Einar Bárðarson

Einmitt / Menn eins og við

Music IS ↓ 100 episodes

Einmitt eru samtöl á sunnudagsmorgnum þar sem Einar ræðir við áhugaverða einstaklinga úr öllum áttum um smelli og skelli á lífsins svelli.

Author

Einar Bárðarson

Category

Music

Podcast website

einmitt.libsyn.com

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

63. Herbert Guðmundsson "Can't walk away" 04.03.2024

Herbert Guðmundsson er gesturinn minn í þessum þætti. Ég hef alla tíð verið aðdáandi Hebba, allt frá því ég heyrði Can't Walk Away í fyrsta sinn árið 1985. Stórkostlegt lag í alla staði sem hefur fylgt honum sem sól í gegnum allt sem að á hann hefur dunið. Seinna eftir að ég kynntist honum sjálfum þá held ég áfram að vera aðdáandi hans fyrir þrautseigjuna. Hann stendur upp og heldur áfram, sama hv...

62 Magga Jónasar: Kommentakerfið fór á hliðina 22.02.2024

Gestur minn í þessum þætti er Magga Jónasar förðunarfræðingur og heilsumarkþjálfi. Við ræðum um heilsuna, orkuna og hvernig við höldum réttum kúrs í ólgusjó samfélagsmiðla, auglýsinga, rétttrúnaðar, öfga og hvernig við nálgumst fáum í sinni einföldustu mynd. Hvernig skríður kona upp úr margföldu burn-outi og stendur á haus á hverjum morgni af því að það er gott fyrir hvatberana. Já minna má það nú...

61 Logi Pedro: Eru Íslendingar rasistar? 22.02.2024

Logi Pedro er gestur minn í nýjasta þættinum af Einmitt. Hann er frábær tónlistarmaður og sýndi það með hljómsveitinni sinni Retro Stefson, svo undir eigin nafni og á bak við tjöldin sem upptökustjóri margra flottustu listamanna sinnar kynslóðar. Við Logi tölum um tónlistina í öllu því samhengi sem okkur dettur í hug en við ræðum líka hvernig er að vera svartur strákur, erum við Íslendingar rasist...

60 Friðrik Dór "Aldrei of flottur til að hafa ekki gaman af þessu" 14.02.2024

Friðrik Dór Jónsson einn afkastamesti tónlistarmaður landsins er gestur minn í þessum þætti. Hann var að gefa út plötuna Mæður sem er sjálfstætt framhald af Dætur sem kom út fyrir tveimur árum. Við ræðum hvernig hann semur tónlistina og hvaðan hann sælir innblástur í textana. Heiðarlegt og skemmtilegt samtal við Friðrik Dór um tónlistina.

59. Snædís Xyza Mae Jónsdóttir "Sá hvítan mann í fyrsta sinn þegar ég var 4 ára" 05.02.2024

Snædís Xyza Mae Jónsdóttir matreiðslumaður er gestur Einars í þessum þætti. Hún er fædd á Filippseyjum en mamma hennar flutti til Íslands skömmu eftir að hún fæddist. Þegar Snædís var fjögurra ára kom móðir hennar og sótti hana og þær hófu nýtt líf á Íslandi. Það gekk aldrei sem skildi og Snædís var inn og út af fósturheimilum sem unglingur. Það var ekki fyrr en fulltrúi barnaverndar á Dalvík gekk...

58 Bryndís Gunnlaugs "Fimm gríðarleg áföll á nokkrum vikum" 20.01.2024

Gestur minn í þessum þætti er Bryndís Gunnlaugsdóttir lögfræðingur og Grindvíkingur. Hún er fyrrum forseti bæjarstjórnar í Grindavík og starfaði lengi sem lögfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Í dag starfar hún sem lögfræðingur hjá KPMG með áherslu á opinbera stjórnsýslu. Hún tók til máls á íbúafundi með ráðamönnum á þriðjudag eftir gos og vakti þar mikla athygli.

