Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Útvarpsþátturinn - Góðir gestir á aðventunni 09.12.2023

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 9. desember. Í fyrri hluta þáttarins mætir Axel Óskar Andrésson í hljóðver. Fjallað hefur verið um að þessi öflugi varnarmaður Örebro sé að hugsa um að færa sig um set. Þá mætir Aron Elís Þrándarson en hann kom heim til Víkings á liðnu sumri eftir atvinnumennsku og lét heldur betur að sér kveða áður en Víkingar lyftu bikurum tímabilsins.

Enski boltinn - Up the Villa! 08.12.2023

Aston Villa hefur gert frábæra hluti á þessari leiktíð og er í baráttu um Meistaradeildarsæti, jafnvel um enska meistaratitilinn. Villa er sem stendur fjórum stigum frá toppnum þegar liðið mætir toppliði ensku deildarinnar, Arsenal, á heimavellii núna um helgina. Jón Haukur Baldvinsson, stuðningsmaður Aston Villa, er gestur í Enski boltinn hlaðvarpinu þennan föstudaginn en hann fer yfir velgengni...

Gústi Gylfa um ellefu ár af Bose mótinu - Stórleikur framundan 07.12.2023

Það eru núna ellefu ár síðan Bose-mótið var stofnað en mótið hefur verið fastur liður af undirbúningstímabilinu hér á Íslandi síðan. Fótboltaþjálfarinn Ágúst Gylfason á stóran þátt í mótinu en hann kom á skrifstofu Fótbolta.net í dag þar sem hann ræddi um stofnun mótsins og þróun þess. Framundan er stórleikur þar sem erkifjendurnir Breiðablik og Víkingur eigast við í úrslitaleik. Leikurinn fer fra...

Á réttri leið eftir frækinn sigur í Danmörku 06.12.2023

Ísland vann frækinn sigur gegn Danmörku í lokaleik sínum á árinu í gær. Þetta var síðasti leikur Íslands í riðlakeppni Þjóðadeildarinnar en stelpurnar tóku níu stig í sex leikjum. Guðmundur Aðalsteinn fékk þá Magnús Hauk Harðarson, þjálfara Fjölnis, og Óskar Smára Haraldsson, þjálfara Fram, í heimsókn í dag til að gera upp leik gær dagsins. Einnig var farið yfir árið í heild sinni og framhaldið. E...

Tiltalið: Ásgeir Börkur Ásgeirsson 05.12.2023

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson. Viðmælandi okkar að þessu sinni er goðsögn Fylkis sem lagði skónna á hilluna að loknu tímabilinu 2023, Ásgeir Börkur Ásgeirsson. Við renndum yfir farinn veg og litum...

Enski boltinn - Endo-kallinn og skemmtileg heimska 04.12.2023

Það var boðið upp á ruglaða skemmtun í ensku úrvalsdeildinni um helgina, frábæra fótboltaleiki. Guðmundur Aðalsteinn fékk þá Arnar Laufdal og Baldvin Már Borgarsson, erkifjendur úr 3. deild karla, í heimsókn í dag til þess að ræða um leiki helgarinnar. Farið var yfir ótrúlegan dóm í leik Manchester City og Tottenham, hugmyndafræði Ange og Kompany, magnaða endurkomu Liverpool, ömurlegt United og ma...

Útvarpsþátturinn - Grindavík, Haukur Páll og samsæriskenningar 02.12.2023

Fjölbreytt fótboltaumfjöllun í útvarpsþættinum Fótbolti.net laugardaginn 2. desember. Rætt er um fréttir vikunnar. Þorsteinn Halldórsson lét íþróttamálaráðherra heyra það og Blikar töpuðu á grátlegan hátt gegn Maccabi. Haukur Guðberg Einarsson formaður Grindavíkur ræðir um stöðu mála hjá fótboltanum á þessum miklu hamfara- og óvissutímum. Gestur þáttarins er Haukur Páll Sigurðsson sem ræðir um nýt...

Enski boltinn - Vonin veik hjá Rauðu djöflunum 01.12.2023

Manchester United er ekki í góðum málum í Meistaradeildinni þrátt fyrir að vera í slökum riðli. Einn leikur er eftir og það eru innan við tíu prósent líkur á því að United fari áfram. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Steinke eru umsjónarmenn Enska boltans en í þættinum í dag er aðallega rætt um Man Utd og Meistaradeildina. Man Utd gerði 3-3 jafntefli gegn Galatasaray í mögnuðum leik á miðvikudag en...

