Hafsteinn Sæmundsson

Bíóblaður

Tv IS ↓ 379 episodes

Podcast þar sem Hafsteinn Sæmundsson fær alls konar fólk til sín og spjallar við það um lífið og bíómyndir. Nýr þáttur alla miðvikudaga.

Author

Hafsteinn Sæmundsson

Category

Tv

Podcast website

www.biobladur.is

Latest episode

Jan 6, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#103 Topp 10 með Ara Ólafs 04.08.2021

Söngvarinn Ari Ólafsson keppti fyrir Íslands hönd í Eurovision árið 2018 og hefur lengi vel þótt framúrskarandi söngvari. Ari er samt líka mikill kvikmyndaáhugamaður og Hafsteinn var því spenntur að spjalla við hann.   Í þættinum ræða þeir uppáhaldsmyndirnar hans Ara, hversu mikið hann elskar Marvel, nördauppeldið sem Ari fékk, hversu öflugur Superman er, hversu mikið Ari elskar The Lord of the Ri...

#102 Framhaldsmyndir með Tomma Valgeirs 30.07.2021

Kvikmyndagagnrýnandinn og ritstjóri Kvikmyndir.is, Tómas Valgeirsson, kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti ákváðu þeir að ræða framhaldsmyndir.   Í þættinum ræða þeir meðal annars hvað einkennir góða framhaldsmynd, hvernig Bond myndirnar hafa þróast í gegnum árin, hversu frábær The Empire Strikes Back er, hvernig The Godfather serían eldist eins og gott rauðvín og margt, margt fleira.   Þát...

#101 VFX spjall með Jörra Arnar 28.07.2021

Jörri Arnarson er visual effects supervisor og hann hefur unnið í mörg ár við kvikmynda og sjónvarpsþáttagerð.   Í þættinum ræðir Jörri hvernig hann byrjaði í bransanum, muninn á 2D og 3D deildum í tölvubrellubransanum, hversu mikið hann elskar The Tree of Life, hvernig The Mandalorian nýtti sér nýja bakgrunnstækni sem kallast The Volume, hvernig kvikmyndaiðnaðurinn hefur breyst og margt, margt fl...

#100 Part II 23.07.2021

Þáttur 100 heldur áfram!   Í þessum þætti fær Hafsteinn til sín Nönnu, Teit, Gunnar, Bjarna, Bjögga, Snorra, Óla og Tomma. Í þættinum er farið yfir söguna á bakvið hvern gest, uppáhalds þætti, hryllingsmyndir, Ed Wood, Netflix, Congo, Star Wars og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus og Doritos frá Ölgerðinni.

#100 Part I 21.07.2021

Það er komið að þætti 100!   Hafsteinn fær til sín góða vini þáttarins en þetta eru gestir sem hafa komið oftar en einu sinni. Gestir þáttarins eru Alex, Arnar, Dagur, Fannar, Diðrik, Kilo og Högni.   Í þættinum er farið yfir söguna á bakvið hvern gest, uppáhalds þætti, Marvel, Black Widow, Heat, bestu tölvuleikjamyndirnar, The Sopranos, Band of Brothers og margt, margt fleira.   Þátturinn er í bo...

#99 Geggjað eða glatað með Arnari Tómas 16.07.2021

Kvikmyndagerðarmaðurinn og kvikmyndaáhugamaðurinn, Arnar Freyr Tómasson, kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti ræddu þeir eitthvað geggjað eða eitthvað glatað.   Í þættinum ræða þeir meðal annars leikstjóra sem þeim finnst vera glataðir, geggjuð byrjunaratriði, hvernig þeim fannst Katla, hversu flottur leikari Hugh Jackman er, nýju stuttmyndina hans Arnars sem hann er að leggja lokahönd á og...

#98 Topp 10 með Röggu Hólm 14.07.2021

Útvarpskonan og rapparinn Ragga Hólm kíkti til Hafsteins og sagði honum aðeins frá hljómsveitinni sem hún er í, Reykjavíkurdætrum, og sínum uppáhalds myndum.   Í þættinum ræða þau meðal annars hversu galin sagan er í The Purge, hversu skemmtilegar hamfaramyndir eru, tómatsósublóð, Leonardo DiCaprio, videoleigur í gamla daga og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus o...

#97 Bransaspjall með Jes Gislason 09.07.2021

Leikarinn Hallvarður Jes Gíslason lærði leiklist í Englandi og býr þessa dagana í London. Auk þess að vera leikari þá er Jes mikill kvikmyndaáhugamaður og Hafsteini fannst því upplagt að fá hann til sín og ræða við hann um harkið sem fylgir bransanum.   Í þættinum ræða þeir meðal annars hvernig námið hans Jes var, muninn á sviðsleik og kvikmyndaleik, stage combat, sjónvarpsseríuna Lost, Cornetto þ...

