Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Tiltalið: Gunnar Heiðar Þorvaldsson 28.01.2024
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson. Viðmælandi okkar að þessu sinni er þjálfari Njarðvíkur, Gunnar Heiðar Þorvaldsson. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.
Útvarpsþátturinn - Kiddi Jóns og Gregg Ryder 27.01.2024
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 27. janúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Gestur fyrri hlutans er Kristinn Jónsson sem hefur yfirgefið KR og er kominn heim í Breiðablik. Gestur seinni hlutans er Gregg Ryder sem tók við þjálfun KR í vetur.
Enski boltinn - Klopp hættir með Liverpool 26.01.2024
Þau risastóru tíðindi bárust í dag að Jurgen Klopp væri að hætta með Liverpool eftir yfirstandandi tímabil. Þessi tíðindi komu eins og þruma úr heiðskíru lofti. Gummi og Steinke settust niður í Thule-stúdíóinu með Kristjáni Atla Ragnarssyni, hörðum stuðningsmanni Liverpool, í dag og fóru yfir þessi rosalegu tíðindi.
Enski boltinn - Jóhann Birnir ræðir Watford, Man Utd og fleira 23.01.2024
Jóhann Birnir Guðmundsson er sérstakur gestur í hlaðvarpinu Enski boltinn í dag. Hann fór ungur að árum til Watford og spilaði í þremur deildum á Englandi, þar á meðal ensku úrvalsdeildinni. Í þessum þætti ræðir hann um tíma sinn hjá Watford sem var mjög áhugaverður. Jói er einnig stuðningsmaður Manchester United og er rætt um stöðu félagsins í þættinum. Þá er farið yfir síðustu leiki í ensku úrva...
Tiltalið: Sigurður Ragnar Eyjólfsson 21.01.2024
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson. Viðmælandi okkar að þessu sinni er ekki leikmaður heldur þjálfarinn Sigurður Ragnar Eyjólfsson sem var síðast við stjörn hjá Keflavík. Við ræddum við hann um hina hl...
Útvarpsþátturinn - Fréttavikan og formannsslagur 20.01.2024
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 20. janúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fótboltafréttir vikunnar heima og erlendis. Þórir Hákonar fer yfir formannsslag KSÍ, Kristján Atli er á línunni og svo er örstutt handboltahorn.
Enski boltinn - Helmingsuppgjör með Gumma Ben 16.01.2024
Íþróttafréttamaðurinn Guðmundur Benediktsson er gestur Enska boltans í þessari viku. Hann heimsótti skrifstofu Fótbolta.net í morgunsárið og ræddi við Guðmund Aðalstein og Sæbjörn Steinke um síðustu leiki í enska boltanum. Þá var einnig snert aðeins á enska bikarnum. Gummi kastaði fram sínu liði ársins hingað til og þá var spáin - sem var birt fyrir tímabilið - skoðuð. Hvernig lítur hún út núna?
Tiltalið: Alex Freyr Elísson 15.01.2024
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson. Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Breiðbliks í Bestu deild karla, Alex Freyr Elísson en hann var á láni seinnii part tímabilsins hjá KA en er núna mættur...
Útvarpsþátturinn - Herlúðrar óma í Vesturbænum 13.01.2024
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 13. janúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Gestur: Aron Sigurðarson nýr leikmaður leikmaður KR. Rætt um tíðindamikla fréttaviku í íslenska boltanum. Það er blásið í herlúðra í Vesturbænum. Landsliðið, píla, handboltasérfræðingurinn Arnar Daði í beinni frá München, Guinness gangan og fleira.
Rússíbani hjá Aroni - „Fyrir tveimur dögum vissi ég það ekki" 12.01.2024
Aron Bjarnason var í dag tilkynntur sem nýr leikmaður Breiðabliks. Hann er keyptur frá sænska félaginu Sirius þar sem hann hefur spilað undanfarin þrjú tímabil. Aron snýr aftur til Breiðabliks en þar lék hann síðast fyrri hluta tímabilsins 2019. Aron, sem er 28 ára kantmaður, skrifar undir samning sem gildir út tímabilið 2027. Hann ræddi við Fótbolta.net og má nálgast viðtalið í spilaranum efst se...
