bestasaetid

Besta sætið

Sports EN ↓ 100 Folgen

Besta sætið er hlaðvarp í þróttadeildar Sýnar . Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.

Autor

bestasaetid

Kategorie

Sports

Podcast-Website

bestasaetid.podbean.com

Neueste Folge

10. Jul 2026

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android 5 Mio.+ Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

10. júlí - Sýður á Sigga Helga 10.07.2026

Víða var komið við í Besta sætinu þennan ágæta föstudag. Stefán Árni dreif sig beint í sumarfrí eftir þátt dagsins. Þeir Valur Páll Eiríksson, Andri Broddason og Stefán Árni Pálsson fóru yfir íþróttamál dagsins í þættinum en Stefán var allur á iði þar sem hann er á leið í sumarfrí. Erik Sandberg var til umræðu en hann er félagi Erling Haaland, framherja norska landsliðsins, og þeir gerðu saman lag...

9. júlí - Gleðileg jól og langt hlé á enda 09.07.2026

Jólin í ár verða fullkomin fyrir íþróttaáhugafólk eins og rætt var um í Besta sætinu í dag. Stjarnan og Vestri eiga ansi ólík verk fyrir höndum í Evrópukeppnum í kvöld og Besta deild kvenna hefst að nýju eftir langt hlé. Þá eru 8-liða úrslitin að hefjast á HM.

8. júlí - Hættulegur völlur í Fossvogi og afleiðingar Balogun-málsins 08.07.2026

Leikmenn Víkings eru látnir spila á „ónýtum og hættulegum“ gervigrasvelli en mega vera stoltir af frábærum 1-0 sigri gegn ungversku meisturunum. Átta liða úrslitin eru klár á HM og Blikar búnir að tryggja sér mikinn liðsstyrk.

7. júlí - Megas á bar í Boston og Nablinn hress í Eyjum 07.07.2026

Það var af nægu að taka í Besta sætinu eftir líflegan dag á HM í fótbolta, þar sem Cristiano Ronaldo stimplaði sig út og Belgar rúlluðu yfir Bandaríkin, og að lokinni 13. umferð Bestu deildar karla. Talið barst þó einnig að ýmsu öðru.

6. júlí - Fáránleg ákvörðun FIFA góð fyrir mótið 06.07.2026

Í Besta sætinu sögðu menn sína skoðun á fordæmalausri afléttingu leikbanns Folarin Balogun sem fær að spila fyrir Bandaríkin gegn Belgíu á HM í nótt. Farið var yfir torsóttan sigur Englands við aðstæður sem ekki allir skilja hve erfiðar voru, og sigur Noregs gegn óspennandi liði Brasilíu. Golf, Besta deildin og leið Íslands á HM í körfubolta var sömuleiðis á meðal þess sem rætt var um á þessum fal...

3. júlí - Martröð markvarðar og VAR-veisla í Toronto 03.07.2026

Tveir góðir gestir settust í Besta sætið á þessum fína föstudegi. Kolbeinn Tumi Daðason, ritstjóri fréttastofu Sýnar, og Magnús Jochum Pálsson, menningarblaðamaður á Sýn, ræddu íþróttamál dagsins við Val Pál Eiríksson. Ótrúlegur leikur Þórs og KR á Akureyri var til umræðu sem og sigur Víkings á KA. Landsleikur gærkvöldsins við Ítala bar á góma og samhliða því feimni Íslendinga við þjóðsöng okkar,...

2. júlí - Þýskt þrot 02.07.2026

Farið var um víðan völl í Besta sætinu í dag. Birgir Olgeirsson, fréttamaður á Sýn, var sérstakur gestur þar sem rætt var um HM, England, Þýskaland, NBA, Bestu deildina og landsleik kvöldsins.

1. júlí - Rómans Stefáns Árna og Deschamps 01.07.2026

HM var mikið til umræðu í Besta sætinu í dag. Besta deildin kom við sögu sem og stór tíðindi úr Bónus deildinni í körfubolta. Valur Páll Eiríksson, Stefán Árni Pálsson og Andri Broddason ræddu málin í Besta sætinu í dag. HM-leikir gærkvöldsins voru til umræðu sem og þeir sem fram undan eru í dag. Tíðindi bárust úr Garðabæ í dag hvað þjálfaramálin í fótboltanum varðar og einnig bárust þjálfaratíðin...

