Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Innkastið - Blikar mættir á toppinn og spenna á öllum vígstöðvum 26.08.2024
Innkast vikunnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn. Breiðablik er komið á toppinn, Jón Þór fær sjaldséða gagnrýni, KA með mikilvægan sigur, Valur ekki sannfærandi en vann tíu Vestramenn, Björn Daníel funheitur og Stjarnan ekki í miklum vandræðum með HK.
Enski boltinn - Ten Hag tíminn, Noni í stuði og Guardiolabolti í Liverpool 26.08.2024
Önnur umferðin í ensku úrvalsdeildinni var skemmtileg en hún kláraðist í gær. Orri Fannar Þórisson, þjálfari KV, og Jóhann Páll Ástvaldsson, íþróttafréttamaður á RÚV, mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru yfir umferðina ásamt öllu því helsta. Manchester United tapaði enn og aftur í uppbótartíma undir stjórn Erik ten Hag, Noni Madueke talaði illa um Wolverhampton og skoraði svo þ...
Útvarpsþátturinn - Brotnir KR-ingar, Euro-Vikes og enskt hringborð 24.08.2024
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 24. ágúst. Elvar Geir og Tómas Þór skoða helstu fótboltafréttir vikunnar; Sambandsdeildin, Besta deildin og Lengjudeildin eru til umræðu. Í seinni hlutanum er fjallað um upphaf ensku úrvalsdeildarinnar og sérfræðingur þáttarins, Kristján Atli, kemur með sína spá um það hvernig þetta mun enda.
Hugarburðarbolti GW1 Flottir vinningar og frítt inn! 20.08.2024
Erling Braut Haaland og Mo Salah samir við sig í fyrstu umferð. Sigurvegari umferðarinnar með 99 stiga byrjun! Kai Havertz með draumabyrjun fyrir Arsenal. Zirkzee með sigurmarkið á Old Trafford í fyrsta leiknum sínum.
Innkastið - Blikar gripu loks gæsina og vond ára yfir Val 19.08.2024
Elvar Geir, Valur Gunnars og Baldvin Borgars eftir 19. umferð Bestu deildarinnar. Þvílík umferð að baki! Breiðablik hefur jafnað Víking að stigum á toppi deildarinnar og spennan eykst líka á öðrum vígstöðum! Lengjudeildarhornið er á sínum stað.
Enski boltinn - Nýju gæjarnir flottir og Slot grjótharður 19.08.2024
Enska úrvalsdeildin er hafin að nýju! Nýju gæjarnir hjá Manchester United voru flottir, Slot var grjótharður í fyrsta leiknum hjá Liverpool, Arsenal byrjaði á sigri, Brighton skellti sér á toppinn og hafnaboltapælingin hjá Chelsea virkar ekki í fótbolta. Baldvin Már Borgarsson og Sölvi Haraldsson mættu í heimsókn í dag og fóru yfir leiki helgarinnar og helstu sögulínur. Enski boltinn er í boði Nov...
Útvarpsþátturinn - Gulli Jóns og tvíburarnir 17.08.2024
Útvarpsþátturinn 17. ágúst. Tómas Þór, Benedikt Bóas og Valur Gunnars. Með þeim er Gunnlaugur Jónsson fjölmiðlamaður og fyrrum fótboltamaður. Sjónvarpsþættir um tvíburana Arnar og Bjarka, sviptingar hjá KR, sigur Breiðabliks gegn Vals, enski boltinnn og fleira til umfjöllunar.
Enski boltinn - Sá fimmti í röð hjá City? 16.08.2024
Manchester City er að fara inn í komandi tímabil til að vinna ensku úrvalsdeildina fimmta árið í röð. Eiríkur Þorvarðarson og Magnús Ingvason mættu í heimsókn í dag til að fara yfir síðasta tímabil og komandi leiktíð hjá Englandsmeisturunum. Pep Guardiola stýrir skútunni áfram hjá City og sá maður elskar að vinna titla. Enski boltinn hlaðvarpið er í boði Nova.
Hugarburðarbolti GW1 Pakkaferð á leik í vinning! 15.08.2024
Enska deildin fer af stað á morgun og fórum við yfir liðin sem við ætlum að stilla upp í byrjun tímabils. Gunni og Dóri eru með nánast alveg eins lið en Vignir er með allt aðrar pælingar en þeir. Svo eru risa fréttir! TA-Sport eru gengnir til liðs með okkur og ætla að gefa sigurverara deildarinnar pakkaferð á leik í ensku úrvalsdeildinni! Við munum að sjálfsögðu halda áfram með vikulega vinninga o...
