Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Heimavöllurinn: Áfram Ísland og HM að hefjast 19.07.2023
HM hefst í fyrramálið og Adda Baldursdóttir mætir á Heimavöllinn og hitar upp fyrir mótið. Þá er auðvitað einnig rætt um vináttuleikina tvo sem landsliðið okkar var að spila sem og leik U19 ára landsliðsins okkar í lokakeppni EM. Þátturinn er sem fyrr í boði Dominos og Orku Náttúrunnar.
Innkastið - Setið í súpunni, Parken bíður og bestir í Lengjudeildinni 19.07.2023
Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn í Innkasti vikunnar í Thule stúdíóinu. Þorsteinn Haukur kemur með skýrslu úr Vesturbænum. Evrópuleikirnir, 15. umferðin í Bestu og úrvalslið tímabilsins til þessa í Lengjudeildinni. Parken bíður eftir Blikum, KR-ingar sátu í súpunni en unnu samt mikilvægan sigur gegn FH, Kjartan Henry vildi ekki viðurkenningu, gæðaleysi í Árbænum og Eyjum, Stjarn...
Skagamenn gríðarlega stoltir af Hákoni - Hvað verður um peninginn? 18.07.2023
Formaður ÍA, Eggert Hjelm Herbertsson, ræddi við Fótbolta.net í dag. Skagamaðurinn Hákon Arnar Haraldsson var í gær seldur frá FC Kaupmannahöfn til Lille í Frakklandi. Fjallað hefur verið um það í fjölmiðlum að ÍA fái um 20% af söluverðinu og að söluverðið hafi verið 17 milljónir evra þegar allar árangurstengdar greiðslur eru reiknaðar með. Ef það er rétt kaupverð er Hákon bæði næstdýrasti leikmað...
Leiðin á Laugardalsvöll - Spjaldaregn í kortunum 17.07.2023
Á miðvikudag verða 16-liða úrslit Fótbolti.net bikarsins, bikarkeppni neðri deilda. Í þættinum er hitað upp fyrir leikina. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Arnar Laufdal spá í spilin í Thule stúdíónu og þá er Brynjar Kristmundsson, þjálfari Víkings Ólafsvík, á línunni en Ólsarar tróna á toppi 2. deildarinnar.
Tiltalið: Eggert Aron Guðmundsson 17.07.2023
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson. Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Stjörnunnar og U-19 landsliðs Íslands, Eggert Aron Guðmundsson. Við ræddum við hannum hina hliðina og tókum létta yfirfe...
Útvarpsþátturinn - Spennuleikir, heit sæti, slúður og félagaskiptabann 15.07.2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 15. júlí. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars sitja við hringborðið og gera upp fótboltavikuna. Íslensk lið í Evrópu, Besta deildin, Lengjudeildin og U19 á EM. Fréttir vikunnar og nóg af slúðri nú þegar félagaskiptaglugginn fer að opna. Einn með öllu.
Heimavöllurinn: Sólstingur og sumarfrí? 11.07.2023
13. umferð Bestu deildarinnar er lokið og við tekur pása frá deildinni. Knattspyrnuáhugafólk þarf þó ekki að örvænta því framundan eru meðal annars spennandi landsliðsverkefni. Þau Jón Stefán Jónsson og Lilja Dögg Valþórsdóttir mæta og fara yfir málin í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.
Ástríðan 11. umferð - Lið fyrri umferðar og stóru spurningarnar 11.07.2023
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva settust niður og fóru yfir 11. umferð, völdu lið fyrri umferðar og svöruðu stóru spurningunum í 2. og 3. deild karla. Ástríðan er í boði Bola Léttöl, Jakosport, Unbroken og ICE nikótínlausra púða.
Innkastið - Dýfuæði og hrikaleg mörk að fá á sig 10.07.2023
Elvar Geir og Sæbjörn Steinke gera upp leiki helgarinnar og skoða hvað er framundan í vikunni. Með þeim er Runólfur Trausti, fréttamaður á Vísi og markvarðaþjálfari yngri flokka FC Kaupmannahafnar. Farið er yfir Bestu deildina, Lengjudeildina og Evrópuleikina. Þá er hringt í Guðmund Aðalstein Ásgeirsson, fréttamann Fótbolta.net, sem er á Möltu að fylgast með íslenska U19 liðinu á EM.
Útvarpsþátturinn - Boltavikan, bensín fyrir KA og gluggi Man Utd 08.07.2023
Fótboltavikan er gerð upp í útvarpsþættinum Fótbolti.net. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið er yfir leiki síðustu daga með Sverri Erni Einarssyni fréttamanni .Net. Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA er á línunni en Akureyrarliðið vann sigur gegn Breiðabliki í rosalegum undanúrslitaleik í bikarnum og er að fara í Evrópuverkefni. Skoðuð eru stærstu tíðindi félagaskiptagluggans í Evrópu og Tryg...
Ástríðan 10. umferð - Írskir dagar og Ólafsvaka 04.07.2023
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu og fóru yfir leikinn sem þeir mættust í ásamt öllum hinum leikjunum í 2. og 3.deild. Ástríðan er í boði Bola Léttöl, Unbroken, JakoSport og ICE nikótínlausra púða.
Tiltalið: Arnór Ingvi Traustason 03.07.2023
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson. Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður IFK Norrköping og landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð...
Heimavöllurinn: Davíð, Golíat og stöppuð stúka 02.07.2023
Eftir dramatíska undanúrslitaleiki er ljóst að Breiðablik og Víkingur munu leika til úrslita í Mjólkurbikarnum þetta árið. Þá eru óvæntar fréttir úr Lengjudeildinni og toppbaráttan í 2. deild rosaleg. Þær Elíza Gígja Ómarsdóttir og Lilja Dögg Valþórsdóttir mæta og fara yfir málin í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.
