Álhatturinn

Álhatturinn

Arts EN ↓ 72 episodes

Þrír vinir með enga sérfræðiþekkingu ræða samsæriskenningar á vitrænum og glórulausum nótum. Kostar aðeins 1290 kr. á mánuði og þú færð aðgengi að +50 þáttum af hreinni samsæriskenninga snilld 💥 ➡️ Áskriftarhlekkurinn: https://pardus.is/alhatturinn

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.buzzsprout.com

Author

Álhatturinn

Category

Arts

Podcast website

www.buzzsprout.com

Latest episode

Sep 11, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.7+ rating iOS soon

Episodes

Ísraelar vissu af yfirvofandi áras Hamas 7. október og leyfðu henni að gerast 31.10.2025

Hryðjuverkaárásir Hamas á Ísrael 7.Október 2023 eru einn svívirðilegasti og grimmilegasti gjörningur seinni tíma, ef ekki sögunnar. Þar sem fjöldinn allur af blásaklausum borgurum allt frá ungabörnum til gamalmenna var myrtur á hrottafneginn og viðrustyggilegan hátt af blóðheitrum öfgamönnum. Allt í nafni trúar. Síðan þá hafa geysað gífurleg átök á Gaza sem hafa kostað gífurlegt magn mannslífa úr...

Fyrirboðum um áform hulduaflanna er plantað í dægurmenningu áður en þau raungerast (e. Predictive programming) 17.10.2025

Í þessum nýjasta þætti af Álhattinum ræða Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór áhugavert fyrirbæri sem kallað hefur verið forvirk forritun(e.predictive programming), þar sem dægurmenning virðist spegla eða jafnvel undirbúa almenning fyrir atburði áður en þeir raungerast. Sagan er þannig ekki einungis skrásett og skjalfest af sagnfræðingum heldur einnig skrifuð og skipulögð af handritshöfundum...

P2: Morðið á Charlie Kirk er plott til að koma af stað borgarastyrjöld í Bandaríkjunum | Hluti 2 03.10.2025

Kæru Álhattar! Álhatturinn er kominn yfir á Pardus Hlaðvarps samfélagið og alla þætti má finna á eftirfarandi slóð: www.pardus.is/alhatturinn Við munum halda áfram að setja teasera fyrir þættina á Spotify og Apple en fyrir þau sem vilja heyra okkur kryfja málefnið til mergjar þá eru þættirnir fullri lengd á Pardusnum. Bestu kveðjur, Guðjón, Haukur og Ómar ---- Charlie Kirk var ekki bara einhver ga...

P2: Við búum í hermiveröld (e. simulation) og raunveruleiki okkar er sýndarveruleiki | Hluti 2 22.08.2025

Hvað ef veruleikinn er ekki raunverulegur og við sitjum föst í meingallaðir hermiveröld? Í þessum síðari þætti  Álhattsins um hermiveröldina og sýndarveruleikann kafa strákarnir enn  dýpra ofan í kanínuholuna og draga fram stórfurðuleg og fremur ótrúleg dæmi sem virðast benda til þess að kóðinn sjálfur sé farinn að hiksta.  Eins Brady Feigl og Brady Feigl, hafnabolta mennirnir tveir með sama nafn...

P2: Leynileg klíka stefnir að New World Order eða hinni nýju heimsskipan | Hluti 2 08.08.2025

Í þessum síðari hluta um hina svokölluðu nýju heimsskipan, e:New World Order, halda þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór lengra ofan í kanínuholuna og skoða djúpt ofan í kjölin á kenniingunni. Hvað er eiginlega málið með alla þessa undarlegum fundi duldra áhrifavalda með skrýtna framtíðarsýn sem virðist ætluð okkur öllum  án þess að nokkur hafi nokkurn tíma spurt okkur álits eða...

P1: Leynileg klíka stefnir að New World Order eða hinni nýju heimsskipan | Hluti 1 25.07.2025

Til er fólk sem trúir því staðfastlega að heimurinn sé í óreiðu vegna vankunnáttu, mistaka vanhæfni stjórnmálafólks eða einhverskonar náttúrulegs glundroða. En svo eru aðrir, sem sumir hafa útnefnt Álhatta, sem telja að heimurinn sé í raun þaulskipulagður af myrkum og illum öflum og að heimurin sé vísvitandi að versna vegna áætlana þessara afla.  Kenningin um hina svokölluðu nýju heimsskipan „New...

P2: Mannleg losun gróðurhusalofttegunda hefur lítil sem engin áhrif á hitastig jarðar (e. climate change) | Hluti 2 21.02.2025

Hver hefur ekki heyrt um gróðurhúsaáhrifin, loftslagsbreytingar og hamfarahlýnun? Hina meintu og svokölluðu ógn við allt lífríki jarðar sem mun grilla mannfólkið, drekkja öllu landi undir sjó og gera gjörsamlega út af við allt sem kvikt er á jörðu niðri á næsta stundarfjórðungi, ef við förum ekki öll að hugsa okkar gang og bæta um betur. a Al Gore, Greta Thunberg, Björk og Thom Yorke geta varla öl...

