Hafsteinn Sæmundsson

Bíóblaður

Tv IS ↓ 379 episodes

Podcast þar sem Hafsteinn Sæmundsson fær alls konar fólk til sín og spjallar við það um lífið og bíómyndir. Nýr þáttur alla miðvikudaga.

Author

Hafsteinn Sæmundsson

Category

Tv

Podcast website

www.biobladur.is

Latest episode

Jan 6, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#128 Squid Game með Bjögga 05.11.2021

Framleiðandinn Björgvin Harðarson kíkti til Hafsteins til að ræða hina gríðarlegu vinsælu Netflix seríu, Squid Game.   Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu klikkuð þessi sería er, hvaða leik þeir væru alls ekki til í að spila, hvort það sé sniðugt að taka maka sinn með í svona leik og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Subway og Sambíóanna.

#127 Leynilögga með Hannesi Halldórs 03.11.2021

Hannes Þór Halldórsson er fótboltamaður og leikstjóri. Hann er nýbúinn að leikstýra hasar/grínmyndinni Leynilögga sem er sýnd þessa dagana í Sambíóunum. Hannes kíkti til Hafsteins og sagði honum aðeins frá því hvernig gekk að búa til þessa kvikmynd.   Strákarnir ræða einnig Christopher Nolan, hvernig True Lies er stærsta 90’s hasarmyndin og margt, margt fleira.   ATH! Það eru léttir Leynilöggu spo...

#126 Hrekkjavaka 2021 með Bjögga og Snorra 29.10.2021

Framleiðandinn Björgvin Harðarson og matgæðingurinn Snorri Guðmundsson kíktu til Hafsteins í skemmtilega hrekkjavökuspurningakeppni. Strákarnir skiptust á að svara alls konar hryllingsmyndaspurningum.   Hvað heitir morðóða dúkkan í Child’s Play? Hvað heitir báturinn í Jaws? Hvaða ár kom vampírumyndin 30 Days of Night út? Kíkið á þáttinn og komist að því.   Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa S...

#125 Nördaspjall með Sigurjóni Hilmars 27.10.2021

Sigurjón Ingi Hilmarsson er kvikmyndaáhugamaður og meðstjórnandi kvikmyndahlaðvarpsins, Poppkúltúr, en hlaðvarpinu stjórnar hann með góðum vini sínum, Tomma Valgeirs. Sigurjón kíkti til Hafsteins í skemmtilegt og fjölbreytt nördaspjall.   Í þættinum ræða þeir meðal annars hvernig Disney virðist vilja eignast allan heiminn, Christopher Nolan og hans framtíð, hversu góð Saw er og margt, margt fleira...

#124 Leynilögga með Vivian Ólafs 22.10.2021

Leikkonan Vivian Ólafsdóttir leikur aðal vondu konuna í kvikmyndinni Leynilöggan sem byrjað er að sýna í Sambíóunum.   Vivian mætti til Hafsteins og ræddi við hann meðal annars um Leynilögguna, hvernig það var að fá svona góð viðbrögð við henni á erlendum kvikmyndahátíðum, hversu gaman það er að leika í slagsmálasenum og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Subway...

#123 Leynilögga með Lilju Ósk 20.10.2021

Lilja Ósk Snorradóttir hefur unnið hjá framleiðslufyrirtækinu Pegasus í fjölda mörg ár og hefur framleitt bæði kvikmyndir og sjónvarpsþætti. Lilja er ein af framleiðendum myndarinnar Leynilögga sem verður frumsýnd í Sambíóunum í dag.   Hafsteinn fékk Lilju til sín til að ræða þessa spennandi mynd og ferlið á bakvið gerð myndarinnar.   Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Subway og Sambí...

#122 Topp 10 með Camillu Hjördísi 13.10.2021

Camilla Hjördís Samúelsdóttir er einungis 18 ára gömul en er bæði leikkona og vinnur hjá framleiðslufélaginu, Helluland. Helluland hefur framleitt þrjár stuttmyndir sem allar hafa unnið til einhvers konar verðlauna.   Camilla kíkti til Hafsteins og sagði honum aðeins frá því sem hún er að gera og frá sínum topp 10 bíómyndum.   Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Subway og Sambíóanna.

#121 Shang-Chi/Dune með Donnu og Alex 08.10.2021

Leikkonan og samfélagsmiðlastjarnan Donna Cruz og content creatorinn Alex from Iceland kíktu til Hafsteins og ræddu myndirnar Shang-Chi og Dune.   Í þættinum ræða þau meðal annars hversu flottur Simu Liu er sem Shang-Chi, hversu vel húmorinn virkar í Shang-Chi, hversu mögnuð Dune er sem bíó upplifun, hversu spennt þau eru fyrir Part II og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Popp Smells frá...

#120 Topp 10 með Begga Ólafs 06.10.2021

Fyrirlesarinn og hlaðvarpsstjórnandinn Beggi Ólafs kíkti til Hafsteins og sagði honum aðeins frá sínum topp 10 uppáhalds bíómyndum.   Í þættinum ræða þeir meðal annars hlaðvarpið hans Begga sem kallast 24/7, hversu mikið Beggi elskar ævintýramyndir, Joseph Campbell og Hero’s Journey, hversu mikilvægt það er að horfast í augu við óttann, fegurðina í myndum eins og The Intouchables og margt, margt f...

#119 Final Destination með Nönnu 01.10.2021

Kvikmyndafræðingurinn Nanna Guðlaugardóttir kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti ræddu þau hryllingsmyndaseríuna, Final Destination.   Í þættinum ræða þau meðal annars hvaða mynd er með besta upphafsatriðið, hversu miklar formúlumyndir þetta eru, hvernig persónurnar eru ekkert svakalega flóknar, hvort Devon Sawa sé myndarlegri en Jessica Alba og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Po...

#118 80's horror með Óla Bjarka 29.09.2021

Kvikmyndagerðarmaðurinn Óli Bjarki Austfjörð kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti ræddu þeir 80’s hryllingsmyndir.   Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu ógeðsleg Hellraiser er, muninn á 80’s hryllingsmyndum og 90’s hryllingsmyndum, hversu misvel John Carpenter myndir eldast, Cronenberg og The Fly, Sam Neill og hans hryllingsmyndir, Lovecraftian horror og margt, margt fleira.   Þátturin...

#117 Tom Cruise með Kilo 24.09.2021

Rapparinn Kilo mætti aftur til Hafsteins og í þetta skipti ræddu þeir Tom Cruise og myndirnar hans.   Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu töff Cruise var í Collateral, hversu magnaður ferillinn hans er, hversu klikkaður hann er að leika í öllum þessum áhættuatriðum, hvernig hann nær alltaf að halda í við aðra góða leikara og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríu...

#116 Dune með Bjarna Thor 22.09.2021

Dune er loksins komin í bíó!   Kvikmyndaáhugamaðurinn Bjarni Thor kíkti til Hafsteins til að ræða þessa stórmynd.   Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu mikil upplifun Dune er í flottum kvikmyndasal, hvort við fáum einhvern tímann að sjá Part 2, hversu flottir leikararnir eru, tónlistina eftir Hans Zimmer og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Doritos frá Ölg...

#115 Sci-Fi 2 með Tomma Valgeirs 17.09.2021

Kvikmyndagagnrýnandinn og ritstjóri Kvikmyndir.is, Tómas Valgeirsson, kíkti aftur til Hafsteins og í tilefni þess að stórmyndin Dune er komin í bíó þá ákváðu þeir að ræða fleiri Sci-Fi myndir.   Í þættinum ræða þeir meðal annars James Cameron og Avatar ævintýrið hans, Ex Machina og Alex Garland, 2001 og Kubrick, tímaflakksmyndirnar Time Crimes og Predestination, hvernig Tommi tengir persónulegan a...

#114 Sci-Fi 1 með Tomma Valgeirs 15.09.2021

Kvikmyndagagnrýnandinn og ritstjóri Kvikmyndir.is, Tómas Valgeirsson, kíkti aftur til Hafsteins og í tilefni þess að stórmyndin Dune er að detta í bíó þá ákváðu þeir að ræða Sci-Fi myndir.   Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu vanmetin Gattaca er, hvernig margir leikstjórar koma með eina sterka Sci-Fi mynd og síðan ekkert meir, hversu skemmtilegur kvikmyndaheimur er í The Matrix, hversu áhrif...

#113 Franskar myndir með Jóhanni Leplat 08.09.2021

Jóhann Leplat er stofnandi Facebook grúbbunnar, Kvikmyndaáhugamenn, og hann kíkti til Hafsteins til að ræða franskar myndir.   Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu falleg myndin The Intouchables er, hversu erfið og ógeðsleg myndin Martyrs er, skiptið þegar Jóhann lenti í því að vera rændur í París, hversu fjölbreyttar bíómyndir Frakkar gera og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Popp Sm...

#112 Topp 10 með Andra Geir 03.09.2021

Sviðsleikarinn og kvikmyndaáhugamaðurinn Andri Geir kíkti til Hafsteins og sagði honum aðeins frá sínum topp 10 bíómyndum.   Í þættinum ræða þeir einnig Stanley Kubrick og myndirnar hans, hversu frábær leikari Jack Nicholson er, hæga vestra á borð við Once Upon a Time in the West, hversu mikið meistaraverk The Green Mile er og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus,...

