Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Niðurtalningin - Dreymir um að endurtaka leikinn frá 2012 20.04.2024

Besta deild kvenna hefst á morgun og það er mikil spenna fyrir deildinni sem er framundan. Þór/KA er spáð þriðja sæti í spá Fótbolta.net fyrir mótið. Við hitum upp fyrir deildina með því að spjalla við fulltrúa liðanna tíu og taka á þeim púlsinn fyrir komandi tímabil. Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þór/KA, og Sandra María Jessen, lykilmaður liðsins, mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net...

Útvarpsþátturinn - Brottvísun sem eyðilagði leikinn 20.04.2024

Besta deildin er aðalmálið í útvarpsþættinum Fótbolti.net þessa vikuna. Elvar Geir og Tómas Þór eru umsjónarmenn þáttarins. Sérstakur gestur og sérfræðingur í þættinum er Haraldur Árni Hróðmarsson, fyrrum aðstoðarþjálfari ÍA og Vals. Leikur Stjörnunnar og Vals er gerður upp og hitað upp fyrir komandi leiki, þar á meðal stórleik Víkings og Breiðabliks. Í lok þáttar er farið í Evrópuboltann og enska...

Niðurtalningin - Skemmtikraftarnir úr Kaplakrika 20.04.2024

Besta deild kvenna hefst á morgun og það er mikil spenna fyrir deildinni sem er framundan. FH er spáð fjórða sæti í spá Fótbolta.net fyrir mótið. Við hitum upp fyrir deildina með því að spjalla við fulltrúa liðanna tíu og taka á þeim púlsinn fyrir komandi tímabil. Guðni Eiríksson, þjálfari FH, og Valgerður Ósk Valsdóttir, leikmaður liðsins, mættu í heimsókn og fóru yfir stöðuna í Kaplakrika.

Niðurtalningin - Nýjar áherslur og spennandi tímar í Garðabænum 19.04.2024

Besta deild kvenna hefst á sunnudaginn og það er mikil spenna fyrir deildinni sem er framundan. Stjörnunni er spáð fimmta sæti deildarinnar í spá Fótbolta.net. Við hitum upp fyrir deildina með því að spjalla við fulltrúa liðanna tíu og taka á þeim púlsinn fyrir komandi tímabil. Anna María Baldursdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, og Andrea Mist Pálsdóttir, miðjumaður liðsins, mættu í heimsókn í dag og...

Niðurtalningin - Nýir tímar í Laugardalnum 18.04.2024

Besta deild kvenna hefst á sunnudaginn og það er mikil spenna fyrir deildinni sem er framundan. Í sjötta sæti í spá Fótbolta.net fyrir mótið er Þróttur Reykjavík. Við hitum upp fyrir deildina með því að spjalla við fulltrúa liðanna tíu og taka á þeim púlsinn fyrir komandi tímabil. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir og Sæunn Björnsdóttir, leikmenn Þróttar, mættu í heimsókn og fóru yfir stöðuna í Laugard...

Niðurtalningin - Hamingjan er í Víkinni 17.04.2024

Besta deild kvenna hefst um næstu helgi og er mikil spenna fyrir deildinni sem er framundan. Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Víkingur muni enda í sjöunda sæti deildarinnar. Við hitum upp fyrir deildina með því að spjalla við fulltrúa liðanna tíu og taka á þeim púlsinn fyrir komandi tímabil. Selma Dögg Björgvinsdóttir og Erna Guðrún Magnúsdóttir, góðar vinkonur úr Víkingi, mættu í heimsókn og...

Hugarburðarbolti Þáttur 12 16.04.2024

Liverpool og Arsenal töpuðu bæði á heimavelli í toppbaráttunni. Man City er þekkt stærð á toppnum. Cole Palmer er engum líkur og henti í fernu gegn Everton. Rauða spjaldið, topp 3 og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.

Niðurtalningin - Andinn á Sauðárkróki er einstakur 16.04.2024

Besta deild kvenna hefst næsta sunnudag. Við á Fótbolti.net erum byrjuð að opinbera spá okkar en í áttunda sæti í spánni er Tindastóll. Við hitum upp fyrir deildina með því að spjalla við fulltrúa liðanna tíu og taka á þeim púlsinn fyrir komandi tímabil. Halldór Jón Sigurðsson, betur þekktur sem Donni, var á línunni fyrir hönd Tindastóls. Hann er þjálfari Stólanna og er spenntur fyrir komandi kepp...