Ungstirnin - Argentínskur efniviður 28.11.2023

Matias Soule (2003) hefur verið að gera frábæra hluti með nýliðum Frosinone í Serie A á Ítalíu en þessum argentínska kantmanni hefur verið líkt við samlanda sinn Angel Di Maria. Soule er í eigu Juventus og er að færast nær því að spila fyrir ítalska landsliðið. Claudio Echeverri (2006) er eftirsóttur af stærstu liðum heims en þessi sóknarþengjandi miðjumaður sem spilar fyrir River Plate hefur veri...

Enski boltinn - Ungverjinn upplifði mikinn hita, mikla reiði og sturlað mark 27.11.2023

Þrettánda umferðin í ensku úrvalsdeildinni lýkur í kvöld en tekið var forskot á gleðina og umferðin gerð upp í dag. Guðmundur Aðalsteinn og Sæbjörn Steinke eru umsjónarmenn þáttarins. Manchester United vann útisigur á Everton og var Fótbolti.net með útsendara á vellinum. Mate Dalmay var á línunni og fór yfir stemninguna á Goodison Park. Í gær fór einnig fram stórskemmtilegur leikur á heimavelli To...

Bjarni Mark: Hitafundir og mikil reiði 27.11.2023

Um helgina var Start dæmt úr leik í umspilinu um að komast upp í efstu deild í Noregi. Bjarni Mark Duffield er leikmaður Start og ræddi hann við Fótbolta.net í dag. Bjarni fór yfir ástæðuna fyrir því af hverju Start var dæmt úr leik. Heimavöllur liðsins var frosinn og tekin var ákvörðun að kveikja ekki á hitanum undir vellinum til að spara pening. Völlurinn var ekki leikhæfur og liðið dæmt úr leik...

Útvarpsþátturinn - Heimir Hallgríms gestur 25.11.2023

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 25. nóvember. Umsjón: Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas. Í fyrri hluta þáttarins er farið yfir fótboltafréttir vikunnar, meðal annars rætt um landsliðið, fréttir úr Bestu deildinni og formannsslag KSÍ. Í þeim seinni kemur Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari Jamaíku í heimsókn en hann fékk enn eina rósina í sitt hnappagat í vikunni þegar hann...

Enski boltinn - Gunnar í skýjunum með magnað gengi 24.11.2023

Gummi og Steinke halda utan um stjórnartaumana í Enski boltinn hlaðvarpinu að venju en með þeim í dag er sannkallaður heiðursgestur, Gunnar Sigurðarson. Rætt er aðallega við Gunnar, sem er gallharður Ipswich maður, um hans heittelskaða félag. Ipswich hefur verið að gera frábæra hluti í Championship-deildinni og er liðið sem stendur í öðru sæti með gott forskot á liðin fyrir neðan. Ipswich komst up...

Mikael Nikulásson: Ætlum að keyra þetta í gang 20.11.2023

Mikael Nikulásson framlengdi samning sinn við KFA á dögunum og stýrir því liðinu í annað tímabil næsta sumar. Mikael, eða Mike eins og hann er oftast kallaður, gerði flotta hluti með KFA síðasta sumar en liðið var taplaust lengi vel. Liðið rétt missti þó af því á endanum að komast upp í Lengjudeildina. Þessi skemmtilegi þjálfari ræddi við Fótbolta.net í dag um þá ákvörðun að framlengja við KFA, sí...

Innkastið - Ómar Ingi um landsliðið og HK 17.11.2023

Ómar Ingi Guðmundsson, þjálfari HK, ræddi við þá Sæbjörn Steinke og Guðmund Aðalstein í fyrri hluta þáttarins um stöðu landsliðsins og leikinn gegn Slóvakíu í gær. Farið var yfir frammistöðu liðsins sem var ekki nógu góð en Ómar nefndi þó tvo leikmenn sem hann var ánægður með. Einnig var aðeins snert á U21 landsliðinu. Í seinni hluta þáttarins ræddi hann svo um HK; tímabilið 2023, leikmannamál og...

Tiltalið: Halldór Árnason 17.11.2023

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson. Viðmælandi okkar að þessu sinni er ekki leikmaður heldur þjálfari Bestu deildarliðs Breiðabliks, Halldór Árnason. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta...

Enski boltinn - Einhver veikasti leikur síðari ára 13.11.2023

Leikur Chelsea og Manchester City er einhver skemmtilegasti leikur sem hefur verið spilaður í ensku úrvalsdeildinni á síðustu árum. Það var hrein unun að fylgjast með leiknum. Kári Snorrason, stuðningsmaður Chelsea, er gestur í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag en hann ræddi mikið við Gumma og Steinke um stórleikinn í gær. Hann ræddi einnig um stöðuna hjá Chelsea og svo var farið yfir aðra leiki hel...

