Ghost Network®

Auðnast

Health EN ↓ 32 episodes

Auðnast er hlaðvarp um heilsu, samskipti og menningu í vinnu og lífi. Við ræðum það sem raunverulega mótar líðan fólks: tengsl, mörk, vald, ábyrgð, streitu, samskipti, tilfinningar og sálfræðilegt öryggi – bæði á vinnustað og í einkalífi. Í hverjum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna, málefni sem spretta beint úr þeirra daglegu störfum í vinnuvernd, meðferð og ráðgjöf. Samtölin byggja á faglegri þekkingu, klínískri reynslu og rannsóknum – en líka á raunverulegum aðstæðum sem fólk þekkir úr eigin lífi. Auðnast er fyrir þau sem vilja:- skilja eigin líðan og samskipti betur- takast á við krefjandi að...

Author

Ghost Network®

Category

Health

Podcast website

www.audnast.is

Latest episode

Jun 15, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Fjarvistir á vinnustað 15.06.2026

Fjarvistir eru ekki bara kostnaður. Þær eru skilaboð. Í þessum þætti skoðum við hvað fjarvistir og óheilbrigð viðvera geta sagt okkur um menningu, stjórnun og sálfélagslegt öryggi á vinnustaðnum. Við veltum því einnig fyrir okkur hvers vegna stærsta vandamálið er stundum ekki hverjir eru frá vinnu, heldur hverjir mæta og líður ekki vel.

Þegar eitthvað vantar upp á - Um tómleika í nánum samböndum 13.05.2026

Þátturinn fjallar um þá tilfinningu sem mörg pör kannast við en fá tala opinskátt um: Að vera í sambandi þar sem allt virðist í lagi á yfirborðinu en samt ríkir fjarlægð og einmanaleiki. Við skoðum hvað gerist þegar nándin dofnar hægt og rólega, hvers vegna pör detta úr takti og hvernig daglegt álag, samskiptamynstur og óuppfylltar þarfir geta skapað fjarlægð. Við ræðum hvað rannsóknir segja um te...

Stjórnun í breytingum: Að leiða í gegnum óvissu og krefjandi tíma 27.04.2026

Í þessum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna hvernig stjórnendur geta leitt fólk í gegnum óvissu, breytingar og erfiða tíma. Þær skoða hvað gerist hjá fólki þegar tilfinningin um öryggi breytist, hvaða mistök stjórnendur gera gjarnan og hvað rannsóknir segja um traust, skýrleika, sýnileika og samkennd í stjórnun. Þátturinn er fyrir stjórnendur, mannauðsfólk og alla sem vilja skilja betur hvernig hægt...

Þættinum hefur borist bréf: Álag, stjórnun og ábyrgð á vinnustað 24.03.2026

Í þessum þætti svörum við spurningum frá hlustendum um margvíslegar áskoranir á vinnustað. Við förum beint í það sem raunverulega mótar líðan og samskipti; kulnun, álag, stjórnun og ábyrgð. Við ræðum: Er kulnun stundum misskilin sem skortur á þrautseigju? Eru stjórnendur gerðir ábyrgir fyrir líðan starfsfólks? Hvers vegna eru konur ekki teknar jafn alvarlega í ágreiningi? Hvað á stjórnandi að gera...

Einelti og óheilbrigð samskipti á vinnustað 23.02.2026

Í þessum þætti ræða Ragnhildur og Hrefna um óheilbrigð samskipti og einelti á vinnustað, hvernig það verður til og í hvers konar starfsumhverfi það þrífst. Þær fara yfir muninn á ágreiningi og einelti, ræða valdaójafnvægi og mynstur í samskiptum og skoða hvaða þættir í menningu og stjórnun geta ýtt undir eða dregið úr áhættu. Að lokum fara þær yfir hvað er hægt að gera þegar mál koma upp og hvaða...

Reiði – ógn eða leiðarvísir? 02.02.2026

Reiði er oft misskilin tilfinning bæði í einkalífi og starfi. Í þessum þætti kryfjum við reiðina og hvernig hún tengist mörkum, sjálfsvirðingu, valdaleysi og tengslum – og af hverju hún situr svona lengi í okkur. Við skoðum fræðin og hagnýt skref til að vinna með reiði á uppbyggilegan hátt. https://www.harrietlerner.com/ https://hbr.org/2013/11/emotional-agility https://drdansiegel.com/

Hamingja í vinnu - Markmið eða óraunhæf krafa? 27.01.2026

Hvað þýðir hamingja í vinnu og ertu með raunhæfar væntingar um hamingju? Við skoðum bæði mannlega og fræðilega sjónarhornið og veltum því fyrir okkur hvort hamingja sé frekar orðin krafa en markmið. Við skoðum hvað vísindin segja og kynnum praktískt verkfæri bæði fyrir einstaklinga og stjórnendur. https://skemman.is/handle/1946/40537 https://www.mdpi.com/2076-3387/15/9/351