Enski boltinn - „Fagleg" umræða um Arsenal 15.08.2024
Arsenal ætlar sér að vinna ensku úrvalsdeildina á komandi tímabili. Þetta er árið. Gunnar Birgisson og Jón Kári Eldon, tveir veikustu Arsenal stuðningsmenn landsins, mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru yfir sviðið. Umræðan var „fagleg" að þeirra mati. Arsenal hefur lent í öðru sæti síðustu tvö tímabil en ætla sér að taka gullið í ár. Jón Kári og Gunnar sætta sig við tvo...
Enski boltinn - Nýr kafli skrifaður í sögu Liverpool 14.08.2024
Það verður nýr kafli skrifaður í sögu Liverpool á komandi tímabili; Jurgen Klopp er farinn eftir níu ára veru hjá félaginu. Í staðinn er Hollendingurinn Arne Slot tekinn við stjórnartaumunum. Atli Már Steinarsson og Magnús Haukur Harðarson, tveir grjótharðir Liverpool stuðningsmenn, mættu í heimsókn í dag og fóru yfir stöðuna eftir breytingarnar. Mun Liverpool kaupa leikmann áður en glugginn lokar...
Innkastið - Bölvun aflétt með nýjum þjálfara og glórunni tapað 12.08.2024
Innkastið eftir 18. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Óskar Smári. Óskar Hrafn byrjar aðstoðarþjálfaraferilinn á sigri, Skagamenn náðu aftur í sigur, Arnar Gunnlaugs urðaði yfir dómarastéttina, allir brjálaðir í Garðabæ, mistök að fara á Hlíðarenda, Lengjudeildarhornið og fleira.
Enski boltinn - Ætla aftur í hópferð til Tottenham 12.08.2024
Tottenham er að fara inn í sitt annað tímabil með Ange Postecoglou við stjórnvölinn og menn eru bara nokkuð brattir. Hjálmar Örn Jóhannsson, Hjammi, og Ingimar Helgi Finnsson, litla flugvélin, mættu í heimsókn á skrifstofu í dag og fóru yfir stöðuna fyrir tímabilið sem er framundan. Dominic Solanke, Mikey Moore, Oliver Skipp koma við sögu í þættinum og þá ræða þeir um mögulega hópferð til Tottenha...
Útvarpsþátturinn - Fjósamennska í íslenska boltanum 10.08.2024
Elvar Geir og Tómas Þór í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 laugardaginn 10. ágúst. Lengjudeildin skoðuð, Kristinn Kjærnested fer yfir Bestu deildina og helstu fréttamál þaðan og Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA er á línunni frá Akranesi. Í lok þáttarins er rætt um enska boltann.
Enski boltinn - Furðulegur heimur Chelsea 09.08.2024
Það hefur mikið gengið á hjá Chelsea í sumar, alveg eins og búist var við. Leikmenn hafa komið og farið, og það er kominn nýr stjóri. Ekkert óvænt þar. Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson eru fárveikir Chelsea menn. Þeir mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fóru aðeins yfir stöðuna hjá sínu félagi; fóru yfir furðulegan heim Chelsea.
Innkastið - Brotið mark og óútreiknanlegt liðsval 08.08.2024
Innkastið fer yfir leiki vikunnar í Bestu deildinni. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Haraldur Örn fréttamaður Fótbolta.net og stuðningsmaður KA. Brotið mark í Kórnum, tap í fyrsta leik Túfa, fjör í markalausu jafntefli, áhugamennskulegt hjá Fylki, óútreiknanlegt liðsval Jökuls og Víkingssigur í Krikanum. Einnig er rætt um Evrópuleik Víkings og Lengjudeildina.
Tiltalið: Hallbera Guðný Gísladóttir 08.08.2024
Tiltalið er hlaðvarpssería þar sem við fáum til okkar áhugaverða einstaklinga úr knattspyrnunni á Íslandi bæði karla og kvenna í spjall og ræðum hina hliðina og ferilinn til þessa. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson og Haraldur Örn Haraldsson. Viðmælandi okkar að þessu sinni er fyrrum landsliðskonan Hallbera Guðný Gísladóttir. Við ræddum við hana um hina hliðina og tókum létta yfirferð...
