Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: fotbolti.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Innkastið - Stig sem litlu breytir og Grindavíkurgleði 29.05.2017
Íslenska útgáfan af Innkastinu er á dagskrá eftir hverja umferð í Pepsi-deildinni í sumar. Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson fara yfir umferðina með fréttariturum og sérfræðingum.
Davíð Kristján: Fékk að heyra það eftir Cheerios-auglýsinguna 28.05.2017
Davíð Kristján Ólafsson, leikmaður Breiðabliks, var í viðtali sem tók óvænta stefnu í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu.
Pepsi-hringborðið - Ítarleg upphitun fyrir 5. umferðina 27.05.2017
Framundan er 3. umferð Pepsi-deildarinnar og var hitað vel upp í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag. Gestur var Grétar Sigfinnur Sigurðarson, sérfræðingur þáttarins. Elvar Geir Magnússon og Benedikt Bóas Hinriksson ræddu við Grétar um helstu tíðindi deildarinnar og spáðu í spilin fyrir komandi umferð.
Inkasso-yfirferð: Fjörug byrjun á deildinni 27.05.2017
Inkasso-deildin, 1. deild karla, fer ákaflega skemmtilega af stað en fjórða umferðin er í fullum gangi.
Innkastið - Lokahóf ensku deildarinnar 25.05.2017
Það er komið að Evrópu-Innkastinu en í þessum þætti er rætt um sigur Manchester United í Evrópudeildinni og enska úrvalsdeildin gerð upp. Farið er lauslega yfir tímabil allra liða í deildinni.
Innkastið - Samsæriskenningar og meistarar að elta 23.05.2017
Íslenska útgáfan af Innkastinu er á dagskrá eftir hverja umferð í Pepsi-deildinni í sumar. Einnig verður af og til litið niður í Inkasso-deildina og bikarkeppnina.
4. umferð Pepsi skoðuð og rætt um stórtíðindin úr Víkinni 20.05.2017
Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson hituðu upp fyrir 4. umferð Pepsi-deildarinnar á X-inu í dag. Tryggvi Guðmundsson, sérfræðingur þáttarins, var á línunni. Rætt var um stóru fréttirnar úr Fossvoginum en Milos Milojevic varð í gær annar þjálfarinn í deildinni sem hverfur á braut.
Enska hringborðið - Tímabilið gert upp með Tryggva og Kristjáni 20.05.2017
Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson héldu að vanda um stjórnartaumana í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í dag. Enska hringborðið var dregið fram. Komin er inn upptaka af hringborðinu en sérfræðingar þáttarins, Tryggvi Páll Tryggvason af raududjoflarnir.is og Kristján Atli Ragnarsson af kop.is fóru yfir tímabilið og völdu úrvalslið tímabilsins og fleira.
Innkastið - Jóhann Már fer yfir meistaratímabil Chelsea 16.05.2017
Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Chelsea, er sérstakur gestur í Evrópu-Innkastinu þessa vikuna. Chelsea hefur tryggt sér enska meistaratitilinn og því blásum við til Meistara-Innkasts.
Innkastið - Þrumustuð og stórslagur í þriðju umferð 16.05.2017
Íslenska útgáfan af Innkastinu er á dagskrá eftir hverja umferð í Pepsi-deildinni í sumar. Einnig verður af og til litið niður í Inkasso-deildina og bikarkeppnina.
Siggi Lár: Óli og Bjössi stærsta ástæðan fyrir því að ég var áfram 15.05.2017
Sigurður Egill Lárusson, leikmaður Vals, kom í ítarlegt viðtal í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu á laugardaginn. Valsmenn hafa farið virkilega vel af stað í Pepsi-deildinni og unnið báða leiki sína af öryggi.
4. deildar Innkastið - Spáin fyrir sumarið og lið ársins 2016 15.05.2017
Sjálftitluðu 4. deildar sérfræðingarnir Ingólfur Sigurðsson og Runólfur Trausti snúa hér aftur í þætti tvö af 4. deildar Innkastinu.
Pepsi-hringborðið - Ítarleg upphitun fyrir 3. umferðina 13.05.2017
Framundan er 3. umferð Pepsi-deildarinnar og var hitað vel upp í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag. Gestur var Grétar Sigfinnur Sigurðarson, sérfræðingur þáttarins. Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon ræddu helstu tíðindi deil...