#96 Topp 10 með Herra Keflavík 07.07.2021

Rapparinn Andri Már, einnig þekktur sem Herra Keflavík, gaf nýlega út lag sem kallast Hækka þetta og hann stefnir á að gefa út breiðskífu sem allra fyrst. Hafsteinn var spenntur að fá hann í heimsókn og ræða ýmislegt við hann.   Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu svalur 50 cent er, hæfileika Andra í hnefaleikum, hversu fyndin og skemmtileg myndin How High er og margt, margt fleira.   Þátturi...

#95 90's Gullmolar með Bjarna Thor 02.07.2021

Fyrirtækjaeigandinn og kvikmyndaáhugamaðurinn Bjarni Thor snýr aftur og í þetta skipti ræða strákarnir 90's gullmola.   Í þættinum ræða þeir meðal annars hvernig Mars Attacks! hvarf svolítið í skugga ID4, hversu vel skrifuð Greedy er sem grínmynd, Strange Days og hversu öflug Kathryn Bigelow er sem leikstjóri, hvernig 90's áratugurinn var fullur af góðum spennumyndum og margt, margt fleira.   Þátt...

#94 Drasl myndir með Hauki H 30.06.2021

Óheflaði rapparinn Haukur H snýr aftur og í þetta skipti vildi hann ræða myndir sem honum finnst vera algjört drasl.   Í þættinum ræðir hann meðal annars hvernig sumir vondir kallar í bíómyndum líta út eins og rassgat í framan, hversu mikið hann hatar Steven Seagal, hvað það þýðir að vera svalur, hversu mikið hann hatar Fast and the Furious seríuna og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Pop...

#93 Invincible með Fannari Gilberts 25.06.2021

Teiknarinn Fannar Gilbertsson kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti ræddu þeir Amazon Prime seríuna, Invincible.   Í þættinum ræða þeir hvernig þeim fannst serían hafa heppnast, teiknimyndasöguna sem hún er byggð á, teiknistílinn, hversu áhugaverður karakter Omni Man er, ofbeldið í þáttunum og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus og Doritos frá Ölgerðinni.

#92 Topp 10 með Jóa Degi 23.06.2021

Rapparinn Jói Dagur, einnig þekktur sem Ruddagaddur, er mikill kvikmyndaáhugamaður og Hafsteinn var spenntur að fá hann til sín og heyra um uppáhalds myndirnar hans.   Í þættinum ræða þeir hversu mikið Jói elskar Unbreakable, hversu mikil vonbrigði Glass var, hvernig smekkurinn hans Jóa einkennist af steiktum myndum, hversu fyndin og vanmetin Super er og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði...

#91 Promising Young Woman með Maríu Thelmu 18.06.2021

Leikkonan og handritshöfundurinn, María Thelma Smáradóttir, kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti ræddu þau myndirnar Pieces of a Woman og Promising Young Woman.   Í þættinum ræða þau hversu flott myndmálið er í Pieces of a Woman, hvernig Ellen Burstyn virðist ekki eldast, hvernig leikstjórinn nálgast hefnd í Promising Young Woman og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Popp Smells frá...

#90 Bransaspjall með Snævari Sölva 16.06.2021

Kvikmyndagerðarmaðurinn Snævar Sölvason kíkti til Hafsteins í áhugavert bransaspjall. Snævar hefur gert þrjár kvikmyndir en þær kvikmyndir fjármagnaði hann að mestu leyti sjálfur og Hafsteinn var spenntur að heyra um "indie" bransann á Íslandi.   Í þættinum ræða þeir meðal annars harkið við indie kvikmyndagerð, hvernig Snævar fékk áhugann á kvikmyndum, Martin Scorsese, hversu mikið Snævar elskar S...

#89 Zack's Zombies með Gunnari Daníels 11.06.2021

Kvikmyndafræðingurinn Gunnar Daníelsson kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti ræddu þeir zombie myndirnar Dawn of the Dead og Army of the Dead eftir Zack Snyder.   Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu vel Dawn eldist, hvernig tónninn er út um allt í Army, hvort að Dave Bautista sé "leading man", hvert er besta atriðið í Army og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Popp Smells frá N...

#88 Rocky með Óla Bjarka 09.06.2021

Kvikmyndagerðarmaðurinn Óli Bjarki kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti ræddu þeir Rocky seríuna.   Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu vanmetinn Sylvester Stallone er sem handritshöfundur og leikstjóri, hvernig Rocky er einn besti karakter kvikmyndasögunnar, hversu mikill brjálæðingur Mickey er, hver er uppáhalds Rocky myndin hans Óla og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Popp...

