Hafsteinn Sæmundsson
Bíóblaður
Podcast þar sem Hafsteinn Sæmundsson fær alls konar fólk til sín og spjallar við það um lífið og bíómyndir. Nýr þáttur alla miðvikudaga.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#153 Topp 11 með Guðjóni Ara 09.02.2022 1:48:48
Guðjón Ari Logason er rithöfundur, einkakennari, fyrirlesari og kvikmyndaáhugamaður. Guðjón hefur einnig mikinn áhuga á sálfræði og skrifaði lífstílsbók sem heitir Náðu árangri - í námi og lífi. Guðjón kíkti til Hafsteins og sagði honum aðeins frá sínum 11 uppáhalds bíómyndum. Í þættinum ræða þeir meðal annars myndina The Wolf of Wall Street, hversu mikilvægt það er að elta draumana sína, A Beau...
#152 David Fincher Part II með Bjarna Thor 04.02.2022 1:56:43
Kvikmyndaáhugamaðurinn Bjarni Thor kíkti til Hafsteins til að ræða hinn merkilega leikstjóra, David Fincher. Í þessum seinni hluta ræða strákarnir meðal annars myndirnar The Social Network, Fight Club, Zodiac, Seven og margt fleira. Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Subway og Sambíóanna.
#151 David Fincher Part I með Bjarna Thor 02.02.2022 2:05:44
Kvikmyndaáhugamaðurinn Bjarni Thor kíkti til Hafsteins til að ræða hinn merkilega leikstjóra, David Fincher. Í þessum fyrri hluta ræða strákarnir meðal annars hvað einkennir Fincher sem leikstjóra, myndirnar Mank, Alien 3, The Game, Gone Girl, The Girl with the Dragon Tattoo og margt fleira. Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Subway og Sambíóanna.
#150 The Many Saints of Newark með Högna 28.01.2022 54:51
Grafíski hönnuðurinn Högni Valur Högnason er mikill Sopranos aðdáandi og Hafsteini fannst því upplagt að fá hann til sín til að ræða Sopranos prequel myndina, The Many Saints of Newark. Í þættinum ræða þeir hversu góð þessi Sopranos prequel mynd er, hver er þeirra uppáhalds Sopranos karakter, hversu ofbeldisfull myndin er, hvort hún hefði ekki þurft að hafa skýrari fókus og margt fleira. Þáttu...
#149 90's með Sæunni Tamar 26.01.2022 2:17:46
Sæunn Tamar Ásgeirsdóttir er frumkvöðull og fyrirtækjaeigandi. Hún á meðal annars fyrirtækið Secret of Iceland en það fyrirtæki sérhæfir sig í hönnun og sölu á sundfatnaði. Sæunn er líka mikill kvikmyndaáhugamaður og hún kíkti til Hafsteins og ræddi við hann um sínar topp 10 90’s myndir. Í þættinum ræða þau meðal annars hversu geggjuð The Fifth Element er, hvernig Jim Carrey er andlit 90’s tím...
#148 Topp 10 með Óðni Gunnars 21.01.2022 2:07:28
Óðinn Gunnarsson er 16 ára gamall kvikmyndaáhugamaður með leiklistardrauma. Óðinn kíkti til Hafsteins og sagði honum aðeins frá sínum topp 10 uppáhalds bíómyndum. Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu frábær tónlistin er í The Social Network, hversu oft Óðinn fer í bíó, hvernig Andrew Garfield er í miklu uppáhaldi hjá Óðni, hver er besta Star Wars myndin og margt, margt fleira. Þátturinn er...
#147 Episode I-III með Ara og Ragga Ólafs 17.01.2022 2:31:29
Bræðurnir Ari og Raggi Ólafs kíktu til Hafsteins til að ræða Star Wars myndirnar The Phantom Menace, Attack of the Clones og Revenge of the Sith. Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu bældir Jedi eru, hversu töff Darth Maul er, hversu stirður Hayden Christensen er sem leikari, hver er langbesti karakterinn í þessum þríleik, hversu mikið strákarnir þola ekki Jar Jar Binks og margt, margt fleir...
#146 Arcane með Donnu Cruz 14.01.2022 55:39
Leikkonan og samfélagsmiðlastjarnan Donna Cruz kíkti til Hafsteins til að ræða Netflix seríuna, Arcane, en serían er byggð á tölvuleiknum League of Legends og hefur fengið frábæra dóma. Í þættinum ræða þau meðal annars tölvuleikinn League of Legends, hversu falleg þessi sería er, hversu vel skrifuð serían er, hasarinn, hversu vandaðir karakterar eru í seríunni og margt, margt fleira. Þátturinn...