P1: Mannleg losun gróðurhúsalofttegunda hefur lítil sem engin áhrif á hitastig jarðar (e. climate change) | Hluti 1 07.02.2025

Það eru líklega fá málefni sem hafa verið jafn áberandi í umræðunni undanfarin ár og hlýnun jarðar. Já,  eða öllu heldur loftslagsbreytingar eða hamfarahlýnun eða hvað sem að fólk vill kalla þetta fyrirbrigði. Loftslagsmótmæli barna og ungmenna hafa farið fram um allan heim með hina sænsku Gretu Turnberg í broddi fylkingar.  Almenningur hefur verið varaður við óafturkræfum og stóirfenglegum breyti...

P1: Við búum í hermiveröld (e. simulation) og raunveruleiki okkar er sýndarveruleiki | Hluti 1 13.12.2024

Hvað ef allt sem þú sérð, finnur og upplifir er ekki raunverulegt? Hvað ef veröldin sem við búum í er ekkert annað en sýndarveruleiki, fullkomlega hannaður til að blekkja skynjun okkar og halda okkur frá hinum sanna raunveruleika? Þetta er spurningin sem liggur til grundvallar hermiveraldarkenningunni (e. Simulation Theory), sem hefur vakið ófáar vangaveltur heimspekinga, vísindamanna og samsæriss...

P2: Nafnlausir póstar sem birtust á 4chan með undirrituninni Q komu frá hátt settum aðilum með náin tengsl við Trump | Hluti 2 01.11.2024

Í október 2017 fóru að birtast undarlegir og nokkuð dularfullir póstar undir dulnefninu Q á umræðuþráðum á síðunni 4chan. Q þessi gaf sig út fyrir að vera háttsettan aðila úr Ríkisstjórn Donald Trump og sagðist vera að koma skilaboðum beint frá Trump sjálfum til stuðnings fólks hans. Q fór mikinn um hreinsunarstarf Trump í Washington og baráttu hans gegn djúp ríkinu(e.deep state) og tilraunir hans...

P1: Nafnlausir póstar sem birtust á 4chan með undirrituninni Q komu frá hátt settum aðilum með náin tengsl við Trump | Hluti 1 18.10.2024

Í október 2017 fóru að birtast undarlegir og nokkuð dularfullir póstar undir dulnefninu Q á umræðuþráðum á síðunni 4chan. Q þessi gaf sig út fyrir að vera háttsettan aðila úr Ríkisstjórn Donald Trump og sagðist vera að koma skilaboðum beint frá Trump sjálfum til stuðnings fólks hans. Q fór mikinn um hreinsunarstarf Trump í Washington og baráttu hans gegn djúp ríkinu(e.deep state) og tilraunir hans...

P2: Pizzagate: Comet Ping Pong Pizza og eigandi þess, James Alefantis, er viðriðinn barnamansalshring fyrir elítuna | Hluti 2 12.07.2024

Í þessum síðari hluta Álhattarins, um hið  umdeilda en áhugaverða mál, Pizzagate kafa  þeir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór enn dýpra ofan í kanínuholuna í leit að einhverskonar sannleika eða í það minnsta áhugaverðri umræðu.  Þeir skoða undarlegar og tvíræðar færslur og ummæli James Alefantis, eiganda Comet Ping Pong, á samfélagsmiðlum, sem þykja í besta falli vafasamar ef ekki hreint ú...

P1: Pizzagate: Comet Ping Pong Pizza og eigandi þess, James Alefantis, er viðriðinn barnamansalshring fyrir elítuna | Hluti 1 28.06.2024

Í Október og Nóvember 2016 birtu Wikileaks fjölda tölvupósta úr persónulegu tölvupóstfangi John Podesta, kosningastjóra Hillary Clinton.  Fljótlega lagðist fólk, og þá kannski sérstaklega úr röðum andstæðinga Hillary, yfir tölvupóstana og hóf leit að einhverju bitasstæðu og krassandi sem mögulega mætti nýta til þess að koma höggi á Hillary.  Ekki leið á löngu þar til fólk áttaði sig á að það væri...

P Diddy er Jeffrey Epstein Hip Hop heimsins 19.04.2024

Sean Love Combs, betur þekktur sem Puff Daddy eða P. Diddy hefur verið ein skærasta stjarna tónlistar og menningargeirans vestanhafs undanfarna áratugi. Hann hefur unnið með fjöldanum öllum af stórstjörnum eftir að hafa stigið fram á sjónarsviðið á 10.áratugu síðustu aldar.  Undanfarnar vikur og mánuði hafa komið fram fjöldin allur af frásögnum frá fólki sem segir farir sínar hreint ekki sléttar a...

