Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Tveggja Turna Tal - Davíð Snorri Jónasson 27.01.2025
Davíð Snorri Jónasson er alinn upp í Fellahverfinu í Breiðholti. Hann er kennararmenntaður og hefur starfað sem slíkur ásamt því að hafa náð frábærum árangri sem knattspyrnuþjálfari. Davíð Snorri er í dag aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla en hefur einnig þjálfað 21 árs landslið Íslands, yngri landslið ásamt því í að hafa þjálfað hjá Leikni og Stjörnunni. Við fórum yfir feril Davíðs Snorra, hverni...
Útvarpsþátturinn - Nýtt teymi í Víkinni, VV og KA skýrsla 23.01.2025
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpsútgáfu þessa vikuna. Umsjónarmenn: Elvar Geir og Tómas. Farið er yfir fréttir vikunnar, þar á meðal nýja þjálfarateymið hjá Víkingi og gengi landsliðsmanna okkar. Valgeir Valgeirsson, nýr leikmaður Íslandsmeistarara Breiðabliks, er gestur þáttarins. Svo mætir Haraldur Örn og kynnir úrslit Fótboltanördans, skoðar gang mála hjá KA og skoðar erl...
Hugarburðarbolti GW 22 Justin Kluivert með Dillon þrennu! 21.01.2025
Justin Kluivert með svakalega þrennu á St. James's Park gegn Newcastle. Darwin Nunez hetja Liverpool á móti Brentford. Foden er vaknaður! Aston Villa sótti stig á Emirates til Arsenal. Forest halda áfram að vinna leiki. Fulham og Crystal Palace með sterka útisigra og Man Utd tapar enn einum leiknum í deildinni.
Beta um nýtt starf og tímann eftir Kristianstad 21.01.2025
Elísabet Gunnarsdóttir var í gær ráðin landsliðsþjálfari Belgíu eftir að hafa verið í smá fríi frá fótbolta. Hún skrifaði undir samning til sumarsins 2027. Belgía er í 19. sæti styrkleikalista FIFA (Ísland er í fjórtánda sæti) og verður eins og Ísland meðal þátttökuþjóða á EM í sumar. Belgía er með Portúgal, Ítalíu og Spáni í riðli. Beta, eins og hún er oftast kölluð, hefur verð án starfs síðan hú...
Enski boltinn - Góð gen, Darwizzy og brotið sjónvarp á Old Trafford 21.01.2025
Liverpool jók forskot sitt á toppi ensku úrvalsdeildarinnar um helgina þar sem Arsenal missteig sig. Manchester United var skellt aftur á jörðina og Bournemouth sýndi magnaða frammistöðu gegn Newcastle. Þá skoraði Manchester City sex mörk á milli þess sem félagar verslar inn leikmenn. Þá er Tottenham í frjálsu falli og Ange Postecoglou er í veseni. Baldvin Már Borgarsson og Sölvi Haraldsson eru ge...
Útvarpsþátturinn - Arnar valinn til að leiða land og þjóð 18.01.2025
Jörundur Áki Sveinsson, yfirmaður fótboltamála hjá KSÍ, er gestur í útvarpsþættinum þessa vikuna. Elvar Geir og Benedikt Bóas taka á móti Jörundi í hljóðveri. Þjálfaramál landsliðsins urðu endanlega ljós í vikunni þegar Arnar Gunnlaugsson var ráðinn landsliðsþjálfari. Rætt er við Jörund um ráðninguna og það sem framundan er hjá KSÍ. Þá er farið yfir fréttir vikunnar með Baldvini Borgars. Freyr skr...
Hugarburðarbolti GW 21 Arsenal setur pressu á Liverpool! 17.01.2025
Arsenal setur pressu á Liverpool. Alexander Isak skorar og skorar. Amad Diallo kom Man Utd til bjargar. Matz Sels með enn einn stórleikinn fyrir Forest. Loks náðu Brighton í sigur. Ollie Watkins minnir á sig og Erling Braut Haaland skrifaði undir nýjan langtímasamning við Man City sem misstigu sig í vikunni gegn býflugunum í Brentford.
Enski boltinn - Þurfa að reka Ten Hag aftur og FSG á leið á svarta listann 17.01.2025
Andri Rúnar Bjarnason, sóknarmaður Stjörnunnar, er sérstakur gestur í Enski boltinn hlaðvarpinu þennan föstudaginn. Andri er stuðningsmaður Manchester United sem hefur farið býsna vel af stað á árinu 2025. Man Utd vann endurkomusigur á Southampton í gær þar sem Amad Diallo skoraði þrennu. Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson stýrir þættinum og Magnús Haukur Harðarson er að venju með. Farið er yfir síðu...
Tveggja Turna Tal - Þórarinn Ingi Valdimarsson 16.01.2025
Þórarinn Ingi Valdimarsson hitti mig í World Class Laugum og ræddi Vestmannaeyjar, Noreg og þurra Norðmenn, FH, Stjörnuna auk þess sem hann valdi lið af mönnum til að taka með sér á þjóðhátíð sem kemur á óvart! Visitor, Lengjan, Hafið Fiskverslun, World Class eru með okkur í liði ásamt auðvitað Budweiser Budvar! Njótið vel!
Freysi fer yfir síðustu daga - Fundaði með KSÍ en tók við Brann 15.01.2025
Freyr Alexandersson er tekinn við sem þjálfari Brann í Noregi og hann stefnir á að hjálpa liðinu að vinna sinn fyrsta meistaratitil síðan 2007 þegar þrír Íslendingar léku með liðinu. Það er gríðarlegur áhugi á Brann í borginni Bergen og hefur Freyr aldrei kynnst annarri eins fjölmiðlaathygli eins og síðustu daga. Hann gaf Fótbolta.net hálftíma í dag til að fara yfir nýja starfið. Freyr var líka in...
Fótbolta nördinn - Undanúrslit: Fylkir vs Þungavigtin 15.01.2025
Þetta er seinni undanúrslita þátturinn og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti Fylki og Þungavigtinni. Fyrir Fyllki keppti Ragnar Bragi Sveinsson en fyrir Þungavigtina keppti Kristján Óli Sigurðsson.
Útvarpsþátturinn - Að gera Bestu deildina enn betri 11.01.2025
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net á X977 11. janúar. Elvar Geir og Tómas Þór skoða landsliðsþjálfaramálin, félagaskipti og fréttir vikunnar og fá síðan góða gesti frá Toppfótbolta. Birgir Jóhannsson, framkvæmdastjóri ÍTF, og Björn Þór Ingason, markaðsstjóri ÍTF, koma í heimsókn. Rætt er um þróun Bestu deildarinnar, peningana í kringum hana, fyrirkomulagið og hvar svigrúm sé til bætinga.
Fótbolta nördinn - Undanúrslit: Víkingur vs RÚV 08.01.2025
Undanúrslitin eru hafin og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti RÚV og Víking. Fyrir RÚV keppti Jóhann Páll Ástvaldsson en fyrir Víking keppti Davíð Örn Atlason.
Hugarburðarbolti GW 20 Er Brian Mbeumo sonur Bob Marley? 07.01.2025
2-2 jafntefli í veislu á Anfield hjá erkifjendunum Liverpool og Man Utd. Brian Mbeumo með sýningu á St. Mary's. Brighton náði í stig gegn Arsenal í annað skiptið í vetur. Ipswich náði í stig gegn Fulham á Craven Cottage. Aston Villa lönduðu þremur punktum gegn nýliðum Leicester á heimavelli. Matz Sels er stigahæsti markvörðurinn í fantasy og ekki að ástæðulausu.
Enski boltinn - Alvöru slagur þegar erkifjendur mættust 06.01.2025
Erkifjendurnir Liverpool og Manchester United áttust við í ensku úrvalsdeildinni í gær og enduðu leikar með jafntefli í fjörugum leik. Það má svo sannarlega telja þetta til óvæntra úrslita þar sem flestir bjuggust nú við öruggum sigri Liverpool. Drummerinn sjálfur, Jóhann D Bianco, var ekki einn þeirra en hann er mikill stuðningsmaður Manchester United og hafði trú á sínum mönnum fyrir leikinn. Jo...
Útvarpsþátturinn - Fyrsta ótímabæra og enska hringborðið 04.01.2025
Elvar Geir og Tómas Þór í fyrsta þætti ársins 2025. Fyrsta ótímabæra spáin fyrir Bestu deildina afhjúpuð og farið yfir fréttir úr íslenska boltanum. Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur þáttarins í enska boltanum velur sérstakt úrvalslið og hitar upp fyrir viðureign Liverpool og Manchester United.
Hugarburðarbolti GW 19 Versta byrjun nýs stjóra Man Utd í 103 ár! 02.01.2025
Liverpool svífa hátt á toppi deildarinnar! Þeir kjöldrógu Hamrana á útivelli. Ipswich unnu fyrsta heimasigur sinn í úrvalsdeildinni síðan 2004 þegar þeir gerðu sér lítið fyrir og skelltu stórliði Chelsea 2-0. Öskubusku ævintýri Notthingham Forest ætlar engan endi að taka. Morgan Rogers heldur áfram góðri spilamennsku og þakkar fantasy spilurum traustið. Tottenham og Man Utd halda áfram að vera í v...