Enski boltinn - Er titilbaráttan bara búin? 16.04.2024

Það var mikið sem gerðist í ensku úrvalsdeildinni um liðna helgi en titilbaráttan er mögulega bara búin eftir leiki helgarinnar. Liverpool tapaði og Arsenal tapaði. Enn eina ferðina virðist Pep Guardiola ætla að standa uppi sem sigurvegari. Óskar Smári Haraldsson, stuðningsmaður Liverpool, mætti í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fór yfir stöðuna með Gumma og Steinke.

Innkastið - Víkingur vinnur leiki sem Valur vinnur ekki 15.04.2024

Innkastið eftir 2. umferð Bestu deildarinnar. Það er besti sportbar landsins (samkvæmt Reykjavík Grapevine), Ölver í Glæsibæ, sem býður upp á þáttinn. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars gera upp alla leiki umferðarinnar. Hlíðarendi nötrar strax eftir fyrsta hliðarspor, Viktor Jóns sökkti HK, FH sótti öll stigin norður, Breiðablik með yfirburði gegn Vestra og Framarar tóku á móti Íslandsm...

Niðurtalningin - Ásþórsdætur í Fylkisspjalli 15.04.2024

Það er núna akkúrat vika í það að Besta deild kvenna fari af stað en sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Fylkir muni enda í níunda sæti deildarinnar. Við á Fótbolti.net munum hita upp fyrir deildina með því að spjalla við fulltrúa liðanna tíu og taka á þeim púlsinn fyrir komandi tímabil. Systurnar Eva Rut og Sara Dögg Ásþórsdætur mættu í heimsókn og fóru yfir stöðuna hjá Fylki.

Niðurtalningin - Ekki afskrifa Keflvíkingana 15.04.2024

Það er núna akkúrat vika í það að Besta deild kvenna fari af stað en sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Keflavík muni enda í tíunda sæti deildarinnar. Við á Fótbolti.net munum hita upp fyrir deildina með því að spjalla við fulltrúa liðanna tíu og taka á þeim púlsinn fyrir komandi tímabil. Viðtölin eru gefin út á hlaðvarpsformi en fyrir hönd Keflavíkur mættu Guðrún Jóna Kristjánsdóttir, aðstoðarþ...

Útvarpsþátturinn - Kraftur í KR og umdeild dómgæsla 13.04.2024

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 13. apríl. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Fjallað um sigur KR í Garðabænum og hitað upp fyrir aðra leiki umferðarinnar. Gestur þáttarins er Gunnar Jarl Jónsson, fyrrum dómari og nú meðlimur dómaranefndar KSÍ. Dómgæslan hefur verið mikið í umræðunni og ýmislegt að fara yfir.

Enski boltinn - El Meistaradeildarveisla 11.04.2024

El Jóhann, sem fer oft hamförum á X, var gestur þeirra Sæbjörns og Guðmunds í þætti dagsins. Í fyrri hluta þáttarins var áherslan á leikjunum í Meistaradeildinni í liðinni viku og svo var rætt um titilbaráttuna í ensku úrvalsdeildinni í seinni hlutanum. Tvær vítaspyrnur á Emirates? Rautt á Kane? Veislan á Bernabeu og getur Mbappe komið til baka?

Innkastið - Fljúgandi start og fullar stúkur 08.04.2024

Innkastið eftir 1. umferð Bestu deildarinnar 2024. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars gera upp alla leiki umferðarinnar. FH átti að fá víti í Kópavogi, Gylfi geggjaður, markaregn í Árbæ, Fram vann nýliðana, KA óð í færum og Víkingar öruggir gegn Stjörnunni.

Hugarburðarbolti Þáttur 11 08.04.2024

Kevin De Bruyne með sýningu á Selhurst Park. Kai Haverts er búinn að troða sokk ofan í gagnrýnisraddir. Ollie Watkins mættur aftur og setti tvö. Luton með gríðarlega mikilvægan sigur í fallbaráttunni. Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.

