Hafsteinn Sæmundsson
Bíóblaður
Podcast þar sem Hafsteinn Sæmundsson fær alls konar fólk til sín og spjallar við það um lífið og bíómyndir. Nýr þáttur alla miðvikudaga.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#178 The Trip með Bjögga 11.05.2022 1:05:15
Framleiðandinn Björgvin Harðarson kíkti til Hafsteins til að ræða norsku Netflix myndina, The Trip (I onde dager). Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu vel heppnað planið var hjá Lars, hvort hamar sé gott morðvopn, hvort að Roy hafi hatað Svía, ofbeldið og blóðið í myndinni, hversu vel heppnuð stefnubreytingin var í myndinni, hversu góður húmorinn er og margt, margt fleira. Þátturinn er í...
#177 Teiknimyndir með Halldóru Ásgeirs 06.05.2022 1:56:16
Síðast þegar Halldóra Sigrún Ásgeirsdóttir kíkti til Hafsteins þá ræddu þau hryllingsmyndir en í þetta skiptið ákváðu þau að breyta algjörlega um stefnu og spjalla aðeins um teiknimyndir. Í þættinum ræða þau hverjar eru uppáhalds teiknimyndirnar hennar Halldóru, hversu ungar flestar Disney prinsessur eru, hversu óviðeigandi Jafar er í Aladdin, hvað Scar í The Lion King heitir í alvörunni, hversu...
#176 Episode IV-VI með Oddi og Tómasi 04.05.2022 3:00:15
May the Fourth be with you! Blaðamaðurinn Oddur Ævar Gunnarsson og handritshöfundurinn Tómas Gauti Jóhannsson eru grjótharðir Star Wars menn og Hafsteini fannst því tilvalið að fá þá til sín til að ræða Episode IV-IV á sjálfum Star Wars deginum. Í þættinum er aðal fókusinn á upprunalega þríleiknum en strákarnir ræða einnig hinar myndirnar. Þeir ræða meðal annars hversu mikill dólgur R2-D2 átti...
#175 The Northman með Teiti Magnús 29.04.2022 1:56:40
Kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon kíkti til Hafsteins til að ræða nýjustu mynd leikstjórans Robert Eggers en myndin heitir The Northman. Í þættinum ræða strákarnir meðal annars hversu vel leikararnir standa sig, hvort list sé mikilvægari en skemmtanagildi, hversu góðar The Witch og The Lighthouse eru, hversu orkumikil og ofbeldisfull The Northman er, hversu sturluð kvikmyndatakan er og ma...
#174 The Lord of the Rings með Ara og Ragga Ólafs 27.04.2022 3:26:08
The Lord of the Rings sérfræðingarnir Ari og Raggi Ólafs kíktu til Hafsteins til að ræða þennan stórmerkilega þríleik í pökkuðum þætti. Í þættinum fara strákarnir í stutta LOTR spurningakeppni og ræða líka meðal annars hver er besta LOTR myndin, hver er þeirra uppáhalds persóna, sögu Beren og Lúthien, hversu magnaðar tæknibrellurnar eru, hversu stórkostlegt lore-ið er og margt, margt fleira. Þ...
#173 Berdreymi með Viktori Benóný 22.04.2022 1:35:41
Viktor Benóný Benediktsson er 16 ára gamall leikari sem sló í gegn sem Ívar í kvikmyndinni Víti í Vestmannaeyjum. Berdreymi, í leikstjórn Guðmundar Arnar Guðmundssonar, kemur í kvikmyndahús í dag en þar leikur Viktor unglinginn Konna. Viktor hefur fengið frábæra dóma fyrir sinn leik og Hafsteini fannst því upplagt að spjalla við þennan unga og spennandi leikara. Í þættinum ræða þeir meðal annars...
#172 Tölvuleikjamyndir með Mána Frey 19.04.2022 1:57:34
Kvikmynda og tölvuleikjasérfræðingurinn Máni Freyr kíkti til Hafsteins til að ræða bíómyndir sem byggðar eru á tölvuleikjum. Í þættinum ræða þeir meðal annars af hverju það er svona erfitt að gera bíómynd eftir tölvuleik, hvernig Resident Evil mynd þeir væru til í að sjá, hvernig Tom Holland stóð sig sem Nathan Drake í Uncharted, hversu hræðileg Tomb Raider er með Angelinu Jolie og margt fleira....
#171 Rétt eða Rangt með Kilo og Hauki H 13.04.2022 2:08:45
Óhefluðu rappararnir Kilo og Haukur H eru tveir af vinsælustu gestum Bíóblaðurs og Hafsteinn var því spenntur að gera þátt með þeim saman. Í þessum sérstaka þætti fá strákarnir 20 kvikmyndafullyrðingar sem þeim finnst annað hvort vera réttar eða rangar. Jim Carrey er fyndnari en Eddie Murphy. Transformers eru svalari en Turtles. 90’s hasarmyndir eru betri en 90’s rapptónlist. Þessar fullyrðingar...