29. júní: Þjálfaraskipti hjá Val og mikilvægir leikir hjá landsliðinu 29.06.2026

Í Besta sætinu í dag er farið yfir stórtíðindin af Hlíðarenda. Hermann Hreiðarsson hefur verið látinn fara sem þjálfari karlaliðs Vals í fótbolta og nú þegar er eftirmaður hans fundinn. Fleiri tíðindi úr Bestu deildinni, mikilvægt verkefni karlalandsliðsins í körfubolta sem og HM þar sem að útsláttarkeppnin er hafin. Allt saman í Besta sætinu.

26. júní: Brakandi fersk tíðindi og er rígurinn dauður? 26.06.2026

Það var við hæfi að opna þáttinn á slagara með Sálinni, Stebbi Hilmars sextugur og gír í mönnum. Nóg að ræða í dag. Er rígurinn milli Blika og Víkinga dauður? Víkingar, í hægagangi völtuðu yfir Blikana í gær og liðin mætast aftur á sunnudaginn. Línur eru teknar að skýrast á HM og styttist í útsláttarkeppnina. Umferðin framundan í Bestu deildinni, Formúla 1, glæný tíðindi af landsliðsmanni Íslands...

24. júní: Vinstri eða hægri? Ronaldo eða Messi? 24.06.2026

Besta sætið mætir alltaf funheitt aftur. Sumarfílingur í hópnum og nóg að ræða. Toppbaráttan í Bestu deild kvenna í fótbolta veldur ekki vandræðum. Það voru vendingar fyrir stutt hlé í deildinni sem farið verður yfir. Þá eru leikar teknir að æsast á HM í fótbolta. 

22. júní: Besta lið sögunnar? 22.06.2026

Víkingar virðast óstöðvandi í Bestu deild karla og KR-ingar þurfa að vinna Skagamenn í kvöld til að halda lífi í titilbaráttunni. FH, Þór, KA og Stjarnan eru hins vegar í ansi slæmum málum. Martin Hermannsson er Þýskalandsmeistari eftir ótrúlega endurkomu og Hollendingar fljúgandi á HM.

19. júní: Er hann samt íþróttamaður ársins? 19.06.2026

Í Besta sætinu var farið yfir frumraun Íslendings á Opna bandaríska mótinu í golfi karla, HM í fótbolta og komandi umferð í Bestu deild karla. Freyr Alexandersson er orðinn nýr þjálfari Rosenborgar og strákarnir okkar í íslenska handboltalandsliðinu fá stuðning í Þýskalandi.

18. júní: Fossblæddi af stressi fyrir þátttöku Gulla á U.S. Open 18.06.2026

Stór dagur í íþróttasögu Íslendinga í dag. Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur þátttöku á U.S. Open risamótinu í golfi í kvöld, fyrstur Íslendinga. Við förum yfir það sem og HM í fótbolta þar sem að England mætir af fídómskrafti til leiks. Stelpurnar okkar eru með gullið tækifæri á að tryggja sér sæti á HM í fótbolta í BRASILÍU á næsta ári og spennan er mikil í Mjólkurbikar kvenna. Átta liða úrslitunu...

16. júní - Drónasvif yfir best rekna klúbbi landsins 16.06.2026

Það er risakvöld í Bestu deildinni þar sem KR-ingar heimsækja Víkinga í einkar veglegri útsendingu þar sem Nablinn verður á svæðinu og drónamyndavél fangar stemninguna á uppseldum toppslag. HM í fótbolta, Gunnlaugur Árni á Opna bandaríska, og gleðifréttir Garðbæinga voru einnig til umræðu í Besta sætinu.

15. júní - Verður Þjóðarhöllin tilbúin fyrir HM 2031? 15.06.2026

„Loksins, loksins“ hrópuðu margir íþróttaáhugamenn í dag og Besta sætið þar með talið.   Teikningar fyrir nýja Þjóðarhöll hafa verið opinberaðar en athygli vekur að hvergi eru verklok áætluð. Hvenær verður þessi nýja höll eiginlega tilbúin? Margt fleira var rætt í þætti dagsins af Besta sætinu. HM er í fullum gangi og fyrsti þjálfarinn til að verða rekinn kemur frá Túnis. Fyrsti þjálfarinn til að...

