Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Útvarpsþátturinn - La Masia í Garðabæ og norsk falleinkunn 29.09.2023

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpsformi þessa vikuna. Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke gera upp fimmtudagsumferðina í Bestu deildinni. Stjarnan er á barmi þess að ná Evrópusæti og útlitið er orðið svart í Vestmannaeyjum. Þá er rætt um 50 milljóna króna leikinn, landsliðið og fleira.

Heimavöllurinn: Þrjú stig og ljótur skellur 27.09.2023

Landsliðið okkar sigraði Wales en fékk svo skell gegn Þýskalandi í fyrstu leikjum sínum í Þjóðadeildinni. Íþróttafréttamaðurinn Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson og þjálfarinn Óskar Smári Haraldsson mæta á Heimavöllinn og gera leikina upp og spá í spilin. Þátturinn er í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.

Enski boltinn - Meintur fíll og of sniðugur Arteta 26.09.2023

Þeir Jóhann Skúli Jónsson og Sverrir Mar Smárason eru þekktir þáttarstjórnendur, en þeir létu vel af stjórn í þætti dagsins. Sæbjörn Steinke fékk þáttarstjórnanda Draumaliðsins og Svona var sumarið annars vegar og þáttarstjórnanda Ástríðunnar hins vegar til að gera upp 6. umferðina í ensku úrvalsdeildinni. Jonny Evans henti upp sýningu á Turf Moor, jafntefli í Norður-Lundúna slagnum, meistararnir...

Innkastið - Sandkassaleikur og möguleika sturtað niður 25.09.2023

Elvar Geir, Tómas Þór og Sæbjörn Steinke fara yfir liðna umferð í Bestu deildinni og umspil Lengjudeildarinnar. Heiðursvörður, sandkassaleikur, dómaraskandall, ömurleg frammistaða liða í neðri hlutanum og spennandi úrslitaleikir.

Útvarpsþátturinn - Flottir Evrópu-Blikar og Herra Víkingur 23.09.2023

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 23. september. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars fara yfir það helsta í íslenska boltanum og gera upp Evrópuleik Breiðabliks. Langleikjahæsti Víkingurinn, Halldór Smári Sigurðsson, er gestur og gefur skemmtilega innsýn inn í meistaralið Víkings. Þá er Kristján Atli sérfræðingur þáttarins um enska boltann á línunni. Vandræði Man Utd, byrjun Liverpool og Lund...

Leiðin á Laugardalsvöll - Hitað upp með þjálfurunum 22.09.2023

Á morgun fara fram undanúrslitin í Fótbolti.net bikarnum. Fjögur lið berjast þá um tvö pláss í úrslitaleiknum sjálfum sem fram fer á Laugardalsvellinum. Í undanúrslitunum mætast Víðir og KFG annars vegar og KFA og KFG hins vegar. Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson og Sæbjörn Þór Steinke heyrðu í dag í þjálfurunum fjórum sem stýra liðunum sem eftir eru í keppninni. Staðan var tekin fyrir morgundaginn.

Innkastið - Nýr Maggiball og mestu skemmtikraftar Bestu 21.09.2023

Umspil Lengjudeildarinnar er fyrsta mál á dagskrá í Innkastinu. Elvar Geir, Baldvin Borgars og Sölvi Haralds fara yfir fyrri undanúrslitaleikina. Þá er Besta deildin einnig tekin fyrir. Fram fékk stig í Kórnum og KR náði að fresta Íslandsmeistarafögnuði Víkings. Þá er rætt um mestu skemmtikrafta deildarinnar. Einnig kemur Fótbolti.net bikarinn og 2. deildin við sögu

Ástríðan 22. umferð - Lokaumferðin gerð upp 20.09.2023

Gylfi Tryggva svaf yfir sig en galvaskir mættu Óskar Smári og Sverrir Mar fóru yfir lokaumferðina og allt þetta helsta. Ástríðan er í samstarfi við Unbroken, Preppbarinn, Jakosport, Waterclouds, Bola Léttöl og ICE Nikótínlausra púða.

Enski boltinn - Farið að hitna undir Ten Hag? 18.09.2023

Gummi og Steinke fengu góðan gest í Thule-stúdíóið á mánudagskvöldi því sjálfur Nablinn, Andri Már Eggertsson, mætti til þess að fara yfir enska boltann. Mikið er rætt um Manchester United en það er dökkt ský yfir Old Trafford þessa stundina. Er farið að hitna undir Erik ten Hag? Farið er yfir alla umferðina en það er ansi áhugaverð umferð að baki í enska.