Enski boltinn - Besti mögulegi eigandinn fyrir Man Utd 10.01.2024
Þau tíðindi bárust um jólin að Jim Ratcliffe, ríkasti maður Bretlandseyja, hefði keypt 25 prósenta hlut í Manchester United. Þetta eru stór tíðindi fyrir stuðningsmenn Man Utd en hvað þýðir þetta nákvæmlega? Guðmundur Aðalsteinn fékk Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafa og fyrirlesara, í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag til þess að kryfja þessi tíðindi.
Útvarpsþátturinn - Ótímabæra, Freysi og hringborðið 06.01.2024
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 6. janúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri helmingnum: Fyrsta tímabæra spáin fyrir Bestu deildina og Freyr Alexandersson, nýr þjálfari Kortrijk, er á línunni. Í seinni helmingnum: Enska hringborðið með Kristjáni Atla sem velur áhugavert úrvalslið.
Enski boltinn - Hversu spennandi verður kapphlaupið? 03.01.2024
Gleðilegt nýtt ár hlustendur Enska boltans! Það er Ástríðuþema í þætti dagsins því þeir Ástríðubræður: Sverrir Mar Smárason og Gylfi Tryggvason fóru yfir síðustu umferð með Sæbirni Steinke. Farið var yfir leiki umferðarinnar og rýnt í toppbaráttuna. Verður Darwin Nunez markahærri 2024 en Erling Haaland? Hvað er að gerast hjá Arsenal? Er eitthvað ljós í enda ganganna hjá Man Utd? Er Man City líkleg...
Útvarpsþátturinn - Kæfan 2023 30.12.2023
Síðasti útvarpsþátturinn Fótbolti.net á árinu 2023 og þá er að sjálfsögðu Áramótakæfan 2023 á dagskrá. Fótboltaárið er gert upp á skemmtilegan hátt; maður ársins valinn og leynigestur kemur í heimsókn. Takk fyrir árið hlustendur kærir, heyrumst á því nýja!
Enski boltinn - Kraftaverkin gerast á jólunum 29.12.2023
Enski boltinn hefur verið allsráðandi í kringum jólahátíðina og það var meira að segja spilað á aðfangadag. Gummi og Steinke komu sér vel fyrir í Thule-stúdíóinu í dag með Litlu Flugvélinni, Ingimar Helga Finnssyni, og fóru yfir það sem hefur skeð í ensku úrvalsdeildinni um jólin. Það er óhætt að segja að kraftaverkin gerist á jólunum. Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla, kæru hlustendur.
Útvarpsþátturinn - Litlu jólin með Magnúsi Má og Arnari Gunnlaugs 23.12.2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 23. desember. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri hluta þáttarins er Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar gestur og rætt um Lengjudeildina og Mosfellinga. Í seinni hlutanum er Arnar Gunnlaugsson þjálfari meistara Víkings gestur en það varð ljóst í gær að hann tekur ekki við Norrköping. Þá er rætt við Kára Árnason yfirmann fótboltamála h...
Tiltalið: Fanney Inga Birkisdóttir 22.12.2023
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson. Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Vals og nýjasta landsliðskonan okkar Fanney Inga Birkisdóttir. Við ræddum við hana um hina hliðina og tó...
Enski boltinn - El Jóhann hitar upp fyrir Þorláksmessuveislu 22.12.2023
Twitter-kóngurinn El Jóhann er gestur Enska boltans hlaðvarpsins á þessum ágæta föstudegi. Hann hitar upp fyrir Þorláksmessuveisluna sem er í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Það eru áhugaverðir leikir á dagskrá og endar dagurinn með stórleik Liverpool og Arsenal. Arsenal er á toppnum sem stendur en El Jóhann er mikill Arsenal-maður. Hann spáir þeim auðvitað sigri í leiknum en í þættinum stillti ha...