Útvarpsþátturinn - Tíðindamikil vika í íslenska boltanum 01.07.2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 1. júlí. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars fara yfir allt það helsta sem er í gangi í íslenska boltanum. Leikir vikunnar í Bestu deildinni og Lengjudeildinni eru gerðir upp og rætt um Evrópuverkefni Breiðabliks. Stefán Ingi er búinn að kveðja Bestu deildina en Aron Elís Þrándarson er er mættur.
U19 á EM - Tveir lykilmenn í spjalli áður en haldið er til Möltu 28.06.2023
Ísland er ein af átta þjóðum sem tekur þátt á Evrópumóti U19 landsliða karla í sumar. Það styttist heldur betur í mótið, sem fer fram á Möltu. Strákarnir halda út á föstudaginn og leika sinn fyrsta leik - gegn Spáni - næsta þriðjudag. Fyrst það er svona stutt í mótið þá fengum við Hlyn Frey Karlsson, leikmann Vals, og Loga Hrafn Róbertsson, leikmann FH, í spjall um vegferð liðsins að lokakeppni Ev...
Heimavöllurinn: Magga Magg og U19 á EM 27.06.2023
Margrét Magnúsdóttir, þjálfari U19 ára landslið Íslands, kíkti við á Heimavellinum og tók gott spjall um EM ævintýrið sem er framundan. Margrét tilkynnti leikmannahóp U19 sl. föstudag og það styttist heldur betur í mótið sem fer fram í Belgíu dagana 18.-30. júlí nk.
Ástríðan 9. umferð - Suðurnesjabær í blóma og KFA enn taplaust 27.06.2023
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva komu saman eftir langa fjarveru og fóru yfir alla leikina í 9.umferðinni. Allt í boði Bola Léttöl, Unbroken, JakoSport og Ice Nikótínlausra púða.
Heimavöllurinn: Stutt á milli í spennandi 2. deild og Blikar á toppinn í Bestu 26.06.2023
2. deild kvenna hefur farið skemmtilega af stað og það er ansi stutt á milli liðanna sem ætla sér upp um deild. Þeir Arnar Páll Garðarsson og Óskar Smári Haraldsson sem hafa báðir þjálfað í deildinni mættu á Heimavöllinn og fóru yfir málin með Mist Rúnarsdóttur - Í boði Dominos og Orku Náttúrunnar.
Innkastið - Valur eini keppinautur Víkings um titilinn 26.06.2023
Innkastið á mánudegi eftir að 12. umferð Bestu deildarinnar kláraðist um helgina. Farið yfir leikina og Lengjudeildin einnig skoðuð. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Guðmundur Aðalsteinn í Thule stúdíóinu og Hafliði Breiðfjörð kemur með ferðasögu frá Vestmannaeyjum þar sem hann sá Val vinna 3-0 sigur um helgina. KR vann KA og Víkingur er enn í góðum málum á toppnum eftir sigur gegn Stjörnunni.
Tiltalið: Alex Bergmann Arnarsson 26.06.2023
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson. Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Njarðvíkur, Alex Bergmann Arnarsson. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferli...
Útvarpsþátturinn - Hörður Björgvin, Besta deildin og Burghausen 24.06.2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 24. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Hörður Björgvin Magnússon landsliðsmaður og leikmaður Panathinaikos er gestur þáttarins. Svo er farið yfir Bestu deildina og fréttirnar í íslenska fótboltanum. Stefán Marteinn kemur með skýrslu úr Kórnum þar sem HK vann Breiðablik öðru sinni og Sverrir Örn segir frá leik Keflavíkur og Fylkis. Þá er Hannes...
Heimavöllurinn: Uppgjör á fyrri hálfleik Bestu 23.06.2023
Níundu umferð Bestu deildar kvenna er lokið og þar með fyrri helmingi fyrri hluta mótsins. Í nýjasta þætti Heimavallarins er fjörið til þessa gert upp - í boði Dominos og Orku Náttúrunnar. Gestir þáttarins að þessu sinni eru Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson og Lilja Dögg Valþórsdóttir.
Ástríðan X Innkastið: 8. umferð og Fótbolti.net bikarinn 22.06.2023
Ástríðan og Innkastið sameinuðu krafta sína í dag til þess að blanda saman umfjöllun um 8. umferð í ástríðudeildinum og fotbolti.net bikarinn sem fór fram í vikunni. Sverrir Mar, Baldvin Már, Elvar Geir og Sæbjörn Steinke á hringborðinu. Allt í samstarfi við Bola léttöl, Unbroken, Jakosport og ICE nikotínlausra púða.
Innkastið - Lélegur CR7 getur samt ráðið úrslitum 21.06.2023
Landsliðs-Innkast eftir óþolandi tap gegn Portúgal á Laugardalsvelli. Cristiano Ronaldo skoraði sigurmarkið í lok leiksins en Ísland hafði þá misst Willum Þór Willumsson af velli með rautt spjald. Elvar Geir, Guðmundur Aðalsteinn og nýjasti besti vinur Ronaldo, Sæbjörn Steinke, gerðu upp leikinn og rýndu í stöðuna.
Tiltalið: Karólína Lea Vilhjálmsdóttir 19.06.2023
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson. Viðmælandi okkar að þessu sinni er Þýskalandsmeistarinn og landsliðskonan Karólína Lea Vilhjálmsdóttir. Við ræddum við hannum hina hliðina og tókum létta yfirferð á...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.