Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Ástríðan 16. umferð - 2. deild er þvæla og óvænt úrslit í 3. deild 15.08.2023
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva hittust og fóru yfir 16. umferð í 2. og 3. deild karla. í 2.deild hafa engar línur skýrst ennþá en þær eru töluvert skýrari í 3.deild. Ástríðan í í boði Bola Léttöl, Jako Sport, Unroken og ICE nikótínlausra púða.
Tiltalið: Eyþór Aron Wöhler 14.08.2023
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson.
Innkastið - Keppt á botninum um að vera minnst lélegir 14.08.2023
Innkastið eftir 19. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars. Allt verður að gulli í Fossvoginum og forysta Víkings eykst, uppgjöf hjá HK fyrir leik, Valsmenn á lágu plani, furðulegur fótboltaleikur á Akureyri, KR og FH með mikilvæga sigra, ÍA gæti farið á topp Lengjudeildarinnar á næstu vikum.
Heimavöllurinn: Bikarmeistarar í heimsókn 14.08.2023
Eins og þjóðin veit urðu Víkingar bikarmeistarar í kvennaflokki í fyrsta sinn í sögunni sl. föstudag. Víkingarnir og bikarmeistararnir Nadía Atladóttir, fyrirliði, og Erna Guðrún Magnúsdóttir kíktu í heimsókn á Heimavöllinn og fóru yfir bikarævintýrið ótrúlega. Þátturinn er í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.
Útvarpsþátturinn - Beygja í Keflavík, Evrópuskellur og enski farinn í gang 12.08.2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 12. ágúst. Umsjón: Elvar Geir og Benedikt Bóas. Í fyrri hlutanum er farið yfir Bestu deildina og fréttirnar þaðan, Evrópuleikina og Lengjudeildina með Magnúsi Þóri Matthíassyni fyrrum leikmanni Keflavíkur og lýsanda á Stöð 2 Sport. Í seinni hlutanum eru það bikarúrslit kvenna með Prettyboitjokko og enski boltinn með Tom og Kára Kongó.
Heimavöllurinn: Sögulegt og sannfærandi hjá stórkostlegum Víkingum 12.08.2023
Sagan var skrifuð á Laugardalsvelli í gær og það var hreint ótrúleg stemmning á Þjóðarleikvanginum þegar Víkingar urðu bikarmeistarar í fyrsta skipti. Þetta var jafnframt í fyrsta sinn sem að lið úr 1. deild vinnur bikarinn. Magnað afrek sem þarf að ræða og á Heimavöllinn eru komnir þeir Guðmundur Aðalsteinn og Jón Stefán Jónsson sem ætla jafnframt að fara yfir gang mála í Bestu deildinni. Að sjál...
Enski boltinn - Spjallað um Liverpool og leitina að varnartengiliðnum 11.08.2023
Enska úrvalsdeildin hefst í kvöld þegar nýliðar Burnley mæta Englandsmeisturum Manchester City. Síðustu daga höfum við hitað upp fyrir deildina með því að fá stuðningsmenn 'topp sex' liðanna í spjall og í dag er komið að Liverpool sem á ansi stóran aðdáendahóp hér á landi. Hrafn Kristjánsson og Magnús Haukur Harðarson komu í heimsókn til að ræða sitt félag. Það hefur mikið gengið á hjá Liverpool í...
Ástríðan 15. umferð - KFA, Reynir og Kormákur/Hvöt upp um deild 10.08.2023
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu ferskir eftir Versló og fóru yfir umferðirnar sem fóru fram fyrir helgina og líka 8-liða úrslit í .net bikarnum. Ástríðan er í boði Bola Léttöl, Jakosport, Unbroken og ICE nikótínlausra púða.
Innkastið - Jólasveinar og spjót beinast að markvörðum 09.08.2023
18. umferð Bestu deildarinnar, Lengjudeildin, Evrópuverkefnin og Fótbolti.net bikarinn. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars fara yfir málin í Innkastinu. Arnar kallaði dómarana jólasveina og fékk rautt, Raggi Sig náði í stig, Jajalo í ruglinu gegn Val, KR vann Blika í veisluleik og Stjarnan mun betri en ÍBV í Þjóðhátíðarleiknum.
