Álhatturinn
Álhatturinn
Þrír vinir með enga sérfræðiþekkingu ræða samsæriskenningar á vitrænum og glórulausum nótum. Kostar aðeins 1290 kr. á mánuði og þú færð aðgengi að +50 þáttum af hreinni samsæriskenninga snilld 💥 ➡️ Áskriftarhlekkurinn: https://pardus.is/alhatturinn
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.buzzsprout.com
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Sirhan Sirhan, sem skaut Robert Kennedy, var dáleiddur af CIA til að fremja morðið, Zoolander style 11.09.2026 2:25:25
-> Special Guest appearance: Fulltrúar allra stjórnmálaflokka fyrir alþingskosningar 2024 (fyrir utan Vinstri Græn) gefa sína skoðun á JFK og RFK morðunum. Robert Kennedy, einnig þekktur sem Bobby Kennedy var einhver mesta vonarstjarna bandarískra stjórnmála á sjöunda áratug síðustu aldar. Hann var bróðir John F Kennedy, fyrrum forseta sem hafði verið myrtur, og hafði jafnframt setið í ríkisstj...
Úrslitum í handbolta er reglulega hagrætt með vitneskju og samþykki Alþjóða Sambandsins 11.09.2026 1:51:37
Í Janúar á hverju ári fyllist íslenska þjóðin af miklum eldmóð og fær skyndilega brennandi áhuga á handknattleik. Fólk flykkist erlendis til þess að styðja við bakið á “strákunum okkar” og við sannfærumst öll um að nú sé stundin loks runninn upp og að gullið sé okkar. En svo kemur slæmi kaflinn, besti maðurinn okkar meiðist og dómararnir dæma okkur út úr mótinu. Alltaf sama óheppnin og þjóðin bölv...
Risa drónarnir sem svífa um Bandaríkin eru leynivopn hulduafla til að blekkja og stjórna okkur 🚀 11.09.2026 2:35:17
Risastór hátæknileg og afar hljóðlát flýgildi(drónar) hafa sést á vappi um Bandaríkin og víðar að undanförnu og vakið undran margra. Hvaðan koma þessir drónadónar og hvað vilja þeir upp á dekk? Eru geimverurnar loksins mættar til þess að fylgjast með okkur og gera á okkur umfangsmiklar tilraunir? Eða eru Kínverjar og aðrar óvinveittar þjóðir að prakkarast og grallarast með því að njósna um Banda...
Dauði Elvis Presley var sviðsettur 11.09.2026 1:39:11
Elvis Aaron Presley er einn merkasti tónlistarmaður allra tíma og að margra mati óumdeildur konungur rokksins. Með sínum mjaðmahnykkjum og einstakri sviðsframkomu og söng náði hann að heilla heimsbyggðina og verða að ótrúlegri stórstjörnu sem naut hylli allra. En rétt einsog með aðrar stórstjörnur þá var stutt í sukkkið og smám saman fór að síga á ógæfu hliðina. Elvis sökk djúpt í fen óreglu og f...
Blackrock og Vanguard stjórna heiminum í gegnum krosseignarhald 11.09.2026 2:15:30
Fjárfestingasjóðirnir BlackRock & Vanguard ættu að vera flestum Álhöttum og samsærissmiðum vel kunnugir. Enda eru þessir sjóðir oftar en ekki nefndir á nafn þegar samsæri og eitthvað vafasamt ber á góma. En hvaða sjóðir eru þetta? Hverjir eiga þá og hverra erinda gegna þeir? Samanlagt eiga þessir tveir sjóðir og litli bróðir þeirra State street uþb 22% allra hlutabréfa í veröldinni og sitja þ...
Fæðuráðleggingar yfirvalda snúast ekki um heilsu þína heldur gróða stórfyrirtækja 11.09.2026 2:26:52
Þú ert það sem þú borðar, eða svo segir máltakið og mýtan, sem okkur hefur verið matreidd ofan í okkur af yfirvöldum og fjölmiðlum. Við berum öll sjálf ábyrgð á eigin heilsu og ef við hlustum á yfirvöld og fylgjum ráðleggingum landlæknis og borðum og hreyfum okkur reglulega þá lifum við hollu, góðu og áhyggjulausu lífi. Heilsuhraust og hamingjusöm. Ekki satt? En hvaðan koma eiginlega þessar ráðleg...
