Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Ástríðan 20. umferð - Hvenær skýrast línurnar? 05.09.2023
20 umferðum er lokið í deildunum tveimur og enn skýrast línurnar ekki neitt. Toppbaráttan galopin í 2. deild og botnbaráttan stórbrotin í 3. deild. Sverrir og Gylfi fóru saman yfir málin. Ástríðan er í boði JakoSport, Bola Léttöl, Preppbarsins, Waterclouds, Unbroken og ICE nikótínlausra púða.
Tiltalið: Elín Metta Jensen 04.09.2023
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson. Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Þróttar og læknaneminn Elín Metta Jensen. Við ræddum við hana um hina hliðina og tókum létta yfirferð á...
Heimavöllurinn: ÍR-ingar sófameistarar og á leið í Lengjuna 04.09.2023
ÍR tryggði sér um helgina sigur í 2. deild og þar með sæti í Lengjudeildinni að ári. Þær Lovísa Guðrún Einarsdóttir og Sandra Dögg Bjarnadóttir voru í lykilhlutverkum hjá ÍR-liðinu og eru gestir Heimavallarins að þessu sinni. Þátturinn er sem fyrr í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.
Ungstirnin - Gjöfin frá Nígeríu og ítalskur Messi 04.09.2023
Þáttur númer 43 af Ungstirnunum er kominn út; þátturinn sem kynnir fyrir þjóðinni næstu stórstjörnur fótboltans. Þáttarstjórnendur eru þeir Arnar Laufdal og Bjarni Þór Hafstein. Í þessum þætti kynna þeir til leiks Bradley Barcola (2002) sem var nýlega keyptur frá Lyon til PSG á 45 milljónir evra. Einnig er kynntur til leiks Gift Orban (2002) en hann leikur fyrir Gent í Belgíu - sem Blikar munu mæt...
Innkastið - Vonir KA fuku, ÍA á toppnum og byrjunarlið Íslands 03.09.2023
22. umferð Bestu deildarinnar var leikin í dag og það er komið að tvískiptingunni. KA situr eftir með sárt ennið. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars gera upp umferðina. Einnig er fjallað um Lengjudeildina og spennuna sem þar ríkir. Er í lagi að selja heimaleikinn sinn? Landsliðsverkefnið sem er framundan er skoðað. Sæbjörn setur saman líklegt byrjunarlið Íslands fyrir leikinn gegn Lúxemb...
Útvarpsþátturinn - Risaverkefni Blika og enskt gluggauppgjör 02.09.2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 2. september. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri hlutanum: Íslenski boltinn. Flosi Eiríksson formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks mætir og ræðir um afrek Kópavogsliðsins, verkefnin framundan og það sem er í gangi hjá félaginu. Einnig er rætt um Bestu deildina. Í seinni hlutanum: Kristján Atli Ragnarsson gerir upp sumargluggann í enska boltanum. G...
Innkastið - Áþreifanleg spenna fyrir lokasprett Lengjudeildarinnar 30.08.2023
Það eru þrjár umferðir eftir af Lengjudeildinni, áður en kemur að úrslitakeppninni. Elvar Geir, Baldvin Borgars og Sölvi Haralds rýna í stöðu mála í þessum sérstaka aukaþætti af Innkastinu. - ÍA andar í hálsmál Aftureldingar í baráttunni um toppsætið, eina beina sætið upp í Bestu deildina. - Hvaða lið fara í úrslitakeppnina og verða skrefi frá 50 milljóna króna leiknum á Laugardalsvelli? - Hvaða l...
Tiltalið: Ásta Eir Árnadóttir 29.08.2023
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson. Viðmælandi okkar að þessu sinni er fyrirliði Breiðabliks Ásta Eir Árnadóttir. Við ræddum við hana um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum...
Innkastið - Listrænn gjörningur 29.08.2023
Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke eftir 21. umferð Bestu deildarinnar. Breiðablik mætti of seint í Fossvoginn. Hver voru skilaboðin frá Blikum? Gyrðir sá til þess að FH vann Val og Eyjamenn náðu með naumindum að bjarga stigi úr leik sínum gegn HK.