Heimavöllurinn: Takk Sif, Blikar snúa aftur og erfitt í eyjum 18.09.2023

Úrslitakeppni neðri hlutans í Bestu er lokið og það er ÍBV sem kveður deildina. Blikar rönkuðu við sér eftir dapurt gengi að undanförnu og eru aftur komnar í Evrópusæti. Framundan eru landsleikir og Meistaradeildarævintýri og það er margt að ræða. Elíza Gígja Ómarsdóttir og Lilja Dögg Valþórsdóttir mæta á Heimavöllinn og fara yfir málin með Mist Rúnarsdóttur. Í boði Dominos og Orku Náttúrunnar.

Innkastið - Markakóngurinn og bikarar á loft 18.09.2023

Íslenska fótboltahelgin er gerð upp í Innkastinu. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke fengu til sín Viktor Jónsson, markakóng Lengjudeildarinnar, en hann hjálpaði ÍA að komast upp í Bestu deildina. Víkingur vann bikarmeistaratitilinn í vonskuveðri á laugardaginn og Breiðablik er í hættu á að komast ekki í Evrópukeppni á næsta tímabili.

Ungstirnin - Næsti Mitoma og yngstur á HM 18.09.2023

Nýjasti þátturinn af Ungstirnunum er kominn út; þátturinn sem kynnir fyrir þjóðinni næstu stórstjörnur fótboltans. Þáttastjórnendur eru þeir Arnar Laufdal og Bjarni Þór Hafstein. Í þessum þætti kynna þeir til leiks Keito Nakamura (2000) en þetta er japanskur landsliðsmaður sem er mikið líkt við samlanda sinn Kaoru Mitoma en þeir eru báðir teknískir kantmenn . Fjallað er um Yankuba Minteh (2004) en...

Útvarpsþátturinn - Leitin að varnarmönnum og goðsögn kvödd 16.09.2023

Útvarpsþátturinn laugardaginn 16. september. Jörundur Áki Sveinsson yfirmaður fótboltamála hjá KSÍ er gestur. Landsliðsglugginn er gerður upp og rætt um stöðu landsliðsins. Arnar Björnsson fréttamaður minnist goðsagnarinnar Bjarna Fel sem lést í vikunni. Í seinni hluta þáttarins er svo farið yfir fótboltahelgina, meðal annars hitað upp fyrir bikarúrslitaleik Víkings og KA.

Óskar Hrafn: Sá möguleiki rennur endanlega úr sögunni á sunnudag 15.09.2023

Framundan hjá Breiðabliki er riðlakeppni Sambandsdeildarinnar. Fyrst er þó heimaleikur í Bestu deildinni gegn FH á sunnudag. Sá leikur var fyrst settur á morgundaginn (laugardag) en sökum veðurs var hann færður fram á sunnudag. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, ræddi við Sæbjörn Steinke um komandi átök, stöðuna á hópnum, möguleikann á styrkingu og Laugardalsvöll. Hann ræðir einnig um...

Heimavöllurinn: Þrír í röð hjá Val, rán í Krikanum og biluð botnbarátta 15.09.2023

Valskonur eru Íslandsmeistarar þriðja árið í röð og gátu fagnað heima í sófa í gærkvöldi. Það er þó enn að mörgu að keppa í Bestu deildinni. Silfrið er enn í boði og svo á eftir að koma í ljós hvaða lið fellur niður um deild. Þær Elíza Gígja Ómarsdóttir og Lilja Dögg Valþórsdóttir mæta á Heimavöllinn og fara yfir málin ásamt Mist Rúnarsdóttur. Í boði Dominos og Orku Náttúrunnar.

Eggert Aron - Ákvörðunin 14.09.2023

Það vakti mikla athygli í lok félagaskiptagluggans að Eggert Aron Guðmundsson skyldi ákveða að vera um kyrrt hjá Stjörnunni þegar honum stóð til boða að semja við félög erlendis. Eggert ræddi við Sæbjörn Steinke um ákvörðun sína. Ákvörðunin var erfið en Eggert þurfti að horfa í marga hluti þegar hann var að vega og meta hvað væri best fyrir sig. Eggert ræðir í viðtalinu einnig um U19, U21, Jökul E...

Ástríðan 21. umferð - Blóðug barátta á mörgum vígstöðum 14.09.2023

Seint og um síðir þá komu ástríðubræður saman og fóru yfir 21. umferð í 2. og 3. deild. Það er allt á suðupunkti í þremur af fjórum vígstöðum, aðeins fallbaráttan í 2. deild er ráðin. Ástríðan er í samstarfi við Bola léttöl, Waterclouds, Unbroken, Preppbarinn, Jako Sport og ICE nikótínlausa púða.