#87 Hvað er list? með Jóhanni LePlat 04.06.2021

Kvikmyndaáhugamaðurinn Jóhann LePlat Ágústsson er admin og stofnandi Facebook grúbbunnar, Kvikmyndaáhugamenn. Jóhann er duglegur að birta alls konar færslur í þessari grúbbu og hefur oft náð að búa til skemmtilegar umræður. Hafsteinn var því spenntur að fá Jóhann til sín og spjalla aðeins við hann.   Í þættinum ræða þeir meðal annars hvernig þessi grúbba byrjaði, pólitík í kvikmyndabransanum, hvað...

#86 Bíóspjall með Maríu Thelmu 02.06.2021

Leikkonan og handritshöfundurinn, María Thelma Smáradóttir, kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti til að ræða sérstaklega myndirnar Antebellum, Nomadland og The United States vs. Billie Holiday.   Í þættinum ræða þau meðal annars hversu vel uppbyggingin virkar í Antebellum, hversu óhrædd Frances McDormand er sem leikkona, hvernig María er tilbúin að sökkva sér algjörlega í þær persónur sem h...

#85 Wrath of Man með Kilo 28.05.2021

Nýjasta mynd Guy Ritchie, Wrath of Man, kom út fyrir stuttu síðan og rapparinn Kilo kíkti til Hafsteins til að ræða þessa mynd.   Í þættinum ræða þeir meðal annars gæði myndarinnar, hvort þetta sé ein af betri myndum Ritchie eða ekki, hversu vel útfærð hasaratriðin eru, hvernig Jason Statham stóð sig og margt, margt fleira.   Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus og Doritos frá Ölgerðinni...

#84 Bíó áskorun með Nönnu og Unni 26.05.2021

Kvikmyndafræðingurinn Nanna Guðlaugardóttir og leikkonan Unnur Eggerts kíktu til Hafsteins í fjölbreytta og skemmtilega bíó áskorun. Hafsteinn samdi 10 spurningar sem stelpurnar skiptust á að svara.   Í þættinum ræða þau meðal annars hvort að Gravity sé ofmetin bíómynd, hvort það væri gaman að hanga með Hermione Granger í heilan sólarhring, hversu góð ástarmynd Moulin Rouge er og margt, margt flei...

#83 Leikstjórar með Bjarna Thor 21.05.2021

Fyrirtækjaeigandinn og kvikmyndaáhugamaðurinn, Bjarni Thor, snýr aftur og í þetta skipti ræða strákarnir uppáhalds leikstjórana sína.   Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort það sé pínu leiðinlegt að James Cameron sé fastur í Avatar heimi, hvort Steven Spielberg sé betri leikstjóri en Stanley Kubrick, hvort Miami Vice sé skemmtilegri en Public Enemies, hversu frábær Pulp Fiction er og margt, mar...

#82 Bransaspjall með Ragnari Braga 19.05.2021

Ragnar Bragason er einn af okkar fremstu kvikmyndagerðarmönnum og hefur verið í bransanum í rúm tuttugu ár. Ferilskrá Ragnars inniheldur meðal annars kvikmyndirnar Málmhaus og Gullregn og einnig sjónvarpsseríurnar Fanga og Næturvaktina.   Í þættinum ræðir Ragnar sín verk, muninn á Tenet og Back to the Future, hversu mikið hann elskar leikstjórann Lynne Ramsay, mikilvægi þess að búa til góða fjölsk...

#81 Bransaspjall með Telmu Huld 14.05.2021

Leikkonan Telma Huld Jóhannesdóttir kíkti til Hafsteins í skemmtilegt og fjölbreytt bransaspjall. Telma starfar einnig hjá fyrirtækinu Doorway Casting en þar sér Telma um að finna leikara fyrir ýmis konar verkefni.   Í þættinum ræðir Telma meðal annars hvernig það er að vinna við "casting", hvernig fjölbreytileikinn er miklu skemmtilegri, verkefnið þar sem hún hitti Chris Pratt og J.K. Simmons, hv...

#80 2010 - 2019 með Tomma Valgeirs 12.05.2021

Kvikmyndagagnrýnandinn og ritstjóri Kvikmyndir.is, Tómas Valgeirsson, kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti ákváðu þeir að ræða myndir frá árunum 2010 - 2019. Strákarnir völdu sínar topp 5 myndir fyrir hvert ár og bera saman sína lista.   Í þessum pakkaða þætti ræða þeir meðal annars hversu mikið meistaraverk Mad Max: Fury Road er, hversu oft Tommi sá The World's End, hversu fyndnar myndirna...

Listen to the Bíóblaður podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.