Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Grasrótin - Upphitun fyrir 3. deild 24.04.2025
Grasrótin er nýr hlaðvarpsþáttur sem fjallar alfarið um neðri deildirnar á Íslandi. Í þessum þætti er hitað upp fyrir 3. deild karla sem fer senn að hefjast. Rætt er um öll liðin og spáð fyrir um það hvar þau enda á komandi tímabili. Þáttastjórnendur eru Haraldur Ingi og Tómas Helgi.
Grasrótin - Upphitun fyrir 2. deild 23.04.2025
Grasrótin er nýr hlaðvarpsþáttur sem fjallar alfarið um neðri deildirnar á Íslandi. Í þessum þætti er hitað upp fyrir 2. deild karla sem fer senn að hefjast. Rætt er um öll liðin og spáð fyrir um það hvar þau enda á komandi tímabili. Þáttastjórnendur eru Haraldur Ingi og Tómas Helgi.
Útvarpsþátturinn - Mjólkin býður upp á það óvænta 19.04.2025
Elvar Geir og Baldvin Borgars með sérstaka páskayfirferð í útvarpsþættinum þessa vikuna. Fjallað er um 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins sem hafa boðið upp á óvænt úrslit. Þorlákur Árnason, þjálfari ÍBV sem rúllaði yfir Víking, og Marinó Hilmar Ásgeirsson, leikmaður Kára sem sló út Fylki, verða á línunni. Þá verður fótboltavikan gerð upp og horft í tíðindi hér heima og erlendis. Það er ljóst hvaða l...
Hugarburðarbolti GW 32 Það eru 9 fingur á bikarnum hjá Liverpool! 17.04.2025
Liverpool eru með 9 fingur á Englandsbikarnum. Newcastle á fullri ferð inn í meistaradeildina í 3.sætinu. Notthingham Forest og Arsenal töpuðu bæði stigum í umferðinni. Aaron Ramsdale markvörður Southampton gerði sér lítið fyrir og varði 2 vítaspyrnur gegn Aston Villa. Svarthvíta hetjan Harvey Barnes var frábær í þessum tveimur leikjum hjá Newcastle.
Leiðin úr Lengjunni - Upphitun fyrir Lengjudeildina 2025 16.04.2025
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson og Sölvi Haraldsson.
Niðurtalningin - Verður skjöldurinn áfram í Kópavogi? 15.04.2025
Breiðabliki er spáð Íslandsmeistaratitlinum en Besta deild kvenna byrjar að rúlla í kvöld. Breiðablik tekur á móti Stjörnunni í fyrsta leik. Agla María Albertsdóttir og Kristín Dís Árnadóttir, leikmenn Blika, komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og fóru yfir stöðuna hjá Blikum.
Niðurtalningin - Breyttir tímar á Hlíðarenda 15.04.2025
Besta deild kvenna fer af stað í kvöld með tveimur leikjum. Í öðru sæti í spánni er Valur. Til þess að ræða um Valsliðið, þá komu Elísa Viðarsdóttir, fyrirliði, og Matthías Guðmundsson, þjálfari, í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net.
Innkastið - Fyrirliðinn missir hausinn og meistarar hrynja 14.04.2025
Innkastið eftir 2. umferð Bestu deildarinnar. Leikirnir voru svo sannarlega misskemmtilegir í þessari umferð! Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Magnús Haukur Harðarson. Geggjuð skemmtun í Laugardal, ótrúlegur leikur í Úlfarsárdalnum, Stjarnan með fullt hús, markalaus nýliðaslagur, FH-ingar í vandræðum og bikarmeistararnir fengu skell.
Niðurtalningin - Víkingur með háleit markmið 14.04.2025
Það er aðeins einn dagur í það að Besta deild kvenna fari af stað; fyrstu tveir leikirnir eru á morgun. Við höldum áfram að telja niður en í þriðja sæti í spánni er Víkingur. Selma Dögg Björgvinsdóttir og Erna Guðrún Magnúsdóttir, leikmenn liðsins, komu í heimsókn í dag og fóru yfir stöðu mála í Víkinni.