57. Gaupi "Hann var einstakur handboltamaður" 15.01.2024

Guðjón "Gaupi" Guðmundsson er einn reyndasti íþróttafréttamaðurinn þjóðarinnar. Áður var hann einnig þekktur sem liðsstjóri og aðstoðarmaður Bogdans Kowalczyk hjá Víkingi og landsliði Íslands í handknattleik. Núna er sonur Gaupa, Snorri Steinn þjálfari  karlalandsliðs okkar í handbolta og kominn til Þýskalands á EM í handbolta. Þar situr Snorri með væntingar þjóðarinnar í fanginu og spennan er í h...

56. Sveppi "Kúka með opna hurð svo ég missi ekki af neinu" 11.01.2024

Sverrir Þór Sverrisson hefur á síðustu árum breyst úr hreinræktuðum sprelligosa sem þjóðin elskaði að horfa á blanda ógeðsdrykki og hlaupa allsber niður niður Laugaveginn í einn ástsælasta leikarann okkar. Hann er jafnvígur á útvarp, sjónvarp, kvikmyndir og leiksviðið og í þessum þætti ræðum við Sveppi um þetta ferðalag og nýjustu verkefnin hans Veisluna, Kennarastofuna, Áramótaskaupi og And Björk...

55. Manúela Ósk "Mikilvægt að fólk þekki einkennin" 11.01.2024

Manúela Ósk Harðardóttir athafnakona er gestur minn í þessum þætti. Í desember 2023 hné hún niður í heimsókn frá frænku sinni og var keyrð með hraði á Bráðamóttökuna með heilablóðfall. Manúela hefur ekki talað mikið um þetta áfall en í þessum þætti lýsir hún hvernig endurhæfingin hefur gengið bæði andlega og líkamlega og hvað það er mikilvægt að þekka einkenni fyrirboða heilablóðsfalls.

53 Villi Árna "Samfélag í fullkomri óvissu" 27.12.2023

Vilhjálmur Árnason er gestur minn í þessum þætti. Hann er þingmaður en fyrst og síðast er hann Grindvíkingur og er í sömu sporum og þeir allir um þessar mundir en Grindvíkingar lifa við mikla óvissu vegna jarðhræringana á Reykjanesskaga. Ég ræði við Villa um hvernig þetta kemur við hann sem íbúa, pabba, eiginmann og þingmann. Þá ræðum við einnig orku- og öryggismál út frá þessari stöðu en Villi er...

54. Hrefna Bachmann "Grét bara fyrstu ferðina" 27.12.2023

Hrefna er ævintýrakona í víðasta samhengi. Hún og maðurinn hennar Ólafur Vilhjálmsson hafa búið og starfað í fleiri löndum en flestir landsmenn hafa heimsótt og ekki bara það heldur eru heimsálfurnar sem þau hafa unnið í að minnsta kosti fimm; Evrópa, Norður-Ameríka, Suður-Ameríka, Asía og Afríka. Þau sóttu nám til Bandaríkjanna bæði í Florída og seinna í Arizona. Magnaðasta verkefni þeirra er þó...

52. Króli „Dalirnir breytast ekki þó maður þekki þá betur" 28.11.2023

Kristinn Óli Haraldsson, Króli, er gestur minn í þætti 52. Fjölhæfur ungur listamaður sem hefur notið mikillar velgengni og lýðhylli allt frá árinu 2017 þegar hann og Jói P stukku fram á sjónarsviðið með laginu "BOBA" en hann hefur ekki fundið vellíðan í velgengninni. Hann glímir við kvíða og þunglyndi sem hann hefur náð að lifa með en ekki kannski alveg náð að hemja. Hann talar af miklu hispursle...

