Fotbolti.net
Fotbolti.net
Podcastþættir Fótbolta.net
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Kristján Atli sótillur þrátt fyrir sigur Liverpool 01.04.2017
Kristján Atli Ragnarsson, ritstjóri á kop.is, fór yfir 3-1 sigur Liverpool gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu í dag. Þrátt fyrir sigurinn var Kristján sótillur út í leikplan Everton og frammistöðu dómarans.
Norski boltinn byrjar að rúlla í dag 01.04.2017
Keppni í norsku úrvalsdeildinni fer af stað en opnunarleikurinn er viðureign Kristiansund og Molde. Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson ræddu við Andra Júlíusson, sérfræðing um norska boltann, í útvarpsþættinum Fótbolti.net í dag. Skoðuð var spá fyrir deildina og rætt um Íslendingana sem þar spila. Hlustaðu á umræðuna í spilaranum hér að ofan.
Ítalski boltinn - Parma 31.03.2017
Í þessum þriðja þætti heimsækjum við Hernan Crespo, Gianluigi Buffon og Juan Sebastian Veron til Parma. Félagið frá matarhöfuðborginni sem nefnt var í höfuðið á einu frægasta tónskáldi heims. Í seinni tíð hafa tvö ævintýraleg gjaldþrot sett spor sín á Parma og leikur félagið nú í þriðju deild á Ítalíu.
Alfreð: Maður gengur um á skýjum 25.03.2017
„Það var náttúrulega frábært. Það er frábær tilfinning að vera aftur kominn á völlinn og það skemmdi ekki fyrir að ná að skora," sagði Alfreð Finnbogason, framherji Augsburg í Þýskalandi, í viðtali í útvarpsþættinum Fótbolta.net á X-inu FM 97,7 í dag. Alfreð spilaði á fimmtudag æfingaleik með Augsburg gegn Greuther Fürth. Alfreð skoraði mark Augsburg með þrumuskoti á 18. mínútu leiksins, en leikur...
Landsliðshringborð - Arnar Grétars gerir upp leikinn gegn Kosóvó 25.03.2017
Magnús Már Einarsson og Tómas Þór Þórðarsson fengu til sín góðan gest í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 í dag. Arnar Grétarsson, þjálfari Breiðabliks í Pepsi-deild karla, mætti til þeirra félaga og ræddi landsleikinn sem fram fór í gærkvöldi.
Ítalski boltinn - Fiorentina 24.03.2017
Í þessari viku förum við á sögufrægar slóðir og heimsækjum Fiorentina. Þar hittum við fyrir framherjann Batistuta með ljónsmakkann og hríðskotabyssufagnið, miðjumanninn Angelo Di Livio sem spilaði alltaf í skrúfutökkum og Rui Costa með sokkana rúllaða niður á ökkla.
Ármann Smári velur úrvalslið ferilsins 23.03.2017
Ármann Smári Björnsson tilkynnti nýlega að skórnir væru farnir á hilluna. Ármann hefur verið lykilmaður í liði ÍA undanfarin ár.
Landsliðshringborð - Hópurinn skoðaður með Hjörvari 18.03.2017
Íslenska landsliðið var til umræðu í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag en í gær var landsliðshópurinn fyrir komandi leik gegn Kosóvó í undankeppni HM opinberaður. Hjörvar Hafliðason kom í heimsókn og ræddi um umræðuna um Viðar Örn Kjartansson, skoðaði hópinn, líklegt byrjunarlið gegn Kosóvó og fleira.
Evrópurúntur með Benna og Elvari - Meistaradeildin í brennidepli 18.03.2017
Elvar Geir Magnússon og Benedikt Bóas Hinriksson ræddu um Meistaradeildina í útvarpsþættinum Fótbolti.net í dag. Farið var yfir dráttinn í 8-liða úrslitum og heyrt í Birni Má Ólafssyni sérfræðingi um ítalska boltann sem fræddi okkur um Juventus.
Ítalski boltinn - Palermo frá Sikiley 17.03.2017
Ítalski boltinn er nýtt Podcast í umsjón Björns Más Ólafssonar. Í hverjum þætti verður fjallað ítarlega um eitt ítalskt knattspyrnulið á Ítalíu. Verður farið yfir sögu félagsins, menningu og áhugaverðar staðreyndir.
Innkastið - Ástríðan í íslensku 4. deildinni 15.03.2017
Sjálftitluðu 4. deildar sérfræðingarnir Ingólfur Sigurðsson og Runólfur Trausti ræddu fjórðu deildina eða Passion League eins og hún er stundum kölluð í dag.
Innkastið - Feluleikur með Pogba og fleiri leikir 13.03.2017
Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz fara yfir enska boltann í Evrópu-Innkastinu og einnig er rætt um spænska boltann. Rætt er um sigur Chelsea gegn Manchester United í bikarnum í kvöld og farið yfir leikina um liðna
Grétar Rafn: Erum öðruvísi en trúum á okkar leið 13.03.2017
Grétar Rafn Steinsson, fyrrum landsliðsmaður Íslands, var í áhugaverðu viðtali í útvarpsþætti Fótbolta.net á laugardaginn. Grétar er yfirmaður fótboltamála hjá Fleetwood Town sem er í öðru sæti í ensku C-deildinni og er í baráttu um að komast í fyrsta sinn upp í B-deildina.
