bestasaetid

Besta sætið

Sports EN ↓ 100 episodes

Besta sætið er hlaðvarp í þróttadeildar Sýnar . Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.

Author

bestasaetid

Category

Sports

Podcast website

bestasaetid.podbean.com

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Robbie Fowler ræðir stöðuna á Liverpool, Alexander Isak og framtíð Slot 22.04.2026

Liverpool-goðsögnin Robbie Fowler ræddi við Sýn Sport um stöðuna á félaginu, erfiða titilvörn, vandræði framherja liðsins og framtíð Arne Slot.

22. apríl - Var Samúel Kári keyptur fyrir árshátíðarpeninga? 22.04.2026

Stórkostleg byrjun á undanúrslitum Bónus-deildar karla og partíið heldur áfram í Grindavík í kvöld. Samúel Kári er óvænt kominn í Val og spurning hvernig Valsmenn fjármögnuðu það? Besta karla fer aftur á fullt í kvöld og því miður er leikið inni á Akranesi en grasið bíður í Keflavík. Svo getur Man. City komist á topp ensku úrvalsdeildarinnar.

21. apríl - Pressa á Stólunum og Hlynur Bærings með óvænta innkomu 21.04.2026

Undanúrslitin í Bónus-deild karla hefjast í kvöld með fyrsta leik liðanna sem spiluðu til úrslita á síðustu leiktíð. Það er mikil pressa á Stólunum í einvíginu. Undanúrslitin í Bónus-deild kvenna eru komin vel af stað þar sem Haukar og Grindavík leiða. Svo ræðum við um ástand Laugardalsvallar og fréttina sem gerði Eyjamenn brjálaða.

20. apríl - Flagaraklútur Sápa stal senunni 20.04.2026

Tískuyfirlýsing Stefáns Árna Pálssonar vakti mikla athygli í oddaleik Vals og Keflavíkur sem Valsmenn unnu með stæl. Grindavík er komið í blað í undanúrslitum kvenna og Glódís Perla sló leikjametið er Ísland spilaði við England í Laugardal. Svo var stórleikur ársins í enska boltanum í gær.

17. apríl - Upp með hausinn Arsenal-menn! 17.04.2026

Besta sætið heilsaði á Bestu deildar föstudegi. Þá er stórleikur fram undan hjá kvennalandsliðinu og risahelgi í enska boltanum. Valur Páll Eiríksson, Ágúst Orri Arnarson og Sindri Sverrisson fóru yfir málin í Besta sætinu á dýrindis föstudegi þar sem heil umferð í Bestu deild karla fer fram. Bjór verður á 800 krónur í KR-heimilinu, Þórsarar ætla á Rauða ljónið og sérlega margir eru að mæta fyrrum...

Ægir Þór Steinarsson: Óttaðist að ferlinum væri lokið 16.04.2026

Ægir Þór Steinarsson, lykilmaður í liði Stjörnunnar og landsliðsfyrirliði í körfubolta óttaðist að sínum ferli væri lokið eftir að hann meiddist í leik gegn KR í úrslitakeppninni. Úr myrkrinu hefur hann nú risið og ætlar sér að koma sterkari til baka.

16. apríl - KSÍ mætti prófa að lækka miðaverðið 16.04.2026

Rándýrir miðar á leiki kvennalandsliðsins gætu verið ein ástæða lélegrar mætingar. Af hverju ekki að prófa að lækka verðið? Arsenal og Bayern áfram í Meistaradeildinni og spænsku liðin grenja út í eitt í fríinu. Oddaleikur í Vesturbænum í kvöld og annar á sunnudag vegna árshátíðar.

15. apríl - KSÍ og Steini mega líka líta í eigin barm 15.04.2026

Uppgjör á leik Íslands og Úkraínu. Hörmungarmæting og hvað má gera betur? Ekki síst hvað getur KSÍ gert betur. Ótrúleg dramatík í Bónus-deildinni en ömurlegt að sjá meiðsli Ægis Þórs Steinarssonar. Liverpool og Barcelona kvöddu Barcelona og það er pressa á Arsenal í kvöld. Hafnarfjarðarliðin eru síðan að bjarga úrslitakeppni Olís-deildar karla.

14. apríl - Frábært skref hjá HSÍ 14.04.2026

Snorri Steinn og Arnór Atla þjálfa landslið karla í handbolta til 2032. FH og Haukar að bjarga úrslitakeppni Olís-deildar karla, KR og Grindavík geta fallið úr leik í Bónus-deild karla og stelpurnar okkar spila á Laugardalsvelli. Liverpool á líka krefjandi verkefni í Meistaradeildinni.

13. apríl - Í guðanna bænum fagnið mörkunum ykkar 13.04.2026

Helgaruppgjör. Sú Besta byrjaði með stæl, Rroy vann Masters, stelpurnar okkar í handboltanum eru komnar á stórmót enn á ný og svo spáð í spilin í Bónus kvenna og Olís karla í kvöld.

10. apríl - Besta helgi ársins 10.04.2026

Besta helgi ársins hingað til hefst á risaleik Víkings og Breiðabliks, dúndureinvígum í Bónus-deild karla, Hafnarfjarðarslag í handboltanum og Masters. Enska úrvalsdeildin rúllar aftur af stað og stelpurnar okkar geta tryggt sig inn á EM í handbolta.