#170 Bransaspjall með Teiti Magnús 08.04.2022 2:14:31
Kvikmyndagerðarmaðurinn Teitur Magnússon var að gefa út sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd en myndin heitir Uglur. Teitur lærði kvikmyndagerð í Kvikmyndaskóla Íslands og hefur lengi vel haft gríðarlega mikla ástríðu fyrir kvikmyndum og kvikmyndagerð. Í þættinum ræðir hann meðal annars sinn bakgrunn, námið, hverjir eru hans uppáhalds leikstjórar, hversu góð The Dark Knight er, kjarkaða leikara e...
#169 Skjálfti með Tinnu Hrafnsdóttur 06.04.2022 1:31:54
Leikkonan og leikstjórinn Tinna Hrafnsdóttir var að gefa út sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd en myndin heitir Skjálfti. Myndin er byggð á bókinni Stóri Skjálfti eftir rithöfundinn Auði Jónsdóttur en bæði bókin og kvikmyndin hafa vakið mikla athygli og fengið frábæra dóma. Tinna kíkti til Hafsteins til að ræða þessa stórkostlegu mynd og mikilvægi þess að skoða sjálfan sig inn á við. Þátturin...
#168 Topp 10 með Júlíu Margréti 01.04.2022 1:48:58
Rithöfundurinn Júlía Margrét Einarsdóttir gaf út fyrir stuttu bókina Guð leitar að Salóme en bókin hefur fengið afbragðs dóma og vakið mikla lukku hjá lesendum. Júlía er einnig með MFA gráðu í handritagerð frá New York Film Academy og hún kíkti til Hafsteins til að ræða sínar topp 10 uppáhalds bíómyndir. Í þættinum ræða þau meðal annars hversu fyndin Stella í orlofi er, hversu vel Four Weddings...
#167 Topp 10 með Alex Jóns 28.03.2022 2:16:07
Alex Jónsson er 21 árs gamall kvikmyndaáhugamaður og content creator hjá fyrirtækinu Swipe Media. Alex kíkti til Hafsteins til að ræða sínar topp 10 uppáhalds bíómyndir. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort Indy 3 sé betri en Indy 1, hvort að The Departed sé besta myndin hans Scorsese, James Bond og hvort Alex sé spenntur fyrir fleiri Bond myndum, hvernig Batman hefur þróast síðan Keaton lék...
#166 Bíóspjall með Villa Neto 23.03.2022 1:34:55
Villi Neto er grínisti, leikari og mikill kvikmyndaáhugamaður. Hann kíkti til Hafsteins til að ræða ýmislegt en í þættinum ræða þeir meðal annars hversu mikið Villi elskar Charlie Kaufman, hversu gaman hann hefur af Marvel myndunum, af hverju Hollywood virðist framleiða færri grínmyndir í dag, hvernig sumir virðast vera góðir í öllu, hversu frábær Eternal Sunshine of the Spotless Mind er og marg...
#165 The Book of Boba Fett með Ragga Ólafs 21.03.2022 1:58:38
Star Wars sérfræðingurinn Ragnar Ólafsson kíkti til Hafsteins til að ræða Star Wars seríuna, The Book of Boba Fett. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort það hafi verið þörf á þessari seríu, hvort að Boba Fett sé betur settur sem aukapersóna, hvernig The Mandalorian blandast inn í þetta, hversu lítil Star Wars vetrarbrautin virkar og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Subway, Sambíóann...
#164 Empire Top 20 Part II með Hödda og Snorra 18.03.2022 2:22:30
Kvikmyndatímaritið Empire gaf út á dögunum lista yfir 100 bestu kvikmyndir allra tíma samkvæmt Empire lesendum. Grafíski hönnuðurinn Hörður Ásbjörnsson og matgæðingurinn Snorri Guðmundsson kíktu til Hafsteins til að ræða sínar topp 20 uppáhalds bíómyndir og báru þær saman við topp 20 Empire listann. Í þessum seinni hluta ræða þeir meðal annars myndirnar Heat, The Big Lebowski, Leon, Hereditary...
#163 Empire Top 20 Part I með Hödda og Snorra 16.03.2022 2:31:13
Kvikmyndatímaritið Empire gaf út á dögunum lista yfir 100 bestu kvikmyndir allra tíma samkvæmt Empire lesendum. Grafíski hönnuðurinn Hörður Ásbjörnsson og matgæðingurinn Snorri Guðmundsson kíktu til Hafsteins til að ræða sínar topp 20 uppáhalds bíómyndir og báru þær saman við topp 20 Empire listann. Í þessum fyrri hluta ræða þeir meðal annars myndirnar L.A Confidential, Gravity, Fargo, Bravehe...