#145 The Matrix Resurrections með Kilo 12.01.2022 1:08:11
Rapparinn Kilo kíkti til Hafsteins til að ræða myndina, The Matrix Resurrections. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort hún sé eins góð og fyrstu þrjár myndirnar, hvort að Keanu Reeves hafi verið að nenna þessu, hversu lélegur hasarinn er í myndinni, hvernig þeir voru að fíla þessa útgáfu af Morpheus og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Subway og Sambíóanna...
#144 Shane Black 2 með Óla og Tomma 07.01.2022 1:40:50
Kvikmyndasérfræðingarnir Óli Bjarki Austfjörð og Tómas Valgeirsson kíktu til Hafsteins til að ræða handritshöfundinn, Shane Black. Í þessum seinni hluta ræða strákarnir bíómyndir sem Black skrifaði og leikstýrði en það eru myndirnar Kiss Kiss Bang Bang, Iron Man 3, The Nice Guys og The Predator. Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Subway og Sambíóanna.
#143 Shane Black 1 með Óla og Tomma 05.01.2022 1:22:00
Kvikmyndasérfræðingarnir Óli Bjarki Austfjörð og Tómas Valgeirsson kíktu til Hafsteins til að ræða handritshöfundinn, Shane Black. Í þessum fyrri hluta ræða strákarnir meðal annars hvað það er sem einkennir Shane Black sem handritshöfund og myndirnar Lethal Weapon, The Last Boy Scout, Last Action Hero og The Long Kiss Goodnight. Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Subway og Sambíóa...
#142 2021 með Ásgeiri Kolbeins 28.12.2021 2:48:47
Kvikmyndaáhugamaðurinn Ásgeir Kolbeinsson kíkti til Hafsteins og fór yfir árið 2021 með honum. Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu frábær myndin Nobody var, hversu flottur hljóðheimurinn er í Dune, hversu mikla sénsa þeir tóku með James Bond, hina gríðarlega vinsælu sjónvarpsseríu Squid Game, hversu vel heppnuð myndin Leynilögga var og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Popp Smells...
#141 2021 Quiz með Snorra og Ara Ólafs 22.12.2021 1:45:12
Matgæðingurinn Snorri Guðmundsson og söngvarinn Ari Ólafsson kíktu til Hafsteins og tóku þátt í 2021 spurningakeppni sem Hafsteinn samdi. Í þættinum eru bjölluspurningar, myndaspurningar, flokkaspurningar og margt fleira. Strákarnir keppa sín á milli og úr verður æsispennandi keppni. Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Subway og Sambíóanna.
#140 Pirates 2 með Tomma, Óla og Mána 17.12.2021 1:26:56
Kvikmyndasérfræðingarnir Tómas Valgeirsson, Óli Bjarki Austfjörð og Máni Freyr kíktu til Hafsteins til að ræða Pirates of the Caribbean myndirnar, On Stranger Tides og Dead Men Tell No Tales. Í þættinum ræða þeir hversu lélegar þessar myndir eru, hvernig Depp var fullur þegar hann lék í fimmtu myndinni, hvernig Rob Marshall var ekki rétti leikstjórinn fyrir fjórðu myndina og margt, margt fleira....
#139 Pirates 1 með Tomma, Óla og Mána 15.12.2021 2:09:38
Kvikmyndasérfræðingarnir Tómas Valgeirsson, Óli Bjarki Austfjörð og Máni Freyr kíktu til Hafsteins til að ræða fyrstu þrjár Pirates of the Caribbean. Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu frábær Depp var sem Jack Sparrow, hversu vel leikstjórinn Gore Verbinski stóð sig, hvernig þeir náðu að stækka heiminn í framhaldsmyndunum og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Sí...
#138 Nördaspjall með Landvörðunum 10.12.2021 1:30:54
Dagur Lárusson, Úlfar Konráð Svansson og Fannar Gilbertsson eru listamenn sem hafa í sameiningu skapað íslenskt ofurhetjuteymi sem kallast Landverðirnir. Síðastliðinn nóvember kom út bók nr. 2 hjá þeim sem fjallar um Íru, nýjasta meðlim Landvarðanna. Strákarnir kíktu til Hafsteins og ræddu meðal annars bókina, hversu mikið þeir stefna á að gefa Barnaspítala Hringsins, hvort Marvel myndirnar séu...
#137 Jólamyndir með Sigurjóni Hilmars 08.12.2021 2:13:46
Sigurjón Ingi Hilmarsson er kvikmyndaáhugamaður og meðstjórnandi kvikmyndahlaðvarpsins, Poppkúltúr, en hlaðvarpinu stjórnar hann ásamt góðum vini sínum, Tomma Valgeirs. Sigurjón kíkti til Hafsteins til þess að ræða jólamyndir. Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu skrítin ein sagan er í Love Actually, hversu vel Christmas Vacation eldist, hvað einkennir góða jólamynd, hvernig Hallmark dælir ú...
