Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Leiðin úr Lengjunni - Keflvíkingar brjálaðir og Grindvíkingar snúa heim 12.05.2025

Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Sverrir Örn Einarsson.

Tveggja Turna Tal - John Andrews 12.05.2025

John Andrews hefur þjálfað í Mosfellsbæ, á Húsavík, í Indlandi, Bandaríkjunum og nú í hamingjunni í Víkinni. John er fæddur í Cork í Írlandi, er frábær trúbador, stórskemmtilegur náungi og er hluti af Víkingsliðinu sem afrekaði það sem ekkert annað lið hefur afrekað í íslenskum kvennafótbolta - að verða bikarmeistari sem Lengjudeildarlið. Við ræddum þetta, Roy Keane, Matt Le Tissier, Kei...

Betkastið - Upphitun 4&5.deild 12.05.2025
Innkastið - Almarr með áhyggjur, sögulegt mark og Maggi fær VAR 11.05.2025

Innkastið eftir 6. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Baldvin Borgars og sérstakur gestur er Almarr Ormarsson. FH-ingar gjafmildir gegn Víkingi, Hallgrími fannst ákvörðun Hallgríms fáránleg, Túfa fékk stórsigur en Jón Þór er brjálaður, Jökull og kuðungurinn, Alexander sló met Eiðs Smára og Maggi fær VAR.

Útvarpsþátturinn - Rautt í Keflavík og KR dúett úr Grafarvogi 10.05.2025

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 9. maí. Dregið í fyrstu umferð Fótbolti.net bikarsins, bikarkeppni neðri deilda og Baldvin Már Borgarsson ræðir um Lengjudeildina. Gestir þáttarins eru Halldór Snær Georgsson og júlíus Mar Júlíusson sem gengu í raðir KR frá Fjölni fyrir yfirstandandandi tímabil. Rýnt er í komandi umferð í Bestu deildinni.

Enski boltinn - Enn eitt titlalausa tímabilið og augun á Bilbao 09.05.2025

Enn eitt titlalausa tímabilið hjá Arsenal er staðreynd eftir tap gegn Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni. Er Arteta kominn á endastöð? Arsenal mennirnir Engilbert Aron og Jón Kaldal mættu í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net og sögðu frá sínu áliti á tímabilinu og því sem koma skal. Þá mætast Manchester United og Tottenham í mjög svo áhugaverðum úrslitaleik í Evrópudeildinni. Það er aðallega...

Grasrótin - 1. umferð, KFA og Hvíti með statement 08.05.2025

Grasrótin er nýr hlaðvarpsþáttur sem fjallar alfarið um neðri deildirnar á Íslandi. Halli Óla og Tómas Helgi settust niður og ræddu stóru málin í 2. og 3. deild karla. Tímabilið er hafið og það fer svo sannarlega skemmtilega af stað.

Tveggja Turna Tal - Guðbjörg Ýr Hilmarsdóttir 08.05.2025

Guðjörg Ýr Hilmarsdóttir er stemmningskona úr Kópavogi. Hún er Dj á heimaleikjum Breiðabliks og er svo góð í starfi að re-mixin hennar eru spiluð í Þýsku Bundesligunni. Gugga skilaði nýlega upplifunarhandbók sem lokaverkefni í Háskólanum sem fjallar um hvernig hægt er að fjölga áhorfendum á íþróttaviðburðum. Gugga settist niður með mér og útskýrði fyrir mér hvernig við getum hækkað meðal...

Asmir Begovic ræðir við Fótbolta.net - Spenntur að koma aftur til Íslands 07.05.2025

Asmir Begovic, markvörður sem hefur spilað lengi í ensku úrvalsdeildinni, mun í sumar mæta til Íslands annað árið í röð og vera hér með markvarðarakademíu fyrir efnilega íslenska markverði. Námskeiðið í fyrra sló í gegn þar sem fjöldi efnilegra markvarða hvaðanæva af landinu og erlendis æfðu undir handleiðslu frábærra þjálfara. Þjálfarar í ár verða Begovic, David Smalley og Jack Hadley ásamt íslen...