Viðar Ari - Ævintýraþrá og ótrúleg saga 21.12.2023
Viðar Ari Jónsson gekk í raðir norska félagsins HamKam í lok sumargluggans eftir að hafa spilað í mánuð með FH. Hann kom í FH eftir að hafa leikið með Honved í Ungverjalandi. Viðar ræðir hvernig hann endaði í Búdapest eftir frábært tímabil með Sandefjord í Noregi 2021. Í aðdraganda skiptanna var hann mjög nálægt því að semja við ísraelsku meistarana og Viðar segir frá því hvernig þau skipti duttu...
Enski boltinn - Fljótur að yfirgefa hópspjallið 18.12.2023
Jafntefli var niðurstaðan á Anfield í gær þegar Liverpool og Manchester United áttust við. Það var mikið að ræða eftir leikinn en Gummi og Steinke fengu Orra Frey Rúnarsson í heimsókn í Thule-stúdíóið til að fara yfir leikinn og allt sem gerðist í kringum hann. United-menn fagna stiginu á meðan Liverpool-stuðningsmenn eru pirraðir. Það var svo nóg annað að ræða eftir helgina en jólin eru besti tím...
Útvarpsþátturinn - Besta þarfagreiningin 16.12.2023
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 16. desember. Farið er í þarfagreiningu fyrir lið Bestu deildarinnar og skoðað hvar þau þurfa helst að styrkja sig fyrir tímabilið á næsta ári. Í leiðinni er farið yfir fréttir og slúður úr deildinni, rætt um skellinn sem Breiðablik fékk í Póllandi og janúarverkefni landsliðsins. Elvar Geir og Tómas Þór og Valur Gunnars. Málsmetandi aðili þáttarins...
Enski boltinn - Tryllt læti í Köben og United kveður 14.12.2023
Riðlakeppni Meistaradeildarinnar kláraðist í gærkvöldi og má svo sannarlega tala um ótrúlega niðurstöðu. FC Kaupmannahöfn frá Danmörku komst áfram úr riðli sem innihélt Bayern München og Manchester United, en síðarnefnda liðið endaði á botni riðilsins. Í þessari sérstöku aukaútgáfu Enski boltinn hlaðvarpinu í dag var hringt til Danmerkur og rætt við íþróttafréttamanninn Runólf Trausta Þórhallsson....
Tiltalið: Fanndís Friðriksdóttir 13.12.2023
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson. Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður Íslandsmeistara Vals og fyrrum landsliðskonan Fanndís Friðriksdóttir. Við ræddum við hana um hina hliðin...
Enski boltinn - Meistarasigur og tvö stórlið í brasi 11.12.2023
Enska úrvalsdeildin heldur áfram að skemmta Íslendingum en þó mismikið eftir því hvaða liði fólk heldur með. Það var stórskemmtilegt að fylgjast með umferðinni um helgina en til þess að kryfja hana þá kom Tómas Þór Þórðarson, ritstjóri enska boltans hjá Síminn Sport, í heimsókn í Thule-stúdíóið í dag. Gummi og Steinke eru á sínum stað að venju en farið er yfir alla leiki helgarinnar í enska boltan...
Ungstirnin - Frelsari Svíþjóðar og skærasta ungstirni Afríku 10.12.2023
Í þessum 50. þætti Ungstirnanna fara þeir Arnar Laufdal og Bjarni Þór Hafstein yfir víðan völl. Ibrahim Diarra (2006) ein skærasta stjarna Afríku. Hann skoraði 5 mörk og gerði 4 stoðsendingar á HM U-17 ára þegar að lið Malí lenti í 3.sæti og segir sagan að hann sé þegar búinn að skrifa undir samning hjá Barcelona. Lucas Bergvall (2006) er efnilegasti leikmaður Svíþjóðar um þessar mundir og einn sá...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.