Virginia Giuffre (fórnarlamb Jeffrey Epstein) var sjálfsmyrt 11.09.2026 2:03:51
Jeffrey Epstein var viðrini og viðbjóður sem misnotaði börn og fólk og auðveldaði öðrum ógeðum að gera slíkt hið sama. Það vitum við öll. Rétt eins og morgunljóst að hann féll ekki fyrir eigin hendi. Það sjá allir menn. Hann flaug auðjöfrum og valdamiklum mönnum ítrekað til eyju sinnar little St James þar sem haldin voru tryllt teiti þar sem ógeðsleg svöll þessum viðrinum til yndisauka og ánægju á...
NBA deildin í körfubolta er töluvert rigguð 11.09.2026 2:01:30
NBA deildin í körfubolta er líklega stærsta körfuboltadeild í heimi. Eða í það minnsta sú lang stærsta og tekjuhæsta og sértu af aldamótakynslóðinni þá manstu vafalaust eftir NBA æðinu, sem greip um sig meðal ungra íslendinga, seint á síðustu öld og mögulega áttir þú eitthvað af körfuboltamyndum. NBA deildin er oft á tíðum gífurlega spennandi og skemmtileg og milljónir horfa á útsendingar frá dei...
Bandaríkin leyfðu árásinni á Pearl Harbor að gerast til að hafa ástæðu til að taka þátt í seinni heimstyrjöldinni 11.09.2026 2:17:54
Eitt fjölmargra menningarlegra stórvirkja hins kyngimagnaða og vanmetna leikstjóra, Michael Bay, er kvikmyndin Pearl Harbor. Kvikmynd sem lýsir því á dramatískan og stórfenglan hátt hvernig Bandaríkin drógust inn í seinni heimsstyrjöldina eftir árás Japana á herstöðina Pearl Harbor þann 7. Desember 1941. Árásin þótti mjög óvænt, rétt eins og þruma úr heiðskýru lofti og kom Bandaríkjamönnum og he...
Tartaria var háþróuð siðmenning sem skrifuð hefur verið úr sögubókum og falin fyrir mannkyninu 11.09.2026 2:18:14
Við lærum um Forn-Grikkland, Mesópótamíu, Egyptaland og allskonar forn stórveldi í skóla. En var heilt heimsveldi vísvitandi strokað út úr sögunni? Við erum að tala um Tartaríu. Risavaxið veldi sem náði allt frá Rússlandi og langt inn í Asíu og jafnvel yfir til Ameríku. Stórveldi sem nýtti sér framsækið orkukerfi, háþróaða byggingarlist og mögulega allskonar tækni sem við eigum erfitt með að ski...
Loch Ness skrímslið (stundum kallað Nessie) er til 11.09.2026 1:57:11
Á hálendi Skotlands liggur djúpt og dimmt stöðuvatn sem lengi hefur vakið athygli umheimsins: Loch Ness. Þar á, samkvæmt sögunni, að búa dulræn vera sem oftast er kölluð Nessie. Líklega eitt frægasta dýr eða vatnaskrímsli veraldar, sem þó engum hefur tekist að færa sönnur á að sé til á óyggjandi hátt. En hver eða hvað er Nessie í raun og veru? Er hún mögulega einhverskonar leifar eða minnismerki...
Til er lækning við krabbameini sem haldið er frá almenningi 11.09.2026 1:33:50
Krabbamein hefur fylgt manninum frá örófi alda, og í raun ekki bara manninum heldur öllum lífverum á jörðinni. Strangt til tekið ekki eitt stakt mein heldur heill hópur sjúkdóma sem falla undir regnhlífarhugtakið krabbamein. En hvernig getur ein stök stökkbreytt fruma endað sem svæsið meinvarp í líffærum um allan líkama?? Hvað gera læknar í dag þegar á reynir? Skera meinið í burt og dæla svo alls...