Hugarburðarbolti GW 35a Cole Palmer svaf í 110 daga! 06.05.2025

Cole Palmer vaknaði loksins eftir 110 daga. Liverpool og Arsenal töpuðu bæði sínum leikjum. Aston Villa ætla sér meistaradeildar sæti. Nottingham Forest sitja í sjötta sætinu og Brighton og Newcastle gerðu 1-1 jafntefli á Amex. Baráttan um meistaradeildar sætin verður rosaleg!

Betkastið - Upphitun 2 & 3.deild 06.05.2025

Ástríða neðri deildanna hefur loksins snúið aftur í hlaðvarpsheima. Stóra spáin sem allir hafa beðið eftir! Alli Davors, Aron Ýmir og JP mættu ræddu stóru málin. - 2. deildar spá - 3. deildar spá - Öll lið rætt, ásamt félagsskiptum, þjálförum og umgjörð - Spurningar úr sal - Rýnum í 1. umferð - Spáum í 2. umferð - Hvernig fer Champions League?

Innkastið - Markaregn og málaliðar 05.05.2025

Innkastið eftir 5. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Baldvin Borgars og með þeim er íþróttafréttamaðurinn og KR-ingurinn Valur Páll Eiríksson. Það er ekkert samhengi í Bestu deildinni! Leikurinn í Kópavogi stóð undir væntingum, Afturelding fór illa með Stjörnuna, Gylfi skoraði í sigri Víkings, FH vann fyrsta sigurinn gegn málaliðum Vals, KA í vandræðum og Vestramenn hylltir í Herjólfi.

Leiðin úr Lengjunni - Fyrsta umferð gerð upp 05.05.2025

Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson og Sölvi Haraldsson.

Tveggja Turna Tal - Adda Baldursdóttir 05.05.2025

Ágerður Stefanía, eða Adda eins og hún er oft kölluð, er alinn upp í Breiðabliki en er í dag goðsögn í Stjörnunni og Val, þar sem hún raðaði inn Íslands- og bikarmeistaratitlum. Þegar leikferlinum lauk hélt hún strax áfram að móta sigurlið – nú í þjálfarateymi með Pétri Péturssyni. Í þessum þætti förum við yfir magnaðan feril, hvernig sigurhugarfar mótast, hvað þarf til að byggja upp sigursælt lið...

Útvarpsþátturinn - Lengjan hafin og Björn Hlynur naut sín í Liverpool 03.05.2025

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 3. maí. Umsjón: Tómas Þór og Elvar Geir. Baldvin Már Borgarsson ræddi um Lengjudeildina og rennt er yfir komandi umferð og helstu tíðindi í Bestu deildinni. Gestur þáttarins er Björn Hlynur Haraldsson sem var í Liverpoolborg um síðustu helgi þegar titillinn var tryggður.

Uppbótartíminn - Íslenski kvennaboltinn á mannamáli 02.05.2025

Uppbótartíminn er nýtt hlaðvarp á Fótbolta.net þar sem fjallað er um kvennaboltann á Íslandi. Umsjónarmenn eru Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson og Magnús Haukur Harðarson. Í þessum þætti er farið yfir stöðu liða eftir fyrstu þrjár umferðirnar í Bestu deild kvenna og einnig er farið aðeins yfir neðri deildir sem eru að fara af stað. Hertz er stoltur stuðningsaðili kvennaboltans á Fótbolta.net.

Tveggja Turna Tal - Agla María Albertsdóttir 01.05.2025

Gestur dagsins er Agla María Albertsdóttir, barnastjarna úr Kópavoginum! Agla María hefur spilað á tveimur stórmótum með íslenska landsliðinu, unnið Íslands- og bikarmeistaratitla með bæði Stjörnunni og Breiðabliki og leikið sem atvinnumaður í Svíþjóð. Hún er í dag fyrirliði Íslandsmeistara Breiðabliks – og útskrifaðist aðeins 24 ára gömul með meistaragráðu í fjármálum fyrirtækja. Góða skemmtun!