Enski boltinn - Man Utd gælir við falldrauginn eftir vonlaus jól 02.01.2025
Gleðilegt nýtt ár! Enski boltinn var á fleygiferð í kringum jólahátíðina en í þessum þætti er farið yfir það helsta. Manchester United er mikið á milli tannana á fólki þessa dagana en falldraugurinn gælir við liðið. Það er aðeins sjö stig í fallsvæðið eftir þrjá tapleiki í röð. Liðið er hreint út sagt ömurlegt og það er dimmt yfir Old Trafford. Liverpool er sem fyrr á toppnum, Arsenal átti góð jól...
Útvarpsþátturinn - Kæfan 2024 28.12.2024
Gleðin er við völd í Kæfunni þegar fótboltaárið er gert upp og veitt verðlaun í fjölmörgum flokkum. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas í beinni í síðasta þætti ársins frá fiskabúrinu á Suðurlandsbrautinni. Gestur þáttarins er hinn þrælskemmtilegi og öflugi markvörður Jökull Andrésson. Einnig kemur Breki Logason í heimsókn og Tómas Meyer er á línunni.
Fótbolta nördinn - 8 liða úrslit: Víkingur vs FH 25.12.2024
Þetta er lokaþáttur 8 liða úrslitana og í þetta sinn tekur Haraldur Örn á móti FH og Víking. Fyrir FH keppti Böðvar Böðvarsson en fyrir Víking keppti Davíð Örn Atlason.
Tveggja Turna Tal - Óli Jóh & Sigurbjörn Hreiðars 25.12.2024
Jólaspjall Tveggja Turna Tals var við tvo af skemmtilegri mönnum Íslands og þótt víðar væri leitað. Óli Jóh og Bjössi Hreiðars gáfu sér tíma í jóla amstrinu og fóru yfir allt sviðið. Það bar ekki á miklu jólastressi á þeim félögum. Það var ekki rædd vitleysan í stúdíó í þetta skiptið - allavega ekki allan tímann. Þeir félagar ræddu hvað er gaman við þjálfun, hvað traust skiptir miklu máli þeg...
Tveggja Turna Tal - Kári Ársælsson 23.12.2024
Kári Ársælsson er fyrsti fyrirliði Breiðabliks til að lyfta Íslands og Bikarmeistaratitlinum í meistaraflokki karla í fótbolta. Það gerði hann á lágmarkslaunum! Kári var 16 ára keyptur af Ásgeiri Elíassyni í Þrótt þar sem hann sat stundum á bekknum þegar Þróttarar féllu úr efstu deild eftir að hafa verið efstir eftir fyrri umferðina. Hann stundaði nám í Alabama í Bandaríkjunum og er þekktur "trash...
Enski boltinn - Björn Bragi gestur og svört jól í Manchester 22.12.2024
Síðustu leikirnir fyrir jól í ensku úrvalsdeildinni voru leiknir núna um helgina. Síðasti leikurinn var stórslagur Tottenham og Liverpool sem endaði með mikilli markasúpu. Það verða svört jól í Manchester þar sem bæði City og United eru í slæmum málum. Sjónvarpsmaðurinn og grínistinn Björn Bragi Arnarsson er sérstakur gestur þáttarins en hann hefur verið að gera virkilega skemmtilega hluti að unda...
Hugarburðarbolti GW 17 Liverpool á toppnum um jólin! Er Pep ráðalaus? 22.12.2024
Össi Árna mætti sem gestur í þáttinn. Manchester liðin halda áfram að tapa leikjum. Allt galopið á Tottenham Hotspur Stadium. Liverpool á toppnum yfir jólin. Nottingham Forest liðar áfram á góðu róli í 4.sæti deildarinnar. Sigur í fyrsta leik Vitor Perreira með Úlfana á King Power. Og Alexander Isak sökkti nýliðum Ipswich með snyrtilegri þrennu á Portman Road.
Útvarpsþátturinn - Ari Sigurpáls, Gísli Gotti og landsliðsþjálfaraleit 21.12.2024
Jólaþáttur Fótbolti.net á X977 laugardaginn 21. desember. Gestir eru svo Ari Sigurpálsson og Gísli Gottskálk Þórðarson, hinir ungu leikmenn Víkings. Fjallað er um Evrópuævintýri Víkinga sem ætlar engan enda að taka og rætt við þá um tímabilið, framtíðina, lífið utan vallar, enska boltann og fleira. Farið er yfir fréttir vikunnar, þar á meðal landsliðsþjálfaraleitina. Hver er núna líklegastur til a...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.