Sjálfstraust 02.01.2026

Hvað er raunverulegt sjálfstraust? Í þessum þætti ræðum við hvað sjálfstraust er, hvernig það mótast og hvernig það getur birst í ólíkum myndum - bæði heilbrigðum og óheilbrigðum. Við skoðum sjálfstraust út frá sálfræðinni, tengslamyndun, fjölskyldumynstrum og lífeðlisfræðinni, með það að markmiði að hjálpa þér að þekkja sjálfstraustið þitt og efla það á heilbrigðan hátt.

Allt sem þú þarft að vita fyrir aðventuna 05.12.2025

Í þessum þætti ætlum við að vera á ljúfu og léttu nótunum - Við förum yfir væntingar, tenglslamyndun og könnum hvers konar aðventutýpa þú ert. Að lokum förum yfir við nokkur atriði sem undirbúa taugkerfið þitt fyrir komandi vikur. Ef þu vilt gera aðventuna enn betri, hlustaðu þá á þennan þátt því hinn raunverulegi undirbúningur hefst með því að virkja sefkerfið. 

Ágreiningur - allt sem þú þarft að vita 27.11.2025

Ef þú vilt skilja ágreining þá er þetta þáttur fyrir þig. Við rýnum í hugtakið, skoðum hvers vegna hann vekur svona sterk viðbrögð og hvernig við getum farið úr forðun yfir í færni. Við ræðum ágreining í vinnu, parsamböndum, vináttu og upprunafjölskyldu og förum yfir hvað er algengast að fari úrskeiðis. Við fyllum á verkfærakassann með hagnýtum aðferðum - meðal annars hvernig er best að bregð...

Hver er þinn fjölskylduarfur? Sagan sem mótar samböndin okkar 05.11.2025

Ef þú vilt skilja þig og þín sambönd betur – skaltu hlusta. Í þessum þætti skoðum við hvernig sagan okkar og tengsl í barnæsku hafa áhrif á samskipti og heilsu á fullorðinsárum. Við skoðum líka hvernig gömul mynstur frá fyrri kynslóðum og tilfinningakerfi fjölskyldunnar móta viðbrögð okkar og hafa áhrif bæði á ástarsambönd sem og önnur sambönd í þínu lífi. Lesefni: https://www.amazon.com/Love-Neve...

Frá innri ró til ytri áhrifa: sjö lykilþættir í leik og starfi 24.10.2025

Við förum yfir sjö hæfniþætti sem gott er að tileinka sér bæði í leik og starfi. Sum vilja kalla þetta mjúka hæfileika – okkur finnst þetta vera mikilvægu hæfileikarnir. Hlustaðu á þáttinn og kannaðu hvort það liggi sóknartækifæri hjá þér.

Bjargráð: Lausnamiðuð, tilfinningaleg og minna gagnleg 01.10.2025

„Bjargráð eru ekki töfrabrögð – þau eru verkfæri. Í þesstum þætti förum við yfir tilfinningamiðuð, lausnamiðuð og minna gagnleg bjargráð, og tölum heiðarlega um það hvernig kynslóðararfurinn og karaktereinkenni hafa áhrif. 

Sálfélagslegt öryggi á vinnustað 09.09.2025

Hvað þarf til þess að fólki líði vel á vinnustað? Kannski er það ekki bara jógasalur eða hópefli heldur grunnstoðir í skipulagi og vel upplýstir stjórnendur. Við tölum um það sem Auðnast stendur fyrir alla daga: Sálfélagslegt öryggi.  Lesefni sem við mælum með:      https://bmcpublichealth.biomedcentral.com/articles/10.1186/s12889-023-16246-x?utm  

Tilfinningagreind 05.09.2025

Við ræðum hvað tilfinningagreind er út frá mismunandi sjónarhornum og hvernig við getum verið misgóð í henni eftir því í hvaða hlutverkum við sinnum. Við skoðum líka mat á eigin tilfinningagreind og hvernig við getum eflt hana í daglegu lífi. Hlustaðu og vertu í takt við tilfinningar þínar!

Stöðutékk - á þér... 27.07.2025

Við ræðum einfaldar leiðir til að taka stöðu á sér persónulega og hvers vegna við erum líkleg til þess að festast í sama mynstrinu aftur og aftur. Við skoðum vanabrautir og hvernig sjálfsmildi getur varðað veginn í átt að farsælli breytingu. Það er að segja ef það er eitthvað sem þú vilt breyta.  https://www.youtube.com/watch?v=hiiEeMN7vbQ – Carol dweck  https://self-compassion.org/wp-co...