Innkastið - Enginn skilaréttur! 28.04.2025

Elvar Geir, Valur Gunnars og Tómas Þór gera upp 4. umferð Bestu deildarinnar í Innkastinu. Jafntefli á Hlíðarenda, Framarar grýttu Eldingunni aftur niður á jörðina, Eyjamenn á siglingu, skemmtikraftarnir í KR fóru á kostum, útlitið svart hjá FH og aftur kom Höskuldur Blikum til bjargar.

Hugarburðarbolti GW34 Þig er ekki að dreyma, Liverpool eru Englandsmeistarar! 28.04.2025

Liverpool Englandsmeistari! Pökkuðu Tottenham saman á Anfield. Baráttan um meistaradeildarsætin 3-5 sætið heldur áfram. Newcastle fór upp í 3.sætið með þægilegum sigri á Ipswich. Matheus Chuna er listamaður Úlfanna. Chelsea sigraði Everton á Brúnni. Man City og Crystal Palace sem spiluðu ekki í umferðinni mætast í úrslitum FA bikarsins.

Enski boltinn - Liverpool er Englandsmeistari 2025 (Staðfest) 28.04.2025

Liverpool vann í gær sinn 20. Englandsmeistaratitil. Þetta hafði verið lengi í loftinu en Liverpool er búið að vera langbesta liðið þetta tímabilið. Baldvin Már Borgarsson og Magnús Haukur Harðarson voru gestir í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag og gerðu upp magnað tímabil hjá Liverpool. Einnig var rætt um komandi Evrópuleiki og aðeins farið í spænska boltann í lokin.

Tveggja Turna Tal - Guðjón Örn Ingólfsson 28.04.2025

Fyrir 15 árum síðan var Guðjón Örn Ingólfsson að lyfta með Blaz Roca þegar Erpur hvatti hann til að mennta sig í styrktarþjálfun — ráð sem átti eftir að móta feril hans. Síðan þá hefur Guðjón verið lykilmaður í ótrúlegri uppbyggingu hjá Víkingi Reykjavík, þar sem hann varð Íslandsmeistari tvisvar sinnum og bikarmeistari fjögur ár í röð. Einnig tók hann þátt í velgengni FH á sínum tíma. Í dag starf...

Grasrótin - Upphitun fyrir 4 og 5. deild 27.04.2025

Grasrótin er nýr hlaðvarpsþáttur sem fjallar alfarið um neðri deildirnar á Íslandi. Í þessum þætti er hitað upp fyrir 4 og 5. deild karla sem fer senn að hefjast. Rætt er um öll liðin og spáð fyrir um það hvar þau enda á komandi tímabili. Þáttastjórnendur eru Haraldur Ingi og Tómas Helgi.

Útvarpsþátturinn - Allt galopið í Bestu og eftirvænting í Liverpoolborg 26.04.2025

Elvar Geir og Tómas Þór í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 laugardaginn 26. apríl. Besta deildin á hug okkar að vanda. Helstu tíðindi, gluggapælingar og næsta umferð. Daði Berg Jónsson hefur farið á kostum með Vestra og er á línunni. Enski boltinn er til umræðu. Kristján Atli Ragnarsson sérfræðingur mætir en mikil eftirvænting er í Liverpoolborg. Þá er einnig rætt um Evrópudrauma Arsenal og Man...

Innkastið - Báðir nýliðarnir lögðu Víking 24.04.2025

Innkastið eftir þriðju umferð Bestu deildarinnar. Afturelding, ÍBV og Vestri; liðin sem voru í neðstu sætum í spám fyrir mót, unnu öll í þessari umferð! Vestri er á toppnum og KA á botninum.

Hugarburðarbolti GW 33 Liverpool aðeins einum sigri frá því að verða meistarar. 24.04.2025

Liverpool aðeins einum sigri frá því að verða meistarar. Trent með góða kveðjugjöf eða hvað? Aston Villa burstaði Newcastle en tapaði svo gegn Man City. Nottingham Forest með mikilvægan útisigur á Tottenham á annan í páskum. Spennan verður svakaleg um þetta 3-5 sæti sem gefur meistaradeildarsæti. Svo óskum við Leeds og Burnley stuðningsmönnum til hamingju með úrvalsdeildarsætið.

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.