasérfræðingar frá Akranesi mæta; Sverrir Mar Smárason og Andri Júlíusson. Kári Snorrason og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson gefa skýrslur úr tveimur leikjum. Einnig er fjallað um Lengjudeildina í þættinum og Daníel Geir Moritz, stuðningsmaður Arsenal, velur úrvalslið tímabilsins...

Enski boltinn - Eftir 22 ár af sársauka 21.05.2026

Arsenal er Englandsmeistari 2026. Eftir 22 ár af sársauka er Englandsmeistarabikarinn aftur mættur til Norður-London. Stuðningsmenn Arsenal eru í skýjunum og tveir þeirra mættu á skrifstofu Fótbolta.net í kvöld til að fara yfir þetta allt saman. Einnig var rætt um brottför Pep Guardiola frá Manchester City, Xabi Alonso til Chelsea, fallbaráttuna, Spygate og margt fleira. Guðmundur Aðalsteinn stýri...

Uppbótartíminn - Bæði lið áttu núll stig skilið 21.05.2026

Fimmta umferð Bestu deildar kvenna fór fram í heild sinni í kvöld. Breiðablik er áfram með fullt hús stiga og Þór/KA er í vandræðum, FH var fyrsta liðið til að taka stig af ÍBV, Valur og Fram gerðu markalaust jafntefli í tíðindalitlum leik, Þróttur vann útisigur í Víkinni og jafntefli var niðurstaðan í Njarðvík. Guðmundur Aðalsteinn, Arnar Páll og Snæbjört fóru yfir þessa leiki og allt það helsta...

Hugarburðarbolti GW 37 Arsenal er Englandsmeistari eftir 22 ára bið 20.05.2026

Arsenal er Englandsmeistari eftir 22 ára bið. Bournemouth og Man. City gerðu 1-1 jafntefli á Suðurströndinni. Þetta og allt hitt í þætti kvöldsins með frábærum gestum í setti.

Harkið - Króksarar með fullt hús 18.05.2026

Harkið fór yfir stærstu atvikin í þriðju umferð 2. og 3. deildar karla. Ásamt því var farið yfir flottustu treyjurnar í 3. deild og val á leikmanni umferðarinnar í báðum deildum. - Uppgjör 3. deildar og flottustu treyjur: 3 mín - Uppgjör 2. deildar: 34 mín - Leikmaður umferðarinnar og spá: 57 mín Harkið er í boði Serrano. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.

Innkastið - Vafasöm vegferð 17.05.2026

Innkastið eftir 7. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Maggi Hödd. KR og Fram gerðu jafntefli, Valur vann Breiðablik, FH tapaði fyrir KA, Víkingur vann ÍBV, Þór tapaði fyrir ÍA og jafntefli varð niðurstaðan í leik Keflavíkur og Stjörnunnar.

Útvarpsþátturinn - Bikarskellir og Ágúst Orri 16.05.2026

Elvar Geir, Tómas Þór og Kári Snorra í hljóðveri. Í fyrri hluta þáttarins er farið yfir bikarvikuna, næstu umferð í Bestu, fréttir vikunnar og fleira. Ágúst Orri Þorsteinsson, leikmaður Breiðabliks, er gestur í seinni hálfleiknum.

Fótbolta nördinn: Úrslit - Fótbolti.net vs Draumaliðið 14.05.2026

Úrslitaþáttur Fótbolta nördans, en þátturinn var upphaflega í beinni útsendingu þann 12. maí. Í þættinum eigast við Jóhann Skúli Jónsson fyrir Draumaliðið og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson fyrir Fótbolti.net. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni.

Harkið - Haukavélin byrjuð að malla 12.05.2026

Harkið fór yfir stærstu atvikin í 2 umferð 2. og 3. deildar karla. Ásamt því var farið yfir helstu félagaskiptin, bestu stuðningsmannalögin og val á leikmanni umferðarinnar í báðum deildum. - 3. deild: 5 mín - 2. deild: 33 mín Harkið er í boði Serrano. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.

Hugarburðarbolti GW 36 VAR tæknin fær tvö rauð spjöld! 12.05.2026

Arsenal í dauðafæri á fyrsta Englandsmeistaratitlinum í 22 ár eftir leiki helgarinnar. Fórum vel yfir stóru málin og GW36. Sigurvegarinn kemur inn á FB síðu Hugarburðarbolta.

Upphitunarþáttur Mjólkurbikarsins - Heimir mætir FH og Jökull á síðasta séns? 12.05.2026

16-liða úrslit Mjólkurbikarsins fara fram á miðvikudag og fimmtudag. Kári Snorrason og Almarr Ormarsson hituðu upp fyrir leikina átta. Rýnt var í hvern leik fyrir sig og spáð í spilin.

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.