Enski boltinn - Költhetjan Nunez verður að vera betri en Origi 28.08.2023
Þriðja umferðin í ensku úrvalsdeildinni fór fram um liðna helgi og var mikið húllumhæ. Gummi og Steinke settust niður í Thule-stúdíóinu í dag til að fara í umferðina. Hringt var í Atla Má Steinarsson, Liverpool stuðningsmann, og staðan könnuð eftir magnaðan sigur á Newcastle. Darwin Nunez er költhetja í Liverpool, Man Utd kom til baka eftir skelfilega byrjun, Ange-ball er að virka vel á meðan Arte...
Heimavöllurinn: Uppgjör á seinni hálfleik í Bestu 28.08.2023
18 umferð Bestu deildarinnar er lokið og framundan er úrslitakeppni þar sem í ljós kemur hvaða lið verður Íslandsmeistari og hvaða lið falla. Í nýjasta þætti Heimavallarins er spáð í spilin og umferðir 10-18 gerðar upp. Auðvitað í boði Dominos og Orku Náttúrunnar. Gestir þáttarins að þessu sinni eru Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson og Jón Stefán Jónsson.
Ástríðan 19. umferð - Suðumarki náð í Sandgerði 28.08.2023
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva komu saman að morgni til og fóru yfir rosalega helgi í Ástríðunni. Toppbaráttan í báðum deildum er að ná hæstu hæðum. Ástríðan er í boði Jakosport, Bola Léttöl, Preppbarsins, Unbroken og ICE nikótínlausra púða.
Ungstirnin - Sextán ára skrímsli og lítill töfrakall í Katalóníu 28.08.2023
Hlaðvarpsþátturinn vinsæli Ungstirnin er snúinn aftur eftir árs langt hlé. Þátturinn sem kynnir fyrir þjóðinni næstu stórstjörnur fótboltans. Umsjón: Arnar Laufdal og Bjarni Þór Hafstein. Í þessum þætti kynna þeir Johan Bakayoko (2003) sem er belgískur landsliðsmaður og einn efnilegasti leikmaðurinn í hollensku úrvalsdeildinni. Luka Vuskovic (2007) einn mest spennandi ungi leikmaður heims um þessa...
Útvarpsþátturinn - Hástökk upp úr ruslflokki, Besta og Luigi 26.08.2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 26. ágúst. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta í íslenska boltanum. Breiðablik er á barmi þess að skrifa nýjan kafla í Íslendingasögu fótboltans og gjaldkerinn er ekki eðlilega spenntur. Stefán Árni Pálsson íþróttafréttamaður skoðar komandi umferð í Bestu deildinni, Logi Tómasson er á línunni frá Noregi og Valur Gunnarsson í beinni frá bæjar...
Tiltalið: Nadía Atladóttir 25.08.2023
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson. Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður nýkringdra Mjólkurbikarmeistara kvenna í Víkinga R. og fyrirliði liðsins Nadía Atladóttir. Við ræddum vi...
Enski boltinn - Fáránleg dómgæsla og Szobo betri kostur en Mount 22.08.2023
Önnur umferð í ensku úrvalsdeildinni er að baki en það fór fram mjög áhugaverð um liðna helgi. Gummi og Steinke fengu Jóhann Pál Ástvaldsson, íþróttafréttamann á RÚV, í heimsókn til þess að fara yfir umferðina og annað sem er að gerast í enska boltanum. Sigur Tottenham á Man Utd, ömurleg dómgæsla, Mason Mount, Dominik Szoboszlai, Phil Foden, Roberto De Zerbi og margt fleira er til umræðu í þættinu...
Ástríðan 18. umferð - Og þá voru þau fimm 22.08.2023
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva komu saman og fóru yfir 18. umferðina í báðum deildum ástríðunnar. Ástríðan er í boði Bola Léttöl, Jakosport, Unbroken og ICE níkótínlausra púða.