#162 The Batman með Óla, Mána og Tomma 10.03.2022 2:16:10
Kvikmyndasérfræðingarnir Tómas Valgeirsson, Óli Bjarki Austfjörð og Máni Freyr kíktu til Hafsteins til að ræða stórmyndina, The Batman. Í þættinum ræða þeir meðal annars hvort myndin sé betri en The Dark Knight, hvernig Pattinson stóð sig sem Batman, Colin Farrell sem Penguin, Zoe Kravitz og hennar túlkun á Catwoman, hasarinn, hversu flott myndin er, muninn á DC og Marvel myndum og margt, margt...
#161 Topp 10 með Kiddu Svarfdal 08.03.2022 2:18:52
Ritstjóri hun.is, Kidda Svarfdal, kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti til að ræða sínar topp 10 uppáhalds bíómyndir. Í þættinum ræða þau meðal annars hversu frábær Joker er, hvernig kvikmyndasmekkur Kiddu virðist einkennast af dramatískum og þungum myndum, hvort það sé sniðugt að sýna krökkum Saw myndirnar, hversu brjáluð myndatakan er í 1917 og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði...
#160 P.T. Anderson Part II með Arnóri Ívars 04.03.2022 1:50:40
Blaðamaðurinn og hlaðvarpsstjórnandinn Arnór Steinn Ívarsson er mikill Paul Thomas Anderson maður og hann kíkti til Hafsteins til að ræða þennan merkilega kvikmyndagerðarmann. Í þessum seinni hluta ræða strákarnir meðal annars myndirnar There Will Be Blood, The Master, Inherent Vice, Phantom Thread og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Subway, Sambíóanna, Celsius Energy og Popp Smells fr...
#159 P.T. Anderson Part I með Arnóri Ívars 02.03.2022 2:26:29
Blaðamaðurinn og hlaðvarpsstjórnandinn Arnór Steinn Ívarsson er mikill Paul Thomas Anderson maður og hann kíkti til Hafsteins til að ræða þennan merkilega kvikmyndagerðarmann. Í þessum fyrri hluta ræða strákarnir meðal annars myndirnar Hard Eight, Boogie Nights, Magnolia, Punch-Drunk Love og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Subway, Sambíóanna, Celsius Energy og Popp Smells frá Nóa Sírí...
#158 Topp 10 með Jóhanni Leplat 25.02.2022 3:00:58
Jóhann Leplat Ágústsson er stofnandi Facebook grúppunnar Kvikmyndaáhugamenn og hann kíkti til Hafsteins til að ræða sínar topp 10 bíómyndir. Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu fullkomin mynd The Shawshank Redemption er, Jurassic Park og framhaldsmyndirnar, hversu mikil snilld A Clockwork Orange er, hvort að Fargo sé besta Coen myndin og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Subway, Sa...
#157 Spider-Man: No Way Home með Degi og Arnari 22.02.2022 1:43:25
Marvel nördinn og Landvörðurinn Dagur Lárusson kíkti til Hafsteins ásamt kvikmyndagerðarmanninum Arnari Frey Tómassyni til að ræða hina vinsælu mynd, Spider-Man: No Way Home. Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu geggjuð myndin er, hversu frábær Willem Dafoe er í myndinni, hvort að nostalgía sé ódýr leið til að toga í hjartastrengina og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Subway, Sambí...
#156 Harmur með Antoni og Ásgeiri 18.02.2022 1:31:03
Anton Karl Kristensen og Ásgeir Sigurðsson eru ungir og efnilegir kvikmyndagerðarmenn. Þeir eru að gefa út sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd sem kallast Harmur en myndina fjármögnuðu þeir sjálfir. Í þættinum ræða þeir meðal annars hversu mikilvægt það er fyrir bransann að fá inn nýtt fólk, hversu mikið þeir eru til í að aðstoða unga kvikmyndagerðarmenn við að koma sér á framfæri, mikilvægi þes...
#155 Bíómix með Jóa Degi 16.02.2022 2:20:11
Rapparinn Jói Dagur, einnig þekktur sem Ruddagaddur, kíkti aftur til Hafsteins og í þetta skipti til að ræða bíómyndir sem Jói telur vera vanmetnar eða áhugaverðar á einhvern hátt. Í þættinum ræða þeir meðal annars myndina Happiness sem Jói kallar svartholshúmor, Battle Royale, hvernig spoof myndir virðast vera útdauðar, hversu mikið Jói elskar myndina Turbo Kid, hvernig Running Scared gerði Jóa...
#154 Scream 2022 með Nönnu 11.02.2022 57:12
Kvikmyndafræðingurinn og Scream aðdáandinn Nanna Guðlaugardóttir kíkti til Hafsteins til að ræða nýjustu Scream myndina. Í þættinum ræða þau meðal annars hversu góð þessi fimmta mynd er, hversu illa leikin hún er, hvort að meta myndir séu skemmtilegar, hversu ógeðsleg morðin eru í þessari mynd, hvort spítalar séu lokaðir á kvöldin og margt, margt fleira. Þátturinn er í boði Popp Smells frá Nóa...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.