Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Páll Kristjánsson formaður KR ræðir nýjan þjálfara og gagnrýnar raddir 28.10.2023
Páll Kristjánsson formaður knattspyrnudeildar KR ræðir við Fótbolta.net um ráðningu á Gregg Ryder sem nýjum þjálfara karlaliðs félagsins. KR tilkynnti ráðningu enska þjálfarans á fréttamannafundi í KR-heimilinu í vesturbænum í dag og eftir fundinn settumst við niður með Páli og fórum yfir málin. Til umræðu - Þrumuræðan í byrjun fréttamannafundar - Gagnrýnin á ferlið - Ógrynni starfsumsókna frá stó...
Útvarpsþátturinn - Óvænt útspil KR og undirbúningur á Akranesi 28.10.2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 28. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fótboltafréttir vikunnar. Gregg Ryder tekur við KR og Rúnar Kristinsson var kynntur í Ulfarsárdal. Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA segir frá undirbúningi Skagamanna fyrir Bestu deildina. Baldvin Már Borgarsson fer yfir enska boltann.
Heimavöllurinn: Glittir í gömul gildi, nú þarf að þora gegn Þjóðverjum 28.10.2023
Ísland mátti sætta sig við 0-1 tap gegn Danmörku í Þjóðadeildinni fyrr í kvöld. Fréttaritarar Fótbolta.net, þau Guðmundur Aðalsteinn, Mist Rúnarsdóttir, Stefán Marteinn og Sverrir Örn voru öll á vellinum og settust svo niður til að fara yfir málin á Heimavellinum. Í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.
Bjarni Jó snýr aftur eftir lærdómsríka árspásu 26.10.2023
Bjarni Jóhannsson er mættur aftur í þjálfun eftir að hafa tekið sér árspásu. Bjarni hefur verið ráðinn þjálfari Selfoss sem leikur í 2. deild næsta sumar eftir að hafa fallið úr Lengjudeildinni í sumar. Hann gerir tveggja ára samning við félagið. Bjarni hefur verið í þjálfun í meira en 30 ár og komið víða við á ferlinum. Næsta stopp er Selfoss þar sem hann stefnir að koma liðinu aftur upp í Lengju...
Rúnar Kristins leyfir Frömurum að dreyma í Dal draumanna 25.10.2023
Rúnar Kristinsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Fram og tekur formlega til starfa sem þjálfari liðsins í Bestu deildinni um mánaðamótin. Eftir fréttamannafund í dag ræddi Elvar Geir Magnússon við Rúnar í fundarherbergi í Úlfarsárdalnum. Rætt er um nýtt verkefni Rúnars og ýmislegt fleira.
Enski boltinn - Ekki bara góður þjálfari, líka góð manneskja 24.10.2023
Það var mjög svo áhugaverð umferð í ensku úrvalsdeildinni um liðna helgi. Það er alltaf gaman að fá enska boltann aftur að loknu landsleikjahléi. Jón Júlíus Karlsson, stuðningsmaður Newcastle, er gestur í þætti dagsins en hann ræðir við Gumma og Steinke um fína byrjun sinna manna á tímabilinu. Eddie Howe hefur sannað sig sem magnaður stjóri. Þá er farið vel yfir umferðina sem er að baki og helstu...
Útvarpsþátturinn - Hræringar, Heimaleikurinn og Valgeir Lunddal 21.10.2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 21. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fótboltafréttir vikunnar, Andri Rúnar Bjarnason á línunni, Smári Gunnarsson leikstjóri Heimaleiksins og Valgeir Lunddal gestir.
Heimavöllurinn: Fjölhæfi fyrirliðinn og sú flugsynda fara yfir tímabilið 21.10.2023
Valskonurnar Fanney Inga Birkisdóttir og Málfríður Anna Eiríksdóttir áttu þrusugott og heillangt fótboltasumar þar sem þær urðu Íslandsmeistarar. Eftir gott gengi heimavið tóku þær þátt í Meistaradeildarævintýri og eru nýlentar aftur á klakanum. Klárar í gott spjall á Heimavellinum sem er sem fyrr í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.
