bestasaetid
Besta sætið
Besta sætið er hlaðvarp í þróttadeildar Sýnar . Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.
Author
bestasaetid
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 10, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Besta sætið - 19. mars 19.03.2026 25:27
Landsleikur gegn Svíum í kvöld, spenna í Bónus-deild karla og fjöldi Íslendinga á ferðinni í Evrópukeppnum í fótbolta.
Besta sætið - 18. mars 18.03.2026 32:18
Orri Steinn Óskarsson er mættur aftur í landsliðið en mun fyrirliðinn spila leikina gegn Kanada og Haítí? Gylfi Þór Sigurðsson mun allavega gef sig allan í verkefnið. Albert Guðmundsson verður hins vegar í sprautumeðferð á Ítalíu. Ísland á þrjá fulltrúa í marsfárinu mikla en kemur í ljós að Almar Atlason býr alls ekkert í Miami, borginni í Flórída. Hann býr í Miami, Ohio. Þetta reyndist þáttastjór...
Danijel Djuric: Hjartað eða peningar, eldur í augunum og bíómyndin Besta deildin 17.03.2026 10:04
Danijel Dejan Djuric hefur verið á meðal umtalaðri fótboltamanna landsins undanfarin ár. Hann vakti mikla athygli í framlínu Víkinga og vann með liðinu bæði Íslands- og bikarmeistaratitil áður en hann hélt utan í atvinnumennsku til Króatíu fyrir ári síðan. Þrátt fyrir að hafa liðið vel í 25 gráðunum með sundlaug í garðinum vantaði eitthvað, þá sérlega spilatíma, og er Danijel nú snúinn heim. Orðið...
Besta sætið - 17. mars 17.03.2026 33:55
Eiga stelpurnar okkar séns á stórri endurkomu gegn Portúgal? Af hverju í ósköpunum er körfuboltinn að taka sér handboltann til fyrirmyndar og fara í milliriðlakeppni? Grindavík er orðinn deildarmeistari og það gæti reynst risastórt fyrir Ármann. Á sama tíma sést enginn möguleiki á því að Valur verði Íslandsmeistari en KR gæti gert atlögu að titlinum. Svo má búast við allavega einni góðri endurkomu...
Besta sætið - 16.mars 16.03.2026 24:15
Enski boltinn, KR pakkaði Stjörnunni saman og handboltalandsliðið spilar loks á heimavelli.
Hætt 25 ára eftir þriggja ára meiðsli sem trufla enn daglegt líf 13.03.2026 28:26
Sólveig Jóhannesdóttir Larsen tilkynnti á samfélagsmiðlum í vikunni að fótboltaferli hennar væri lokið þrátt fyrir aðeins 25 ára aldur. Ferlinum lauk þó í raun fyrir rúmum þremur árum síðan en hún hefur ekki getað spilað eftir að hafa orðið fyrir mjaðmarmeiðslum í Svíþjóð. Hún var þá nýkomin út í atvinnumennsku eftir að hafa unnið bæði Íslands- og bikarmeistaratitilinn með Val 2022. Atvinnumannadr...
Besta sætið - 13.mars 13.03.2026 21:09
Það var nóg um að ræða í Besta sætinu í dag. KA-menn opnuðu veskið til þess að fá Danijel Dejan Djuric til sín úr atvinnumennsku, Bónus deildin bauð upp á dramatík og deildarmeistarar gætu verið krýndir í kvöld. Þá er áhugaverð helgi framundan í enska boltanum.
Besta sætið - 12. mars 12.03.2026 24:22
Brjálæði í Meistaradeildinni og hitað upp fyrir lokaumferðina í Olís-deild karla og einnig fyrir stóra umferð í Bónus-deild karla.
Besta sætið - 11. mars 11.03.2026 27:18
Farið yfir sirkusinn hjá Tottenham og sömuleiðis í Boganum þar sem enginn virðist þora að spila með sitt besta lið. Einnig er spáð í spilin fyrir risakvöld í Meistaradeildinni.
Besta sætið - 10. mars 10.03.2026 26:34
Farið yfir málefni handboltalandsliðsins og stöðu landsliðsþjálfarans, Snorra Steins Guðjónssonar, sem er ekki búinn að endursemja við HSÍ. Einnig er rýnt í spilin fyrir 16-liða úrslitin í Meistaradeild Evrópu sem hefjast í kvöld.
Uppgjör eftir Ísland - Króatía: Búnt á skenkinn og samning á Snorra 01.02.2026 1:00:52
Einar Jónsson og Rúnar Kárason mættu og gerðu upp tapið gegn Króatíu í leiknum um bronsið á EM í dag. Liðið hafnaði í 4.sæti mótsins en framtíðin lítur vel út fyrir liðið.
Uppgjör: Ísland – Danmörk | Djöfullinn danskur við náum ykkur næst 30.01.2026 1:12:54
Einar Jónsson og Rúnar Kárason gera upp undanúrslitaleik Íslands og Danmerkur á EM í handbolta með Aroni Guðmundssyni. Þriggja marka tap raunin 31-28 og draumur um gull úr sögunni en hetjuleg barátta stendur upp úr. Við tökum Danina næst, first nælum við í bronsið á sunnudaginn.
Uppgjör eftir Ísland - Slóvenía: Undanúrslitin klár, enda eigum við einn besta handboltamann heims 28.01.2026 58:45
Jóhann Gunnar Einarsson, Einar Jónsson og Stefán Árni Pálsson gerðu upp stórsigur Íslands og Slóvenum sem gerði það að verkum að Ísland er komið í undanúrslit á EM í fyrsta sinn í 16 ár. Magnaðar árangur.
Uppgjör eftir Ísland – Sviss: Helvítis fokking fokk 27.01.2026 42:58
Þeir Sebastian Alexandersson og Rúnar Kárason gerðu upp sárt jafntefli Íslands gegn Sviss í milliriðli á EM í handbolta í dag. Liðið skoraði 38 mörk en fékk á sig 38. Möguleikinn á undanúrslitasæti varð lítill eftir úrslitin.
Uppgjör eftir Ísland – Svíþjóð: Takk fyrir IKEA, ABBA og stigin tvö Svíar 25.01.2026 40:19
Ásgeir Örn Hallgrímsson og Rúnar Kárason, fyrrverandi landsliðsmenn fara yfir stórbrotna frammistöðu Strákanna okkar gegn Svíum í milliriðlum á EM í handbolta með Aroni Guðmundssyni. Átta mark sigur staðreynd, 35-27, draumurinn um undanúrslit lifir!
Uppgjör eftir Króatía - Ísland 30-29: Króatar skutu Ísland í kaf 23.01.2026 41:21
Ásgeir Örn Hallgrímsson og Jóhann Gunnar Einarsson ræddu leik Króatíu og Ísland við Ágúst Orra Arnarson. Svekkjandi eins marks tap varð niðurstaðan eftir slæman fyrri hálfleik. Vörnin lak og markvarslan var lítil á meðan fjögur víti fóru forgörðum hinumegin. Strákarnir okkar eru með bakið upp við vegg.
Uppgjör eftir Ungverjaland - Ísland: Einar Þorsteinn mætti á ögurstundu og Viktor Gísli í heimsklassa 20.01.2026 54:08
Einar Jónsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson mættu og gerðu upp frábæran eins marks sigur á Ungverjum í lokaleik riðilsins á EM. Tvö stig í milliriðlinn eru klár.
Uppgjör eftir Pólland - Ísland: Líta ótrúlega vel út 18.01.2026 57:27
Þeir Stefán Árni Pálsson, Jóhann Gunnar Einarsson og Einar Jónsson gerðu upp frábæran sigur á Pólverjum 31-23 á EM í handbolta. Liðið hefur farið vel af stað á mótinu og er með fullt hús stiga í riðlinum eftir tvo leiki og komið í milliriðilinn.
Uppgjör eftir Ísland – Ítalía: Óhefðbundni handboltinn frystur 16.01.2026 1:01:47
Þeir Aron Guðmundsson, Rúnar Kárason og Einar Jónsson fóru yfir sannfærandi þrettán marka sigur Íslands á Ítalíu í fyrsta leik liðanna á Evrópumóti karla í handbolta. Sigurinn samkvæmt áætlun, nú er að halda sjó og missa ekki dampinn. Þátturinn er í boði Orkusölunnar og Verkfærasölunnar.
Frakkland - Ísland 114-74: Súrsætur endir 04.09.2025 39:44
Þeir Máté Dalmay og Ágúst Orri Arnarson mættu í Besta sætið og gerðu upp Eurobasket árið 2025 og lokaleikinn í riðlinum gegn Frökkum sem tapaðist með fjörutíu stigum.
Ísland - Slóvenía - 79-87: Svona frammistaða hefði skilað okkur fleiri sigrum 02.09.2025 38:37
Teitur Örlygsson var á línunni og gerði upp leikinn gegn Slóvenum. En þeir Benedikt Guðmundsson og Ágúst Orri Arnarson íþróttafréttamaður mættu einnig og fóru yfir tapið gegn Slóvenum. En í þeim leik voru jákvæð teikn á lofti.
Pólland - Ísland 84-75: Rændir eftir dómaraskandal 31.08.2025 38:17
Póllverjar unnu Ísland 84-75 í þriðja leik liðsins á Eurobasket í körfubolta. Íslenska liðið stóð sig vel í leiknum en ótrúlegar ákvarðanir undir lok leiksins hjá dómurum leiks kostuði sitt. Þeir Benedikt Guðmundsson, Magnús Þór Gunnarsson og Halldór Örn Halldórsson mættu í Besta sætið og gerðu leikinn upp.
Besta sætið: Betri gegn Belgíu þar til allt fór í baklás 30.08.2025 30:10
Ísland tapaði með grátlegum hætti gegn Belgíu í öðrum leik Evrópumótsins í körfubolta. 64-71 lokaniðurstaðan í leik sem Ísland leiddi nánast allan tímann. Ólafur Ólafsson og Benedikt Guðmundsson gerðu leikinn upp með Ágústi Orra Arnarsyni.
Ísrael - Ísland: 83-71 - Vonin lifir 28.08.2025 48:51
Ísland tapaði fyrir Ísrael í fyrsta leik á Eurobasket í körfubolta. Leikurinn fór 83-71 og má segja að sigur Ísraelsmanna hafi ekki mikið verið í hættu. Þeir Tómas Steindórsson og Máté Dalmay mættu í Besta sætis hljóðverið og gerðu upp leikinn.
Besta sætið: Kristófer opnar sig um ágreining við Craig Pedersen 26.07.2025 21:55
Kristófer Acox fer ekki á Evrópumótið í körfubolta sem hefst í lok ágúst. Tíðindin koma mörgum á óvart en þó ekki honum sjálfum. Landsliðsþjálfarinn tjáði honum í febrúar að hann myndi aldrei velja hann aftur. Kristófer tjáði sig um málið við Besta sætið.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.