Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Útvarpsþátturinn - Umspilið, Rúnar Kristins og Besta 21.09.2024
Elvar Geir og Tómas Þór í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 laugardaginn 21. september. Sæbjörn Steinke er með þeim í þættinum. Rætt er um fréttir vikunnar, umspil Lengjudeildarinnar, bikarúrslitaleikinn, Bestu deildina og fleira. Gestur þáttarins er Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram.
Upphitun fyrir bikarúrslitaleikinn: Stuðningsmenn ræða málin 20.09.2024
Úrslitaleikur Mjólkurbikarsins fer fram á morgun þar sem Víkingur og KA munu eigast við. Haraldur Örn Haraldsson stuðningsmaður KA og Sverrir Örn Einarsson stuðningsmaður Víkings hituðu upp fyrir leikinn í þessu þætti.
Leiðin á Laugardalsvöll - Stórskemmtilegt fyrirbæri 20.09.2024
Á morgun fara fram undanúrslitin í Fótbolti.net bikarnum. Aðeins þarf að vinna einn leik í viðbót til að komast á Laugardalsvöll. laugardagur 21. september 13:00 Selfoss-Árbær (JÁVERK-völlurinn) 13:00 KFA-Tindastóll (Fjarðabyggðarhöllin) Bjarni Jóhannsson, þjálfari Selfoss, ræddi við Fótbolta.net í morgunsárið um sumarið á Selfossi en lið hans flaug upp úr 2. deildinni. Einnig var farið yfir undan...
Viktor Örlygur á leið í sinn fimmta bikarúrslitaleik 19.09.2024
Viktor Örlygur Andrason leikmaður Víkinga mætti í hljóðver Fótbolta.net í létta upphitun fyrir úrslitaleik Mjólkurbikarsins sem fram fer næstkomandi laugardag. Þar munu Víkingar mæta KA í úrslitum annað árið í röð og freista þess að vinna sinn fimmta bikartitil í röð.
Hugarburðarbolti GW4 Haaland heldur bara áfram sínu striki 17.09.2024
Haaland heldur bara áfram sínu striki. Robert Sanchez og Onana vörðu báðir vítaspyrnu í stöðunni 0-0 hjá sínum liðum. Fyrsti sigur Notthingham Forest á Anfield síðan 1969. Arsenal með montréttinn í Norður London eftir helgina og Ollie Watkins er vaknaður. Draumamörk í umferðinni.
Haukur Heiðar - Bikarúrslit, Deano og Alexander Isak 17.09.2024
Á laugardag fer fram bikarúrslitaleikur KA og Víkings á Laugardalsvelli; annað árið í röð mætast liðin í úrslitaleiknum. Í tilefni af því var KA-maðurinn Haukur Heiðar Hauksson fenginn til að hita aðeins upp fyrir leikinn. Haukur lagði skóna á hilluna eftir tímabilið 2021. Hann er uppalinn hjá KA, varð svo Íslands- og bikareistari með KR áður en hann tók skrefið út í atvinnumennsku og varð sænskur...
Innkastið - Rembingur og klaufabárðar 17.09.2024
22 umferðum er lokið í Bestu deildinni og komið að tvískiptingunni! Elvar Geir, Valur Gunnars og Guðmundur Aðalsteinn gera upp umferðina. Víkingur er á toppnum með öfluga markatölu, við höldum áfram að rembast við að búa til úrslitaleik, KR-ingar eru klaufabárðar og liðin í neðri hlutanum töpuðu nánast öll. Í þættinum er einnig fjallað um lokaumferð Lengjudeildarinnar og rýnt í umspilið. Svo er bi...
Enski boltinn - Að harka út sigur og getur Liverpool barist um titilinn? 16.09.2024
Landsleikjahléið er búið og fjórða umferðin í ensku úrvalsdeildinni var leikin um helgina. Ágúst Unnar Kristinsson og Óliver Elís Hlynsson, leikmenn ÍR, mættu í heimsókn og fóru yfir málin. Arsenal vann meistarasigur gegn erkifjendum sínum í Tottenham, raunveruleikatékk fyrir Arne Slot, Haaland er vélmenni og Manchester United komst aftur á sigurbraut gegn Southampton. Þetta og fleiri í þætti dags...