9. apríl - Van Dijk er svo leiðinlegur fyrirliði 09.04.2026

Liverpool með hauskúpuleik, stelpurnar okkar magalentu í Færeyjum, sópurinn á lofti í Bónus kvenna og Heimir Guðjóns mætir FH í bikarnum.

8. apríl - Tuðað yfir tuðverðlaunum 08.04.2026

Það er hitað upp fyrir Bestu karla en spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna var birt í dag. Sitt sýnist hverjum um spána. Mikið líf í úrslitakeppninni í körfu, Meistaradeildin á fullu og Masters er að fara í gang.

7. apríl - Allt í blóma í Vesturbænum en vandræði á Hlíðarenda 07.04.2026

Allt á suðupunkti í Bónus-deild karla á meðan Valsmenn flengdu KA í handboltanum. KR-ingar líta vel út í fótboltanum og risaleikir í Meistaradeildinni í kvöld.

Rúnar gerir upp 20 ára feril 02.04.2026

Rúnar Kárason tilkynnti í vikunni að leikmannaferli hans í handbolta sé lokið 38 ára að aldri. Hann verður þó áfram í handboltanum enda starfsmaður og þjálfari hjá Fram. Rúnar á langan og farsælan feril að baki þar sem hann lék um margra ára skeið með mörgum af bestu liðum Þýskalands, var öflugur í Danmörku og vann svo Íslandsmeistaratitla með bæði ÍBV og Fram hér heima auk þess að spila 100 lands...

1. apríl - Hvað er Hörður Axel og Keflavík að hugsa? 01.04.2026

Tene-ferð Harðar Axels Vilhjálmssonar, þjálfara kvennaliðs Keflavíkur, er til umræðu í þætti dagsins og einnig er spáð í spilin fyrir úrslitakeppni Bónus-deildar karla sem hefst í kvöld. Ætlar HSÍ að láta Dani stela Arnóri Atlasyni af okkur og vonbrigði hjá fótboltalandsliðinu.

31. mars - Skandall ef við vinnum ekki Haítí 31.03.2026

Úrslitakeppni Bónus-deildar kvenna og Olís-deildar karla. Er Stjarnan að falla í handboltanum og kemur KV upp í körfunni? Bras á Tiger Woods og vangaveltur um landsleik Íslands og Haítí.

30. mars - Síðasti dansinn hjá Valsmönnum? 30.03.2026

Úrslitakeppnin í Bónus-deild kvenna hefst í kvöld og strákarnir byrja á miðvikudaginn. Mikið líf í úrslitakeppni Olís-deildar karla og Ísland spilar við Haíti á morgun.

Sævar Atli Magnússon: Hræðist ekki fram­haldið en er stressaður| „Mesta höggið kom núna“ 27.03.2026

Sævar Atli Magnús­son, hefur ítrekað verið sleginn niður í jörðina eftir að hafa meiðst í leik með ís­lenska lands­liðinu í fót­bolta. Fjórum skurðað­gerðum síðar vonast hann til að nú birti til eftir að hafa upp­lifað hræðslu varðandi fram­haldið.

Besta sætið - 27. mars 27.03.2026

Aðstoðarþjálfari sem er ekki þjálfari hjá kvennalandsliðinu, eftirlitsmaður á handboltaleik hrakti stuðningsmenn um stúkuna, lokahóf KKÍ og spáð í spilin fyrir úrslitakeppnina í Bónus-deild karla.

Besta sætið - 26. mars 26.03.2026

Janus Daði til Barcelona, kvennalandsliðið fékk flottan fund og risakvöld í körfuboltanum og handboltanum hér heima.

Besta sætið 25. mars: Enn eitt miðasölufíaskó fyrir stórmót hjá Íslandi 25.03.2026

Loksins loksins er komið líf íþróttalífið eftir fremur lítt fréttnæma daga í upphafi vikunnar. Besta sætið færir ykkur stórar og miður skemmtilegar fréttir fyrir stuðningsmenn íslenska karlalandsliðsins í handbolta sem munu flestir lenda í vandræðum með að verða sér út um miða á Heimsmeistaramót næsta árs í Þýskalandi.

Besta sætið - 24. mars 24.03.2026

Leikmaður gagnrýnir HSÍ fyrir mismunun í umfjöllun, áhugaverður bikardráttur í Mjólkurbikarnum og of mikill snjór á Akureyri.

Besta sætið 23.mars: Óvinur Heimis enn á kreiki 23.03.2026

Það var nóg um að ræða í Besta sætinu á mánudegi eftir viðburðaríka helgi í sportinu. Úrslit Lengjubikars karla, Heimir Hallgríms og óvinur hans, sænska eplið sem olli okkur vandræðum og svo margar sögulínur eftir úrslit helgarinnar í enska boltanum, deild og deildarbikar. Aron Guðmundsson, Ingvi Þór Sæmundsson og Ágúst Orri Arnarson með ykkur í dag. 

Besta sætið 20. mars: Þarf að reka Óla? 20.03.2026

Besta sætið fór vel yfir þjálfaramál hjá KSÍ, landsleik gærkvöldsins, spennuna í Bónus deildinni og komandi helgi. Valur Páll Eiríksson, Ágúst Orri Arnarson og Ingvi Þór Sæmundsson fóru yfir málin í þætti dagsins. Kvennakvóti knattspyrnuþjálfara var til umræðu og því velt upp hvort KSÍ þyrfti að reka annan landsliðsþjálfaranna til að koma konu að. Þá var farið yfir landsleik Íslands við Svíþjóð, l...

Listen to the Besta sætið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.