Útvarpsþátturinn - Biggi ÍTF og Arnar Grétars 11.11.2023

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 11. nóvember. Í fyrri hluta þáttarins í dag er Birgir Jóhannsson framkvæmdastjóri ÍTF gestur. Rætt er um hvað íslenski boltinn getur lært af þeim danska og hvað var jákvætt og hvað neikvætt í mótafyrirkomulagi Bestu deildarinnar á liðnu sumri. Í seinni hlutanum kemur Arnar Grétarsson þjálfari Vals í heimsókn. Fótboltasumarið á Hlíðarenda er gert up...

Enski boltinn - Kaos, hatur og fáránleg yfirlýsing 07.11.2023

Tveir af áhugaverðari leikjum tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni til þessa fóru fram í elleftu umferðinni sem var leikin núna um helgina. Tottenham tapaði 1-4 gegn Chelsea í mögnuðum fótboltaleik í gærkvöldi og þá vann Newcastle 1-0 sigur gegn Arsenal. Síðarnefnda liðið sendi frá sér yfirlýsingu eftir leik út af ósætti með dómgæsluna. Er Mikel Arteta mesti vælukjói enska boltans? Gummi og Steinke...

Ungstirnin - Við lifum í heimi Jude Bellingham 06.11.2023

Assan Ouedraogo (2006) er mjög eftirsóttur af Liverpool skv Sky Sports en Barcelona, Real Madrid eru nokkur lið sem eru á eftir þessum efnilega miðjumanni sem spilar fyrir Schalke. Savio (2004) er tekknískur Brassi sem hefur verið í lykilhlutverki á kantinum hjá toppliði Girona á Spáni sem er undir smásjá hjá Barcelona líkt og Ouedraogo. Hversu rugl góður er Jude Bellingham, er hann betri en Musia...

Útvarpsþátturinn - Fréttir vikunnar, Lyngby og Kristján Atli gerir upp enska boltann 05.11.2023

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 4. nóvember. Umsjón: Tómas Þór og Benedikt Bóas. - Fótboltafréttir vikunnar. Meiri umræða um ráðningu KR á Gregg Ryder og sjö lið í Bestu-deildinni hafa ekki gengið frá ráðningu aðstoðarþjálfara. - Elvar Geir Magnússon ritstjóri Fótbolta.net í símaspjalli frá Kaupmannahöfn á leið á leik hjá Lyngby. - Kristján Atli Ragnarsson mætti svo og gerði upp...

Úlfur hefur ekki áhyggjur: Þarf ekki alltaf að sækja einhvern nýjan 03.11.2023

Á síðustu dögum hefur verið greint frá því að fjórir reynslumiklir leikmenn væru horfnir á brott úr leikmannahópi Fjölnis. Það eru þeir Hans Viktor Guðmundsson, Guðmundur Þór Júlíusson, Bjarni Gunnarsson og Dofri Snorrason. Úlfur Arnar Jökulsson, þjálfari Fjölnis, ræddi brotthvarf leikmannanna í viðtali í dag. Mikil reynsla er farinn úr hópnum en Úlfur hefur ekki áhyggjur. Úlfur ræddi einnig um tí...

Heimavöllurinn: Þýskur grikkur en margt gott 01.11.2023

Ísland mátti sætta sig við tap gegn Þýskalandi og stigalaus landsliðsgluggi því niðurstaðan. Það mátti engu síður greina ýmis jákvæð teikn á lofti og þau Alexandra Bía og Guðmundur Aðalsteinn mættu á Heimavöllinn og fóru yfir málin ásamt Mist Rúnarsdóttur - í boði Orku Náttúrunnar og Dominos. Þátturinn er sá síðasti fyrir vetrarfrí.

Enski boltinn - Agalegt ástand og grjóthörð fermingargjöf 30.10.2023

Tíunda umferðin í ensku úrvalsdeildinni fór fram um helgina og til að gera hana upp kom Framherjinn Guðmundur Magnússon í heimsókn til þeira Guðmundar Aðalsteins og Steinke. Umdeildir vítaspyrnudómar voru til umræðu sem og sannfærandi sigur City á grönnunum í United. Liverpool og Arsenal unnu örugga sigra, Tottenham vélin mallar áfram en bakslag hjá Newcastle og Chelsea. Á Villa Park fékk ungur Ís...

Ungstirnin - Heimsókn af Nesinu og golf með fyrrum leikmanni Liverpool 30.10.2023

Eli Junior Kroupi (2006) er einn efnilegasti leikmaður Frakklands um þessar mundir og hefur verið líkt við engan annan en Kylian Mbappe. Hann hefur farið frábærlega af stað með aðalliði Lorient í Ligue 1 með frábærum mörkum. Sverre Halseth Nypan (2006) er lykilleikmaður á miðjunni í liði Rosenborg í Noregi. Manchester Utd, Manchester City, Barcelona og Real Madrid eru með augastað á þessum efnileg...

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.