Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Gylfi mættur í Val - Lyftir deildinni upp um nokkrar hæðir 14.03.2024

Gylfi Þór Sigurðsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Val og ætlar sér að verða Íslandsmeistari með liðinu. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke ræða þessar fréttir í sérstökum hlaðvarpsþætti sem tekinn var upp í ljósi þessara risatíðinda. Þá ræðir Sæbjörn við Börk Edvardsson formann Vals um komu Gylfa.

Enski boltinn - Yfirburðir Liverpool og ómögulegt að spá 11.03.2024

Það var svo sannarlega um nóg að ræða í Enski boltinn hlaðvarpinu eftir stórleik Liverpool og Manchester City á Anfield í gær. Leikurinn endaði með jafntefli og titilbaráttan er gífurlega spennandi. Tómas Þór Þórðarson, ritstjóri enska boltans á Símanum, er gestur þáttarins í dag. Og þá eru stór tíðindi því Sæbjörn Þór Steinke er mættur aftur eftir gott frí í Víetnam.

Útvarpsþátturinn - Dóri Árna og enduskoðuð Lengjuspá 09.03.2024

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 9. mars. Umsjón: Elvar Geir og Benedikt Bóas. Í fyrri hluta þáttarins: Fótboltafréttir vikunnar og Baldvin Borgars mætir með endurnýjaða ótímabæra Lengjudeildarspá. Í seinni hlutanum: Halldór Árnason þjálfari Breiðabliks er gestur þáttarins og Kristján Atli hitar upp fyrir stórleikinn á Anfield.

Hugarburðarbolti Þáttur 6 05.03.2024

Phil Foden gulls ígildi á Etihad. Það er einn krónprins í Birmingham sem heitir Ollie Watkins. Arsenal áfram á eldi og Liverpool tóku 3 stig á elleftu stundu í Nottingham eins og Hrói Höttur sjálfur. Hver fær rauða spjaldið? Kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.

Enski boltinn - Martraðartitilbarátta fyrir Man Utd menn 05.03.2024

Stórleikur Manchester City og Manchester United er mikið til umræðu í hlaðvarpinu Enski boltinn í dag. Andri Már Eggertsson og Eysteinn Þorri Björgvinsson eru gestir í þættinum en Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson stýrir umræðunni. Yfirburðir City voru miklir í leiknum, 27 marktilraunir gegn þremur. Er það boðlegt fyrir Man Utd? Einnig var farið yfir aðra leiki helgarinnar og rætt um toppbaráttuna s...

Útvarpsþátturinn - Síðasta ótímabæra spáin fyrir Bestu deildina 04.03.2024

Í útvarpsþættinum Fótbolti.net þessa vikuna er síðasta ótímabæra spáin fyrir Bestu deild karla. Það er um mánuður í mót! Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Sérfræðingar: Baldur Sigurðsson og Valur Gunnarsson. Í þættinum fræðir Baldur okkur einnig um þætti sína, Lengsta undirbúningstímabil í heimi, og rætt er um formannskosningu KSÍ.

Einvígið gegn Serbíu: Sveindís tók yfir og Ísland áfram á meðal 16 bestu 01.03.2024

Íslenska kvennalandsliðið vann sigur gegn Serbíu í umspili Þjóðadeildarinnar fyrr í þessari viku. Stelpurnar verða því áfram í A-deild sem skiptir máli fyrir undankeppni Evrópumótsins. Guðmundur Aðalsteinn fékk þá Guðna Þór Einarsson og Gylfa Tryggvason, þjálfara kvennaliðs HK, í heimsókn í dag til að fara yfir leikina tvo. Rætt var um þróun liðsins og margt fleira en Ísland er áfram á meðal 16 be...

Hugarburðarbolti Þáttur 5 27.02.2024

Liverpool vann deildarbikarinn í spennuleik. Bowen sökkti býflugunum. Bitlausir Man Utd menn án Højlund. Arsenal menn áfram á flugi. Hver fær rauða spjaldið? Kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.

