Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Innkastið - Falldraugurinn færist nær KR og Víkingar eru valtir 22.07.2024

Innkastið eftir 15. umferð Bestu deildarinnar (sem er þó ekki alveg búin vegna kerfisvillunnar). Fjör í Kópavoginum þar sem Breiðablik vann fallbaráttulið KR og Víkingur tapaði gegn funheitum KA-mönnum. Lengjudeildarhornið en það er líka farið niður í 2. og 3. deild. Svo er það blessuð Sambandsdeildin. Elvar Geir, Guðmundur Aðalsteinn og Baldvin Borgars.

Útvarpsþátturinn - Ferðasögur og fótboltafréttir 20.07.2024

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 20. júlí. Elvar Geir og Tómas Þór skoða helstu fótboltafréttir vikunnar. Íslensku liðin í Evrópu, Besta deildin, félagaskipti og Lengjudeildin. Börkur formaður Vals er í beinni frá Albaníu, Tom segir ferðasögu frá Dublin og Jökull þjálfari Stjörnunnar er á línunni. Þá er einnig farið yfir erlendar fréttir.

Einn stærsti sigur í fótboltasögu Íslands og leiðin liggur til Sviss 18.07.2024

Íslenska kvennalandsliðið er komið á EM eftir frábæran landsliðsglugga. Stelpurnar unnu magnaðan 3-0 sigur gegn Þýskalandi á Laugardalsvelli og unnu í kjölfarið 0-1 sigur gegn Póllandi. Þær lentu í öðru sæti sínum og fara beint á EM. Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Fram, og Magnús Haukur Harðarson, þjálfari Fjölnis, komu við á skrifstofu Fótbolta.net í dag og ræddu um stöðu kvennalandsliðsins og...

Innkastið - Vítavert klúður Víkings 16.07.2024

Innkast vikunnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Magnús Þórir Matthíasson. Rætt er um dramatíkina í Dublin þar sem Shamrock Rovers vann Víking í forkeppni Meistaradeildarinnar. Frammistaða Víkings í einvíginu voru gríðarleg vonbrigði. Farið er yfir síðustu leiki Bestu deildarinnar og einnig er rætt um Evrópuleikina framundan og Lengjudeildina.

Leiðin á Laugardalsvöll - Baddi um Árbæ og markamaskína í spjalli 15.07.2024

Leiðin á Laugardalsvöll heldur áfram á miðvikudaginn þegar 16-liða úrslitin í Fótbolta.net bikarnum verða leikin í heild sinni. Það eru nokkrir mjög svo áhugaverðir leikir framundan en við hitum upp í dag með því að spjalla við Baldvin Má Borgarsson, þjálfara Árbæjar. Hans menn hafa verið að gera flotta hluti í 3. deildinni en þeir mæta Víkingi Ólafsvík, sem er í þriðja sæti í 2. deild, á miðvikud...

EM hringborðið - Fótboltinn sigraði þó hann hafi ekki komið heim 15.07.2024

Spánverjar eru Evrópumeistarar eftir skemmtilegan úrslitaleik gegn Englandi. Fótboltinn kom ekki heim að þessu sinni. En það má klárlega segja að fótboltinn hafi sigrað því besta lið mótsins vann. Axel Óskar Andrésson og Eyþór Aron Wöhler, leikmenn KR, komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net til að ræða úrslitaleikinn og gera upp mótið á léttum nótum.

Útvarpsþátturinn - Boltinn með Binna Gests og FIFPro 13.07.2024

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 13. júlí. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Gestur þáttarins er Brynjar Gestsson fótboltaþjálfari og er víða komið við í spjalli við hann. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar, Evrópuleiki íslensku liðanna, Bestu deildina og fleira. Þá koma formenn frá FIFPro alþjóðlegu leikmannasamtökunum í spjall seinni hluta þáttarins.

EM hringborðið - Efnilegar stórstjörnur og spennandi úrslitaleikur 11.07.2024

Úrslitaleikurinn á Evrópumótinu fer fram á sunnudaaginn en undanúrslitin kláruðust í gær. Það eru England og Spánn sem munu mætast í úrslitaleiknum. Guðmundur Aðalsteinn, Sæbjörn Steinke og Valur Gunnarsson fóru yfir undanúrslitin og úrslitaleikinn í EM hringborðinu í dag. Lionel Messi baðaði nýju stórstjörnu heimsfótboltans, Kylian Mbappe átti hauskúpumót og Southgate fer aftur í úrslitaleikinn m...

