Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Útvarpsþátturinn - Sérfræðingurinn Sævar Atli og fjármálaskýrsla 01.06.2024
Útvarpsþátturinn á kosningadegi. Umsjón: Elvar Geir og Benedikt Bóas. Sævar Atli Magnússon, leikmaður Lyngby, er með þeim í þættinum. Þeir þrír fara yfir helstu fótboltafréttir vikunnar, leiki Bestu deildarinnar og Lengjudeildarinnar og ýmislegt fleira. Í seinni hlutanum kemur Þórir Hákonarson, sérfræðingur þáttarins í fótboltapólitíkinni. Hann hefur skoðað samantektarskýrslu Deloitte og KSÍ um fj...
Enski boltinn - Úrslitaleikurinn og tímabil Man Utd 30.05.2024
Bræðurnir Hallgrímur Mar og Hrannar Björn fóru yfir bikarúrslitaleikinn og tímabilið hjá Manchester United með Sæbirni Steinke. Man Utd varð bíkarmeistari eftir sigur á Man City um síðustu helgi, úrslit sem komu mörgum á óvart. Einstakir leikmenn í liðinu voru til umræðu og rætt vel um framtíð stjórans. Þá voru vangaveltur um hvaða leikmenn þyrfti að selja og hvaða stöður þyrfti að styrkja
Innkastið - Baulað í Vesturbæ og Hrafninn í stúkunni 27.05.2024
Innkastið eftir 8. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Baldvin Borgars og með þeim er Örn Þór Karlsson fótboltaþjálfari. KR tapaði niður tveggja marka forskoti gegn nýliðunum, umdeild vítaspyrna réði úrslitum á Akranesi, stór dómaramistök á Hlíðarenda og sex stiga fallbaráttuslagur í Árbæ.
Útvarpsþátturinn - Þarfir toppliðanna, svekktir eftir landsliðsvalið og enskt uppgjör 24.05.2024
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpsformi þessa vikuna. Elvar Geir, Valur Gunnars og Guðmundur Aðalsteinn í hljóðveri. Í fyrri hluta þáttarins er fjallað um íslenska boltann. Þarfagreining fyrir toppliðin í Bestu deildinni, landsliðsval Age Hareide, Lengjudeildina og fleira. Í seinni hlutanum er uppgjör Kristjáns Atla á tímabilinu í enska boltanum.
Innkastið - Aftur verður FH fyrir barðinu á dómaramistökum 21.05.2024
Innkastið eftir 7. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Skagamaðurinn Sverrir Mar Smárason skoða alla leikina. Blikar elta Víkinga, Jónatan Ingi hetja Vals í Kórnum, vondur vítadómur í Krikanum og KA vann botnslaginn. Lengjudeildarhornið er á sínum stað.
Hugarburðarbolti Þáttur 17 Uppgjör tímabilsins 21.05.2024
Man City vann deildina fjórða tímabilið í röð. Einstakt afrek. Pep er klárlega besti knattspyrnustjóri sögunar. Arsenal sitja eftir í öðru sæti með 89 stig. Chelsea fer inn í Evrópudeildina. Aston Villa í fyrsta sinn í meistaradeildinni á næsta tímabili. Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað. Tímabilið gert upp.
Enski boltinn - Þegar partýið er búið 21.05.2024
Enska úrvalsdeildin kláraðist núna um helgina en Manchester City varð Englandsmeistari fjórða árið í röð. Jurgen Klopp stýrði sínum síðasta leik hjá Liverpool og Manchester United tryggði sér áttunda sætið. Magnús Haukur Harðarson og Jón Kaldal mættu í heimsókn í dag og fóru yfir lokaumferðina, sem og tímabilið í heild sinni. Þeir völdu lið ársins, leikmann ársins og stjóra ársins. Og líka mestu v...
Útvarpsþátturinn - Hvítasunnuhringborðið 18.05.2024
Elvar Geir stýrir hringborðsumræðum í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Við hringborðið er farið yfir fréttir vikunnar en meðal annarra umræðuefna er: Þeir bestu og mestu vonbrigðin í Bestu deildinni, leikir vikunnar í Mjólkurbikarnum, komandi umferð í Bestu, Lengjudeildin og lokaumferðin í ensku úrvalsdeildinni. Með Elvari við hringborðið eru Baldvin Borgarsson þjálfari og sérfræðingur og Sæbj...