12. júní - Lélegasti framherji mótsins strax fundinn 12.06.2026

HM hófst í gær og við ætlum bara að hafa gaman að því, allavega meira gaman en sjónvarpsmenn Suður-Afríku. Lélegasti framherji mótsins er strax fundinn og Suður-Kóreuprinsinn kom sem kallaður.   HM var ekki það eina sem rætt var í þætti dagsins af Besta sætinu. Stærsti hnefaleikaviðburður ársins er fram undan í kvöld. Um helgina er heill haugur af viðburðum, heil umferð í Bestu deild kvenna og mar...

11. júní - Gaslýsingar, starfsöryggi og heimskt lið 11.06.2026

Stóri HM-dagurinn er í dag. Mótið hefst í kvöld. Stjarnan sleppti sínu eina haldreypi og New York Knicks unnu heimskasta körfuboltalið sögunnar.

10. júní - Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi? 10.06.2026

Landsliðin okkar spiluðu bæði við heimsmeistara í gær og máttu sín lítils. Frammistaða stelpnanna okkar olli vonbrigðum. Strákarnir gerðu nákvæmlega sömu mistök og síðasta leik.

9. júní - Óttast slys í kvöld 09.06.2026

Ísland gegn heimsmeisturum er þema kvöldsins en Gunnlaugur Árni Sveinsson átti sviðið í gær. Sá drengur er á leið á US Open. Magnað afrek. Svo er það úrslitaeinvígi NBA og engin Ungverjagrýla á HM í handbolta. Takk.

8. júní - Kaldur sviti er Eriksen féll til jarðar 08.06.2026

Hjartaáfall Christian Eriksen, landsliðin okkar að mæta heimsmeisturum og stórmannlegir Víkingar framlengja við Ingvar er helst í brennidepli í þætti dagsins.

5. júní - Vandræðaleg auglýsing og köld kveðja 05.06.2026

Það er frábær föstudagur í Besta sætinu. Landsliðskona snýr heim, stelpurnar okkar eiga stóran leik, Knicksari rífur kjaft um fótbolta og vera má að Ögmundur Kristinsson semji við Víking í dag. Þá eru æfingaleikir um helgina þar sem Cole Palmer-laust Englandslið hitar upp fyrir HM. Palmer er andlit Nike fyrir mót sem hann tekur ekki þátt í. Svo er spurning hvort Arnar Gunnlaugsson hafi náð að lækk...

4.júní: Sara Björk komin heim 04.06.2026

Þrátt fyrir að komið sé hásumar er nóg að frétta úr heimi íþróttanna. Stór tíðindi að berast af kvennaliði Hauka sem er að fá sína bestu dóttur aftur heim, Sara Björk Gunnarsdóttir ein sú besta í sögu Íslands frá upphafi að stimpla sig inn í íslenska boltann. Ögmundur Kristinsson á leið í Víkina, Kane laus úr fangelsi og ég veit ekki hvað og hvað. Alvöru yfirferð í Besta sætinu í dag. 

3. júní - Getur Wemby bjargað NBA? 03.06.2026

Misgóðar klippingar, nýr stjóri Liverpool og úrslitaeinvígi NBA eru á meðal umfjöllunarefna í Besta sætinu í dag.

2. júní - Sótti Freyr of marga Íslendinga til Brann? 02.06.2026

Freyr Alexandersson lærði ekki af mistökum annarra íslenskra þjálfara og hefur verið látinn fara frá Brann. Hvað verður um Alfreð Finnbogason hjá Rosenborg?   Einhvern veginn tókst Noregi að taka yfir þátt dagsins í Besta sætinu. Stórliðin þar í landi, með Íslendinga í brennidepli, hafa tekið risaákvarðanir síðastliðinn sólarhring. Svo sendu Norðmenn frá sér alvöru yfirlýsingu með sigrinum gegn Sv...

Höre den Podcast Besta sætið in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet