Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: fotbolti.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Pepsi-hringborðið - Grétar Sigfinnur nýr sérfræðingur 29.04.2017
Pepsi-deildin er að hefjast og það var heljarinnar Pepsi-hringborð á X-inu FM 97,7 þar sem hitað var upp í átökin. Nýr sérfræðingur útvarpsþáttarins, Grétar Sigfinnur Sigurðarson, mætti stúdíó. Grétar spilar í dag fyrir Þrótt og er gr&ia...
Ítalski boltinn - Crotone 28.04.2017
Í þessari viku heimsækjum við fallbaráttuliðið Crotone sem kemur úr dýpsta mafíulandi Suður-Ítalíu. Þar finnum við forseta sem þurfti að segja af sér vegna of náinna tengsla við 'Ndrangheta mafíuna, heimavöll sem er byggður á fornminjasvæði og stuðningsmannasveit sem er nefnd í höfuðið á stærðfræðingnum og heimspekingnum Pýþagorasi. Ítalski boltinn er Podcast í umsjón Björns Más Ólafssonar. Í hver...
Innkastið - Jákvætt og neikvætt af Messi og Ronaldo 27.04.2017
Það er komið að Evrópu-Innkasti vikunnar en aðra vikuna í röð er það á fimmtudagskvöldi. Rætt er um leik Manchester United og Manchester City í kvöld sem endaði með markalausu jafntefli.
Heimir Guðjóns: Höfum reynt að laga sóknarleikinn 27.04.2017
„Það er ljóst að það verður erfiður róður að verja þennan titil því það eru mörg lið sem gera tilkall og hafa verið að spila mjög vel á undirbúningstímabilinu," segir Heimir Guðjónsson, þjálfari Íslandsmeistara FH, í viðtali við Fótbolta.net fyrir komandi tímabil.
Óli Jó: Samkeppnisfærir um að vinna þetta mót 26.04.2017
Valsmenn hafa litið vel út á undirbúningstímabilinu og er þeim spáð 2. sæti í Pepsi-deildinni í sumar. Ólafur Jóhannesson, þjálfari liðsins, fékk sér kaffibolla á skrifstofu Fótbolta.net og ræddi komandi tímabil.
Willum: Synirnir mínir hörðustu gagnrýnendur 25.04.2017
Willum Þór Þórsson var valinn þjálfari ársins af Fótbolta.net í fyrra en hann tók við KR þegar liðið var í fallhættu en skilaði því í Evrópukeppni. Hann gerði áframhaldandi samning eftir tímabilið og er KR-ingum er spáð þriðja sætinu í Pepsi-deildinni í fyrra.
Rúnar Páll: Bærinn fer á hliðina við þetta 24.04.2017
„Ég held að ekkert lið eigi eftir að stinga af eins og gerðist með FH í lokaumferðunum í fyrra. Þó að við höfum hafnað fjórum stigum frá þeim þá voru þeir búnir að vinna þetta þegar tvær umferðir voru eftir. Ég held að mótið verði jafnara núna. Það getur ekkert lið farið inn í leik með öruggan sigur," segir Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, um Pepsi-deildina sem er framundan í sumar. G...
Höddi Magg um Pepsi-mörkin og deildina framundan 23.04.2017
Hörður Magnússon, umsjónarmaður Pepsi-markanna á Stöð 2 Sport, kom í heimsókn í útvarpsþáttinn Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í gær. Flautað verður til leiks í Pepsi-deildinni sunnudaginn 29. apríl. Í fyrri hluta spjallsins við Hörð sagði hann frá því með hvaða hætti Pepsi-deildinni verður gerð skil í sjónvarpinu í sumar en veislan hefst með upphitunarþætti næsta föstudagskvöld.
Tryggvi færir ÍBV og KR - Veðbanki Elvars og Tómasar 22.04.2017
Þegar rúm vika er í Pepsi-deildina var hitað vel upp fyrir komandi átök í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson spáðu í spilin með sérfræðingnum Tryggva Guðmundssyni.
Tryggvi Páll: Væri 'game over' hjá öðrum en Zlatan 22.04.2017
„Það bendir til þess að hann hafi slitið allt í hnénu í drasl. Við erum að tala um einhverja 8-9 mánuði frá. Þetta lítur illa út," sagði Tryggvi Páll Tryggvason á raududjoflarnir.is um meiðsli Zlatan Ibrahimovic, sóknarmanns Manchester United. Þessi 35 ára Svíi meiddist illa í sigri United gegn Anderlecht í Evrópudeildinni á fimmtudagskvöld.
Arnar Grétars: Reynum að gera atlögu að titlum 21.04.2017
„Ég átti alveg eins von á þessu. Undirbúningstímabilið hefur ekki verið frábært og þetta kemur ekki á óvart," sagði Arnar Grétarsson, þjálfari Breiðabliks, um spá Fótbolta.net en liðinu er spáð 5. sæti.
Ítalski boltinn - Atalanta 21.04.2017
Í þessari viku heimsækjum við kannski bestu unglingaakademíu Ítalíu, síðhærða glaumgosa sem fengu bönn vegna fíkniefnanotkunar og veðmálasvindls en fyrst og fremst heimsækjum við borgina Bergamo við Alparætur, spútniklið Serie-A í ár: Atalanta. Ítalski boltinn...
Innkastið - Bestur í vörn og mest á bekk 20.04.2017
Eftir nauman sigur Manchester United gegn Anderlecht í kvöld var Evrópu-Innkast vikunnar tekið upp. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fóru yfir allt það helsta.