Enski boltinn - Hafa báðir haldið með City í meira en hálfa öld 09.08.2023
Við á Fótbolti.net höldum áfram að hita upp fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst á föstudaginn. Í dag fengum við tvo Manchester City menn í heimsókn, þá Magnús Ingvason og Sigurð Helgason. Þeir hafa báðir haldið með Manchester City í meira en 50 ár, meira en hálfa öld. Magnús byrjaði að halda með City 1968, ári eftir að liðið varð þá Englandsmeistari. Sigurður útskýrir það í þættinum af hverju han...
Enski boltinn - Spá Chelsea í topp fjóra eftir ruglið á síðustu leiktíð 08.08.2023
Við á Fótbolti.net höldum áfram að hita upp fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst á föstudaginn. Í dag er komið að því að ræða við tvo Chelsea menn, þá Harald Örn Haraldsson og Stefán Martein Ólafsson. Síðasta tímabil var erfitt hjá Chelsea og sumarið hefur verið kostulegt þar sem fjöldi leikmanna hefur farið og margir nýir hafa komið inn. Þetta getur ekki verið verra en á síðustu leiktíð. Chelsea...
Enski boltinn - Hrein norðlenska Vol. 2 07.08.2023
Þeir eru mættir aftur! Bræðurnir Hallgrímur Mar og Hrannar Björn hita upp með Sæbirni Steinke fyrir komandi tímabil hjá Manchester United. Fótbolti.net heldur áfram að hita upp fyrir tímabilið í ensku úrvalsdeildinni sem hefst um næstu helgi og fer fyrsti leikur Man Utd fram næsta mánudagskvöld. Rætt var um fyrsta tímabil hjá United undir stjórn Ten Hag, nýju leikmennina, snert á flestum leikmönnu...
Útvarpsþátturinn - Á ferð og flugi um verslunarmannahelgina 05.08.2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net í verslunarmannahelgargírnum laugardaginn 5. ágúst. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas taka púlsinn á fólki um allt land og erlendis líka, skoða umferðina með Palla og ræða um fótbolta. Evrópuleikirnir, Besta deildin, Lengjudeildin, Fótbolti.net bikarinn, enski boltinn og fleira. Arnar Laufdal gefur skýrslu úr brekkunni. Hvaða leikmenn eru í Eyjum? Unnar Ari Hanss...
Enski boltinn - Gunni Birgis og Jón Kári ganga um í draumalandi Arteta 03.08.2023
Við á Fótbolti.net höldum áfram með upphitun okkar fyrir ensku úrvalsdeildina sem hefst um þarnæstu helgi. Í dag er komið að því að ræða Arsenal og fengum við því tvo af þeirra ástríðufyllstu stuðningsmönnum til þess að ræða málin, þá Gunnar Birgisson og Jón Kára Eldon. Farið er yfir síðasta tímabil þar sem liðið endaði í öðru sæti, leikmannagluggann áhugaverða í sumar og væntingarnar fyrir tímabi...
Innkastið - Valur rústaði KR aftur og Hemmi fer stoltur á Þjóðhátíð 01.08.2023
Guðmundur Aðalsteinn, Sæbjörn Steinke og Andri Már Eggertsson, betur þekktur sem Nablinn, eru saman í Innkasti vikunnar. Valur er hefur unnið KR samanlagt 9-0 í tveimur leikjum á þessu tímabili, FH fékk þrjá nýja leikmenn, þjálfari ÍBV var stoltur þrátt fyrir stórt tap og Breiðablik missir af titilbaráttunni. Þá var rætt um þjálfaraleitir hjá Fram og Grindavík, og aðeins um síðustu umferð í Lengju...
Ástríðan 14. umferð - KFA eina taplausa liðið og Eldur í Húnaþingi 01.08.2023
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva hittust til þess að ræða það sem fram fór í 14. umferð. Ástríðan er í boði Bola Léttöl, JakoSport, Unbroken og ICE nikótínlausra púða.
