bestasaetid

Besta sætið

Sports EN ↓ 100 episodes

Besta sætið er hlaðvarp í þróttadeildar Sýnar . Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.

Author

bestasaetid

Category

Sports

Podcast website

bestasaetid.podbean.com

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

1. júní - Er hægt að stöðva Víkingana? 01.06.2026

Besta deild karla, stjóraskipti Liverpool, Lengjudeildin, blóðbaðið hjá Kolla box og fleira til í þætti dagsins.

29. maí - Óskar Hrafn á hælana? 29.05.2026

Það er risa helgi fram undan í boltanum hér heima og úti. Heil umferð fer fram í bæði Bestu deild karla og kvenna. Úrslit eru í Meistaradeild Evrópu og landsleikur í Japan. Þá skrifaði Óskar Hrafn Þorvaldsson undir nýjan samning í Vesturbæ og gjaldkeri liðsins hlær alla leið í bankann.

28. maí - Aron vildi ráða eftir þrjár æfingar 28.05.2026

Aron Pálmarsson er orðinn aðalþjálfari FH og er rennt ítarlega yfir þessi merkilegu tíðindi í Besta sætinu í dag. Svo er staðan í hinni skemmtilegu Lengjudeild karla krufin aðeins.

27. maí - Körfuslúður og KR með hreðjatak á Valsmönnum 27.05.2026

Besta deild karla er að spilast á áhugaverðan hátt en fátt virðist geta stöðvað Víkinga. Stjarnan veldur vonbrigðum og KR er með alvöru hreðjatak á Valsmönnum. Lengjudeildin er jöfn og spennandi og svo er mikið slúðrað í körfunni.

26. maí - Slot á skilið annað tækifæri og KR fær líklega á baukinn 26.05.2026

Arsenal Englandsmeistari en hvað gerist næst? Aron Pálmarsson á leið í þjálfarabransann og hver er framtíð Steraleikanna? Lifir Jökull af annað tap og mun Valur valta yfir KR í kvöld?

22. maí - Dagur stórra tíðinda krufinn 22.05.2026

Það var af nægu að taka á þessum glimrandi fína föstudegi þar sem tíðindi hrönnuðust inn. Pep Guardiola, Michael Carrick, Alfreð Gíslason og Haukur Þrastarson meðal annars til umræðu, sem og lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar. Þá eru fimm leikir á dagskrá í Bestu deild karla í kvöld.

21. maí - Þarf að finna nýja fermingargjöf fyrir drenginn 21.05.2026

Landsliðshópur, óvænt skipti landsliðsmanns, Besta deildin og Evrópu-Emery er meðal þess sem er til umræðu í Besta sætinu þennan fimmtudaginn.

20.maí - Til hamingju Arsenal! 20.05.2026

Í Besta sætinu í dag verður farið yfir stóru tíðindi gærkvöldsins þegar að Arsenal varð Englandsmeistari í fyrsta sinn í tuttugu og tvö ár eftir að Manchester City skrikaði fótur. Baráttan er hörð í deildinni neðar í töflunni fyrir lokaumferð helgarinnar.

Ingibergur Þór Jónasson - Sorgartár urðu að gleðitárum 19.05.2026

Ingibergur Þór Jónasson hefur verið formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur í gegnum ólgusjó undanfarin ár. Eldsumbrot, rýming og hætta á niðurlagningu körfuboltaliðs Grindavíkur hafa verið meðal áskorana. Liðið varð Íslandsmeistari eftir hafa verið nærri titli undanfarin ár og gleðin ósvikin. Hann ræddi undanfara titilsins við Val Pál Eiríksson í Besta sætinu.

19. maí - Pargo sýningin í Síkinu 19.05.2026

Jeremy Pargo vann Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta fyrir Grindavík með ótrúlegri körfuboltasýningu sem seint mun gleymast. Baldur Ragnarsson fór frá Stjörnunni yfir á Álftanes og svo er dramatískt kvöld fram undan í enska boltanum.

18. maí - Sjóðheitt í Síkinu 18.05.2026

Grindavík fær annað tækifæri til þess að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla í kvöld. Það verður heitt og það verða læti. Arsenal getur að sama skapi sett marga fingur á Englandsbikarinn með sigri á Burnley í kvöld. Svo var Besta deild karla á fullu í gær og margt að gerast.

15. maí - Þreföld öryggisgæsla í Grindavík 15.05.2026

Grindavík getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri gegn Tindastóli í kvöld og Besta sætið býst við miklum látum.   Forkólfar FIBA Europa fá að kynnast því besta, og mögulega því versta, sem íslenskur körfubolti hefur upp á að bjóða í kvöld. Mun Grindavík gera það sem Njarðvíkingum mistókst í gærkvöldi, tryggja titilinn? FA bikarinn fer svo á loft á morgun. Einhvern veginn, eins og alltaf...

13. maí - Þetta er svo asnalegt hjá Kane 13.05.2026

DeAndre Kane gaf Stólunum puttann á Króknum og allt er brjálað. Strákarnir okkar unnu í Egyptalandi og Arnar Gunnlaugs valdi Ögmund Kristins í landsliðið. Hann reyndar valdi tvo hópa í dag. 