Tveggja Turna Tal - Ólafur Helgi Kristjánsson 16.09.2024
Óli Kristjáns er gestur sem allir þekkja. Óli var góður leikmaður fyrir FH, KR, AGF og Íslenska landsliðið og fáir Íslendingar hafa átt eins áhugaverðan þjálfaraferil. Það geta allir lært helling af því að hlusta á Ólaf. Skiptir þá engu hvort um sé að ræða þjálfun eða lífið sjálft. Við þökkum Nettó, Netgíró, Lengjunni fyrir samstarfið góða og óskum ykkur öllum þess að njóta vel! Það Er Alltaf Von
Útvarpsþátturinn - Kennslustund á Meistaravöllum 14.09.2024
Elvar Geir og Tómas Þór með útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 14. september. Víkingur komst aftur á topp Bestu deildarinnar með 3-0 sigri gegn KR-ingum sem eiga greinilega langt í land. Leikurinn er gerður upp og einnig heyrt í Arnari Gunnlaugssyni. Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar og hitað upp fyrir næstu umferð í Bestu deildinni og lokaumferð Lengjudeildarinnar. Sverrir Örn E...
Einn mesti sigurvegari sem hefur spilað í íslenskum fótbolta 12.09.2024
Pablo Punyed er einn mesti sigurvegari sem hefur spilað í íslenskum fótbolta. Hann lenti hér á landi aðeins 21 árs gamall og hefur fest hér rætur. Hann lítur núna á sig sem Íslending. Pablo spilar í dag með Íslands- og bikarmeisturum Víkings en hann er staðráðinn í að snúa aftur á fótboltavöllinn eftir að hafa slitið krossband á dögunum. Í þessum hlaðvarpsþætti ræðir hann um meiðslin, ferilinn til...
Innkastið - Landsliðið og Lengjudeildin 10.09.2024
Sérstakur aukaþáttur af Innkastinu á meðan Besta deildin er í landsleikjafríi. Umsjón: Elvar Geir. Farið er yfir landsleikinn í Tyrklandi og þá er fjallað vel um Lengjudeildina en síðasta umferðin verður leikin á laugardag. Fréttamenn .Net þeir Sölvi Haralds stuðningsmaður ÍR og Stefán Marteinn stuðningsmaður Njarðvíkur eru með Elvari í hljóðveri. Einnig Hilmar Jökull sem býður sig fram í formanns...
Tveggja Turna Tal - Hákon Sverrisson 09.09.2024
Hákon Sverrisson hefur þjálfað hjá Breiðablik í um 30 ár ásamt því að vera einn leikjahæsti leikmaður félagsins frá upphafi. Hákon hefur frá 2016 verið yfirþjálfari Blika en hefur auk þess í gegnum áratugina sérhæft sig í þjálfun yngstu iðkendanna og það væri gaman að vita hve mörg þúsund börn hafa hitt Hákon í Fífunni. Hákon Sverrisson er óumdeildur og góður maður. Hann er guðsgjöf fyrir fótbolta...
Útvarpsþátturinn - Gamla og nýja bandið búa til smelli 07.09.2024
Útvarpsþátturinn er frumfluttur í hlaðvarpsútgáfu þessa vikuna. Elvar Geir og Tómas Þór á Ölveri eftir fyrsta sigur Íslands í Þjóðadeildinni. 2-0 gegn Svartfjallalandi. Sæbjörn Steinke er með þeim og er leikurinn gerður upp, farið yfir frammistöðu leikmanna og stöðu mála. Í seinni hlutanum eru svo fréttir vikunnar og komandi umferð í Lengjudeildinni. Guðmundur Aðalsteinn er með í þeim hluta.
Hugarburðarbolti GW3 Er Haaland mennskur? 03.09.2024
Erling Braut West Ham. Önnur þrennan í röð og 7 mörk í fyrstu 3.umferðunum. Liverpool gerðu góða ferð á Old Trafford með dyggri aðstoð Casemiro. Chris Kavanagh átti hörmungar dag á Emirates. Bournemouth með stórkostlega endurkomu í Guttagarði. John Duran að standa undir nafni í 9.unni hjá Aston Villa og Newcastle unnu sterkan heimasigur gegn Tottenham. Kóngurinn, hirðfíflið og rauða spjaldið á sín...
Enski boltinn - Liverpool fékk betri sköllótta Hollendinginn 02.09.2024
Liverpool fór illa með Manchester United í stórleik í ensku úrvalsdeildinni í gær. Arnar Laufdal, stuðningsmaður Liverpool, og Eysteinn Þorri Björgvinsson, stuðningsmaður Manchester United, mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og gerðu leikinn upp. Einnig var farið yfir aðra leiki helgarinnar og aðeins rætt um gluggadaginn. Enski boltinn hlaðvarpið er í boði Nova.
Innkastið - Víkingur vann veika Valsmenn og spjót beinast að Túfa 02.09.2024
Síðasta umferðin í Bestu deildinni fyrir landsleiki var spiluð í gær. Það er ljóst hvernig deildinni verður skipt upp. Elvar Geir, Valur Gunnars og Guðmundur Aðalsteinn fara yfir stórskemmtilega leiki 21. umferðar, og líka þá leiðinlegu!