Innkastið - Vantaði bara að bikarinn færi á loft 21.08.2023
Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars í Innkastinu eftir 20. umferð Bestu deildarinnar. Víkingur er með ellefu stiga forystu, Stjarnan er næstbesta lið deildarinnar og Eyjamenn eru það slakir að mögulega verður ekki spenna í fallbaráttunni. Lengjudeildin, Evrópa og smá 2. deild fylgir með.
Heimavöllurinn: Viva España, markabölvun og stjarnvísindi 21.08.2023
Spánn er Heimsmeistari í fyrsta skipti í sögunni og HM hinum megin á hnettinum var stórkostleg skemmtun. Það er allt á suðupunkti hér á Íslandi og 17.umferð Bestu deildar kvenna fór fram í gær. Þær Alexandra Bía og Lilja Dögg mæta á Heimavöllinn og fara yfir málin ásamt Mist Rúnarsdóttur. Í boði Dominos og Orku Náttúrunnar.
Ungstirnin - Don't Call It A Comeback 21.08.2023
Hlaðvarpsþátturinn vinsæli Ungstirnin er snúinn aftur eftir árs langt hlé. Þátturinn sem kynnir fyrir þjóðinni næstu stórstjörnur fótboltans. Nýr leikmaður er genginn til liðs við hlaðvarpið en það er Bjarni Þór Hafstein leikmaður Fjölnis í Lengjudeildinni en Arnar Laufdal og Bjarni ólust saman upp í Breiðabliki. Í þessum þætti kynna þeir Elye Wahi (2003) sem um helgina var keyptur til Lens í Frak...
Útvarpsþátturinn - Engar afsakanir og Jölliball 19.08.2023
Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas í hljóðveri X977. Farið er yfir íslensku fótboltavikuna, helstu fréttir og félagaskipti, Blika í Evrópu, bestu og verstu kaupin í Bestu deildinni og liðna umferð í Lengjudeildinni. Hvernig væri sameiginlegt byrjunarlið Víkings og Vals? Gestur þáttarins er Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar. Hann fer yfir starf sitt í Garðabænum, hugtakið 'Jölliball' o...
Heimavöllurinn: Trylltur Lengjulokasprettur 18.08.2023
Nú er æsispennandi lokasprettur hafinn í Lengjudeild kvenna og hart barist um sæti í Bestu deildinni að ári. Á Heimavöllinn eru mættir knattspyrnuþjálfararnir Arnar Páll Garðarsson og Magnús Haukur Harðarson til fara yfir Lengjudeildarmálin með Mist Rúnarsdóttur. Þátturinn er í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.
Ástríðan 17. umferð - Gott að vera Reynir 18.08.2023
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva mættu og fóru yfir leikina sem fóru fram í miðri viku í 2. og 3.deild karla. Ástríðan er í boði Bola Léttöl, JakoSport, Unbroken og ICE Nikótínlausra púða.
Heimavöllurinn: Rólegur kúreki, danskir dagar og stjörnur í augum 17.08.2023
16. umferð Bestu deildar kvenna var að ljúka og línur aldeilis að skýrast. Fréttaritarar Fótbolta.net þeir Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson og Sverrir Örn Einarsson mæta á Heimavöllinn og fara yfir umferðina ásamt Mist Rúnarsdóttur. Þau spá svo einnig í spilin fyrir lokahnykk Heimsmeistaramótsins. Allt saman í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.
Enski boltinn - Alvöru gæði í Enzo og Onana slapp með skrekkinn 15.08.2023
Fyrsta umferð ensku úrvalsdeildarinnar er að baki og því tilvalið að gera hana upp. Gummi og Steinke fengu sér sæti í Thule stúdíóinu í morgun ásamt Tómasi Þór Þórðarsyni, ritstjóra enska boltans á Síminn Sport. Tómas er nýkominn frá London þar sem hann var á stórleik fyrstu umferðar, Chelsea gegn Liverpool. Farið var vel yfir stórleik umferðarinnar, kaupin Chelsea á Caicedo og Lavia, skiptinguna...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.