51. Bjarni Karlsson: "Hvers vegna erum við grimm?" 19.11.2023

Bjarni Karlsson er gestur minn í þessum þætti en hann er nýbúinn að senda frá sér bókina " Bati frá tilgangsleysi". Þar eins og í samtalinu okkar leitast hann við að svara spurningunni: Hvers vegna erum við grimm og heimsk? Samtalið okkar fer um víðan völl siðfræðinnar og guðfræðinnar og þar fléttast saman veraldleg og trúarleg hugsun um það sem skiptir máli í dag, að taka ábyrgð gagnvart umhverfi...

50. Magni: "Tommy Lee að reyna við Ragnhildi Steinunni" 12.11.2023

Magni „okkar" Ásgeirsson er gestur minn í þessum þætti. Við höfum verið vinir til áratuga núna og mig langaði að ræða við hann um Rockstar Supernova tímabilið og samvistirnar við Tommy Lee og félaga í Los Angeles. Síðan ræðum við auðvitað bransann frá öllum hliðum og álagið sem því fylgir að vera í 10 starfandi hljómsveitum og rauða flaggið sem hann fékk í ágúst þegar hann var keyrður með bláu ljó...

49. Sigríður Hrund „Heppin að fá fæðingarþunglyndi þrisvar" 12.11.2023

Sigríður Hrund Pétursdóttir, eigandi Vinnupalla ehf. og fyrrverandi formaður Félags kvenna í atvinnulífinu er gestur minn í þessum þætti. Hún talar ljós, eins og hún kallar það, dreifir mildi og náð sem hún hefur tamið sér eftir margra ára sjálfsvinnu því lífið er ekki alltaf dans á rósum. Hún fékk fæðingarþunglyndi í þrígang og segir það heppni. Hvernig má það vera og hvernig vinnur maður sig inn...

48. Baldur Rafn "Metró maðurinn er orðinn miðaldra" 29.10.2023

Baldur Rafn Gylfason hárgeiðslumeistari og eigandi Bpro heildsölunnar. Baldur var einn þeirra sem lagði grunn af innreið "Metró mannsins" til Íslands upp úr aldamótum. Metró maðurinn leyfði sér meira en bara ljósabekki og strípur til að hressa upp á útlitið. Metró maðurinn notaði líka snyrtivörur, krem og hárvörur sem ekki var algengt á þeim tíma. Nú er Metró maðurinn orðinn miðaldra og nú er hann...

47 Gabríel Ólafs "frægasti tónlistarmaður á Íslandi sem enginn veit hver er" 22.10.2023

Gestur minn í þessum þætti er Gabrí­el Ólafsson, tutt­ugu og fjög­urra ára gam­all tónlistarmaður og tónskáld. Hann hefur á örstuttum tíma náð fádæma árangri í útgáfu og ekki bara það því hann rekur hljóðver á Íslandi þar sem Apple TV+, BBC og Netflix sækja þjónustu hans. Ofan á það er hann á samn­ingi við Decca Records, sem er í eigu út­gáf­uris­ans Uni­versal Music Group og verkin hans eru spilu...

46. Drífa Björk - "Okkur þykir leitt að tilkynna þér" 07.10.2023

Athafnakonan Drífa Björk Linn­et Kristjáns­dótt­ir er gestur minn í þessum þætti. Hún missti manninn sinn Har­ald­ Loga Hrafn­kels­son­ í hræðilegu slysi á Tenerife þann 6. febrúar árið 2022. Heimilið þeirra og flestar veraldlegar eignir skemmdust af völdum brunans og litlu mátti muna að tvö börn hennar yrðu eldinum að bráð. Drífa fer yfir þennan afdrifatíka sunnudagsmorgun í þessu samtali okkar....

45. Ingimar Tryggva "Haltu áfram að skína" 21.09.2023

Ingimar Birn­ir Tryggva­son er gestur minn í þessum þætti. Ingimar eft­ir­sótt­ur upptökustjóri og fram­leiðandi hér heima og er­lend­is. Hann er upptökustjórinn á bak við Pat­rik Atla­son­ eða Prettyboitjokko eins og hann er kallaður, sem hefur sett allt á hliðina í sumar með lögunum sínum. Við ræðum hvernig það er leggja allt undir fyrir tónlistina og ná beint á toppinn.

44. Þórunn Sig "Kominn tími á stofnun Þjóðaróperu". 17.09.2023

Þórunn Sigurðardóttir, einn reyndasti menningarstjórnandi landsins, er gestur minn í þessum þætti.  Þórunn er formaður undirbúningsnefndar um stofnun Þjóðaróperu en nokkur styr hefur staðið um þau áform síðustu vikur. Áformin hafa verið sögð til höfuðs Íslensku óperunni en Þórunn vill bera klæði á þau vopn og fer yfir umræðuna um Þjóðaróperu sem nær aftur til ársins 1957 og fram til dagsins í dag....

43. Ágúst Bjarni þingmaður - "Greiningin var áfall" 04.09.2023

Ágúst Bjarni Garðarsson þingmaður er gestur minn í þessum þætti. Hann og konan hans eiga dreng sem greindist með CP hreyfihömlun við eins árs aldur og er því háður ýmis konar stuðningi í daglegu lífi. Ágúst Bjarni segir í samtalinu að hann hafi farið langt niður í kjölfarið og ekki höndlað það vel en nýtir nú sína innsýn í málaflokkinn til að bæta umhverfi þeirra sem takast á við sambærilegar ásko...

42. Nylon flokkurinn "Einu sinni enn" 23.08.2023

Gestir mínir í þessum sérstaka þætti af Einmitt eru Alma, Klara, Steinunn og Emilía úr Nylon flokknum. Það eru tæp tuttugu ár eru síðan að flokkurinn var stofnaður og hann steig fyrst á svið. Eftir að hafa slegið í gegn á Íslandi starfaði sveitin í Bretlandi en eftir að ein söngkonan hætti fluttust hinar þrjár til Los Angeles þar sem þær komu fram allt til ársins 2015. Í fyrsta sinn síðan árið 200...

41. Halli Melló "Ekkert eins fyndið og íslenskt Wanna Be" 13.08.2023

Vinur minn Hallgrímur Ólafsson eða Halli Melló var valin leikari ársins árið 2023 fyrir hlutverk sitt í Íslandsklukkunni sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu í vetur. Hann hefur átt ótrúlega skemmtilegan og viðburðaríkan feril. Hann ákvað að fara í leiklist frekar en á sjó og við ræðum hvernig það er að vera "utangarðs" innan um listaelítuna, um klappið hjá Magnúsi Magnúsi Magnússyni og hvernig fátt í he...

40. Guðni Gunnarsson "Þú ert í aðalhlutverki í þínu lífi" 06.08.2023

Guðni Gunnarsson hefur í um fjóra áratugi verið frumkvöðull á sviði líkams- og heilsuræktar. Hann er stofnandi og upphafsmaður Rope Yoga og GlóMotion hugmyndafræðinnar og "Máttur" bækurnar hans hafa notið mikilla vinsælda. Í haust byrjar hann með yfirgripsmikið námskeið í Lífsfærni sem hann kallar líka Heilrækt. Ég þekki Guðna og hef setið námskeið hjá honum og lesið bækurnar hans. Hvoru tveggja h...

39. Klara Elías "Einhvers staðar einhvern tímann aftur" 05.08.2023

Gestur minn í þessum þætti er Klara Ósk Elíasdóttir söngkona og góð vinkona mín til margra ára. Við ræðum um árin eftir að Charlies hættu og hvernig samstarf þeirra og vinskapur hefur þróast langt út fyrir ramma þess verkefnis. Þá ræðum við líka um nýjan kafla í lífi hennar sem tónlistarmanneskju og hvernig lagahöfundar titillinn bættist við söngkonu titilinn. 

Listen to the Einmitt / Menn eins og við podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.