Hugarburðarbolti þáttur 16 17.05.2024
Úrslitin um titilinn ráðast á sunnudag. Man City er með þetta í sínum höndum. Tottenham gáfu City hörku leik í vikunni en nýttu ekki færin. Chelsea mögulega að ná inn í Evrópudeildina með mjög góðum endaspretti. Foden eða Rice leikmaður tímabilsins? Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.
Enski boltinn - Viltu að liðið þitt tapi? 14.05.2024
Það er mjög svo spennandi lokaumferð framundan í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag og svo gríðarlega áhugaverður leikur í kvöld sem gæti haft mikil áhrif á það hvaða lið verður meistari. Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmaður Tottenham, og Magnús Valur Böðvarsson, stuðningsmaður Crystal Palace, mættu í heimsókn í dag til að taka stöðuna. Hvort verður Arsenal eða Manchester City enskur meistari?
Innkastið - Hrikalegir dagar fyrir Gregg Ryder 12.05.2024
Innkastið eftir 6. umferð Bestu deildarinnar. Það er sportbarinn Ölver sem býður upp á Innkastið. Elvar Geir, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke skoða alla leiki umferðarinnar. Víkingur vann toppslaginn, pressan eykst á Gregg Ryder, HK í fantastuði, gæði Breiðabliks gerðu gæfumun, Valur vann KA og ÍA vann Vestra. Dómararnir áttu góða umferð!
Útvarpsþátturinn - Böddi gestur og vangaveltur um Óskar Hrafn 11.05.2024
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 11. maí. Umsjón Elvar Geir og Tómas Þór. Böðvar Böðvarsson leikmaður FH er gestur en hann kom aftur heim fyrir tímabilið eftir atvinnumennsku. FH-ingar hafa farið vel af stað á tímabilinu og leika toppslag gegn Víkingum. Rætt er um stórtíðindin í gær en Óskar Hrafn Þorvaldsson sagði óvænt upp hjá Haugesund. Þruma úr heiðskíru. Í hvaða starf fer hann næst?...
Hugarburðarbolti Þáttur 15 07.05.2024
Haaland í stuði á Etihad. 6 mörk á Anfield. Arsenal heldur titildraumunum lifandi. Crystal Palace burstuðu Man Utd. Lánleysi Burnley heldur áfram. Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.
Enski boltinn - Alveg búinn á því og hvar ræðst titilbaráttan? 07.05.2024
Áhugaverð helgi að baki í ensku úrvalsdeildinni, en umferðin kláraðist með ótrúlegum leik Crystal Palace og Manchester United í gær. United fékk þar vænan skell. Þeir Chelsea félagar Jón Aðalsteinn Kristjánsson og Stefán Marteinn Ólafsson mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru yfir umferðina. Spennan er heldur betur farin að magnast. Hvaða lið vinnur deildina og hvaða lið fer eig...
Innkastið - Gylfasýning og óvæntustu úrslit sumarsins 06.05.2024
Innkastið eftir 5. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars. Gylfi var magnaður í sigri Vals í stórleik umferðarinnar, HK með stórkostlega frammistöðu og vann Víking, dómararnir byrja mótið illa og það er óvæntur toppslagur á dagskrá í næstu umferð.
Útvarpsþátturinn - Besta, Lengjan og Arne Slot skýrsla 04.05.2024
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 4. maí. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið yfir komandi umferð í Bestu deildinni og skoðað hvernig Lengjudeildin fer af stað. Sölvi Haraldsson ÍR-ingur er á línunni eftir óvæntan sigur Breiðhyltinga í Keflavík. Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur um Liverpool, kemur og fer yfir hverju megi búast frá Arne Slot sem tekur að öllum líkindum við stjórna...
Hugarburðarbolti Þáttur 14 03.05.2024
King Kai Havertz var kóngurinn í Norður Lundúna slagnum á meðan Michael Oliver var hirðfíflið. Man City marði þrjú sterk stig í Nottingham. Liverpool stimplaði sig alveg út úr baráttunni um titilinn. Burnley er enn á lífi í botnbaráttunni. Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.
