Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Niðurtalningin - Nýr kafli í sögu Víkinga 03.04.2025

Það eru aðeins tveir dagar í það að Besta deildin fari af stað og við höldum áfram að telja niður. Víkingum er spáð öðru sæti deildarinnar af Fótbolta.net. Halldór Smári Sigurðsson og Tómas Guðmundsson, fyrrum leikmenn Víkinga, komu í heimsókn til að ræða um Fossvogsfélagið.

Niðurtalningin - Valur geti alveg unnið Íslandsmeistaratitilinn 02.04.2025

Það eru þrír dagar í fyrstu leik í Bestu deildinni og við á Fótbolta.net höldum áfram að telja niður fyrir deildina. Í dag er komið að því að ræða Val sem er spáð þriðja sæti. Vinirnir Arnar Sveinn Geirsson og Jóhann Skúli Jónsson komu í heimsókn til að ræða Val. Mjög skemmtilegt spjall svo ekki sé meira sagt.

Niðurtalningin - Eftirvænting fyrir Óskarsbolta á Meistaravöllum 01.04.2025

Það eru fjórir dagar í fyrsta leik í Bestu deildinni og við höldum áfram að telja niður í deildina. Núna er komið að því að ræða KR sem er spáð fjórða sætinu. Snorri Sigurðsson, formaður KR klúbbsins, og Valur Páll Eiríksson, íþróttafréttamaður, komu í heimsókn til að ræða um Vesturbæjarstórveldið.

Niðurtalningin - Silfurskeiðin mætir með læti 31.03.2025

Það eru fimm dagar í fyrsta leik í Bestu deildinni og við höldum áfram að telja niður í deildina. Núna er komið að því að ræða Stjörnuna sem er spáð fimmta sætinu. Davíð Svavarsson og Eyjólfur Jónsson úr Silfurskeiðinni, stuðningsmannahóp Stjörnunnar, mættu í heimsókn á skrifstofuna og fóru yfir málin.

Niðurtalningin - Frændurnir fara yfir allt það helsta á Skaganum 31.03.2025

Það eru fimm dagar í fyrsta leik í Bestu deildinni og við höldum áfram að telja niður í deildina. Núna er komið að því að ræða ÍA sem er spáð sjötta sætinu. Skagamenn komu upp sem nýliðar í fyrra og áttu frábært tímabil. Frændurnir Andri Júlíusson og Sverrir Mar Smárason komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net til þess að ræða um sitt félag.

Tveggja Turna Tal - Danni og Jói Laxdal 31.03.2025

Gestir vikunnar eru Daníel og Jóhann Laxdalbræður. Við fórum yfir leikinn í Kaplakrika 2014, þar sem kemur í ljós að þeir þakka Allah fyrir að ekki var komið VAR í fótboltann á Íslandi. Við tókum líka fyrir tónlistarsmekkinn, Evrópukeppnina, atvinnumennsku og landsliðið ásamt því sem þeir sögðu frá þjálfurunum sem hafa þjálfað þá. Stórskemmtilegir náungar. 

Útvarpsþátturinn - A&B, vika í Bestu og Dóri Árna 29.03.2025

Útvarpsþátturinn laugardaginn 29. mars. Það er vika í að Besta deildin fer af stað og Gunnlaugur Jónsson mætir í þáttinn. Auk þess að hita upp fyrir komandi tímabil ræðir Gulli um þættina um Arnar og Bjarka sem eru að fara í sýningu. Þá kemur Halldór Árnason, þjálfari Íslandsmeistara Breiðabliks, en Blikar munu mæta Aftureldingu í opnunarleik Bestu deildarinnar 5. apríl.

Niðurtalningin - Er fólk að sofa á FH? 28.03.2025

Það eru átta dagar í það að Besta deildin fari af stað og við höldum áfram að telja niður. Núna er komið að FH sem er spáð sjöunda sætinu í spá Fótbolta.net. Til þess að ræða FH, þá komu Freyr Árnason og Magnús Haukur Harðarson, stuðningsmenn liðsins, í heimsókn á skrifstofuna. Var farið yfir gullaldarárin, síðustu tímabil og komandi sumar.

Niðurtalningin - Bikarinn er á brekkunni 28.03.2025

Það eru átta dagar í það að Besta deildin fari af stað og við höldum áfram að telja niður. Núna er komið að KA sem er spáð áttunda sætinu í spá Fótbolta.net. Til þess að ræða KA, þá komu Haraldur Örn Haraldsson og Egill Sigfússon, stuðningsmenn liðsins, í heimsókn á skrifstofuna. Var meðal annars vel farið yfir bikarmeistaratitilinn frá því í fyrra.