Gústi Gylfa: Það er ekki fyrsta summan sem skiptir öllu máli 20.04.2017
„Þetta er kannski raunhæft miðað við það sem hefur gert frá því í fyrra. Við vorum í 4. sæti þá og grátlega nálægt því að komast í Evrópukeppnina," segir Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnis, en liðinu er spáð 6. sæti í sumar af Fótbolta.net.
Túfa: Umræðan um okkur hefur bara snúist um peninga 19.04.2017
Srdjan Tufegdzic, eða Túfa eins hann er kallaður, er þjálfari nýliða KA í Pepsi-deildinni en KA er spáð 7. sæti. Túfa kom hingað til lands upphaflega sem leikmaður í KA árið 2006. Í viðtali við Fótbolta.net fyrir komandi tímabil segir Túfa frá aðdragandandanum að því að hann hingað til lands.
Milos: Ekki eðlilegt að leikmenn fari á skíði eða snjóbretti 18.04.2017
„Við höfum bætt okkur síðustu fjögur ár í stigastöfnun, stöðugleika og spilamennsku. Við ætlum að gera það líka í ár og ég og leikmenn verðum ekki sáttir ef við endum í 8. sæti," segir Milos Milojevic en Fótbolti.net spáir liðinu 8. sæti í Pepsi-deildinni í sumar. Milos setur markið hærra.
Kristján Guðmunds: Allt annar veruleiki en liðin á höfuðborgarsvæðinu upplifa 17.04.2017
„Liðinu er spáð sama gengi og undanfarin ár. Sérfræðingar telja að við höfum ekki bætt okkur nógu mikið í vetur og við þurfum að taka þessu," segir Kristján Guðmundsson, þjálfari ÍBV, um spá Fótbolta.net fyrir Pepsi-deildina en Eyjamönnum er spáð níunda sætinu í sumar.
Evrópurúntur með Magga og Elvari - Meistaradeildin og þeir bestu í enska 15.04.2017
Elvar Geir Magnússon og Magnús Már Einarsson ræddu um Evrópufótboltann í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag.
Ítalski boltinn - Sampdoria 14.04.2017
Í dag heimsækjum við Sampdoria. Þar finnum við framherja sem skorar bara flott mörk og glímdi við eltihrelli í mörg ár, skallaörninn frá Genoa sem er vinsæll í Crystal Palace og Roberto Mancini sem stjórnaði öllu jafnvel þótt hann væri bara leikmaður. Og hvað er málið með að framherjar í dag eru hættur að sóla markvörðinn?
Gulli Jóns: Veturinn erfiður varðandi áföll 14.04.2017
„Við ætlum okkur að vera ofar," segir Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA, við Fótbolta.net. Skagamenn eru í tíunda sæti í spá okkar fyrir Pepsi-deildina en liðið hafnaði í því áttunda í fyrra.
Óli Stefán: Horfði til Conte hjá Juventus þegar ég pældi í 3-5-2 13.04.2017
„Það er ljóst að okkar fyrsta markmið er að forðast fallsætin tvö," segir Óli Stefán Flóventsson, þjálfari nýliða Grindavíkur. Grindvíkingum er spáð 11. sæti og þar með falli í spá Fótbolta.net. Óli segir að hópurinn sé í góðum málum varðandi líkamlegt form og taktík nú þegar styttist í mót en hann vill ná að bæta við hópinn áður en flautað verður til leiks.
Ejub: Spyr stundum hvort það sé í lagi með þetta fólk? 12.04.2017
„Við endum ekki í fallsæti. Trúin og vonin deyr síðast. Ég hef alltaf trú á sjálfum mér, liðinu og fólkinu í kringum mig. Ég finn einhverja leið til að berjast og halda Víkingi í efstu deild í allavega eitt ár í viðbót," segir Ejub Purisevic, þjálfari Víkings Ólafsvíkur, en Fótbolti.net spáir liðinu botnsætinu í Pepsi-deildinni í sumar.
Innkastið - Enginn hræddur við Arsenal 10.04.2017
Meistaradeildin og enski boltinn taka mikið pláss í Evrópu-Innkastinu að þessu sinni en við kíkjum einnig til Spánar, Þýskalands, Ítalíu, Noregs og Ísafjarðar svo eitthvað sé nefnt. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz horfðu á Arsenal tapa gegn Crystal Palace og ræddu síðan málin.
Eyjamenn gestir í útvarpinu: Höfum ekki áhuga á fallbaráttu 10.04.2017
Tveir leikmenn ÍBV voru gestir í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu á laugardaginn, miðvörðurinn Hafsteinn Briem og færeyski landsliðsbakvörðurinn Jónas Þór Næs. Hafsteinn var besti leikmaður ÍBV í fyrra en Jónas, sem lék með Val 2011-2013, gekk í raðir Eyjamanna í vetur eftir að hafa leikið heima í Færeyjum síðustu ár.
Þrjár vikur í Pepsi-deildina - Hvað eigum við í vændum? 09.04.2017
Pepsi-deildin hefst 30. apríl en hitað var upp fyrir deildina í útvarpsþættinum Fótbolti.net. Elvar Geir Magnússon ræddi við Loga Ólafsson um það hvað við eigum í vændum í sumar. Þá fór Tómas Þór Þórðarson yfir það hvar liðin í deildinni þurfa að styrkja sig.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.