Fotbolti.net

Fotbolti.net

Sports IS ↓ 2842 episodes

Podcastþættir Fótbolta.net

Author

Fotbolti.net

Category

Sports

Podcast website

fotbolti.net

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Útvarpsþátturinn - Boltinn, Brann og bestu barirnir 31.05.2025

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 31. maí. Elvar Geir, Valur Gunnars og Benedikt Bóas. Sævar Atli Magnússon, nýjasti leikmaður Brann, kom í upphafi þáttar og svo var farið yfir Lengjudeildina og Bestu deildina. Garðar Ingi frá FH kom, heyrt er í hressum hlustendum og bestu barirnir í Bestu deildinni valdir. Biggi hjá ÍTF ræðir um leiðinlega fólkið sem vill banna bjór á vellinum. Þá...

Innkastið - Bitlausir Blikar og galopnir KR-ingar 29.05.2025

Innkastið eftir 9. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Haraldur Örn, fréttamaður Fótbolta.net og stuðningsmaður KA. ÍA, KA og ÍBV unnu öll í þessari umferð og náðu þannig að snúa deildinni á hvold. Sóknarleikurinn er áhyggjuefni Breiðabliks sem tapaði öðrum leiknum í röð. Víkingur vann leiðinlegan toppslag og Valsmenn nálgast.

Grasrótin - 4. umferð, Baldvin Borgars í mánaðarfrí 29.05.2025

Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 4. umferð í 2. og 3. deild karla, 3. umferð í 4. deild og 2. umferð í 5 deild. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi.2.deild, 2:50, 3.deild, 32:00, 4.deild, 1:06:45, 5.deild, 1:26:10Þátturinn er í boði Ásachat.is, vertu viss sem fyrst.

Hugarburðarbolti Uppgjörið í Enska ! 29.05.2025

Það komu frábærir gestir í uppgjörs þátt Hugarburðarbolta. Villi Neto og Davíð Guðbrands gerðu upp tímabilið með okkur og vinningshafar voru krýndir. Þökkum kærlega fyrir tímabilið og heyrumst á því næsta.

Sveindís fer yfir ákvörðunina óvæntu - Valdi borg englanna 28.05.2025

Landsliðskonan vinsæla Sveindís Jane Jónsdóttir gekk á dögunum í raðir Angel City í Bandaríkjunum. Þetta voru skipti sem komu nokkuð mikið á óvart. Hún hefur síðustu ár verið á mála hjá Wolfsburg í Þýskalandi en hefur nú nýjan kafla í borg englanna í Bandaríkjunum í sumar. Þetta er áhugaverð. Sveindís settist niður með fréttamanni Fótbolta.net í Þrándheimi í Noregi í dag og ræddi þar betur um þess...

Hugarburðarbolti GW 38 Sturlaður lokasprettur í enska! 27.05.2025

Newcastle, Aston Villa og Nottingham Forest töpuðu öll sínum leikjum í baráttunni um meistaradeildarsætin. Evrópudeildarmeistarar Tottenham steinlágu á heimavelli gegn Brighton 1-4 Man Utd kvöddu stuðningsmenn sína með sigri og á Anfield fór Englandsbikarinn á loft.

Leiðin úr Lengjunni - Hamingja á Húsavík og fúlir Fylkismenn 26.05.2025

Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Sverrir Örn Einarsson.

Uppbótartíminn - Nýtt lið á toppnum og mikilvægir landsleikir 26.05.2025

Það voru vendingar í síðustu umferð Bestu deildar kvenna eins og rætt er um í nýjum þætti af Uppbótartímanum, sérstökum hlaðvarpsþætti um kvennaboltann. Þróttur Reykjavík er á toppnum eftir að FH tókst að leggja Breiðablik að velli í Kaplakrika. Rætt er um síðustu umferð sem er að baki og einnig um mikilvæga leiki sem eru framundan hjá kvennalandsliðinu gegn Noregi og Frakklandi. Guðmundur Aðalste...

Enski boltinn - Rándýr dómaramistök og bikar á loft á Anfield 26.05.2025

Liverpool er Englandsmeistari. Það er löngu vitað. En bikarinn fór á loft á Anfield í gær. Lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar var annars mjög áhugaverð þar sem dómaramistök á Old Trafford höfðu mikið að segja í Meistaradeildarbaráttunni. Hrafn Kristjánsson, stuðningsmaður Liverpool, og Haraldur Örn Haraldsson, gerðu lokaumferðina og tímabilið upp ásamt Guðmundi Aðalsteini.