P1: Morðið á Charlie Kirk er plott til að koma af stað borgarastyrjöld í Bandaríkjunum | Hluti 1 11.09.2026 2:15:11
Charlie Kirk var ekki bara einhver gaur með sterkar skoðanir og hlaðvarp. Hann var táknmynd heillar kynslóðar ungs íhaldsfólks. Strákur úr úthverfi Chicago sem hætti háskólanámi til að stofna Turning Point USA, samtök sem börðust gegn því sem hann kallaði woke-heilaþvott og vinstri slagsíðu í bandarískum háskólum. Fyrir sumum var hann hetja sem sagði það sem aðrir þorðu ekki að segja. Fyrir öðru...
Artemis II tunglverkefnið var sviðsett 21.04.2026 27:55
Í yfir hálfa öld hefur mannkynið beðið eftir því að stíga aftur fæti á tunglið. Við höfum verið fóðruð á sögum af týndum gögnum og þeirri ótrúlegu staðreynd að NASA hafi hreinlega „eytt“ tækninni sem kom okkur þangað árið 1969. Teikningarnar og leiðarvísarnir týndust eða glötuðust á einhvern undarlegan hátt. Það bara gleymdist að taka afrit. En nú er NASA mætt aftur og að þessu sinni með Artemis-á...
P2: Vísindakirkjan (e. Scientology) stundar njósnir, pyntingar, heilaþvott og misnotkun á meðlimum sínum í skjóli trúfélagsskráningar | Hluti 2 06.04.2026 33:51
Í þessum síðari hluta Álhattarins um Vísindakirkjuna sökkva þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór sér enn dýpra ofan í hyldýpið í leit að svörum við því hvernig ein dularfyllstu samtök heims virka raunverulega, þegar glansmyndin fellur. Nú beina þeir vinirnir sjónum sínum að útsmogna manninum sem rændi völdum með klækjum og harðfylgi, David Miscavige, og hvernig hann breytti kirkj...
Vísindakirkjan (e. Scientology) stundar njósnir, pyntingar, heilaþvott og misnotkun á meðlimum sínum í skjóli trúfélagsskráningar 20.03.2026 28:25
Flest könnumst við við Vísindakirkjuna sem einhverskonar stórfurðuleg og dularfull samtök stjarnanna í Hollywood, þar sem Tom Cruise og John Travolta brosa framan í heiminn sem andlit hins andlega frelsis. En hvað dylst raunverulega á bak við glansmyndina, milljarða fasteignaveldið og loforðin um „að hreinsa“ mannkynið? Er mögulegt að undir yfirskini trúfélagsskráningar starfi í raun einhver þaul...
Trevor Moore úr gríneykinu Whitest Kids U' Know var komið fyrir kattarnef 06.03.2026 27:37
Flestir sem á annað borð höfðu aðgang að internetinu á fyrsta áratug þessarar aldar kannast við Trevor Moore, forsprakka grínhópsins The Whitest Kids U' Know . Trevor var ekki eingöngu ótrúlega hæfileikaríkur grínisti; hann var einn skarpasti samfélagsrýnir sinnar kynslóðar, sem notaði beittan og súran húmor til að rífa niður tjöldin hjá valdastéttinni og afhjúpa keisarann fyrir að vera ekki...
Mannkynið hefur komið upp leynilegum bækistöðvum á mars og tunglinu 20.02.2026 27:37
Í þessum þætti af Álhattinum kafa Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ofan í eina frumlegustu og furðulegustu samsæriskenningu samtímans. Hugmyndina um að mannkynið hafi í áratugi rekið háleynilegt geimáætlunarverkefni, komið upp bækistöðum á Mars og tunglinu og þjálfað svokallaða ofurhermenn(e.supersoldiers) til að þjóna í leynilegum geimhernaði. Er hugsanlegt að bandarísk yfirvöld, í samst...