#136 Tarantino: Vol. 2 með Snævari Sölva 03.12.2021 1:39:27
Kvikmyndagerðarmaðurinn Snævar Sölvason kíkti til Hafsteins til að ræða leikstjórann Quentin Tarantino og hans feril. Í þessum seinni hluta ræða strákarnir meðal annars hversu góð samtölin eru í Reservoir Dogs, ofbeldið í Django Unchained, hversu vel samtölin hans QT virka á öðrum tungumálum en ensku í Inglourious Basterds, hversu góð Uma Thurman er í Kill Bill og tímalausa meistaraverkið, Pulp...
#135 Tarantino: Vol. 1 með Snævari Sölva 01.12.2021 2:01:31
Kvikmyndagerðarmaðurinn Snævar Sölvason kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti ræddu þeir Quentin Tarantino og hans feril. Strákarnir blöðruðu endalaust og því var ákveðið að skipta QT umræðunni í tvo þætti. Í Vol. 1 þá ræða strákarnir meðal annars af hverju Death Proof klikkaði, hversu gott chemistry var á milli DiCaprio og Pitt í OUATIH, Pam Grier og hennar hlutverk sem Jackie Brown, hver...
#134 Nördaspjall með Tómasi Gauta 26.11.2021 2:23:27
Handritshöfundurinn og leikarinn Tómas Gauti Jóhannsson kíkti til Hafsteins og ræddi við hann um handritagerð og leiklist. Í þættinum ræða þeir líka handritið sem Tómas skrifaði og seldi réttinn að, hversu óþolandi sumt fólk getur verið í bíói, hver er besta myndin hans Christopher Nolan, mikilvægi þess að sofa vel, leiklistartækni sem Tómas lærði, Netflix seríuna Squid Game og margt, margt flei...
#133 Ljósberi með Ólafi Guðlaugs 24.11.2021 2:01:23
Rithöfundurinn Ólafur Gunnar Guðlaugsson er þekktastur fyrir barnabækurnar um Benedikt Búálf en nú fyrir jól skipti Ólafur um gír og skrifaði spennubók fyrir unglinga á öllum aldri en bókin kallast Ljósberi. Ólafur kíkti til Hafsteins og sagði honum frá bókinni og ferlinu á bakvið hana. Einnig ræða þeir Marvel, DC, af hverju unglingar lesa minna í dag, hvaðan innblástur kemur og margt, margt fle...
#132 Bíóspjall með Hansel Eagle 19.11.2021 2:56:54
Leikarinn Ævar Örn Jóhannsson, öðru nafni Hansel Eagle, kíkti til Hafsteins í fjölbreytt og skemmtilegt bíóspjall. Í þættinum ræða þeir meðal annars leiklist, Hollywood draumana hans Ævars, myndina I know what you did last summer, Jaws og hákarlaáhuga Ævars, James Bond og nýjustu Bond myndina, heimspeki, Dexter þættina og margt, margt fleira Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa Síríus, Subw...
#131 VFX spjall með Marteini Óskars 17.11.2021 3:16:27
Marteinn Örn Óskarsson er meðal annars forritari og vinnur í dag hjá stórfyrirtækinu, Sony Pictures Imageworks. Marteinn hefur tekið þátt í vinnslu stórmynda á borð við Spider-Man: Into the Spider-verse, The Emoji Movie, Hotel Transylvania 4 og Mitchell vs. the Machines. Marteinn ræðir meðal annars bakgrunninn sinn, mikilvægi ástríðu í þessum bransa, námið sem hann stundaði í Vancouver og margt,...
#130 Hryllingsmyndir með Halldóru Ásgeirs 12.11.2021 1:46:32
Hryllingsmyndaaðdáandinn Halldóra Sigrún Ásgeirsdóttir kíkti til Hafsteins og ræddi við hann um alls konar hryllingsmyndir. Í þættinum ræða þau meðal annars hversu fyndin Bride of Chucky er, hversu skemmtileg Deep Blue Sea er, martraðir, sleep paralysis, hvort að Halldóra myndi treysta sér til að gista einhvers staðar þar sem væri draugagangur og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Popp S...
#129 Kevin Smith með Tryggva Jóns 10.11.2021 2:12:40
Kevin Smith aðdáandinn Tryggvi Hrannar Jónsson kíkti til Hafsteins til að ræða þennan skemmtilega leikstjóra. Í þættinum ræða þeir meðal annars hver er besta myndin hans, hversu mikil mótmæli komu í kjölfarið á Dogma, skiptið þegar Tryggvi hitti Kevin Smith, hvort að Kevin Smith hafi eyðilagt He-Man, hvernig hann breyttist eftir hjartaáfallið og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Popp Sm...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.