Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Niðurtalningin - F er fyrir fótbolta og H er fyrir Hödda Magg 03.04.2024

Áfram höldum við að telja niður fyrir Bestu deildina en mótið hefst á laugardaginn. Í sjötta sæti í spánni er FH en feðgarnir Hörður Magnússon og Magnús Haukur Harðarson komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net til að ræða Fimleikafélagið. Þá er markvörðurinn Sindri Kristinn Ólafsson á línunni í seinni hluta þáttarins.

Enski boltinn - Óhefðbundið topplið 02.04.2024

Þeir Elvar Geir og Tómas Þór, þáttarstjórnendur útvarpsþáttarins Fótbolti.net, gerðu upp umferðina í ensku úrvalsdeildinni með Sæbirni Steinke. Tómas var á Etihad á sunnudeginum og sagði frá skemmtilegu atviki sem tengist Robert Pires sem einnig var á leiknum. Liverpool gat heldur betur fagnað því sigur vannst gegn Brighton og á sama tíma gerðu samkeppnisaðilarnir jafntefli í stórleiknum. Man Utd...

Niðurtalningin - Stór prófíll norður eftir heldur rólegan vetur 02.04.2024

Við á .net höldum áfram að opinbera hvar liðin eru í spá okkar fyrir Bestu deild karla. Það eru aðeins fimm dagar í fyrsta leik en KA er í sjöunda sæti. Haraldur Örn Haraldsson og Skúli Bragi Geirdal, stuðningsmenn KA, mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og fóru yfir stöðuna hjá Akureyrarfélaginu. Það skal tekið fram að þeirra partur var tekinn upp áður en Viðar Örn Kjartansson gengur í rað...

Niðurtalningin - Þungamiðja menningar í hverfinu 02.04.2024

Við á .net höldum áfram að opinbera hvar liðin eru í spá okkar fyrir Bestu deildar karla eftir stutt páskafrí. Það eru núna aðeins fimm dagar í að deildin fari af stað. Í áttunda sæti í spánni er Fram en Stefán Pálsson, sagnfræðingur, mætti í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í síðustu viku og ræddi þar um sitt uppáhalds félag, ásamt Luton á Englandi. Þá er markahrókurinn Guðmundur Magnússon á lí...

Hugarburðarbolti þáttur 9 01.04.2024

Liverpool aftur á toppinn. Stórmeistarajafntefli á Etihad. Newcastle með magnaðan endurkomusigur. Spurs og Villa bæði með sigra og spennan magnast líka í fallbaráttunni. Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.

Útvarpsþátturinn - Vetrarverðlaunin og enska hringborðið 30.03.2024

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 30. mars. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. - Rætt um Bestu deildina og Vetrarverðlaunin veitt, hverjir sköruðu fram úr á undirbúningstímabilinu? - Tómas Þór segir skoðun sína á landsleiknum gegn Úkraínu. - Viðar Örn Kjartansson í símaviðtali en risastórar fréttir bárust frá Akureyri þegar hann var kynntur sem nýr leikmaður KA. - Kristján Atli mætir með enska hringborð...

Niðurtalningin - Tveir vendipunktar síðasta sumar 28.03.2024

Það eru níu dagar núna í það að Besta deildin fari af stað! Í dag tökum við fyrir ÍA í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net. Frændurnir Sverrir Mar Smárason og Andri Júlíusson mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og greindu Skagamenn. Arnór Smárason, bróðir Sverris og fyrirliði ÍA, er þá á línunni í seinni hluta þáttarins.

Niðurtalningin - Eitthvað nýtt og miklu stærra 27.03.2024

Það eru tíu dagar núna í það að Besta deildin fari af stað! Í dag tökum við fyrir Vestra í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net. Fréttamaðurinn Aron Guðmundsson og Sigurgeir Sveinn Gíslason, goðsögn hjá félaginu, mættu til að fara yfir málin. Þá er Benedikt Warén á línunni í seinni hlutanum en hann skrifaði undir þriggja ára samning við Vestra fyrir síðasta tímabil og hjálpaði liðinu að komast upp.

Aldrei heim - Horfum ekki á E-riðilinn á EM 27.03.2024

Lokaþáttur Aldrei heim, markmiðið að komast á EM náðist því miður ekki. Daginn eftir tapið gegn Úkraínu fara Elvar Geir og Sæbjörn Steinke yfir leikinn og niðurstöðuna. Farið er yfir einkunnir íslenskra leikmanna, helstu umræðupunkta og framhaldið hjá liðinu. Við þökkum fyrir hlustunina á hlaðvarpsþætti okkar frá Ungverjalandi og Póllandi. Áfram Ísland!

Niðurtalningin - Hverfisstrákarnir úr Árbænum 26.03.2024

Það eru ellefu dagar í það að Besta deildin fari af stað en í dag tökum við Fylki fyrir í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net. Kristján Gylfi Guðmundsson og Þorsteinn Lár Ragnarsson, stuðningsmenn Fylkis, mættu í dag í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og fóru um víðan völl. Þá er Ragnar Bragi Sveinsson, fyrirliði Fylkis, á línunni í seinni hluta þáttarins.

Aldrei heim - Kjartan Henry fékk góða gjöf frá Úkraínumanni 26.03.2024

Það er úrslitastund, leikdagur. Úkraína og Ísland mætast í Wroclaw í kvöld og stemningin í borginni eykst. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke ræða við góða menn á leikdegi. Stefán Árni Pálsson íþróttafréttamaður á Stöð 2 Sport og Kjartan Henry Finnbogason sérfræðingur kíktu á hótelbarinn. Rætt er um stemninguna og spennuna í aðraganda leiksins, líklegt byrjunarlið, kynni Kjartans af landsliðsþjálfara Ú...

Aldrei heim - Formaðurinn í takkaskónum 25.03.2024

Þeir Elvar Geir Magnússon og Sæbjörn Steinke ræddu um atburði dagsins í hlaðvarpsþættinum Aldrei heim. Á morgun fer fram úrslitaleikur milli Íslands og Úkraínu um sæti á EM. Í dag voru fréttamannafundir liðanna og lokaæfingarnar fyrir leikinn. Farið er yfir líklegt byrjunarlið Íslands og það helsta sem kom fram á fréttamannafundunum, Í þættinum er rætt við Þorvald Örlygsson formann KSÍ um landslið...

Niðurtalningin - Sama uppskrift og í fyrra 25.03.2024

Það er heldur betur farið að styttast í Bestu deildina en í dag eru aðeins tólf dagar í fyrstu leiki mótsins. Við á Fótbolta.net byrjuðum með spá okkar fyrir mótið í dag en þar er HK á botninum. Meðfram spánni munum við birta hlaðvörp þar sem rætt er við stuðningsmenn liða og leikmann úr hverju liði. Fyrir hönd HK mættu fjölmiðlamennirnir Ingvi Þór Sæmundsson og Andri Már Eggertsson. Svo var hring...

Aldrei heim - Landsliðið komið til Póllands 24.03.2024

Íslenska landsliðið flaug í dag yfir til Wroclaw í Póllandi en þar verður leikurinn gegn Úkraínu á þriðjudag, úrslitaleikurinn um sæti á Evrópumótinu í Þýskalandi. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke eru einnig komnir yfir til Póllands og ræddu helstu umræðumálin í aðdraganda leiksins. Ferðalagið til Póllands, íslensku stuðningsmennirnir, styrkleikar úkraínska liðsins, tvífari Trossard, spurningamerki á...

Útvarpsþátturinn - Jói Kalli, Bjarki Már og Elvar Geir um landsliðið 22.03.2024

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 er á hlaðvarpsformi þessa vikuna og var tekinn upp í dag, föstudaginn 22. mars. Tómas Þór og Benedikt Bóas gera upp sigur Íslands á Ísrael í gær. Jóhannes Karl Guðjónsson aðstoðarþjálfari Íslands er á línunni og fer yfir leikinn með þeim. Þá er hringt í Bjarka Má Elísson landsliðsmann Íslands í handbolta sem var á leiknum í gær ásamt heimsþekktum handboltastjör...

Beint frá Búdapest - Hetjan sem mátti ekki tala 22.03.2024

Aldrei heim! Ísland gerði sér lítið fyrir og vann 4-1 sigur gegn Ísrael í Búdapest. Eftir ótrúlegan rússíbanaleik er ljóst að það bíður úrslitaleikur gegn Úkraínu sem fram fer í Póllandi á þriðjudaginn. Úrslitaleikur um sæti á EM í Þýskalandi. Eftir langan vinnudag ræddu Elvar Geir og Sæbjörn Steinke við Helga Sigurðsson fréttamann 433.is um þetta skemmtilega kvöld þar sem Albert Guðmundsson stal...