P2: Geimverur hafa heimsótt jörðina og yfirvöld hylma yfir tilvist þeirra | Hluti 2 06.02.2026 22:47
Í þessum þætti af Álhattinum halda Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór áfram þar sem frá var horfið og taka aftur fyrir stóru spurninguna sem enginn virðist mega, vilja eða geta svarað almennilega. Hafa geimverur heimsótt jörðina og eru yfirvöld að hylma yfir tilvist þeirra? Frá síðasta þætti hefur margt vatn runnið til sjávar og tíðarandinn verið dulítið skrýtinn. Hugtakið UAP hefur tekið v...
Æðstu ráðamenn í Minnesota eru viðriðnir milljarða svikamyllu í fylkinu 23.01.2026 25:03
Í þessum þætti af Álhattinum kafa þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ofan í það sem sumir kalla “Minnesota svikamylluna”(e.minnesota scam). Barnagæsla sem virðist sífellt vera lokuð eða er í það minnsta með gluggum þökktum dökkum dúkum með engin raunveruleg ummerki um börn. Tugir meintra heilbrigðisþjónusta og góðgerðarstofnana, sem eru að öllum líkindum skúffufyrirtæki, skráð...
P4: Jeffrey Epstein er á lífi | Hluti 4 09.01.2026 21:43
Nýlega birti dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna fjöldan allan af skjölum tengdum viðurstyggðinni og viðrinu Jeffrey Epstein, vitorðsmönnum hans og viðbjóðnum sem þeir frömdu á eyju hans, í flugvél hans og víðar. Fjöldi og umfang yfirstrikana í skjölunum hefur vakið undrun og ugg meðal margra og fólk veltir því fyrir sér hvað sé eiginlega verið að fela og hverja sé verið að vernda. Er einungis verið...
Guðjón Heiðar er Psyop 27.12.2025 21:43
Guðjón Heiðar Valgarðsson, borgarstjóra Samsæríu og Álhatt allra álhatta, þarf vart sérstaka kynningu meðal álhugafólks um samsæri. Í hugum margra er hann orðinn eins konar samnefnari fyrir samsæri og opinber fulltrúi íslenskra samsærissinna. Maðurinn sem stendur á horninu með gjallarhornið í hendi og reynir að vara grunlausan almenning við öllu því skuggalega sem gerist bakvið tjöldin. Hann hefu...
Michael Jackson var hafður að rangri sök og var ekki barnaníðingur 13.12.2025 25:18
Michael Jackson þarf vart að kynna fyrir nokkrum.. Barnastjarnan úr Jackson 5 sem skein, líkt og Betlehemstjarnan, skærast allra stjarna. Hann skaust fram á sjónarsviðið eins og eldibrandur á barnsaldri og heillaði heimsbyggðina með bræðrum sínum og systrum. En þó Jackson 5 nytu hylli almennings þá var það ætíð Michael sem lýsti upp stjörnuhiminn og þaut um himinskautin líkt og halastjarna. Han...
P2: Allt sem þú telur þig vita um Suðurskautslandið er lygi | Hluti 2 28.11.2025 27:17
Suðurskautið hefur lengi verið sveipað mikilli dulúð og leyndardóm sem vakið hefur forvitni og furðu margra. Þetta ógnarstóra landsvæði sem er að mestu leyti hulið ís er óðafjarri öðrum löndum og svo virðist sem enginn búi á þessu annars gríðarstóra og auðuga landsvæði. Þó svo að þó nokkur lönd hafi reynt að gera tilkall til þess að eignast landið virðist svo vera sem að á einhverjum tímapunkti h...
P1: Allt sem þú telur þig vita um Suðurskautslandið er lygi | Hluti 1 14.11.2025 24:56
Það má vera að sumir kunni að halda að Suðurskautslandið sé ekkert annað en auðn, ís og mörgæsir. En svo eru til þeir sem trúa því staðfastlega að mikil leyndarmál og heill huliðsheimur sé falin á suðurskautinu og að aðgengi að Suðurpólnum sé jafn takmarkað og það er til þess að fela risastór leyndarmál sem eru talin hættuleg almenningi. Huldar stórborgir falinna heimsvelda, gífurlega tæknivædda...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.