Sumarfrí sem streituvaldur 16.07.2025

Við ræðum hvers vegna sumarfrí er stundum streituvaldur  bæði út frá starfshlutverkinu en ekki síður út frá fjölskyldulífinu. Við skoðum líka fjögur gagnleg ráð sem geta nýst þér og þínum.     https://hrreview.co.uk/har-news/wellbeing-news/majority-of-working-brits-feel-pressure-to-check-company-emails-while-on-holiday/371705 ?  https://www.sciencedaily.com/releases/2018/0...

Að vinna með einhverjum sem þér líkar ekki við. 27.05.2025

Í þessum þætti förum við yfir reynslu sem mörg þekkja en fá kannski ræða opinskátt. Hvað gerum við þegar okkur líkar ekki vel við samstarfsfélaga. Við köfum beint í kjarnann, reynum að skilja og skoða þær tilfinningar sem skjóta upp kollinum þegar okkur finnst einhver pirrandi, ekki starfi sínu vaxinn eða bara leiðinlegur.  Greinar  sem við mælum með:   https://www.frontiersin....

Framhjáhald – út frá sjónarhóli þess sem haldið er framhjá 19.05.2025

Í þessum þætti förum við yfir algenga upplifun og líðan hjá fólki sem haldið er framhjá. Viðfangsefnið er sannarlega viðkvæmt og sársaukafullt en engu að síður mikilvægt.

Samskipti - Mikilvægasta verkfærið á vinnustaðnum 04.04.2025

Í þessum þætti förum við yfir víðan völl þegar kemur að samskiptum á vinnustað, hvaða áhrif ógagnleg samskipti hafa á líðan starfsfólks og hvaða leiðir eru farsælar til þess að efla samskipti á vinnustað.   Lesefni sem við mælum með:  https://www.shrm.org/in/topics-tools/news/organizational-employee-development/cost-poor-communication ?    https://www.mckinsey.com/locations/mckinsey...

Hvar tilheyrir þú og skiptir það máli fyrir heilsuna? 21.03.2025

Í þessum þætti förum við yfir það að tilheyra og hversu djúpstæð þörf það er innra með okkur. Við skoðum hvað gerist ef við upplifum að við tilheyrum ekki  bæði í einkalífi og starfi og svo skoðum við gagnlegar leiðir til þess að tilheyra. Grein sem við mælum með:    The article "The Need to Belong: Desire for Interpersonal Attachments as a Fundamental Human Motivation" by Roy F. Baumeis...

Skugggahliðar stjórnenda - einkenni og afleiðingar 17.02.2025

Í þessum þætti förum við yfir þegar styrkleikar stjórnenda breytast í skuggahliðar og hvaða afleiðingar það hefur á starfsfólk.      Grein sem við mælum með:   Twenty years on the dark side: Six lessons about bad leadership.   By Hogan, Robert,Kaiser, Robert B.,Sherman, Ryne A.,Harms, Peter D. 

Framhjáhald – sá sem heldur framhjá 17.02.2025

Í þessum þætti förum við yfir hvers vegna fólk heldur framhjá. Viðfangsefnið er sannarlega viðkvæmt og sársaukafullt en engu að síður mikilvægt.      Grein  sem við mælum með:   Love and Infidelity: Causes and Consequences Höf: Ami Rokach og Sybil H. Chan     What Do People Do, Say, and Feel When They Have Affairs? Association between Extradyadic Infide...

Gremja – gagnlegt verkfæri eða gallagripur 31.01.2025

Í þessum þætti förum við yfir hvað gremja er og hver er algeng uppspretta hennar. Við stiklum líka á stóru hvernig hægt er að draga úr gremju þegar hún er okkur ógagnleg og Hrefna segir okkur gremjusögu úr sínu lífi.   Bækur sem við mælum með:   The Destructive Power of Resentment: 30 Techniques to Overcome Relationship Resentment eftir Nancy Fagan  Ressentiment: Its Phenomenol...

Heilsustraumar á vinnustöðum - Hvað hefur verið vinsælt og hvað mun gerast á næstu árum? 31.01.2025

Í þessum þætti rýnum við í hvað hefur verið ríkjandi á vinnustöðum í heilsu og velferðarúrræðum síðastlðin ár. Við kíkjum líka örlítið í spádómskúluna og spáum fyrir líklegum straumum á komandi árum. Ef þú hefur áhuga á heilsu á vinnustöðum - skaltu leggja við hlustir.

Listen to the Auðnast podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.