Tveggja Turna Tal - Óskar Smári Haraldsson 26.05.2025

Óskar Smári Haraldsson er bóndasonur úr Varmahlíð. Hann var tvisvar sinnum valinn í lið umferðarinnar í Lengjudeildinni fyrir rúmum áratug síðan og það var hápunktur ferilsins sem var sjálfmiðaður, að hans mati! Kristján Guðmundsson tók í burtur úr honum hrokann og kenndi honum auðmýkt, leikgreiningu og ýmislegt annað og undanfarin fjögur ár hefur Óskar Smári unnið þrekvirki með kvennalið Fram. Vi...

Innkastið - Blikar lúta í gras og Davíð Smári finnur lausnir 25.05.2025

Innkastið eftir 8. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og með þeim er Óskar Smári, þjálfari kvennaliðs Fram. Víkingur tók toppsætið, Blikar töpuðu verðskuldað fyrir FH og Vestri kom til baka með stæl gegn Stjörnunni. Skagamenn eru á botninum en KA náði í mikilvægan sigur.

Útvarpsþátturinn - Vond vörn og uppgjör við enska hringborðið 24.05.2025

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 24. maí. Umsjón: Tómas Þór og Elvar Geir. Íslenski boltinn í fyrri hálfleik þáttarins. Baldvin Borgarsson ræðir um 8. umferð Bestu deildarinnar, leikur KR og Fram er gerður upp og einnig rætt um Lengjudeildina. Enska hringborðið í seinni hálfleik þáttarins. Kristján Atli gerir upp tímabilið í ensku úrvalsdeildinni, skoðar liðin sem eru að koma upp og um ú...

Grasrótin - 3. umferð, neðri deildirnar í stuði 23.05.2025

Grasrótin er nýr hlaðvarpsþáttur sem fjallar alfarið um neðri deildirnar á Íslandi. Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 3. umferð í 2. og 3. deild karla, 2. umferð í 4. deild og 1. umferð í 5 deild. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi.2. deild, 2:10, 3. deild, 37:20, 4. deild, 1:10:00, 5.deild, 1:29:20

Enski boltinn - Fyrsti bikar Tottenham í 17 ár 22.05.2025

Það var stór stund fyrir Tottenham í gær þegar liðið fór með sigur af hólmi í Evrópudeildinni. Spurs lagði Manchester United að velli í Bilbao. Þessu var vel fagnað hjá stuðningsmönnum Tottenham enda fyrsti bikar félagsins í 17 ár. Hörður Ágústsson og Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmenn Tottenham, gerðu stóru stundina upp í skemmtilegum hlaðvarpsþætti.

Leiðin úr Lengjunni - Þéttur pakki eltir Keflvíkinga á toppnum 21.05.2025

Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni. Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Sverrir Örn Einarsson.

Hugarburðarbolti GW 37 Lokaleikur í Liverpool ! 20.05.2025

Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn! Nottingham Forest eru ennþá í möguleika á meistaradeildar sæti. Brighton lögðu meistara Liverpool. Aston Villa með lífsnauðsynlegan sigur á Tottenham. Fulham með flottan útisigur á Brentford. Og Jaime Vardy kvaddi King Power með stæl! Declan Rice tryggði Arsenal í meistaradeildina með 1-0 sigri gegn Newcastle.

Tveggja Turna Tal - Jóhann Kristinn Gunnarsson 20.05.2025

Jóhann Kristinn Gunnarsson, Jói Belladona, er þjálfari Þór/KA í Bestu deild kvenna. Jói hefur þjálfað rétt tæpa 500 leiki í meistaraflokki hjá tveimur félögum. Við ræddum margt. Húsavík, tæklinguna á Mark Duffield, titilinn með Þór/KA 2012, kvennalandsliðið og feimnir blaðamanna við að spyrja réttu spurninganna á réttum stöðum!