Enska hringborðið - Þriðja fjórðungsuppgjör 11.03.2017
Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson fengu góðvini þáttarins í þriðja fjórðungsuppgjör ensku úrvalsdeildarinnar. Tryggvi Páll Tryggvason af raududjoflarnir.is og Kristján Atli Ragnarsson af kop.is mættu í hljóðver X-ins 97,7.
Innkastið - Með Liverpool í aðalhlutverki 07.03.2017
Það var góð yfirferð yfir enska boltann í hljóðvarpsþættinum Evrópu-Innkastið þessa vikuna. Daníel Geir Moritz og Elvar Geir Magnússon voru á sínum stað. Martin Sindri Rosenthal, stuðningsmaður Liverpool, var með þeim.
Guðjón Baldvins: Eina markmið mitt í ár að skora 06.03.2017
„Maður finnur að maður er viljugri til að fara út í útihlaupin vitandi að við verðum í Evrópukeppni. Maður vill vera í standi og við viljum ná langt og mæta skemmtilegum liðum," segir Guðjón Baldvinsson, sóknarmaður Stjörnunnar, í viðtali við útvarpsþáttinn Fótbolti.net.
Jónas Þórhalls: Meðvitaðir um að þeir fara á stóra sviðið 05.03.2017
Grindvíkingar eru á fullu að búa sig undir tímabil meðal þeirra bestu í sumar eftir að hafa náð að komast upp úr Inkasso-deildinni. Jónas Þórhallsson, formaður Grindavíkur. hefur mjög lengi verið í fararbroddi í fótboltanum í bæjarfélaginu. Rætt var við Jónas í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í gær og þar sagðist hann sannfærður um að liðið geti gert góða hlut í sumar.
„Augnablik ætti að verða ósigrandi í deildinni" 05.03.2017
„Tæknilega séð ætti þetta lið að verða ósigrandi í deildinni, það ætti að vinna alla leiki auðveldlega," segir Magnús Valur Böðvarsson, helsti sérfræðingur þjóðarinnar um neðstu deildir landsins.
Glódís Perla: Ómetanlegt að hafa Söru í liðinu 04.03.2017
„Við erum í 17 gráðum í dag, sól, rigning og ský til skiptis," sagði Glódís Perla Viggósdóttir, varnarmaður íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu 97,7 í dag. „Við búumst samt við sól næstu þrjá daga," bætti Glódís við, en hún er þessa stundina stödd á Algarve-mótinu í Portúgal með íslenska landsliðinu.
Innkastið - Skömmin er leikmanna 27.02.2017
Leikur Leicester og Liverpool, brotthvarf Ranieri og deildabikarsigur Manchester United skipa stóran sess í Evrópu-Innkasti vikunnar. Elvar Geir Magnússon og Daníel Geir Moritz eru á sínum stað en Tómas Þór Þórðarson var með þeim í kvöld.
Pepsi-hringborðið - Tryggvi flokkar liðin tólf 26.02.2017
Undirbúningstímabilið á Íslandi er farið á fulla ferð en farið var yfir stöðu mála við Pepsi-hringborðið í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7. Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson, Benedikt Bóas Hinriksson og Tryggvi Guðmundsson voru við hringborðið.
Jónas Gestur: Verkfallið hafði gríðarleg áhrif 25.02.2017
Jónas Gestur Jónasson, formaður Víkings Ólafsvíkur, var á línunni í útvarpsþætti Fótbolta.net í dag. Fyrr í þættinum hafði Tryggvi Guðmundsson greint frá þeirri skoðun sinni að miðað við stöðuna í dag væri Víkingur Ólafsvík líklegasta liðið í Pepsi-deildinni til að falla. Jónas viðurkennir að sú spá komi ekkert endilega á óvart.
Enska hringborðið - Úrslitaleikur og Ranieri 25.02.2017
Það er úrslitaleikur í enska deildabikarnum á morgun þegar Manchester United og Southampton eigast við. Hitað var upp fyrir leikinn við enska hringborðið í útvarpsþætti Fótbolta.net. Einnig var rætt um umtalaðan brottrekstur Claudio Ranieri frá Leicester og Evrópumartröð Tottenham.
Innkastið - Mörkum flæðir í Meistaradeild 22.02.2017
Það er komið að Evrópu-Innkastinu þessa vikuna. Daníel Geir Moritz og Elvar Geir Magnússon fóru yfir málin og svo var Benedikt Bóas Hinriksson með þeim seinni hlutann.
Pétur Marteins: Nýr fjölnota 20 þúsund manna leikvangur 19.02.2017
Fótbolti.net fékk Pétur Marteinsson, fyrrum landsliðsmann, í heimsókn í útvarpsþáttinn á X-inu til að segja nokkuð ítarlega frá stöðu mála varðandi Laugardalsvöll, þjóðarleikvang okkar Íslendinga. Pétur fer fyrir hönd Borgarbrags í vinnu við að undirbúa endurbyggingu vallarins.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.