Mögnuð saga Diljár - Næstum hætt en ætlar nú á EM með Íslandi 08.04.2024

Diljá Ýr Zomers átti sinn besta landsleik til þessa þegar Ísland vann 3-0 sigur gegn Póllandi síðasta föstudag. Hún var frábær á kantinum og skoraði annað mark íslenska liðsins í leiknum. Um var að ræða annað markið sem Diljá gerir í ellefu A-landsleikjum, en hún spilaði sinn fyrsta landsleik á síðasta ári og hefur síðan þá unnið sér sæti í byrjunarliðinu. Diljá, sem hefur átt magnað tímabil með L...

Útvarpsþátturinn - Besti upphitunarþátturinn 06.04.2024

Hitað er rækilega upp fyrir Bestu deild karla í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór skoða alla leiki fyrstu umferðar og spá í spilin fyrir deildina. Með þeim er Ingólfur Sigurðsson sérstakur sérfræðingur. Farið er yfir helstu fréttirnar í aðdraganda mótsins og heyrt í þjálfurum úr deildinni.

Niðurtalningin - Gylfi Sig mættur á Hlíðarenda 06.04.2024

Í dag er komið að þessu. Besta deildin er að fara af stað. Í efsta sæti í spá okkar Fótbolta.net fyrir tímabilið eru Valsmenn. Jóhann Skúli Jónsson og Jóhann Alfreð Kristinsson mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net til að fara yfir stöðuna hjá Val fyrir tímabiliið sem framundan er. Þá er sjálfur Adam Ægir Pálsson á línunni í seinni hluta þáttarins.

Niðurtalningin - Bara ein leið til að toppa síðasta tímabil 05.04.2024

Þetta er að byrja! Á morgun hefst Besta deildin 2024 þegar Víkingur og Stjarnan eigast við í opnunarleiknum. Víkingum er spáð öðru sæti deildarinnar en liðið er ríkjandi Íslands- og bikarmeistari. Tómas Þór Þórðarson, ritstjóri enska boltans hjá Símanum, og Þórður Ingason, fyrrum markvörður Víkinga, mættu í heimsókn á skrifstofu .net og fóru þar yfir stöðuna hjá Víkingum. Þá er Halldór Smári Sigur...

Hugarburðarbolti Þáttur 10 05.04.2024

Tryllt þrenna hjá Foden og ekki sú fyrsta á tímabilinu. Cole Palmer er kóngurinn á brúnni. Alexis McAllister með einn eitt gullmarkið fyrir Liverpool. Fantasy spilarar grátt leiknir þessa umferðina. Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.

Enski boltinn - Ekki bara bestu kaup tímabilsins 05.04.2024

Það var spilað í miðri viku í ensku úrvalsdeildinni, en umferðin kláraðist í gær með tveimur leikjum. Körfuboltaþjálfarinn Hrafn Kristjánsson mætti á skrifstofu .net í dag og fór yfir umferðina ásamt Gumma og Steinke. Núna erum við að fara inn í lokasprettinn og titilbaráttan hefur sjaldan verið eins spennandi.

Niðurtalningin - Ungu strákarnir þekkja ekkert annað 05.04.2024

Besta deildin hefst á morgun! Í þriðja sæti í spá Fótbolta.net fyrir mótið er Stjarnan. Hinn skemmtilegi Þorkell Máni Pétursson mætti í heimsókn á skrifstofu .net og ræddi um Stjörnuna en hann er mikill stuðningsmaður félagsins. Þá er Hilmar Árni Halldórsson, leikmaður Stjörnunnar, á línunni í seinni hluta þáttarins.

Niðurtalningin - Höfðinginn og Sörens hlæja að spánni 04.04.2024

Besta deildin hefst eftir tvo daga en í fjórða sæti spá Fótbolta.net fyrir mótið er Breiðablik. Kristján Óli Sigurðsson, betur þekktur sem Höfðinginn, og Sigurjón Jónsson, Sörens, mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og ræddu stöðuna hjá Blikum. Þá er Damir Muminovic, varnarmaður Blika, á línunni í seinni hluta þáttarins.

Niðurtalningin - Tími breytinga á Meistaravöllum 03.04.2024

Áfram höldum við að telja niður fyrir Bestu deildina en mótið hefst á laugardaginn. Núna er komið að KR sem er spáð fimmta sæti. Sindri Snær Jensson, fyrrum markvörður KR, og íþróttafréttamaðurinn Valur Páll Eiríksson mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru þar yfir stöðuna hjá Vesturbæjarstórveldinu. Þá er Elmar Bjarnason, leikmaður liðsins, á línunni í seinni hluta þáttarins.

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.