Niðurtalningin - Bjartir tímar FRAMundan 27.03.2025

Það eru níu dagar í það að Besta deildin fari af stað og við höldum áfram að telja niður. Núna er komið að Fram sem er spáð níunda sætinu í spá Fótbolta.net. Til þess að ræða Fram, þá komu Svanhvít Valtýsdóttir og Agnar Þór Hilmarsson í heimsókn. Þau þekkja bæði félagið inn og út.

Niðurtalningin - Sögulegt sumar í Mosó 26.03.2025

Það eru tíu dagar í það að Besta deildin fari af stað og við höldum áfram að telja niður. Núna er komið að Aftureldingu sem er að fara að leika sitt fyrsta tímabil í Bestu deildinni. Mosfellingum er spáð tíunda sæti deildarinnar. Ármann Örn Vilbergsson og Elvar Magnússon, stuðningsmenn Aftureldingar, mættu í heimsókn og fóru yfir síðustu ár og komandi sumar hjá sínu liði.

Niðurtalningin - Taka tvö hjá Vestra 26.03.2025

Það eru tíu dagar í það að Besta deildin fari af stað en í dag tökum við Vestra fyrir í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net. Vestra er spáð ellefta sæti Bestu deildarinnar í spá síðunnar. Aron Guðmundsson og Sigurgeir Sveinn Gíslason, stuðningsmenn Vestra, komu í heimsókn á skrifstofuna og ræddu um sitt félag. Þetta er annað árið í röð þar sem þeir koma og tala um Vestra, en þeir vonast til að ger...

Niðurtalningin - Eyjamenn koma fagnandi 25.03.2025

Það eru ellefu dagar í það að Besta deildin fari af stað en í dag tökum við ÍBV fyrir í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net. Eyjamönnum er spáð neðsta sæti Bestu deildarinnar í spá síðunnar. Arnór Eyvar Ólafsson og Hjálmar Ragnar Agnarsson, stuðningsmenn ÍBV, komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og ræddu um sitt félag.

Innkastið - Lestarslys í fyrsta landsliðsglugga Arnars 24.03.2025

Það er óhætt að segja að fyrsti landsliðsgluggi Arnars Gunnlaugsson hafi ekki farið eins og vonast var eftir. Strákarnir okkar töpuðu báðum leikjum sínum gegn Kosóvó og eru þeir fallnir í C-deild Þjóðadeildarinnar. Það var ekki margt jákvætt hægt að taka úr þessum leikjum. Haraldur Örn Haraldsson og Valur Gunnarsson settust niður í hljóðveri Fótbolta.net og fóru yfir verkefnið ásamt Guðmundi Aðals...

Tveggja Turna Tal - Atli Guðnason 24.03.2025

Atli Guðnason hóf meistaraflokksferil sinn með FH árið 2004 og varð sjöfaldur Íslandsmeistari og tvöfaldur bikarmeistari með liðinu. Hann er leikjahæsti leikmaður í sögu FH í efstu deild, með 285 leiki þar sem hann skoraði 68 mörk og gaf 84 stoðsendingar. ?Árið 2012 náði Atli þeim merka áfanga, sem enginn annar hefur náð, að verða bæði markakóngur og stoðsendingakóngur Pepsi-deildarinnar. Atli var...

Útvarpsþátturinn - Atli Viðar um landsliðið og Bestu 22.03.2025

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 22. mars. Umsjón: Tómas Þór og Benedikt Bóas. Gestur þáttarsins er fótboltasérfræðingurinn Atli Viðar Björnsson og fer hann yfir einvígi Íslands og Kósovó og ræðir um Bestu deildina. Elvar Geir er á línunni frá Spáni þar sem seinni leikurinn verður spilaður.

Herra HK kveður völlinn - Rauður og hvítur í öll þessi ár 21.03.2025

Leifur Andri Leifsson tilkynnti í byrjun vikunnar að hann væri búinn að leggja skóna á hilluna. Leifur skrifaði undir samning í janúar svo ákvörðun hans kom nokkuð á óvart. Leifur er 35 ára miðvörður sem hefur leikið allan sinn feril með HK. Hann er leikjahæsti leikmaður í sögu HK, en hann hefur alla tíð verið hjá félaginu. Því hefur hann fengið viðurnefnið Herra HK. Hann fór með HK niður úr 1. de...

