Einar Bárðarson

Einmitt / Menn eins og við

Music IS ↓ 100 episodes

Einmitt eru samtöl á sunnudagsmorgnum þar sem Einar ræðir við áhugaverða einstaklinga úr öllum áttum um smelli og skelli á lífsins svelli.

Author

Einar Bárðarson

Category

Music

Podcast website

einmitt.libsyn.com

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

88. Richard Scobie "80's tímabilinu var bara hent" 04.01.2025

Rich­ard Scobie er gestur minn í þessum þætti. Hann sló í gegn með hljóm­sveit­inni Riks­haw á ní­unda ára­tug 20. ald­ar og ég var bæði aðdáandi hans og síðar vinur. Við ræðum um tónlistina þessi næstum 40 ár og allt sem henni fylgdi og síðast en ekki síst nýjustu plötuna hans Carnival of Souls sem kom út í haust.    Aðalbakhjarlar Einmitt eru:  ELKO.is  Kölski herrafataverslun Síðumúla 31  Scavo...

87. Bergrún Ólafs "Mig langaði að gera meira" 29.12.2024

Bergrún Ólafsdóttir er gestur minn í þessum þætti hún er verkefnastjóri umhverfis- og samfélagsmála hjá Samkaupum og við ræðum baráttuna við ræðum matarsóun í þessum þætti.    

86. Patrik Atlason, Skýrður í höfuðið á ömmu 28.12.2024

Patrik Snær Atlason sem flestir þekkja undir listamanns nafninu Pretty Boi Tjokko er gestur minn í þessum þætti. Við Patrik ræðum allt milli himins og jarðar í þættinum og tilvalið tækifæri að kynnast þessum áhugaverða manni.

85. "Ég hef staðið við mína sýn" 02.11.2024

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra er gestur minni í þessum þætti. Við ræðum stöðu Sjálfstæðisflokksins, kosningarnar fram undan, stefnu flokksins, árangur ríkisstjórnarinnar og hvað samstarfið við VG kostaði flokkinn

84. "Andlát bræðranna má ekki vera til einskis" 02.11.2024

Sigmar Guðmundsson er gestur minn í þessum þætti og við ræðum um fíknisjúkdóminn og allar hans skelfilegu hliðar og hvað við erum máttvana andspænis honum. Sigmar vill að við gerum betur sem samfélag í málaflokknum og á sér skoðanabræður víða.

83. "Stöðnun er upptakur að falli" 04.10.2024

Magnús Geórir Þórðarson er gestur minn í þessum þætti. Hann er afreksmaður í rekstri menningarstofnanna. Margverðlaunaður fyrir fleira en eina vídd slíkra starfa og þess vegna mikill fengur að fá að hitta hann og ræða allar þær áskoranir sem fylgja því að stýra menningarstofnun og uppfylla í senn kröfur bókarans, gestsins og gagnrýnandans

82. "Þetta eru bara jólin mín" 04.10.2024

Elísabet Margeirsdóttir drottning utanvegahlaupana á Íslandi og brautryðjandi í svo mörgum þáttum þeirrar íþróttarar er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum þessa íþrótt í sínum víðasta skilningi og þá sérstaklega þetta nýja afbrigði íþróttarinnar sem eru þessi svonefndu bakgarðshlaup    

81. Lilja Alfreðs "Ég er mjög góður DJ" 23.09.2024

Lilja Dögg Alfreðsdóttir Menningar- og viðskiptaráðherra er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum allt milli himins og jarðar, Evruna, Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, Millet úlpurnar og diskóbúrið í Fellahelli. Stórkemmtilegt samtal sem ég mæli með að þið hlustið á.    

80 Arna Magnea "Spurning um hjarta en ekki parta" 16.09.2024

Arna Magnea Danks trans kona og aðalleikkona í kvikmyndinni Ljósvíkingar er gestur minn í þessum þætti. Myndin er komin í bíó, hrífandi og falleg saga um vináttu sem ég hvet ykkur til að sjá. Við ræðum hennar líf og leiðina út úr skápnum og öllu því sem slíkt ferðalag útheimtir af einstaklingnum og þeim sem fara með viðkomandi í það.

79. Rjómaterturnar eru í frjálsu falli 08.09.2024

Friðrik Ómar er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum verkefni hans sem tónleikahaldara í sínu víðasta samhengi og sameiginlegt áhugamál okkar beggja, Söngvakeppni Sjónvarpsins og Eurovision í framtíð, fortíð og nútíð.

78. Björn Jörundur "Má ekki vera einhver vaxmyndasýning" 27.08.2024

Björn Jörundur Friðbjörnsson er gestur minn í þessum þætti. Þessi frábæri tónlistarmaður og leikari stendur í stórræðum. Árlegir stórtónleikar með Ný Dönsk fram undan í Hörpu og nú er væntanleg í kvikmyndahús kvikmyndin Ljósvíkingar þar sem Björn fer einfaldlega á kostum sem leikari í fallegri sögu sem sögð er af mikilli næmni og fegurð í þeirri mynd

77. Birgir Steinn "Þetta er bara hluti af mér" 18.08.2024

Birgir Steinn Stefánsson tónlistarmaður er gestur minn í þessum þætti. Hann er einn besti lagahöfundur ungu kynslóðarinnar. Í þættinum ræðir hann í fyrsta sinn opinberlega andleg veikindi sem hann glímdi við undanfarin ár, hann ræðir tónlistina, ný stofnaða fjölskyldu og framtíðina í tónlistinni. 

76 Jón Gunnar Þórðarson "Bara tala og bara hlusta" 11.08.2024

Gestur minn í þessum þætti er Jón Gunnar Þórðarson frumkvöðull og eigandi "Bara tala". Hann er lærður í listum og viðskiptum og var á tímabili farsæll leikstjóri en nú stýrir hann Bara tala sem unnið hefur til verðlauna fyrir gagnsemi sína í atvinnulífinu. Við tölum og "Bara tala" og margt fleira áhugavert.

75 Þórunn Reynis "Íslendingar gera kröfur" 04.08.2024

Gestur minn í þessum þætti er for­stjóri ferðaskrif­stof­unn­ar Úrvals Útsýn­ar. Þórunn er með reyndustu stjórnendum í íslenskri ferðaþjónustu og hefur starfað bæði hérna heima og erlendis í áratugi. Þegar hún rýnir til gagns og ræðir um ferðaþjónustu þá er gott að hlusta og læra.

74 Emilíana Torrini "Var hún njósnari?" 28.07.2024

Tónlistarkonan Emilíana Torrini er gestur minn í þessum þætti. Sem aðdáandi hennar til fjölda ára þótti mér afskaplega gaman að eiga þetta samtal. Emilíana er nýbúin að gefa út stórkostlega plötu sem er byggð á reyfarakenndri ævi Miss Flower vinkonu hennar sem nýlega féll frá. Við ræðum líka lífið í London, lífið hérna heima, lögin og ferilinn sem spannar tæp 30 farsæl ár.

73. Guðrún Hafsteins "Við þurfum að gera betur" 18.07.2024

Guðrún Haf­steins­dótt­ir, dóms­málaráðherra og odd­viti Sjálf­stæðis­flokks­ins í Suður­kjör­dæmi, er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum um feril hennar fram að framboði, þau þrjú ár sem hún hefur setið á þingi og árið hennar í Dómsmálaráðuneytinu. Við ræðum líka gengi Sjálfstæðisflokksins, hvernig hún sér flokkinn vinna upp fylgið og hvort hún sækist eftir áframhaldandi veru í oddvitasæti flo...

72 Helga Þóris "Erindið á Bessastaði" 13.05.2024

Helga Þórisdóttir forsetaframbjóðandi er gestur minn í þessum þætti. Hún er forstjóri Persónuverndar í leyfi og steig fram daginn fyrir páska og tilkynnti framboðið sitt. Í þessum þætti förum yfir erindi hennar til framboðs og stöðuna núna þegar seinni hálfleikur í framboðsvinnunni er að hefjast.

71. Una Torfa "Þetta er sagan mín til dagsins í dag" 04.05.2024

Una Torfadóttir tónlistarkona er gestur minn í þessum þætti. Ég er vandræðalega mikill aðdáandi hennar og platan hennar nýja er alveg yndisleg á að hlusta. Ég fékk Unu í heimsókn og við ræddum tónlistina, sköpunina og lífið sem hefur hún búið til í kringum listina.

70. Bergur Vilhjálmsson "Baráttan við hausinn" 01.05.2024

Bergur Vilhjálmsson, slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður og kafari gekk á dögunum 100 km frá Akranesi til Reykjavíkur með rúmlega tvö hundruð kílóa byrði á eftir sér. Bergur gekk alla þessa leið til styrktar Píeta samtökunum og til að vekja athygli á starfsemi þeirra. Gangan reyndi gríðarlega á Berg en hann kláraði verkefnið. Í þættinum fer hann yfir aðdragandann og hvað gekk á í hausnum á honum...

69 Hver er Halla Hrund? 25.04.2024

Halla Hrund Logadóttir er hástökkvarinn viku eftir viku í kapphlaupi frambjóðenda til forseta Íslands. Fyrir nokkrum vikum vissi afar fáir hver Halla er en nú keppist þjóðin við að kynna sér hana og ekki seinna vænna því það styttist í kosningar. Hver er þessi kona og hvaðan kemur hún og hvað ætlar hún sér að gera ef hún nær kjöri til embættis Forseta Íslands?

68. Tommi Knúts "29 ár í rusli" 08.04.2024

Tómas J. Knútsson, maðurinn á bak við Bláa herinn, hefur starfað við hreinsun umhverfisins síðustu 29 ár. Hann hefur lengi verið mér og öðrum innblástur í umhverfissmálum. Hann fékk fálkaorðu forseta Íslands fyrir þau störf en er ennþá á fullu. Núna þegar styttist í Stóra plokkdaginn fannst mér tilvalið að fá hann til mín til að ræða þetta magnaða áhugamál okkar félaganna, rusl.

67 Siggi Arnars "Tik Tok ætlar að taka yfir tónlistarheiminn" 08.04.2024

Sigurður Ásgeir Árnason framkvæmdastjóri OverTune sem setti allt á hliðina í byrjun árs eftir að hafa endurlífgað Hemma Gunn við í Áramótaskaupinu. Hann fullyrðir að Tik Tok ætli sér að taka yfir tónlistarheiminn en Tik Tok stendur núna í deilum við Universal, stærsta útgáfufyrirtæki í heiminum. Við Siggi ræðum tæknina og framtíðina í þessum magnaða þætti. 

66.Hera Björk "Hjartað stækkar og heimurinn minnkar" 26.03.2024

Hera Björk er á leiðinni til Malmö að syngja framlag okkar í Eurovison þetta árið. Valið fór ekki fram hjá neinum. Árið 2019 heimsótti hún SOS barnaþorp bæði í Ísrael og Palestínu en hún er velgjörðasendiherra Barnaþorpanna. Við tölum um hlutverk hennar sem hennar sem velgjörðar sendiherra, hrópin sem gerð hafa verið að henni síðustu vikur og mömmu hennar sem var sveitaballa drottning suðurlands

65.Júlí Heiðar "Eineltið eflir mann" 26.03.2024

Júlí Heiðar Halldórsson tónlistarmaður og lagahöfundur var að gefa út nýja plötu. Eitt af lögunum á henni, Farfuglar, vakti athygli mína núna í vetur þegar það kom út. Þar er Júlí Heiðar að syngja um tilfinningarnar og flækjurnar sem fylgja sameiginlegu forræði og umgengnisrétt samið og sungið þannig að það lætur fá sem hlusta ósnerta. Við ræðum plötuna, ferlið að verða að manni og það sem skiptir...

64. Siggi Jóhannes "Lífið er leit að lækningu" 11.03.2024

Gestur minn í þessum þætti er Sig­urður Hólm­ar Jó­hann­es­son eða pabbi hennar Sunnu Valdísar. Sunna greind­ist með afar sjald­gæf­an tauga­sjúk­dóm aðeins 14 mánaða gömul og þá gáfu læknar henni ekki mikið meira en sex ár til viðbótar. Siggi, Ragnheiður Hjaltadóttir kona hans, læknar Sunnu og velunnarar fjölskyldunnar hafa sýnt mikla þrautseigju og eljusemi í því að leita að lækningu og bættum l...

Listen to the Einmitt / Menn eins og við podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.