Enski boltinn - Aldrei venjuleg vika hjá Tottenham 31.07.2023
Það styttist í að enska úrvalsdeildin fari af stað en hún hefst ekki um næstu helgi, heldur þar næstu. Við á Fótbolti.net erum byrjuð að hita upp fyrir tímabilið sem er framundan. Spáin hófst fyrr í dag en við ætlum líka að fá stuðningsmenn 'topp sex' liðanna í Thule stúdíóið til að fara yfir málin. Við byrjum á Tottenham en Hörður Ágústsson og Ingimar Helgi Finnsson, lita flugvélin, komu við á sk...
Útvarpsþátturinn - Lausir úr banni og brottrekstur í Úlfarsárdal 29.07.2023
Útvarpsþátturinn 29. júlí. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar, Bestu deildina og Davíð Þór Viðarsson er á línunni en búið er að aflétta félagaskiptabanni FH. Stefán Pálsson ræðir um þjálfaraskiptin hjá Fram og Kristján Atli ræðir um Liverpool gluggann og nýja tíma í Sádi-Arabíu.
Hlynur Atli: Þungbært, maður vill ekki upplifa svona 28.07.2023
Fótbolti.net ræddi við Hlyn Atla Magnússon, fyrirliða Fram, og spurði hann út í tíðindi gærdagsins þegar tilkynnt var að Jón Sveinsson hefði verið látinn fara sem þjálfari liðsins. Hlynur ræddi tíðindin og gengi Fram í síðustu leikjum. Tekur maður það mikið inn á sig að þjálfari sé látinn fara? Fram er í næstneðsta sæti Bestu deildarinnar eftir sautján spilaða leiki. Næsti leikur Fram er eftir tæp...
Tiltalið: Sindri Kristinn Ólafsson 26.07.2023
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson. Viðmælandi okkar að þessu sinni er markvörður FH í Bestu deild karla Sindri Kristinn Ólafsson. Við ræddum við hannum hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum...
Innkastið - Dýrkeypt mistök og sjóðheitt sæti 25.07.2023
Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars í Innkasti vikunnar. Valur horfði á FCK spila gegn Lyngby um helgina og fylgdi liðinu svo til landsins þar sem dönsku meistararnir unnu Breiðablik 2-0 á Kópavogsvelli. Sá leikur er gerður upp, 16. umferð Bestu deildarinnar að auki og þá hitnaði þjálfarasæti Grindavíkur í Lengjudeildinni umtalsvert í kvöld.
Heimavöllurinn: Landi og þjóð til sóma í Belgíu 25.07.2023
Stelpurnar okkar í U19 voru landi og þjóð til sóma í lokakeppni EM en þær eru því miður úr leik. HM hinum megin á hnettinum er farið af stað og ýmis áhugaverð úrslit hafa litið dagsins ljós. Þá er Besta deildin farin að banka á nýjan leik og framundan gríðarlega spenna. Þau Guðrún Jóna Kristjánsdóttir og Guðmundur Ásgeir Aðalsteinsson mæta á Heimavöllinn og fara yfir málin.
Ástríðan 12. og 13. umferð - Sérstakur þáttur, afsakið fríið 24.07.2023
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu aftur eftir frí og fóru yfir liðna leiki. Allt í boði Bola Léttöl, Jako Sport, Unbroken og ICE nikótínlausra púða.
Enski boltinn - Félagaskipti og undirbúningstímabilið 24.07.2023
Það eru rétt tæplega þrjár vikur í að enska úrvalsdeildin fari af stað á nýjan leik. Það er margt búið að gerast í sumar á félagaskiptamarkaðnum. Því ákváðu Gummi og Steinke að setjast niður í Thule hljóðverinu og fara yfir það sem hefur skeð síðustu vikurnar. Declan Rice er dýrasti leikmaður sem enskt félag hefur keypt, Mason Mount er farinn til Manchester United frá Chelsea og Liverpoool keypti...
Útvarpsþátturinn - Evrópudraumar deyja og lifa, stuð í Lyngby og nýjasti bikarinn 22.07.2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 22. júlí. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir fótboltavikuna, Evrópuleikina, Bestu deildina og Lengjudeildina. Valur Gunnars í beinni frá Kóngsins Lyngby og Baldvin Borgars gerir upp leiki Fótbolti.net bikarsins.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.