Enski Boltinn - Fyrsti titill Newcastle í 70 ár 17.03.2025

Newcastle er deildarbikarmeistari eftir að liðið sigraði Liverpool í úrslitaleiknum og hafa því bundið enda á 70 ára bið eftir titli. 8 leikir í ensku úrvalsdeildinni fóru einnig fram en baráttan um Evrópusæti er enn gríðarlega hörð. Logi Páll Aðalsteinsson samfélagsmiðlastjarna og Brynjar Jökull Guðmundsson handboltamaður mættu til þess að fara yfir helgina ásamt Haraldi Erni Haraldssyni sem sá u...

Hugarburðarbolti GW 29 Newcastle bikarmeistari. 70 ára bið lokið! 17.03.2025

Liðin í öðru og þriðja sætinu í deildinni , Arsenal og Nottingham Forest unnu sína leiki. Man City og Brighton gerðu 2-2 jafntefli í fjörugum leik. Brentford skellti Bournemouth á útivelli og þetta var fimmti útisigur þeirra í röð. Úlfarnir lögðu Southampton á St. Mary's 1-2 og iðnaðar jafntefli 1-1 varð niðurstaðan á Goodison Park á milli Everton og West Ham og Bruno Fernandes kóngurinn á King Po...

Útvarpsþátturinn - Uppfærð spá, Besta og landsliðið 15.03.2025

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 15. mars. Umsjón: Tómas Þór og Elvar Geir. Baldvin Borgarsson kemur með endurskoðaða ótímabæra spá fyrir Lengjudeildina í sumar. Skoðaðar eru helstu fótboltafréttir vikunnar, Baldur Sigurðsson ræðir um Bestu deildina og lengsta undirbúningstímabilið og Sæbjörn Steinke ræðir um landsliðsvalið fyrir einvígið gegn Kósovó.

Arnar Gunnlaugs eftir sinn fyrsta hóp - Klárlega merki um nýja tíma 12.03.2025

Elvar Geir Magnússon ræddi við Arnar Gunnlaugsson á Laugardalsvelli strax eftir að Arnar hafði opinberað val á sínum fyrsta landsliðshóp. Það er kominn nýr fyrirliði í íslenska landsliðinu, Orri Steinn Óskarsson. Sveigjanleiki er orð sem verður áberandi í landsliðsþjálfaratíð Arnars. Arnar ræddi um valið, frammistöðu okkar fremstu leikmanna að undanförnu, leikina framundan gegn Kosóvó og fleira.

Hugarburðarbolti GW 28 Hinn heilagi andi ætlar sér í meistaradeildina! 11.03.2025

Nottingham Forest skelltu Man City í Skíriskógi! Liverpool breikkar bilið. Bruno G hetja Newcastle á Ólympíuleikvangnum í London. Botnliðin halda áfram að ströggla. Tottenham og Bournemouth skildu jöfn 2-2 í skemmtilegum leik og stórleikur Man Utd og Arsenal var spennandi!

Tveggja Turna Tal - Ólafur Þ. Harðarson 10.03.2025

Ólafur Þ. Harðarson er stjórnmálafræðingur og prófessor emiritus við Háskóla Íslands. Við Ólafur ræddum Donald Trump, Gobbels og Mussolini en ennþá meira um fótboltamenn og annað íþróttafólk sem tekið hefur sæti á Alþingi Íslendinga. Af nægu er að taka og Ólafur er hafsjór fróðleiks! Þátturinn er í boði Visitor Ferðaskrifstofu, Lengjunnar, Hafsins fiskverslun, Budvar, World Class og Golfklúbbsins...

Enski boltinn - Forest, Bournemouth og Brighton í Meistaradeildina? 09.03.2025

Nottingham Forest sigraði Manchester City um helgina og eru í þriðja sæti deildarinnar þegar nákvæmlega tíu umferðir eru eftir af deildinni. Baráttan um Evrópusætin er gríðarlega spennandi, og möguleiki á því að mikið af stóru liðunum missi af. Magnús Haukur Harðarsson mætti eins og svo oft áður til þess að ræða liðna umferð í boltanum en einnig mætti Arnór Gauti Ragnarsson leikmaður Aftureldingar...

Útvarpsþátturinn - 28 dagar í Bestu og enska hringborðið 08.03.2025

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 8. mars. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Það eru 28 dagar í Bestu deildina og farið er yfir helstu fréttir og viðbrögðin eftir ótímabæru spánna. Frammistaða Hákonar í Meistaradeildinni og komandi landsliðsval Arnars eru meðal umræðuefna. Kristján Atli, talsmaður Liverpool á Íslandi, sest við enska hringborðið og opinberar val á úrvalsliði annars þriðjung...

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.