Tveggja Turna Tal - Sigurvin Ólafsson 02.09.2024
Sigurvin Ólafsson er óumdeilanlega einn af Turnum efstu deildar og neðri deilda í Íslenskum fótbolta. Venni er margfaldur Íslandsmeistara og hvar sem hann hefur komið er honum líst sem einstaklega góðum manni. Þátturinn í dag er stútfullur af góðum ráðum, áhugaverðum sögum, kímni og gleði. Það er gulur September. Munum: Það Er Alltaf Von. Tveggja Turna Tal er hlaðvarpsþáttur þar sem...
Útvarpsþátturinn - Þegar einn gluggi lokast opnast annar 31.08.2024
Davíð Snorri Jónasson aðstoðarlandsliðsþjálfari Íslands er gestur vikunnar í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Það er landsleikjagluggi framundan og Ísland mætir Svartfjallalandi og Tyrklandi í Þjóðadeildinni. Áður en spjallað er við Davíð er farið yfir helstu fótboltafréttirnar. Orri Steinn fór til Real Sociedad á gluggadeginum, ljóst er hverjum Víkingur mætir í Sambandsdeildinni, það er heil...
Staðan tekin í Bestu deild kvenna nú þegar deildin er skipt 30.08.2024
Fyrstu leikirnir í Bestu deild kvenna eftir að deildinni var skipt fóru fram í kvöld. Fyrr í dag komu þjálfararnir Magnús Haukur Harðarson og Óskar Smári Haraldsson við á skrifstofu Fótbolta.net og fóru yfir stöðuna í deildinni, lið fyrir lið. Það er mikil spenna í titilbaráttunni og á hinum enda töflunnar er þriggja liða barátta í baráttunni um að halda sér uppi. Einnig var aðeins snert á Lengjud...
Tveggja Turna Tal - Arnar Grétarsson 30.08.2024
Arnar Grétarsson á mjög áhugaverðan feril sem leikmaður, þjálfari og yfirmaður knattspyrnumála á Íslandi, Grikkland og í Belgíu. Við fórum fyrir yfir allt á milli himins og jarðar frá því að hann sat 16 ára gamall á skrifstofunni hjá Sir Alex Ferguson yfir í tíma hans hjá Val. Tveggja Turna Tal er hlaðvarpsþáttur þar sem Jón Páll Pálmason sest niður með þjálfurum, þverrt á íþróttagreinar...
Arnar Gunnlaugsson fer vel yfir málin 29.08.2024
Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkinga tók símtal við fréttaritara Fótbolta.net eftir markalaust jafntefli Víkinga gegn Santa Coloma í Andorra í viðureign liðanna í umspili um sæti í Sambandsdeild Evrópu. Eftir 5-0 sigur í heimaleiknum var nokkuð ljóst að leið Víkinga í deildarkeppnina væri nokkuð greið.
Tveggja Turna Tal - Fjalar Þorgeirsson 29.08.2024
Fjalar Þorgeirs settist niður með mér og fór yfir sviðið. Hvernig var að vera leikmaður undir Ásgeiri El, Willum og Atla Eðvalds? Fjalar byrjaði þjálfaraferilinn í kampavínspartýinu í Garðabæ og upplifði drauga fortíðar bíta menn í FH. Fjalar er í dag markmannsþjálfari Íslenska karlalandsliðsins og við veltum fyrir okkur markmannsþjálfun í fortíð, nútíð og framtíð! Tveggja Turna Tal er hlaðvarpsþ...
Tveggja Turna Tal - Sigurður Ragnar Eyjólfsson 28.08.2024
Sigurður Ragnar Eyjólfsson settist niður með mér og fór yfir knattspyrnuferlinn og þjálfun. Sigga Ragga þykir vænt um landsliðsstelpurnar gömlu þó honum hafi sárnað viðskilnaðinn. Siggi Raggi er klár í að byrja þjálfa á nýjan leik og hjálpa KSI að bæta fótboltann á Íslandi með ýmsum hætti. Þátturinn er í boði Nettó, Netgíró og Lengjunnar.
Hugarburðarbolti GW2 Tvær þrennur og aftur -8 stig! 27.08.2024
Cole Palmer og Nonni með sýningu gegn Úlfunum. Haaland kominn með 4 mörk í 2 leikjum. Það ættu öll að eiga einn Son. David Raya þyngdar sinnar virði í gulli og Liverpool byrja mótið mjög sannfærandi. Man Utd að gefa ódýr mörk.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.