EM hringborðið - Undanúrslitin hefjast í kvöld 09.07.2024

Komið er að undanúrslitunum á EM. Fyrri viðureignin fer fram í kvöld, þriðjudagskvöld, þegar Spánn mætir Frakklandi og annað kvöld mætast England og Holland. Til þess að gera upp mótið til þessa, og aðallega 8-liða úrslitin, komu þeir Birkir Björnsson og El Jóhann í stúdíó Fótbolta.net og ræddu við Sæbjörn Steinke. Hvernig gengu taktísku breytingar Southgate upp? Toni Kroos kvaddi og Ronaldo lék s...

Innkastið - Skagahátíð og Lengjuuppgjör 1-11 08.07.2024

Innkastið eftir 13. umferð Bestu deildarinnar. Í seinni hluta þáttarins er uppgjör á umferðum 1-11 í Lengjudeildinni; úrvalslið og ýmis verðlaun. Elvar Geir, Valur Gunnars og Baldvin Borgars fara yfir leikina og helstu fréttir úr íslenska boltanum.

Tiltalið: Úlfur Ágúst Björnsson 08.07.2024

Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar bestu leikmenn landsins úr efstu tveim deildum bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson. Viðmælandi okkar að þessu sinni er leikmaður FH og Duke Blue Devils Úlfur Ágúst Björnsson. Við ræddum við hann um hina hliðina og tókum létta yfirfer...

Útvarpsþátturinn - Kjartan Henry, EM og íslenski 06.07.2024

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 6. júlí. Umsjón: Elvar Geir og Benedikt Bóas. Rætt er um EM og íslenska boltann en gestur er Kjartan Henry Finnbogason aðstoðarþjálfari FH og EM sérfræðingur. Einnig er Ögmundur Kristinsson nýr markvörður Vals á línunni frá Aþenu og Anton Freyr fréttamaður Fótbolta.net er á írskum dögum á Akranesi.

EM hringborðið - Systurnar fara yfir 16-liða úrslitin 03.07.2024

Í gær kláruðust 16-liða úrslitin á Evrópumótinu og er það ljóst núna hvernig átta-liða úrslitin verða. Það var margt áhugavert sem gerðist í 16-liða úrslitunum: Bellingham var ótrúlega lélegur en var samt hetja leiðinlegra Englendinga, Ronaldo grét þegar mikið var eftir, Þjóðverjar fóru áfram eftir VAR-leikinn mikla, Spánverjar eru ofboðslega skemmtilegir og Frakkar eru þéttir til baka. Systurnar...

Útvarpsþátturinn - Innkastið í beinni á X977 29.06.2024

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 29. júní. Innkastið í beinni útsendingu þar sem Elvar Geir, Benedikt Bóas og Baldvin Borgars skoða 12. umferð Bestu deildarinnar, helstu tíðindi og fréttir og Lengjudeildina. Góð umferð að baki fyrir Víking. Svo er hitað upp fyrir 16-liða úrslit EM. Örvar Arnarsson fréttaritari Fótbolti.net í Austurríki er á línunni.

EM hringborðið - Riðlunum lokið og útsláttarkeppni framundan 27.06.2024

Riðlakeppninni á Evrópumótinu í Þýskalandi er lokið og framundan eru 16-liða úrslitin. Almarr Ormarsson og Adda Baldursdóttir, sem eru bæði að vinna í kringum mótið fyrir RÚV, komu í heimsókn í dag og ræddu um riðlakeppnina og 16-liða úrslitin sem eru framundan. Það verður áhugavert að sjá hvernig mótið þróast en 16-liða úrslitin hefjast á laugardaginn.

Innkastið - Blikar brugðust og lið umferða 1-11 24.06.2024

Elvar Geir, Valur Gunnars og Guðmundur Aðalsteinn gera upp 11. umferð Bestu deildarinnar. Blikum tókst ekki að fara á toppinn, KR mætti með varnarleikinn að vopni og náði í stig gegn Víkingi og markvörður Vestra var í vandræðum gegn Val. Í þættinum er opinberað val á liði umferða 1-11, besta leikmanninum, besta þjálfaranum, besta unga leikmanninum og besta dómaranum.

Útvarpsþátturinn - Freysi og kraftaverkið í Kortrijk 22.06.2024

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 22. júní. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Freyr Alexandersson þjálfari Kortrijk er gestur þáttarins. Víða er komið við í spjalli við Frey en hann náði á magnaðan hátt að halda liðinu uppi í belgísku úrvalsdeildinni þegar nær allir voru búnir að útiloka það. Hvernig fór hann að því? Einnig er rætt um landsliðið, Bestu deildina, EM og fleira.