Heimavöllurinn: Uppgjör á Lengjudeildinni 2023 12.09.2023

Lengjudeildinni lauk með látum síðastliðinn laugardag og komið að því að gera deildina upp hér á Heimavellinum. Gestir þáttarins þekkja deildina inn og út en það eru knattspyrnuþjálfararnir Anton Ingi Rúnarsson og Magnús Örn Helgason. Þátturinn er í boði Dominos og Orku Náttúrunnar.

Innkastið - Sætur sigur sem nærir sálina 11.09.2023

Elvar Geir, Tómas Þór og Guðmundur Aðalsteinn í nýju hljóðveri á Laugardalsvelli strax eftir 1-0 sigurinn gegn Bosníu. Alfreð Finnbogason skoraði sigurmarkið í uppbótartíma. Það er enn möguleiki á að ná öðru sætinu en þá þarf allt að ganga upp. Rýnt er í frammistöðu leikmanna, stöðuna í riðlinum og stemninguna á Laugardalsvelli. U21 landsliðið og mögulegar formannsbreytingar hjá KSÍ eru einnig til...

Ungstirnin - Lærlingur Messi og treystum Heimi 11.09.2023

Nýjasti þátturinn af Ungstirnunum er kominn út; þátturinn sem kynnir fyrir þjóðinni næstu stórstjörnur fótboltans. Þáttastjórnendur eru þeir Arnar Laufdal og Bjarni Þór Hafstein. Í þessum þætti kynna þeir til leiks Benja Cremaschi (2005) en þessi 18 ára miðjumaður hefur verið að gera frábæra hluti með Lionel Messi og félögum í Inter Miami. Fjallað er um Oscar Gloukh (2004) en hann var keyptur í ja...

Tiltalið: Danijel Dejan Djuric 11.09.2023

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson. Í þessum þætti fengum við til okkar leikmann Víkings í tiltal, Danijel Dejan Djuric og fórum við yfir ferilinn hjá honum til þessa.

Innkastið - Mikið í húfi fyrir lokaumferð Lengjudeildarinnar 10.09.2023

Lengjudeildin undir smásjánni í þessum Innkastþætti. Elvar Geir, Baldvin Borgars og Sölvi Haralds skoða 21. umferðina. Það er brjáluð spenna fyrir lokaumferðina sem verður á laugardaginn. ÍA er með öll spil hendi á fyrir lokumferðina, úrslitakeppnin er að taka á sig mynd og mörg lið eru í fallhættu fyrir lokaumferðina. Dalvík/Reynir er til umræðu en liðið er búið að tryggja sér sigur í 2. deildinn...

Útvarpsþátturinn - Vaknað eftir martröð í Lúx og Víkingalaust úrvalslið 09.09.2023

Tómas Þór og Benedikt Bóas í þættinum þessa vikuna. Albert Brynjar Ingason er gestur og Elvar Geir Magnússon er á línunni frá Lúxemborg. Landsliðið fékk skell og leikurinn er gerður upp. Þá er úrslitakeppnin framundan í Bestu deildinni og lið ársins, þar sem Víkingar mega ekki vera með, er valið.

Heimavöllurinn: Sigurreifar í Meistaradeild á meðan Selfyssingum svíður 05.09.2023

Það er hart tekist á undir lok íslenska fótboltasumarsins. Í kvöld varð endanlega ljóst að Selfoss kveður Bestu deildina, Valur og Stjarnan fara í ferðalag í góðum gír og Þróttarar hafa fundið markaskónna á ný. Enn er svo barist um að fylgja Víkingum upp í efstu deild. Af ýmsu er að taka og þau Elísa Gígja Ómarsdóttir og Sverrir Örn Einarsson mæta á Heimavöllinn til að fara yfir það helsta. Í boði...

Enski boltinn - Úr svarthvítu í litað sjónvarp með 'Big Ange' 05.09.2023

Söngvarinn Robbie Williams elskar Ange Postecoglou það mikið að hann gerði textabút honum til heiðurs. Þessi nýi stjóri Tottenham er að vinna hug og hjörtu stuðningsmanna félagsins eftir flotta byrjun á tímabilinu. Í hlaðvarpinu Enski boltinn í dag voru Hjammi og Jóhann Alfreð, skemmtikraftar og stuðningsmenn Tottenham, í heimsókn þar sem þeir ræddu um byrjunina flottu á tímabilinu og Ange-ball. E...

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.