Enski boltinn - Hvað er að frétta hjá Leeds? 20.10.2023
Enska úrvalsdeildin snýr aftur um helgina en aðalmálið í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag er Leeds og Championship-deildin. Fjölmiðlamaðurinn Máni Pétursson er sérstakur gestur í þættinum en hann er grjótharður stuðningsmaður Leeds sem féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. Farið var yfir tímabilið hingað til í Championship-deildinni og auðvitað var rætt eitthvað um ensku úrvalsdeildina...
Siggi Höskulds: Allir Þórsarar farnir að þrá að spila í efstu deild 18.10.2023
Sigurður Heiðar Höskuldsson var í gær tilkynntur sem nýr þjálfari Þórs og samdi hann til þriggja ára. Þór var í þjálfaraleit eftir að ljóst varð að Þorlákur Árnason yrði ekki áfram þjálfari liðsins. Siggi var síðasta árið aðstoðarþjálfari Vals en þar áður var hann þjálfari Leiknis og gerði góða hluti þar. Hann er staddur í Belgíu og var því í símaviðtali. Hann ræðir áhuga Þórs á sér, tengingu fjöl...
Tiltalið: Arnór Gauti Ragnarsson mætti aftur og fór yfir sumarið 17.10.2023
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson. Viðmælandi okkar er leikmaður Aftureldingar Arnór Gauti Ragnarsson en hann fer yfir tímabilið og við fáum stutt 'recap' á sumrinu frá honum.
Innkastið - Gylfasýning gladdi og Van Dijk lagði hönd á plóg 16.10.2023
Ísland vann Liechtenstein 4-0 á Laugardalsvelli í kvöld. Innkastið gerir upp Gylfasýninguna og býr sig undir umspilið í mars á næsta ári. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke, Guðmundur Aðalsteinn og Sverrir Örn í Thule stúdíóinu. Einnig er rætt um fréttir úr íslenska boltanum, meðal annars þjálfaramál Haugesund og KR.
Útvarpsþátturinn - Landsliðið, Hannes, Haugesund og slúður 14.10.2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 14. október. Umsjónarmenn: Elvar Geir og Tómas Þór. Gestur er Hannes Þór Halldórsson fyrrum landsliðsmarkvörður. Landsleikur Íslands og Lúxemborgar er gerður upp, rætt um endurkomu Gylfa og einkunnagjöf leikmanna skoðuð. Hannes ræðir um landsliðið og nýja sjónvarpsþætti um ÍA sem fara af stað á mánudaginn. Rætt er um íslenskt slúður og þjálfarakapa...
Tiltalið: Hallgrímur Jónasson 11.10.2023
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson. Viðmælandi okkar að þessu sinni er ekki leikmaður heldur þjálfari Bestu deildarliðs KA, Hallgrímur Jónasson. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirf...
Júlli Magg: Símtal sem breytti golfhringnum 10.10.2023
Norska félagið Fredrikstad verður með lið í efstu deild Noregs á næsta tímabili í fyrsta sinn síðan 2012. Liðið er í toppsæti norsku B-deildarinnar þegar fjórar umferðir eru eftir og sex stigum frá því að tryggja efsta sætið. Með liðinu leikur Víkingurinn Júlíus Magnússon sem fenginn var fyrir tímabilið. Júlíus er í landsliðsverkefni þessa dagana og var hann fenginn í viðtal um landsliðið, tímabil...
Ástríðan - Uppgjör í 3. deild 10.10.2023
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva fengu góða gesti þegar þeir gerðu upp tímabilið í 2.deild. Kristófer Páll (Reynir S) og Ingvi Rafn (Kormákur/Hvöt) voru gestir þáttarins. Lið Ársins, leikmaður ársins, efnilegastur og besti þjálfarinn. Allt í samstarfi við Unbroken, Preppbarinn, Bola Léttöl, JakoSport og ICE níkótínlausra púða.
Enski boltinn - Fætur á jörðinni og McSósan til bjargar 09.10.2023
Hallur Flosason, fyrrum leikmaður Aftureldingar og ÍA, er gestur í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag. Gummi og Steinke eru auðvitað á sínum stað. Hallur er mikill Arsenal maður og var að vonum ánægður með sigur sinna manna í stórleiknum gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í gær. Einnig var rætt um aðra leiki helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni og aðeins farið í Championship-deildina líka.