Útvarpsþátturinn - Henry Birgir gestur og farið yfir málin 27.02.2024

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net frá laugardeginum 24. febrúar. Tómas Þór, Benedikt Bóas og Henry Birgir fara yfir fótboltafréttirnar.

Enski boltinn - Allt í lagi með krakkana og lúserinn Pochettino 26.02.2024

Liverpool vann deildabikarinn í gær eftir frábæran úrslitaleik gegn Chelsea á Wembley. Óskar Smári Haraldsson, þjálfari kvennaliðs Fram, og Jón Aðalsteinn Kristjánsson, þjálfari 2. flokks karla hjá Haukum, fóru yfir leikinn ásamt undirrituðum. Óskar er stuðningsmaður Liverpool og Nonni er stuðningsmaður Chelsea. Einnig er farið yfir aðra leiki helgarinnar á Englandi en lengst af var rætt um úrslit...

Hugarburðarbolti Þáttur 4 22.02.2024

Sjóðandi heitur Hojlund. Eygypski töframaðurinn birtist þegar engin/n átti von á honum og stimplaði sig inn tímabundið. Skytturnar halda áfram að skjóta lið í kaf. Vonir margra fantasy spilara brotnuðu. Rauða spjaldið, kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.

Enski boltinn - Mjög spennandi barátta og sjóðheitur Höjlund 19.02.2024

Það er skemmtileg umferð að baki í ensku úrvalsdeildinni og er toppbaráttan gríðarlega spennandi þessa stundina. Manchester City tapaði stigum á meðan Arsenal og Liverpool unnu sína leiki sannfærandi. Manchester United er á fínu skriði og Rasmus Höjlund getur ekki hætt að skora, Gary O'Neil er aftur einn af stjórum tímabilsins og Mason Holgate er ekki skarpasti hnífurinn í skúffunni. Gunnar Ormsle...

Útvarpsþátturinn - Afmælisveisla og Jón Rúnar gestur 17.02.2024

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net hélt upp á afmæli sitt laugardaginn 17. febrúar. Í fyrri hluta þáttarins er farið yfir íslenskar fótboltafréttir vikunnar og úrslitin úr Lengjubikarnum. Í seinni hluta þáttarins er Jón Rúnar Halldórsson gestur og ræðir um fótboltapólitíkina og komandi ársþing KSÍ.

Hugarburðarbolti Þáttur 3 13.02.2024

Rice Rice Babe. Er Salah að snúa aftur? Er Haaland fullkominn Triple C í næstu umferð? Bruno G og Star Boy Saka ofl. í þætti dagsins.

Enski boltinn - Hvað er í gangi hjá Chelsea? 13.02.2024

Chelsea er mikið til umræðu í hlaðvarpsþættinum Enski boltinn í dag. Liðið vann endurkomusigur gegn Crystal Palace í gær en tímabilið hefur verið afar dapur hjá Lundúnafélaginu. Chelsea endaði um miðja deild á síðasta tímabili og það er útlit fyrir að það gerist eftir. Guðmundur Aðalsteinn stýrir þættinum og fær hann þá Harald Örn og Stefán Martein í heimsókn, en þeir eru báðir miklir stuðningsmen...

Steven Lennon gerir upp magnaðan feril - Skórnir upp á hillu 13.02.2024

Steven Lennon hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir magnaðan feril hér á Íslandi. Hann er einn besti leikmaður sem hefur spilað í efstu deild hér á landi og er hann í dag markahæsti erlendi leikmaður í sögu efstu deildar. Lennon ólst upp í akademíu Rangers í Skotlandi en kom hingað til lands árið 2011 til að spila með Fram. Hér festi hann rætur en hann spilaði lengst af með FH og varð algj...

Útvarpsþátturinn - Ótímabær Lengjuspá og formannsefnin fara yfir stóru málin 10.02.2024

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 10. febrúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri hlutanum: Baldvin Már Borgarsson kom með ótímabæra Lengjudeildarspá. 42:15 Í seinni hlutanum: Formannsefni KSÍ fóru yfir málin, rætt var við Guðna Bergsson, Vigni Má Þormóðsson og Þorvald Örlygsson en þeir eru í framboði til formanns KSÍ.