12. maí - Ætla að kveikja í tréslaufu Rúnars 12.05.2026

Rúnar Ingi Erlingsson á ekki von á góðu í ferðalagi dagsins á Krókinn enda stendur til að kveikja í einni af hans frægu tréslaufum. Einnig er rennt yfir handbolta kvöldsins en Valur getur orðið Íslandsmeistari. Njarðvík er í toppstöðu í úrslitaeinvígi Bónus deildar kvenna og Tottenham er enn í kröppum dansi í enska boltanum.

11. maí - Hvar er eiginlega samræmið? 11.05.2026

VAR-dómurinn í leik West Ham og Arsenal er á vörum allra í dag. Það verður líklega eitthvað rifist um hann næstu vikurnar. Bakgarðshlaupið ótrúlega fór fram um helgina. Það var ýmislegt áhugavert á ársþingi HSÍ og Baldur Þór Ragnarsson hætti með Stjörnuna í miðjum þætti. BOMBA! Annar leikurinn í úrslitum Bónus kvenna fer fram í kvöld og þá er einnig spilað í Bestu deild kvenna. Svo er mikið undir...

8. maí - Ætla að fagna þar til ég dey 08.05.2026

Valsmenn tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla í gær og þeir voru enn að fagna er íþróttadeild Sýnar heimsótti þá í dag. Úrslitin í Bónus kvenna hefjast í kvöld og þá fara líka fram fimm leikir í Bestu deild karla. Við hitum vel upp fyrir þá alla.

7. maí - Galin hegðun sjálfboðaliða 07.05.2026

Tveir oddaleikir í körfu karla og Tindastóll og Grindavík komust í úrslit. PSG mun spila í úrslitum Meistaradeildarinnar gegn Arsenal eftir hörkuleik gegn Bayern. Mikið líf í Bestu deild kvenna þar sem sjálfboðaliði á Akureyri stal senunni með galinni hegðun. Svo er barist til þrautar um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla í kvöld.

6. maí - Hvar er Hlynur Bærings? 06.05.2026

Besti íþróttadagur ársins er runninn upp. Tveir oddaleikir í Bónus deild karla og seinni undanúrslitaleikur Bayern og PSG í Meistaradeildinni. Ótrúleg veisla. Einnig rætt um leiki kvöldsins í Bestu deild kvenna og vanvirðingu við úrslitaeinvígi Olís deildar kvenna.

5. maí - Grindvíkingar valda vonbrigðum og Stjarnan líklega án Seth LeDay 05.05.2026

Besta íþróttavika ársins er í fullum gangi. Það verða fjórir oddaleikir í íslenskum íþróttum næstu þrjá dagana og undanúrslit í Meistaradeildinni klárast einnig á morgun. Man. City er svo að kasta frá sér Englandsmeistaratitlinum.

4. maí - Hvað gera stuðningsmenn Vals? 04.05.2026

Stuðningsmenn Vals standa frammi fyrir erfiðri ákvörðun í kvöld. KR-ingar óstöðvandi í Bestu karla en brekka hjá Stjörnunni. Oddaleikur í Skagafirði í körfunni og svo er Man. Utd aftur komið í Meistaradeildina.

30. apríl - Vítaspyrnuvæl og stórleikir um helgina 30.04.2026

Arsenal taldi sig vera grátt leikið gegn Atletico í gær. Stólarnir eru á lífi í Bónus deild karla og svo er Grindavík að taka á móti Val í kvöld. Valsarar eru líka á ferðinni í handboltanum þar sem leikur þrjú í úrslitunum gegn FH fer fram. Úrslitakeppni Bónus kvenna er æsispennandi og svo er spáð í spilin fyrir stórleikina í Bestu deild karla.

29. apríl - Skjálfti í Síkinu 29.04.2026

Stjarnan er 2-0 yfir í einvígi sínu gegn Stólunum í undanúrslitum Bónus-deildar karla og getur sópað Stólunum í frí í Síkinu. Það er því titringur á Króknum. Einn besti fótboltaleikur sögunnar fór fram í Meistaradeildinni í gær en enginn sér fyrir sér sömu flugeldasýningu í kvöld. Önnur umferð Bestu deildar kvenna hefst svo í kvöld með tveimur leikjum.

28. apríl - Rauð flögg hjá Stjörnunni 28.04.2026

Ótrúleg umferð í Bestu deild karla þar sem mörkunum bókstaflega rigndi. Snorri Steinn valdi áhugaverðan landsliðshóp þar sem margir leikmenn fá tækifæri til að láta ljós sitt skína. FH búið að jafna gegn Val í úrslitum Olís-deildar karla og svo hefjast undanúrslit Meistaradeildarinnar í kvöld með risaleik.

27. apríl - Blikar spila leiðinlegasta bolta deildarinnar 27.04.2026

Fimm leikir í Bestu deild karla í kvöld og flestir leikir afar áhugaverðir. Allt brjálað í undanúrslitum Bónus-deildar karla og FH þarf að vinna gegn Valsmönnum í úrslitum Olís-deildar karla.

24.apríl - Elías Már opnaði sokkaskúffuna 24.04.2026

Það var nóg að ræða í Besta sætinu í dag enda nóg um að vera í heimi íþróttanna. KR-ingar eru á flugi í Bestu deildinni og Elías Már Ómarsson, sóknarmaður Víkings raðar inn mörkum þvert á spár margra. Úrslitakeppnir í körfubolta og handbolta bera svo hæst en Besta deild kvenna hefst í kvöld og á sviðið.

Listen to the Besta sætið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.