Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Tveggja Turna Tal - Hermann Hreiðarsson 03.03.2025

Gestur vikunnar er enginn annnar en Hermann Hreiðarsson. Hermann er eini Íslendingurinn sem hefur unnið FA cup bikarinn og hefur spilað 332 leiki í Premier League á 15 árum í ensku deildinum. Í þessum fyrri hluta þáttarins fórum við yfir árin í Eyjum og í ensku úrvalsdeildinni. Við ræddum Harry Redknapp, Atla Eðvalds, Joe Royle, Alan Curbishley og fleiri góða menn. Njótið vel! Styrktaraðilar...

Útvarpsþátturinn - Áhugaverðar breytingar í ótímabæru spánni 01.03.2025

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 1. mars. Síðasta ótímabæra spáin fyrir Bestu deildina opinberuð. Elvar Geir, Benedikt Bóas, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke skoða gengi liðanna. Magnús Már, þjálfari Aftureldingar, er á línunni.

Hugarburðarbolti GW 28 Liverpool eru vel smurð vél sem hikstar ekki! 01.03.2025

Liverpool bera af í deildinni og eru að stinga af. Liðin í öðru og þriðja sæti gerðu markalaust jafntefli í Nottingham. Ismaïla Sarr og Mateta í stuði gegn Aston Villa á Selhurst Park. Rauða spjald Patrick Dorgu kom ekki að sök á Old Trafford. Rodrigo Muniz með sigurmarkið gegn Úlfunum á útivelli. Danny Welbeck hetja Brighton gegn Bournemouth. Lánleysi Cole Palmer heldur áfram en Chelsea liðið sig...

Enski boltinn - Þetta er búið 27.02.2025

Skomina dómari getur flautað þetta mót af, Liverpool verður meistari og neðstu þrjú liðin falla. Það er að vísu talsverð spenna um síðustu þrjú Meistaradeildarsætin en að öðru leyti er allt ráðið. Sæbjörn Steinke fór yfir umferðina með Aksentije Milisic og var tekin góð umræða um flest öll liðin. Byrjað er á talsvert langri United umræðu en mikið er að á Old Trafford á þessum síðustu og verstu. Só...

Enski boltinn - Svo gott sem komið hjá Liverpool 24.02.2025

Liverpool er komið með níu og hálfan fingur á enska meistaratitilinn. Það má í raun segja að þetta sé komið. Liverpool vann stórgóðan 0-2 sigur gegn Manchester City í gær á meðan Arsenal tapaði gegn West Ham á heimavelli deginum á undan. Meistaradeildarbaráttan er gríðarlega spennandi en fallbaráttan er minna spennandi. Bræðurnir Hinrik og Magnús Haukur Harðarsynir fara yfir málin í ensku úrvalsde...

Tveggja Turna Tal - Eiður Ben Eiríksson 24.02.2025

Gestur vikunnar er Eiður Ben Eiríksson. Eiður er í þjálfarateymi Íslandsmeistara Breiðabliks og á nokkuð áhugaverðan feril að baki. Hann byrjaði mjög ungur að þjálfa og var orðinn þjálfari í efstu deild kvenna rétt rúmlega fermdur. Eiður hefur komið víða við og unnið með mörgu góðu fólki. Við ræddum þetta allt, fórum vítt yfir sviðið. Eiður er áhugaverður náungi. Hann segir frá því þegar Pétur Pét...

Hugarburðarbolti GW 26 Liverpool er langbesta lið deildarinnar ! 23.02.2025

Liverpool er í frábærri stöðu í deildinni! West Ham skellti Arsenal á Emirates annað tímabilið í röð! Markaveisla á St. James Park. Tottenham með þrjá sigra í röð. Sterkir útisigrar hjá Crystal Palace , Wolves og Brentford. Marco Asensio hetja Aston Villa í endurkomu sigri gegn Chelsea.

Útvarpsþátturinn - Gylfaginning og ársþingið 22.02.2025

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 22. febrúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Í fyrri hlutanum er farið yfir fréttir vikunnar, dramatíkina alla í kringum skipti Gylfa yfir til Víkings og Evrópuleik Víkings gegn Panathinaikos. Í seinni hlutanum mætir Þórir Hákonarson, bæjarstjóri og sérfræðingur um fótboltapólitíkina, í tilefni af ársþingi KSÍ.

Ótímabæra spáin fyrir Bestu deild kvenna 21.02.2025

Það styttist í fótboltasumarið á Íslandi en Besta deild kvenna rúllar af stað þann 15. apríl næstkomandi. Endirinn á síðasta tímabili var svo sannarlega eftirminnilegur þar sem úrslitin réðust á hreinum úrslitaleik á Hlíðarenda. Áhorfendamet var sett þegar Breiðablik varð Íslandsmeistari eftir markalaust jafntefli gegn Val. Nú þar sem það styttist í næsta mót þá ákváðu Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirs...