Beint frá Búdapest - Áfall að morgni leikdags 21.03.2024

Það er leikdagur í Búdapest. Ísland og Ísrael mætast í kvöld. Sigurliðið í leiknum mætir Úkraínu eða Bosníu í úrslitaleik um sæti á EM. Elvar Geir og Sæbjörn Steinke spjalla um komandi leik við Stefán Árna Pálsson íþróttafréttamann á Stöð 2 Sport og Vísi.

Viktor Unnar: Fann strax að þetta er eitthvað sem á við mig 21.03.2024

Viktor Unnar Illugason var á sínum tíma einn efnilegasti fótboltamaður Ísland en í dag er einn efnilegasti þjálfari landsins. Viktor hefur starfað sem yngri flokka þjálfari hjá Breiðabliki undanfarin ár en var í vetur ráðinn til Vals. Þar stafar hann sem þjálfari 2. flokks og 4. flokks, en er einnig með puttana í meistaraflokknum. Viktor Unnar settist niður með Baldvini Má Borgarssyni, fréttamanni...

Aron Jó: Cole Campbell tekur sínar eigin ákvarðanir 21.03.2024

Aron Jóhannsson, leikmaður Vals, settist niður með Baldvini Má Borgarssyni, fréttamanni Fótbolta.net, eftir tap Valsmanna gegn ÍA í Lengjubikarnum í gær. Í spjallinu fór Aron aðeins yfir leikinn, komu Gylfa Þórs Sigurðssonar til félagsins, nýjan samning sinn á Hlíðarenda og Cole Campbell sem ákvað nýverið að spila fyrir bandaríska landsliðið.

Hugarburðarbolti Þáttur 8 19.03.2024

Fantasy spilarar slógu öll met um helgina. Fulham unnu Lundúnaslaginn. Burnley náðu í kærkomin og gríðarlega mikilvæg 3 stig. Man Utd unnu Liverpool eftir framlengingu í FA bikarnum í rosalegum leik. Bestu 3 í umferðinni. Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.

Beint frá Búdapest - Skiptar skoðanir á ákvörðuninni um Albert 19.03.2024

Elvar Geir og Sæbjörn Steinke eru staddir í Búdapest og fá Helga Sigurðsson fréttamann 433.is í spjall þar sem komandi landsleikur er skoðaður. Ísrael - Ísland verður í borginni á fimmtudagskvöld. Sigurliðið í leiknum mætir Úkraínu eða Bosníu í úrslitaleik um sæti á EM. Rætt er um undirbúning íslenska liðsins, æfingarnar sem búnar eru, tignarlegt hótel liðsins, Albert Guðmundsson og ýmislegt fleir...

Hákon Rafn - Umspilið og leiðin til Brentford 19.03.2024

Sæbjörn Steinke spjallar við Hákon Rafn Valdimarsson landsliðsmarkvörð á hóteli íslenska liðsins í Búdapest. Ísrael - Ísland verður í borginni á fimmtudagskvöld. Sigurliðið í leiknum mætir Úkraínu eða Bosníu í úrslitaleik um sæti á EM. Hákon ræðir um umspilið og einnig um Brentford en hann var keyptur til enska úrvalsdeildarfélagsins í janúarglugganum.

Enski boltinn - Töfrar í bikarnum 18.03.2024

Einn besti leikur tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni var í gær þegar erkifjendurnir Manchester United og Liverpool áttust við í FA-bikarnum. Leikurinn var magnaður og má svo sannarlega tala um rússíbanareið. Jóhann Páll Ástvaldsson og Orri Freyr Rúnarsson mættu í Thule-stúdíóið í dag og fóru yfir stórleikinn, sem og aðra leiki helgarinnar.

Útvarpsþátturinn - Landsliðsvalið fyrir bardagann í Búdapest 16.03.2024

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 16. mars. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta sem er í gangi í boltanum. Sæbjörn Steinke fréttamaður Fotbolti.net er með þeim í þættinum. Landsliðsvalið er krufið og sigurmöguleikar okkar í umspilsleiknum gegn Ísrael eru skoðaðir. Einnig er rætt um komu Gylfa í Bestu deildina og aðrar fréttir íslenska boltans skoðaðar. Að auki er horf...

Hugarburðarbolti Þáttur 7 14.03.2024

Son sá um Villa á Villa park. Tvær gullsendingar bakvarðarins Ben skiluðu þremur stigum. Man Utd með sigur og jafntefli í stórleiknum á Anfield. Semenyo frábær á Vitality vellinum. Hver fær rauða spjaldið? Kóngurinn og Hirðfíflið á sínum stað.

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.