#111 DC vs. Marvel með Ara og Fannari 01.09.2021

Söngvarinn Ari Ólafsson og teiknarinn Fannar Gilbertsson kíktu til Hafsteins til að ræða mikilvægt mál. Bardaga upp á líf og dauða milli DC karaktera og Marvel karaktera.   Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort að Black Adam myndi vinna Thor, hvort reynslan hennar Black Widow myndi hjálpa henni á móti Harley Quinn, hvernig Doctor Doom myndi rústa Sinestro og margt, margt fleira.   Þátturinn er í...

#110 The Dark Knight með Mána og Óla 27.08.2021

Batman partýið heldur áfram!   Kvikmyndagerðarmaðurinn Óli Bjarki og kvikmyndaáhugamaðurinn Máni Freyr ræða ásamt Hafsteini Batman þríleikinn hans Christopher Nolan, þessa mögnuðu frammistöðu hjá Heath Ledger í The Dark Knight, Hardy og Bane útgáfuna hans, Affleck tímabilið, hversu spenntir þeir eru fyrir næstu Batman mynd sem Matt Reeves leikstýrir og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Po...

#109 Batman með Óla og Mána 25.08.2021

Kvikmyndagerðarmaðurinn Óli Bjarki og kvikmyndaáhugamaðurinn Máni Freyr kíktu aftur til Hafsteins og í þetta skipti ræddu þeir bestu ofurhetju allra tíma, Batman.   Í þættinum ræða þeir meðal annars af hverju þeir eru svona hrifnir af Batman, hvernig Jack Nicholson stóð sig sem Joker, hvernig Batman Returns er eins og The Last Jedi, hvernig WB vildi selja fleiri leikföng með Batman Forever, hversu...

#108 Topp 10 með Bara Palla 20.08.2021

Páll Sigurðsson eða Bara Palli eins og hann kallar sig á samfélagsmiðlum er TikTok skemmtikraftur og sviðsleikari. Palli er einnig grjótharður kvikmyndaáhugamaður og Hafsteinn var spenntur að fá hann til sín í nördaspjall.   Í þættinum ræða þeir meðal annars uppáhaldsmyndirnar hans Palla, hvernig Palli fílar að vera sviðsleikari, hversu mikið hann elskar Marvel heiminn, Whiplash og JK Simmons og m...

#107 Bransaspjall með Björgu Magnús 18.08.2021

Björg Magnúsdóttir er handritshöfundur og átti hún meðal annars þátt í að skrifa sjónvarpsseríurnar Systrabönd og Ráðherrann. Hafsteinn fékk Björgu til sín og ræddi við hana um handritagerð, persónusköpun og bransann.   Í þættinum ræða þau einnig ítarlega Systrabönd, hversu magnaður karakter Tony Soprano er, hvað gerir aðalpersónur áhugaverðar, Dexter og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði...

#106 Bransaspjall með Aldísi Amah 13.08.2021

Aldís Amah Hamilton er leikkona og handritshöfundur sem er nýbúin að skrifa og leika í sjónvarpsseríu sem kallast Svörtu Sandar. Hafsteinn var spenntur að fá hana í heimsókn og spjalla við hana um bransann.   Í þættinum ræða þau meðal annars ferlið á bakvið Svörtu Sanda, tölvuleikinn sem Aldís leikur í, leiklistartækni, hversu gaman er að skjóta úr byssum, álit annarra og margt, margt fleira.   Þá...

#105 90's Gullmolar II með Bjarna Thor 11.08.2021

Fyrirtækjaeigandinn og kvikmyndaáhugamaðurinn Bjarni Thor snýr aftur og í þetta skipti ræða strákarnir fleiri 90's gullmola.   Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort að myndin North sé góð eða hræðileg, hversu mikill 90's leikari David Morse er, hversu vanmetin Breakdown er, skemmtilegar löggumyndir og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Doritos frá Ölgerðinni o...

#104 Kvikmyndatónlist með Pétri Ben 06.08.2021

Pétur Ben er tónlistarmaður og kvikmyndatónskáld og hefur samið tónlist fyrir bæði bíómyndir og sjónvarpsseríur. Pétur kíkti til Hafsteins og spjallaði við hann um kvikmyndatónlist og kvikmyndabransann.   Í þættinum ræða þeir líka hversu frábær Stanley Kubrick var sem leikstjóri, hversu vel tónlist passar inn í kvikmyndirnar hans Tarantino, hvernig tónlistin í Star Wars er að einhverju leyti gamal...

Listen to the Bíóblaður podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.