P2: Pýramídarnir í Egyptalandi voru ekki byggðir eins og okkur er kennt í sögubókum | Hluti 2 05.04.2024

Pýramídarnir í Egyptalandi hafa löngum verið mörgu fólki hugleiknir og ekki að ósekju. Fá fyrirbæri, ef einhver,  í heiminum þykja jafn mikil verkfræðiundur og byggingarfræðileg afrek og Pýramídarnir og framleiddar hafa verið fjöldinn allur af myndum og sjónvarpsþáttum þar sem mismiklir vitringar og fræðingar í þessum efnum spá og spekúlera hvernig pýramídarnir urðu til og hversvegna.  Sumir þessa...

P1: Pýramídarnir í Egyptalandi voru ekki byggðir eins og okkur er kennt í sögubókum | Hluti 1 22.03.2024

Pýramídarnir í Egyptalandi eru að flestra mati eitthvert merkasta byggingar og verkfræði -afrek mannkynssögunnar og eru þeir eina af upphaflegu sjö undrum veraldar sem enn standa í dag. Pýramídarnir í Egyptalandi eru fjölmargir og vissulega mis merkilegir og áhugaverðir en þekktastir og langumtalaðastir eru pýramídarnir 3 í Gísa. Þar sem Pýramídinn mikli í Gísa er langvinsælastur og mikilfenglegas...

P2: Jeffrey Epstein og Ghislaine Maxwell gengu erinda vestrænna leyniþjónusta | Hluti 2 26.01.2024

Það efast varla nokkur manneskja um þá staðreynd að Jeffrey Epstein  hafi verið illa innrættur fantur og fúlmenni með viðbjóðslegar hvatir og enn færri furðuðu sig á því þegar hann var dæmdur fyrir allan hryllinginn.   En hvað með Ghislaine Maxwell góðvinkonu hans? Er hún jafn sek? Og hvernig komust þessi skötuhjú og góðvinir upp með voðaverk af þessari stærðargráður án vitorðs og afskipta yfirval...

P2: Hryðjuverkin 11 september 2001 í Bandaríkjunum voru innanbúðarverk | Hluti 2 03.11.2023

Í þessum hluta 2 af Álhattinum  halda Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar áfram að ræða kenninguna um að 9/11 hafi verið innanbúðarverk. Atburðirnir á Manhattan í New York, að morgni 11.September 2001, eru líklega einhver skelfilegustu voðaverk sem framin hafa verið, amk í seinni tíð.  Hvort sem að fólk trúir því að um hræðileg hryðjuverk eða þaulskipulögð innanbúðarverk hafi verið að ræða. Í fy...

P1: Hryðjuverkin 11 september 2001 í Bandaríkjunum voru innanbúðarverk | Hluti 1 27.10.2023

Í nýjasta þætti Álhattarins ræða Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór eina umdeildustu samsæriskenningu allra tíma, kenninguna sem hræddi ungan Guðjón svo mikið að hann var aldrei samur og varð kveikjan að ævilangri baráttu hans til að afhjúpa og uppræta lygar, feluleiki og samsæri heimsins. Þessi þáttur er hluti 1 af 2 sem fjalla um hryðjuverkaárásina hinn 11 september 2001, iðulega þekkt se...

P1: Jeffrey Epstein var strengjabrúða fyrir hulduöflin sem stjórna heiminum | Hluti 1 01.09.2023

Í þessum þætti af Álhattinum ræða Guðjón, Haukur Ísbjörn og Ómar þá margfrægu samsæriskenningu að bandaríski barnaníðingurinn, nauðgarinn og auðjöfurinn Jeffrey Epstein hafi verið strengjabrúða fyrir hulduöflin sem stjórna heiminum. Það efast eflaust enginn um að Jeffrey Epstein hafi verið fantur og fúlmenni og líklega myndi flest fólk lýsa honum sem sturluðum og sóðalegum siðblindingja.  En hvað...

Opinbera skýringin á JFK morðinu er lygi og brögð eru í tafli 20.07.2023

Í þessum þætti af Álhattinum ræða Guðjón, Haukur Ísbjörn og Ómar um eina klassískustu samsæriskenningu allra tíma, morðið á John F. Kennedy forseta Bandaríkjanna.  Var Lee Harry Oswald einn að verki líkt og opinbera skýringin segir eða er um allsherjar sögufölsun að ræða og John F.  Kennedy var komið fyrir kattarnef af myrkraöflum huldumanna? Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarp...

Samsæriskenningar 30.06.2023

Í þessum fyrsta þætti af Álhattinum ræða Guðjón, Haukur Ísbjörn og Ómar conceptið fyrir hlaðvarpið Álhattinn, almennt um samsæriskenningar, þeirra fyrstu upplifun af þeim og uppáhalds kenningarnar þeirra. Sérstakur málsmetandi gestur þáttarins er Gnúsi Yones sem gefur sitt take á samsæriskenningar. Elvis lifir, Paul McCartney er dauður, Courtney drap Kurt Cobain, lentum við á tunglinu, hver byggði...

Listen to the Álhatturinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.