Innkastið - Víkingar fá hjálp sem þeir þurfa ekki 29.04.2024
Innkastið gerir upp 4. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunn og Sæbjörn Steinke. Víkingar fá óþarfa hjálp frá dómurunum, Valsmenn eru oftar ólíkir sjálfum sér en líkir, Blikar hættu að vera andlausir og leikmaður sem fæddist ári eftir að Fernando Torres tryggði Spáni Evrópumeistaratitilinn skoraði fyrir Fram. Hvað eru eiginlega komin mörg gul spjöld í þessari deild?
Enski boltinn - Ef ég tala, þá er ég í miklum vandræðum 29.04.2024
Það var nóg af atriðum til að ræða eftir helgina í ensku úrvalsdeildinni. Það fer að styttast í annan endann á þessu stórskemmtilega tímabili. El Jóhann mætti í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag til að fara yfir helgina með þeim Gumma og Steinke. El Jóhann hefur að sjálfsögðu enn bullandi trú á því að Arsenal geti tekið Englandsmeistaratitilinn í næsta mánuði.
Útvarpsþátturinn - Lengjuspáin, úrvalslið og bikarstuð 27.04.2024
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 27. apríl. Umsjón: Elvar Geir og Benedikt Bóas. Lengjudeildin er aðalmálið í þættinum. Baldvin Már Borgarsson, sérfræðingur velur úrvalslið deildarinnar og afhjúpað er hvernig spá þjálfara og fyrirliða lítur út. Einnig verður farið yfir bikarleikina, tíðindi gluggadagsins og hitað upp fyrir fjórðu umferð Bestu deildarinnar.
Hugarburðarbolti þáttur 13 26.04.2024
Monster umferð hjá mörgum fantasy spilurum. Man City í bílstjórasætinu. Liverpool missteig sig illa. Arsenal heldur áfram að halda markinu sínu hreinu. Sá stóri í Kristals höllinni heitir Jean Phillip Mateta. Rauða spjaldið og kóngurinn og hirðfíflið á sínum stað.
Enski boltinn - Heimskur og heimskari 22.04.2024
Viðburðarrík helgi að baki í enska boltanum þar sem bæði var spilað í ensku úrvalsdeildinni og þeirri elstu og virtustu, ensku bikarkeppninni. Manchester United var stálheppið gegn Coventry, Guardiola brjálaður eftir sigurleik og Arsenal og Liverpool komust aftur á sigurbraut. Gummi og Steinke eru á sínum stað en Emil Ásmundsson, leikmaður Fylkis, er sérstakur gestur í þættinum.
Innkastið - Flugbraut fyrir meistarana og norðlensk neikvæðni 21.04.2024
3. umferð Bestu deildarinnar tekin fyrir í Innkastinu. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnars. Íslandsmeistarar Víkings eru eina liðið með fullt hús stiga og miðað við næstu leiki er möguleiki á að þeir stingi aftur af! Blikar órafjarri Víkingum, Skagamenn elska að vera einum fleiri, Djúpmenn unnu fyrir norðan, Rúnar Kristins skákaði KR, Björn Daníel með Bergkamp takta og pirringur í þjálfar...
Niðurtalningin - Endar titillinn enn eitt árið á Hlíðarenda? 21.04.2024
Besta deild kvenna hefst í dag og það er mikil spenna fyrir deildinni sem er framundan. Því er spáð að Valur muni verja Íslandsmeistaratitil sinn í sumar. Við höfum hitað upp fyrir deildina með því að spjalla við fulltrúa liðanna tíu og taka á þeim púlsinn fyrir komandi tímabil. Adda Baldursdóttir, aðstoðarþjálfari Vals, og Fanndís Friðriksdóttir, leikmaður liðsins, mættu í heimsókn og fóru yfir s...
Niðurtalningin - Silfur er alls ekki nóg í Kópavoginum 20.04.2024
Besta deild kvenna hefst á morgun og það er mikil spenna fyrir deildinni sem er framundan. Breiðabliki er spáð öðru sæti í spá Fótbolta.net fyrir mótið. Við hitum upp fyrir deildina með því að spjalla við fulltrúa liðanna tíu og taka á þeim púlsinn fyrir komandi tímabil. Ásta Eir Árnadóttir, fyrirliði Blika, og Birta Georgsdóttir, framherji liðsins, mættu í heimsókn og fóru yfir stöðuna í græna hl...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.