Tveggja Turna Tal - Gunnar Jarl Jónsson 14.04.2025
Gestur vikunnar er Gunnar Jarl Jónsson – sannkallaður þúsundþjalasmiður! Gunnar spilaði í næstefstu deild en áttaði sig snemma á því að hann átti bjartari framtíð sem dómari. Þar hafði hann heldur betur rétt fyrir sér: hann var valinn dómari ársins sex sinnum á aðeins átta árum. En sagan endar ekki þar. Gunnar hefur þjálfað fótbolta, stofnað útvarpsþátt á Fotbolti.net fyrir löngu síðan, starfað se...
Útvarpsþátturinn - Nýr formaður KR og meðbyrinn í Vesturbænum 12.04.2025
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 12. apríl. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Hitað er upp fyrir 2. umferð Bestu deildarinnar og rennt yfir helstu fréttir og tíðindi. Marklínutækni, tveggja leikja bann Arons Sig og meiðsli Arons Þrándar er meðal þess sem kemur við sögu. Í seinni hlutanum er svo Magnús Orri Schram, nýr formaður knattspyrnudeildar KR, í viðtali. Rætt er um KR-liðið, aðstöðu...
Niðurtalningin - Ár tvö hjá prófessornum í Laugardalnum 11.04.2025
Það eru fjórir dagar í það að Besta deild kvenna fari af stað og Niðurtalningin heldur áfram hér á Fótbolta.net. Þrótti er spáð fjórða sætinu. Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, fyrirliði Þróttar, og Ólafur Kristjánsson, þjálfari liðsins, komu í spjall.
Niðurtalningin - Það er frábært að vera fyrir norðan 10.04.2025
Það eru fimm dagar í það að Besta deild kvenna fari af stað og við höldum áfram með Niðurtalninguna. Í fimmta sæti í spánni er Þór/KA. Sandra María Jessen, besti leikmaður Íslandsmótsins í fyrra, og Karen María Sigurgeirsdóttir, sem átti einnig mjög gott tímabil í fyrra, eru fulltrúar Þórs/KA í Niðurtalningunni.
Niðurtalningin - Stjarnan ætlar að skína skært í sumar 10.04.2025
Við höldum áfram að telja niður í Bestu deild kvenna. Núna eru aðeins fimm dagar í það að deildin fari af stað. Stjörnunni er spáð sjötta sæti deildarinnar. Anna María Baldursdóttir, fyrirliði, og Jóhannes Karl Sigursteinsson, þjálfari liðsins, komu í heimsókn til að ræða um Stjörnuna.
Niðurtalningin - FH ætlar hærra en þetta 09.04.2025
Við höldum áfram með Niðurtalninguna þegar það eru sex dagar í að Besta deild kvenna fari af stað. Í sjöunda sæti í spánni er FH. Arna Eiríksdóttir, fyrirliði FH, og Guðni Eiríksson, þjálfari liðsins, komu í heimsókn og ræddu um Fimleikafélagið. Þau stefna á stærri hluti en sjöunda sætið.
Frábær þrenna, tvö stig og einn rosalega skrítinn leikur 09.04.2025
Íslenska kvennalandsliðið tók tvö stig í leikjum sínum gegn Noregi og Sviss í Þjóðadeildinni. Stelpurnar fara í eiginlegan úrslitaleik við Noreg um annað sætið í riðlinum í næsta mánuði. Það var margt jákvætt í þessum tveimur leikjum en líka heilmargt sem hefði mátt fara betur. Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur og Sverrir Örn fóru yfir það helsta þegar Ísland á núna þrjá leiki fram að Evrópumóti...
Niðurtalningin - Framarar með fulla skúffu af trixum 09.04.2025
Niðurtalningin heldur áfram. Það eru sex dagar í fyrsta leik í Bestu deildinni en Fram er spáð áttunda sæti deildarinnar. Fram er að koma upp sem nýliðar en þær halda sér uppi ef spáin rætist. Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Fram, og Alda Ólafsdóttir, leikmaður liðsins, komu í heimsókn og tóku stöðuna fyrir komandi sumar.