Inkasso-yfirferð með Davíð Snorra 13.05.2017
Davíð Snorri Jónasson, aðstoðarþjálfari Stjörnunnar, er útvarpsþættinum Fótbolti.net til halds og trausts þegar kemur að því að fylgjast með Inkasso-deildinni. Annarri umferð deildarinnar er að ljúka og var farið yfir málin í þættinum í dag. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu við Davíð og er hægt að heyra umræðuna í spilaranum hér að ofan.
Ítalski boltinn - Juventus 12.05.2017
Í vikunni komst Juventus í úrslitaleik meistaradeildarinnar og er því við hæfi að podcast vikunnar fjalli um la vecchia signora - Gömlu dömuna. Liðið er sigursælasta félagslið Ítalíu frá upphafi og hefur unnið ítölsku deildina síðastliðin fimm ár. Í &...
Innkastið - Vinavellir hrópa á Ajax og Man Utd 11.05.2017
Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fóru yfir dramatískt Evrópudeildarkvöld og ræddu ýmislegt fleira í Evrópu-Innkasti kvöldsins. Daníel var með fréttaskýringu varðandi baráttuna um að enda í topp fjórum í ensku úrvalsdeildinni og Elvar fór yfir uppgang Ajax og ferð sína til Englands.
Championship-Innkastið - Áhugaverðir eigendur og stórveldi með peninga 11.05.2017
Keppni í ensku Championship deildinni lauk um helgina eftir maraþon tímabil. Newcastle og Brighton eru komin upp í ensku úrvalsdeildina en framundan er umspil hjá Reading, Sheffield Wednesday, Huddersfield og Fulham um síðasta lausa sætið. Gunnar Sigurðarson, Gunnar á völlum, og Viðar Ingi Pétursson fylgjast með hverju sparki í Championship deildinni. Magnús Már Einarsson settist niður með þeim og...
Skotarnir í FH mættu í gott spjall í útvarpsþættinum 11.05.2017
Skotarnir í FH, Steven Lennon og Robbie Crawford, voru gestir í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 á laugardaginn og ræddu þar við Tómas Þór Þórðarson.
Innkastið - Fyrsta stígvélið kom snemma í Kópavogi 10.05.2017
Íslenska útgáfan af Innkastinu er á dagskrá eftir hverja umferð í Pepsi-deildinni í sumar. Einnig verður af og til litið niður í Inkasso-deildina líka.
Gummi Tóta vonast til að geta gefið út fleiri lög 08.05.2017
Guðmundur Þórarinsson var í viðtali í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu á laugardaginn. Þar ræddi hann meðal annars frabært mark sem hann skoraði í 3-3 jafntefli Norrköping og Djurgarden í sænsku úrvalsdeildinni á dögunum. Guðmundur telur að markið sé það flottasta á ferlinum hingað til.
Upptaka - Tryggvi skoðar aðra umferðina í Pepsi 07.05.2017
Tryggvi Guðmundsson var á línunni í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu 97,7 í gær. Tryggvi skoðaði þar aðra umferðina í Pepsi-deildinni sem er framundan.
Ítalski boltinn - Calcio, trequartista, regista, metronome 05.05.2017
Ítalski boltinn er Podcast í umsjón Björns Más Ólafssonar. Í hverjum þætti er fjallað ítarlega um eitt ítalskt knattspyrnulið á Ítalíu. Farið er yfir sögu félagsins, menningu og áhugaverðar staðreyndir.
Innkastið - Lambabaka, markaleysi, fall og dýfur 03.05.2017
Daníel Geir Moritz reif sig upp úr veikindum til að fara yfir boltann með Elvari Geir Magnússyni í Evrópu-Innkasti vikunnar. Daníel var um helgina á leik Crystal Palace og Burnley og kom með skýrslu frá þeirri ferð þar sem hann smakkaði meðal annars lambaböku.
Innkastið - Stig fuku í óvæntar áttir í fyrstu umferð 02.05.2017
Íslenska útgáfan af Innkastinu verður á dagskrá eftir hverja umferð í Pepsi-deildinni í sumar. Einnig verður af og til litið niður í Inkasso-deildina líka. Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson fara yfir umferðina með fréttariturum og sérfræðingum. Í dag eru allir leikir fyrstu umferðar skoðaðir og er Brynjar Ingi Erluson með þeim en hann skrifaði um viðureign KR og Víkings R. þar sem óvænt...
Inkasso-hringborðið - Hitað upp fyrir deildina 30.04.2017
Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson voru á sínum stað í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7. Þar var veglegt hringborð þar sem hitað var upp fyrir Inkasso-deildina, 1. deild karla. Davíð Snorri Jónasson, aðstoðarþjálfari S...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.