Var að plana að flytja upp á Skaga en svo breyttist allt snögglega 08.02.2024

Gísli Eyjólfsson var í vikunni kynntur sem nýr leikmaður sænska úrvalsdeildarfélagsins Halmstad. Hann er annar leikmaðurinn sem Halmstad fær frá Íslandi í vetur því í síðasta mánuði fékk liðið Birni Snæ Ingason, besta leikmann Bestu deildarinnar 2023, í sínar raðir frá Víkingi. Gísli hefur undanfarin ár verið algjör lykilmaður í liði Breiðabliks. Hann skoraði þrjú mörk í 15 Evrópuleikjum og sjö mö...

Hugarburðarbolti - Geggjuð umferð að baki 07.02.2024

Hugarburðarbolti er nýtt fantasy hlaðvarp sem alla fantasy spilara þyrstir í. Hlusta má á þáttinn á öllum helstu veitum í gegnum Fótbolti.net. Annar þáttur var að koma í loftið.

Tiltalið: Brynjar Björn Gunnarsson 06.02.2024

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar besta knattspyrnufólk landsins bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson. Viðmælandi okkar að þessu sinni er þjálfari Grindavíkur, Brynjar Björn Gunnarsson. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirferð á ferlinum til þessa.

Enski boltinn - Er bannað að fagna? 05.02.2024

Arsenal stóð uppi sem sigurvegarinn í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Lundúnafélagið vann sannfærandi sigur gegn Liverpool á heimavelli sínum. Jón Kári Eldon var á vellinum en hann var á línunni í hlaðvarpinu Enski boltinn í dag og ræddi þar um ferð sín á Emirates, og jú auðvitað um leikinn. Þá er auðvitað líka rætt um aðra leiki helgarinnar í þættinum en það var nóg um að vera í þes...

Útvarpsþátturinn - Máni í framboði og ótímabæra spáin 03.02.2024

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 3. febrúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Gestur er Máni Pétursson, sérfræðingur á Stöð 2 Sport og fyrrum útvarpsmaður á X-inu. Hann fer yfir nýja ótímabæra spá þar sem öll liðin í Bestu deildinni eru skoðuð. Þá eru fréttir vikunnar að sjálfsögðu á sínum stað.

Hugarburðarbolti er nýtt fantasy hlaðvarp 02.02.2024

22.000 manns á Íslandi spila fantasy leikinn í enska fótboltanum. Hugarburðarbolti er nýtt fantasy hlaðvarp sem alla fantasy spilara þyrstir í. Hlusta má á þáttinn á öllum helstu veitum í gegnum Fótbolti.net. Vignir Már Eiðsson og Gunnar Georgsson sjá um þáttinn. Gunnar Georgsson er einn allra sterkasti fantasy spilari landsins. Hann er í 10 sæti yfir allt Ísland og er efstur í mörgum öðrum deildu...

Enski boltinn - Tveir hrikalega spennandi og allir elska Luton 02.02.2024

Það var leikið í ensku úrvalsdeildinni í miðri viku en það má með sanni segja að tveir efnilegir og spennandi leikmenn hafi stolið senunni. Gummi og Steinke komu sér vel fyrir í Thule-stúdíóinu í dag og fóru yfir leiki umferðarinnar með Óskari Smára Haraldssyni, þjálfara kvennaliðs Fram. Einnig var aðeins farið yfir gluggadaginn í gær en hann var fremur bragðdaufur.

Enski boltinn - Vandræðagemsar í sviðsljósinu 30.01.2024

Það er bikarhelgi að baki í enska boltanum og er spilað í ensku úrvalsdeildinni núna í miðri viku. Það er nóg að ræða þar sem mikið er um fréttir í enska boltanum um þessar mundir af misgáfulegum mönnum og þá er gluggadagurinn á fimmtudag. Gummi og Steinke fengu sér sæti í Thule-stúdíóinu ásamt fréttaritaranum Sölva Haraldssyni í dag. Farið var yfir bikarinn, deildina, slúður og fréttir síðustu da...

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.