Hugarburðarbolti GW 31 Eru Liverpool sprungnir ? 08.04.2025
Fulham skellti toppliði Liverpool 3-2 á Craven Cottage. Man Utd og Man City skildu jöfn í borgarslagnum. Arsenal missteig sig í Guttagarði. West Ham og Bournemouth skildu jöfn 2-2 í skemmtilegum leik. Aston Villa skellti sterkum Notthingham Forest piltum á Villa Park og Jacob Murphy svarthvíta hetja Newcastle gegn Leicester.
Niðurtalningin - Austurland á fulltrúa í fyrsta sinn síðan 1994 08.04.2025
Niðurtalningin fyrir Bestu deild kvenna er hafin. Það er vika í fyrsta leik í deildinni en núna er komið að því að ræða FHL sem er fulltrúi Austurlands í deildinni. Rósey Björgvinsdóttir og Bjarndís Diljá Birgisdóttir, leikmenn FHL, komu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og ræddu uppgang félagsins síðustu ár og komandi sumar í Bestu deildinni.
Niðurtalningin - Staðan tekin á Stólunum á Spáni 08.04.2025
Núna byrjum við Niðurtalninguna fyrir Bestu deild kvenna. Það er akkúrat vika í það að mótið fari af stað en í neðsta sæti í spánni er Tindastóll. Bryndís Rut Haraldsdóttir, fyrirliði, og Donni, þjálfari, ræddu við fréttamann Fótbolta.net um síðustu ár og komandi keppnistímabil á Sauðárkróki. Þau eru núna í æfingaferð en hringt var til Spánar til að taka stöðuna fyrir komandi tímabil.
Innkastið - Stjörnurnar í sturtu og vonbrigði hjá Val 07.04.2025
Innkastið eftir 1. umferð í Bestu deild karla. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars. Nýliðarnir töpuðu sannfærandi gegn bestu liðum deildarinnar, stjörnur voru sendar í sturtu og Valur með vonbrigðabyrjun.
Útvarpsþátturinn - Í beinni á leikdegi í Bestu 05.04.2025
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 5. apríl. Besta deildin að fara í gang. Rýnt er í spá Fótbolta.net fyrir lokastöðu deildarinnar, leikir fyrstu umferðar skoðaðir, farið yfir helstu fréttir, bestu leikmenn undirbúningstímabilsins valdir og rennt yfir ýmsa topplista. Tómas Þór, Elvar Geir, Valur Gunnars og Benedikt Bóas í beinni frá Suðurlandsbrautinni.
Hugarburðarbolti GW 30 Salah í dvala 04.04.2025
Liverpool vann borgarslaginn. Notthingham Forest skelltu Man Utd. Newcastle á góðri siglingu. Ipswich lagði Bournemouth á útivelli. Saka stimplaði sig strax inn eftir meiðsli hjá Arsenal. Aston Villa með gæðasigur á Brighton og Dýrlingarnir náðu í stig gegn Palace.
Enski boltinn - Ein ljótasta tækling sem maður hefur séð 04.04.2025
Liverpool er svo gott sem orðið meistari en dómgæslan stal senunni þegar nágrannaliðin Liverpool og Everton áttust við á Anfield. Það var heil umferð í ensku úrvalsdeildinni og mættu þeir Magnús Haukur Harðarson og Kristján Atli Ragnarsson í stúdíó til þess að ræða um allt það helsta. Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson stýrir þættinum.
Niðurtalningin - Blikar ætla áfram að vera bestir 04.04.2025
Þá er komið að síðasta liðinu í Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net. Það er Breiðablik sem er spáð Íslandsmeistaratilinum. Félagarnir Eysteinn Þorri Björgvinsson og Sigurjón Jónsson komu við á skrifstofunni til að ræða um ríkjandi Íslandsmeistara.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.