EM hringborðið - Lárus Orri og Óðinn Svan ræða fyrstu vikuna 20.06.2024

Þeir Lárus Orri Sigurðsson, fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður, og Óðinn Svan Óðinsson, fréttamaður RÚV, eru gestir í fyrsta uppgjörsþættinum á þessu Evrópumóti. Sæbjörn Steinke stýrir þættinum og fer yfir fyrstu vikuna á EM með þeim Lárusi og Óðni. Þjóðverjar hafa farið vel af stað, eitthvað slen er yfir Englendingum og Belgar í brasi. Farið er yfir það helst á mótinu til þessa og spáð í spilin. Þ...

Innkastið - Gregg rekinn og deildin opnast upp á gátt 20.06.2024

Innkastið eftir 10. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er íþróttafréttamaðurinn og markvarðasérfræðingurinn Runólfur Trausti. Runólfur er stuðningsmaður KR en í morgun var staðfest að Gregg Ryder hefði verið rekinn. Það er fyrsta mál á dagskrá þáttarins. Þá er farið yfir alla leiki umferðarinnar, þar á meðal stórskemmtilegan toppslag Vals og Víkings. Deildin er galopi...

Útvarpsþátturinn - Bestu og verstu kaupin í Bestu, bikarinn og EM 15.06.2024

Hringborð í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 laugardaginn 15. júní. Elvar Geir skoðar helstu fótboltafréttir vikunnar með sérfræðingunum Baldvini Borgarssyni þjálfara Árbæjar og Sölva Haraldsson fréttamanni Fótbolta.net. Rætt er um bestu og verstu kaupin í Bestu deildinni, besta leikmann Lengjudeildarinnar, leiki vikunnar í bikarnum, landsliðið og fleira. Í seinni hlutanum er sjónum síðan beint...

Leiðin á Laugardalsvöll - Ástríðan í Fífunni og Bjarni Jó í viðtali 14.06.2024

Önnur útgáfan af Fótbolti.net bikarnum hefst á sjálfan þjóðhátíðardaginn á mánudaginn þegar KFA og ÍH mætast. Svo eru hinir leikirnir spilaðir á miðvikudaginn. Í kringum keppnina verða hlaðvarpsþættir hér á síðunni og er þetta fyrsti þátturinn í sumar. Arnar Laufdal og Eysteinn Þorri, leikmenn Augnabliks, mættu í spjall um ástríðuna í Fífunni og fóru yfir leikina í 32-liða úrslitunum. Þá var Bjarn...

Allir riðlarnir á EM skoðaðir með Gunna Birgis og Jóa Ástvalds 10.06.2024

Evrópumótið í fótbolta hefst núna á föstudaginn með opnunarleik Þýskalands og Skotlands. Það er afar spennandi mót framundan og mörg lið sigurstrangleg. Guðmundur Aðalsteinn fékk nýverið Gunnar Birgisson og Jóhann Pál Ástvaldsson, íþróttafréttamenn á RÚV, í heimsókn til að hita upp fyrir mótið. Farið var í gegnum alla riðlana og liðin skoðuð. Skemmtileg yfirferð svona stuttu fyrir mót.

Útvarpsþátturinn - Birkir Már og landsliðsgleðin á Wembley 08.06.2024

Útvarpsþátturinn 8. júní. Tómas Þór og Benedikt Bóas halda um stýrið og að sjálfsögðu er sigur Íslands í vináttulandsleiknum gegn Englandi á Wembley fyrirferðarmikill. Birkir Már Sævarsson, fyrrum landsliðsmaður Íslands, er gestur þáttarins en hann er eini Íslendingurinn sem hefur fengið rautt spjald á Wembley. Þá er fjallað um íslenska boltann.

Guðrún Elísabet og Jasmín: Heiður að taka þátt í vegferðinni 06.06.2024

Fyrsti þriðjungur af deildarkeppni Bestu deildar kvenna - fyrir skiptingu - er lokið og má með sanni segja að deildin sé að spilast á mjög svo áhugaverðan hátt. Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir og Jasmín Erla Ingadóttir, leikmenn Íslandsmeistara Vals, komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og ræddu aðeins byrjunina á mótinu, tímann sinn hjá Val til þessa og margt fleira. Guðrún Elísabet er...

Innkastið - Ömurlegur varnarleikur í markaveislu 04.06.2024

Innkastið eftir 9. umferð Bestu deildarinnar. Valur Gunnarsson stýrir að þessu sinni en með honum eru Haraldur Árni Hróðmarsson og Tómas Þór Þórðarson. Það var sett markamet fyrir eina umferð en varnarleikurinn var ekki upp á marga fiska, þá sérstaklega ekki hjá KR í Vesturbænum. Ísak Snær sendi skilaboð í Kórnum, Víkingur þurfti að hlaupa mikið gegn Fylki, Vestri barði á Stjörnumönnum, ÍA lagði v...

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.