Innkastið - Jarðarför í kyrrþey og Óskar farinn 08.10.2023
Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars í Innkastinu eftir 22. umferð Bestu deildarinnar. Eyjamenn eru fallnir niður í Lengjudeildina, Fylkir kláraði þetta með stæl, Fram fékk ljótan skell sem hjálpar ekki Ragga Sig, Kjartan Henry með hnífasettið og Víkingur og Stjarnan í stuði. 54:00 KAFLA SEM VAR BÆTT VIÐ! Strax eftir upptöku var tilkynnt að Óskar Hrafn væri hættur með Breiðablik. Það var e...
Útvarpsþátturinn - Besta lokahófið, lokaumferðin og Stefán Teitur 07.10.2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 7. október. Elvar Geir, Benedikt Bóas og Valur Gunnars. Fotbolti.net heldur lokahóf Bestu deildarinnar. Val á liði ársins, þjálfara ársins, leikmanni ársins, besta unga leikmanninum og besta dómaranum opinberað. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar og hitað upp fyrir lokaleikina í Bestu deildinni, auk þess sem Stefán Teitur Þórðarson er á línunni...
Heimavöllurinn: Besta lokapartýið! 07.10.2023
Besta deildin 2023 kláraðist í gærkvöldi og nú er komið að því að gera sumarið upp. Elíza Gígja og Guðmundur Aðalsteinn mæta á Heimavöllinn og fara yfir sumarið ásamt Mist Rúnarsdóttur - Í boði Orku Náttúrunnar og Dominos.
Ástríðan - Uppgjör í 2. deild 06.10.2023
Sverrir Mar og Gylfi Tryggva fengu góða gesti þegar þeir gerðu upp tímabilið í 2.deild. Bragi Karl (ÍR) og Tómas Þórðarson (Dalvík) gestir þáttarins. Lið Ársins, leikmaður ársins, efnilegastur og besti þjálfarinn. Allt í samstarfi við Unbroken, Preppbarinn, Bola Léttöl, JakoSport og ICE níkótínlausra púða.
Tiltalið: Ívar Örn Árnason 05.10.2023
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson. Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður KA - Ívar Örn Árnason. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa...
Innkastið - Vesturbæjarvonir og Vestradraumar 02.10.2023
Evrópubaráttunni í Bestu deildinni er lokið en lífsbaráttu laugardagur er framundan. Lið ársins í Lengjudeildinni er opinberað, Vestri vann 50 milljóna króna leikinn og þjálfaraskipti verða hjá KR. Elvar Geir, Baldvin Borgars og Sölvi Haralds gera upp helgina og skoða öll helstu tíðindin úr íslenska boltanum í Innkastinu.
Ungstirnin - Íslandsvinur og ungir Framarar bjarga hlutunum 02.10.2023
Nýjasti þátturinn af Ungstirnunum er kominn út; þátturinn sem kynnir fyrir þjóðinni næstu stórstjörnur fótboltans. Þáttastjórnendur eru þeir Arnar Laufdal og Bjarni Þór Hafstein. Í þessum þætti kynna þeir til leiks Carlos Forbs (2004) sem seldur var til Ajax í sumar frá Man City eftir ótrúleg ár í akademíu þeirra bláklæddu. Fjallað er um Desire Doue (2005) en hann er næsta stórstjarna Rennes í frö...
Enski boltinn - Toppuðu sig í fáránleikanum 02.10.2023
Það átti sér stað ótrúlegur dómaraskandall í ensku úrvalsdeildinni um liðna helgi þegar Tottenham tók á móti Liverpool. Enn ein afsökunarbeiðnin fylgdi í kjölfarið. Kristján Atli Ragnarsson, stuðningsmaður Liverpool, mætti í Thule-stúdíóið á skrifstofu Fótbolta.net og gerði málið vel upp ásamt Guðmundi Aðalsteini Ásgeirssyni og Elvari Geir Magnússyni. Einnig var farið yfir aðra leiki í umferðinni...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.