Innkastið - Brakandi blíða og Blikar tróna á toppnum 19.05.2025

Innkastið eftir 7. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og sérstakur gestur er Magnús Þórir Matthíasson. Blikar tróna einir á toppnum eftir kvöldið, vandræði ÍA halda áfram, leiðinlegasti leikur sumarsins var í Eyjum, markaregn í Mosó og Lengjudeildarhorn.

Uppbótartíminn - Valur að ganga í gegnum dimman dal 19.05.2025

Það er komið að þætti tvö af uppbótartímanum, nýjum hlaðvarpsþætti um kvennaboltann hér á Fótbolta.net. Valur er í mikilli lægð í Bestu deild kvenna þessa stundina en þær töpuðu 4-0 á móti Breiðabliki síðasta föstudag. Valsliðið er aðeins með sjö stig eftir sex leiki og er með -2 í markatölu. Hvað er eiginlega í gangi hjá Hlíðarendafélaginu? Rætt er um það og margt annað í þættinum. Breiðablik og...

Enski boltinn - Besti dagur lífsins og Sunderland í dauðafæri 19.05.2025

Crystal Palace varð bikarmeistari á laugardag eftir sigur á Manchester City. Þetta er fyrsti stóri titillinn í sögu Crystal Palace. Daníel Örn Sólveigarson, stuðningsmaður Crystal Palace, kom í heimsókn á skrifstofu Fótbolta.net í dag og fór yfir þennan magnaða sigur. Bernharð Antoníusson, stuðningsmaður Sunderland, er með honum í þættinum en félagið er í séns á að komast upp í ensku úrvalsdeildin...

Betkastið - Heiðar Helguson & Oliver Heiðarsson 17.05.2025

The greatest Barclays Man alive Heiðar Helgusson og synirnir hans Aron og Oliver Heiðarssynir mættu í settið í svokallaðan feðgaþátt! - Ferilinn ræddur - Góðar leikmannasögur - Enska úrvalsdeildin á tþeim tíma - Oliver Heiðars leikmaður ÍBV og markmið hans - Hver er líklegastur? - Yfirheyrsla frá fans

Útvarpsþátturinn - Meistarar slegnir út og Arnór Gauti gestur 17.05.2025

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 laugardaginn 17. maí. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars fara yfir fótboltavikuna hér á Íslandi; meistarar féllu úr leik í Mjólkurbikarnum, áhugaverðir leikir framundan í Bestu deildinni og Lengjudeildin ætlar að verða galopin. Gestur þáttarins kemur úr röðum Íslandsmeistara Breiðabliks en það er Arnór Gauti Jónsson, miðjumaðurinn sem lék lykilhlutverk í Ís...

Grasrótin - 2. umferð, Vogarnir í stuði og 4. deild farin af stað 15.05.2025

Grasrótin er nýr hlaðvarpsþáttur sem fjallar alfarið um neðri deildirnar á Íslandi. Halli Óla og Tómas Helgi fóru yfir 2. umferð í 2. og 3. deild karla og 1. umferð í 4. deild karla. Íslenskur neðrideildar fótbolti er uppi.2. deild, 1:00, 3. deild, 32:50, 4. deild, 1:05:20.

Tveggja Turna Tal - Samantha Smith 15.05.2025

Samantha Smith afrekaði það að vera valinn besti leikmaður Lengjudeildarinnar og vera valin í lið ársins í Bestu deildinni í fyrra, það er afrek! Samantha kom til mín á Ölhúsið í Hafnarfirði og við ræddum uppvaxtarárin, tímann í Texas, hvernig hún svo endaði á Reyðarfirði og í kjölfarið á Breiðablik. Sammy svarar því svo til hvort hún hafi áhuga á að spila fyrir Íslands hönd ef einhver á þing...

Hugarburðarbolti GW 36 Man Utd og Tottenham í 16 og 17 sæti! 13.05.2025

Liverpool og Arsenal gerðu 2-2 jafntefli á Anfield í stórleik helgarinnar. Newcastle upp í 3 sætið eftir sterkan sigur gegn Chelsea. Man City misstigu sig á suðurströndinni gegn Southampton. Ollie Watkins með sigurmark á útivelli gegn Bournemouth. Nottingham Forest gerði einungis jafntefli 2-2 gegn föllnum Leicester liðum. Kevin Schade heldur áfram að spila vel og Eze var kóngurinn á Tottenham Hot...

Listen to the Fotbolti.net podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.