Hugarburðarbolti GW 25 Er kominn nýr egypskur prins í úrvalsdeildina ? 18.02.2025

Omar Marmoush fór hamförum gegn Newcastle og setti þrennu! Liverpool tóku sigur gegn Wolves en með herkjum þó. Mikel Merino kom af bekknum og reyndist hetja Arsenal á King Power. Tottenham sigraði Man Utd. Brighton lagði Chelsea á Amex. Fulham, Brentford og Everton einnig með sterka sigra. Allt þetta í GW25!

Og allt í einu er Gylfi kominn í Víking 18.02.2025

Það voru risastór tíðindi í íslenskum fótbolta í dag þar sem Gylfi Þór Sigurðsson skipti frá Val í Víking. Kaupverðið er um 20 milljónir króna. Víkingur og Breiðablik lögðu fram tilboð í Gylfa sem voru samþykkt, en Víkingur hafði betur í baráttunni. Það myndaðist ákveðin drasmatík í kringum þessi skipti en formaður Vals hefur sakað Gylfa um vanvirðingu gagnvart liðsfélögum sínum og félaginu. Þessa...

Enski boltinn - Er botninum náð? 18.02.2025

Manchester United situr í 15. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Já, 15. sæti deildarinnar. United tapaði 1-0 gegn Tottenham núna um helgina í uppgjöri þeirra lið sem hafa ollið mestum vonbrigðum á tímabilinu. Er botninum náð eða verður þetta verra? Liverpool harkaði inn sigur gegn Wolves og Mikel Merino var hetja Arsenal gegn Leicester. Næstu leikir verða áhugaverðir í titilbaráttunni á milli þessara...

Tveggja Turna Tal - Guðjón Pétur Lýðsson 17.02.2025

Guðjón Pétur Lýðsson er einhver mestu do-er sem fyrir finnst á Íslandi. Hann er með öll járn heimsins i eldinum ásamt því að reka fjölskyldu og spila fótbolta. Guðjón Pétur hefur spilað með mörgum félögum á Íslandi, sumum oftar en tvisvar og hann nennir engu kjaftæði. Við fórum yfir víðan völl. Hver kenndi honum að sparka í bolta, afhverju varð atvinnumennskan ekki lengri, þjálfaradraumar og margt...

Útvarpsþátturinn - Sögulegur sigur, Siggi Raggi og ungir leikmenn 15.02.2025

Tómas Þór og Benedikt Bóas sigla flaggskipinu á X977 þessa vikuna. Farið er yfir fréttir vikunnar, þar á meðal umræðuna um Gylfa. Sögulegur sigur Víkings gegn Panathinaikos í Helsinki er auðvitað gerður upp. Þá mætir Sigurður Ragnar Eyjólfsson og ræðir um stöðu ungra íslenskra leikmanna og notkun á þeim.

Enski boltinn - Sá síðasti í Guttagarði, töfrar í bikar og vesen á City 13.02.2025

Það var söguleg stund í ensku úrvalsdeildinni í gær þegar síðasti nágrannaslagur Everton og Liverpool á Goodison Park fór fram. Eftir tímabilið fer Everton á nýjan heimavöll. Það var heldur betur drama í þessum leik en Magnús Haukur Harðarson og Jóhann Páll Ástvaldsson fóru yfir það ásamt Guðmundi Aðalsteini Ásgeirssyni. Einnig var farið yfir leiki síðustu helgar í FA-bikarnum, Meistaradeildina og...

Tveggja Turna Tal - Finnur Orri Margeirsson 10.02.2025

Finnur Orri Margeirsson tilkynnti fyrir nokkrum dögum að hann hefði lagt skóna á hilluna þó svo að ég sé nokkuð viss um að hann vilji spila einn leik til! Finnur spilaði á Íslandi með Breiðablik, KR og FH, sem hann tvísamdi við. Hann átti líka gott tímabil með Lillestrom í Noregi. Við fórum yfir ferilinn, ræddum Metoo, hann valdi bestu leikmenn sem hann spilaði með í liðunum á Íslandi og síðast en...

Útvarpsþátturinn - Heima í Helsinki og ótímabær Lengjuspá 08.02.2025

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 8. febrúar. Umsjón: Tómas Þór og Elvar Geir. Farið yfir helstu fréttir vikunnar, öflugir leikmenn komu heim í Bestu deildina og Víkingur er að halda til Helsinki og mæta Panathinaikos. Heimir Gunnlaugsson formaður fótboltadeildar Víkings er á línunni. Þá mætir sérfræðingurinn Baldvin Már Borgarsson og afhjúpar ótímabæra spá fyrir Lengjudeildina í s...