Leiðin á Laugardalsvöll - Einn leikur í viðbót og töfrar á Króknum 07.08.2024
Í gær voru átta-liða úrslitin í Fótbolti.net bikarnum, þeirri yngstu og sprækustu, spiluð í heild sinni og er núna ljóst hvaða lið spila í undanúrslitum. Nú þarf bara að vinna einn leik í viðbót til að komast á Laugardalsvöll. Liðin sem eru komin í undanúrslit: Selfoss (2. deild) KFA (2. deild) Árbær (3. deild) Tindastóll (4. deild) Það verður dregið í undanúrslitin á morgun en Baldvin Már Borgars...
Hugarburðarbolti Upphitun 06.08.2024
Hugarburðarbolti fór aftur á stað í kvöld með upphitun fyrir komandi tímabil. Farið var yfir breytingar á reglum í fantasy leiknum og breytingar á þættinum þar sem nýr sérfræðingur gekk til liðs við félaganna. Sérfræðingarnir fóru yfir nokkur ráð fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna. Palmer fékk mestu hækkun sem leikmaður hefur fengið á milli tímabila og er fyrsta pikkið hans Vignirs. Vignir hlæ...
Útvarpsþátturinn - Stórtíðindi á færibandi 03.08.2024
Þetta var ótrúleg fréttavika í íslenska fótboltanum. Elvar Geir og Valur Gunnars fara yfir allt það helsta í útvarpsþættinum Fótbolti.net. Risafréttir í þjálfaramálunum á Íslandi, Evrópuleikir, heimkoma Arons Einars, Besta deildin, Lengjudeildin og fleira. Þátturinn er auðvitað í verslunarmannahelgargírnum og heyrt er í Tom í Herjólfi, Steinke á Akureyri, Páli Sævari um KR og Kela í París.
Enski boltinn - Man Utd aftur í Meistaradeildina 03.08.2024
Manchester United endaði síðasta tímabil vel og nokkur ánægja er með félagaskiptagluggann til þessa og frekari liðsstyrkur er orðaður við félagið. Þeir Aksentije Milisic og Egill Sigfússon eru djúpir í United fræðunum og fóru yfir hópinn, sumarið og spáðu í spilin með Sæbirni Steinke. Hvar þarf að styrkja hópinn frekar? Hverjir geta komið inn? Hverjir eru á förum? Ungir leikmenn sem gætu komið inn...
Túfa tekur aftur til starfa á Hlíðarenda: Þetta gerðist allt mjög hratt 02.08.2024
Það var tilkynnt seint í gærkvöldi að Arnar Grétarsson hefði verið látinn taka pokann sinn hjá Val. Srdjan Tufegdzic, alltaf kallaður Túfa, tekur við og hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Haukur Páll Sigurðsson verður aðstoðarmaður Túfa. Tíðindin komu nokkrum klukkutímum eftir að Valur hafði tapað gegn St. Mirren frá Skotlandi í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Túfa hefur síðustu...
Innkastið - VÖK opnar reikninginn og Valur hræðist toppinn 29.07.2024
Innkast vikunnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Sverrir Örn. VÖK opnaði markareikninginn, KR bjargaði stigi, Framarar komu úr fríi og skelltu Valsmönnum, slæmt tap ÍA og FH heldur áfram að gera góða hluti. Lengjudeildarhornið, Evrópa og fleira.
Útvarpsþátturinn - Gluggaslúður, Evrópa og þeir bestu í 2. deild 27.07.2024
Hringborð í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 laugardaginn 27. júlí. Elvar Geir skoðar helstu fótboltafréttir vikunnar með sérfræðingunum Baldvini Borgarssyni þjálfara Árbæjar og Sölva Haraldsson fréttamanni Fótbolta.net. Sæbjörn Steinke er á línunni frá Akureyri. Misjafnt gengi íslensku liðanna í Evrópu, gluggaslúður, Óskarlistinn, Besta deildin, Lengjudeildin og fleira. Í seinni hlutanum er ræ...
Enski boltinn - Nýir vindar og erfitt að spá í spilin 26.07.2024
Sumarglugginn er galopinn í enska boltanum og nokkuð áhugavert í gangi þó þetta hafi nú verið frekar rólegt lengi vel. Man Utd farið að haga sér eins og fótboltafélag, læti og nýr stjóri hjá Chelsea, Arne Slot tekinn við af kóngnum hjá Liverpool, City ætlar að vinna fimmta árið í röð, Arsenal sækir hinn sjóðheita Calafiori, Tottenham fær tvo bráðefnilega og Aston Villa að gera mjög skemmtilega hlu...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.