Fótbolta nördinn - Undirbúningstímabil: Trivíaleikarnir 06.02.2025

Fyrstu seríunni er lokið af Fótbolta Nördanum en við erum hvergi nærri hættir. Fram að næstu seríu verða aukaþættir með ójöfnu millibili til þess að svala þorstann hjá öllum nördunum í samfélaginu. Í þetta skiptið mættu menn úr geysivinsæla hlaðvarpinu Trivíaleikarnir. Það voru þeir Ingi Eddu Erlingsson og Stefán Geir Sveinsson.

Hugarburðarbolti GW 24 Arsenal slátraði meisturum Man City 5-1! 04.02.2025

Arsenal slátraði Man City 5-1 á Emirates! Það er búið að vera kveikt Viðnum allt tímabilið. Sjóðandi heitur!! Mo Salah skildi Bournemouth og Liverpool að í flottum fótboltaleik. Fulham vann sterkan útisigur á Newcastle á St James's Park 1-2. Jean Philip Mateta með bæði mörk Crystal Palace gegn lánlausum Man Utd mönnum í 0-2 sigri á Old Trafford og Tottenham vann frábæran 0-2 sigur á Brentford á er...

Enski boltinn - Stay humble, janúarglugginn og Luka pælingar 04.02.2025

Í gær kláraðist 24. umferð ensku úrvalsdeildarinnar með leik Chelsea og West Ham á Stamford Bridge. Stórleikur umferðarinnar var á sunnudag þegar Arsenal fór illa með Manchester City en það var nóg að ræða í kringum þann leik. Farið er yfir alla leiki umferðarinnar, janúargluggann sem var að klárast og svo er snert aðeins á körfubolta í lokin þegar rætt er um skipti Luka Doncic til Los Angeles Lak...

Tveggja Turna Tal - Ómar Ingi Guðmundsson 03.02.2025

Ómar Ingi Guðmundsson er yfirmaður hæfileikamótunar KSI, þjálfari U-15 ára landsliðsins og aðstoðarþjálfari U-19 ára landsliðsins. Ómar Ingi þjálfaði yngri flokka HK ásamt því að vera yfirþjálfari félagsins í áratugi áður en hann óvænt tók við meistaraflokk karla hjá félaginu og setti stigamet hjá félaginu í efstu deild. Ómar Ingi hefur líka þjálfað í Mosfellsbæ og í Hveragerði og hvar sem hann ke...

Útvarpsþátturinn - Ótímabæra spáin þegar það eru tveir mánuðir í Bestu 01.02.2025

Besta deild karla fer af stað laugardaginn 5. apríl og ótímabæra spáin fyrir deildina er aðalatriðið í þættinum. Tómas Þór Þórðarson, Valur Gunnarsson og Elvar Geir Magnússon skoða stöðu mála hjá öllum tólf liðum deildarinnar, rýna í undirbúningstímabilið, félagaskiptamarkaðinn og helstu fréttir. Þá er skoðað hvaða leikmenn þurfa að stíga upp og hverjum verður sérstaklega spennandi að fylgjast með...

Hugarburðarbolti GW 23 Er Hjálmar Örn farinn að þjálfa Tottenham? 28.01.2025

Bournemouth kjöldrógu Forest liða á Suðurströndinni 5-0. Alexander Isak með tvennu fyrir Newcastle í nokkuð þægilegum útisigri gegn Dýrlingunum. Coady Gakpo með hörku leik gegn Ipswich, tvö mörk og stoðsending. Arsenal hafði útisigur gegn Wolves með naumindum 0-1 eins og Man Utd úti gegn Fulham 0-1 sigur.

Fótbolta nördinn - Úrslit: Víkingur vs Fylkir 28.01.2025

Þá er komið að úrslita þættinum af fyrstu seríunni og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti Fylki og Víking. Fyrir Fyllki keppti Ragnar Bragi Sveinsson en fyrir Víking keppti Davíð Örn Atlason. Þátturinn var tekinn upp live síðasta laugardag á Arena en tæknimálin fóru aðeins úrskeiðis og því eru hljóðgæðin því miður ekkert sérlega góð.

Enski boltinn - Hákon Arnar, þrot hjá Tottenham og umtalað rautt spjald 27.01.2025

Það er viðburðarrík helgi að baki í ensku úrvalsdeildinni. Tottenham er í algjöru rugli, leikmaður Arsenal fékk eitt umtalaðasta rauða spjald síðari ára og Manchester City vann stórleik gegn Chelsea. Þá er Hákon Arnar Haraldsson orðaður við nokkur af stærstu félögum deildarinnar, þar á meðal Manchester United. Baldvin Már Borgarsson og Magnús Haukur Harðarson eru gestir í þessum þætti en Guðmundur...

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.