Álhatturinn
Álhatturinn
Þrír vinir með enga sérfræðiþekkingu ræða samsæriskenningar á vitrænum og glórulausum nótum. Kostar aðeins 1290 kr. á mánuði og þú færð aðgengi að +50 þáttum af hreinni samsæriskenninga snilld 💥 ➡️ Áskriftarhlekkurinn: https://pardus.is/alhatturinn
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Artemis II tunglverkefnið var sviðsett 21.04.2026 27:55
Í yfir hálfa öld hefur mannkynið beðið eftir því að stíga aftur fæti á tunglið. Við höfum verið fóðruð á sögum af týndum gögnum og þeirri ótrúlegu staðreynd að NASA hafi hreinlega „eytt“ tækninni sem kom okkur þangað árið 1969. Teikningarnar og leiðarvísarnir týndust eða glötuðust á einhvern undarlegan hátt. Það bara gleymdist að taka afrit. En nú er NASA mætt aftur og að þessu sinni með Artemis-á...
P2: Vísindakirkjan (e. Scientology) stundar njósnir, pyntingar, heilaþvott og misnotkun á meðlimum sínum í skjóli trúfélagsskráningar | Hluti 2 06.04.2026 33:51
Í þessum síðari hluta Álhattarins um Vísindakirkjuna sökkva þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór sér enn dýpra ofan í hyldýpið í leit að svörum við því hvernig ein dularfyllstu samtök heims virka raunverulega, þegar glansmyndin fellur. Nú beina þeir vinirnir sjónum sínum að útsmogna manninum sem rændi völdum með klækjum og harðfylgi, David Miscavige, og hvernig hann breytti kirkj...
Vísindakirkjan (e. Scientology) stundar njósnir, pyntingar, heilaþvott og misnotkun á meðlimum sínum í skjóli trúfélagsskráningar 20.03.2026 28:25
Flest könnumst við við Vísindakirkjuna sem einhverskonar stórfurðuleg og dularfull samtök stjarnanna í Hollywood, þar sem Tom Cruise og John Travolta brosa framan í heiminn sem andlit hins andlega frelsis. En hvað dylst raunverulega á bak við glansmyndina, milljarða fasteignaveldið og loforðin um „að hreinsa“ mannkynið? Er mögulegt að undir yfirskini trúfélagsskráningar starfi í raun einhver þaul...
Trevor Moore úr gríneykinu Whitest Kids U' Know var komið fyrir kattarnef 06.03.2026 27:37
Flestir sem á annað borð höfðu aðgang að internetinu á fyrsta áratug þessarar aldar kannast við Trevor Moore, forsprakka grínhópsins The Whitest Kids U' Know . Trevor var ekki eingöngu ótrúlega hæfileikaríkur grínisti; hann var einn skarpasti samfélagsrýnir sinnar kynslóðar, sem notaði beittan og súran húmor til að rífa niður tjöldin hjá valdastéttinni og afhjúpa keisarann fyrir að vera ekki...
Mannkynið hefur komið upp leynilegum bækistöðvum á mars og tunglinu 20.02.2026 27:37
Í þessum þætti af Álhattinum kafa Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ofan í eina frumlegustu og furðulegustu samsæriskenningu samtímans. Hugmyndina um að mannkynið hafi í áratugi rekið háleynilegt geimáætlunarverkefni, komið upp bækistöðum á Mars og tunglinu og þjálfað svokallaða ofurhermenn(e.supersoldiers) til að þjóna í leynilegum geimhernaði. Er hugsanlegt að bandarísk yfirvöld, í samst...
P2: Geimverur hafa heimsótt jörðina og yfirvöld hylma yfir tilvist þeirra | Hluti 2 06.02.2026 22:47
Í þessum þætti af Álhattinum halda Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór áfram þar sem frá var horfið og taka aftur fyrir stóru spurninguna sem enginn virðist mega, vilja eða geta svarað almennilega. Hafa geimverur heimsótt jörðina og eru yfirvöld að hylma yfir tilvist þeirra? Frá síðasta þætti hefur margt vatn runnið til sjávar og tíðarandinn verið dulítið skrýtinn. Hugtakið UAP hefur tekið v...
Æðstu ráðamenn í Minnesota eru viðriðnir milljarða svikamyllu í fylkinu 23.01.2026 25:03
Í þessum þætti af Álhattinum kafa þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ofan í það sem sumir kalla “Minnesota svikamylluna”(e.minnesota scam). Barnagæsla sem virðist sífellt vera lokuð eða er í það minnsta með gluggum þökktum dökkum dúkum með engin raunveruleg ummerki um börn. Tugir meintra heilbrigðisþjónusta og góðgerðarstofnana, sem eru að öllum líkindum skúffufyrirtæki, skráð...
P4: Jeffrey Epstein er á lífi | Hluti 4 09.01.2026 21:43
Nýlega birti dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna fjöldan allan af skjölum tengdum viðurstyggðinni og viðrinu Jeffrey Epstein, vitorðsmönnum hans og viðbjóðnum sem þeir frömdu á eyju hans, í flugvél hans og víðar. Fjöldi og umfang yfirstrikana í skjölunum hefur vakið undrun og ugg meðal margra og fólk veltir því fyrir sér hvað sé eiginlega verið að fela og hverja sé verið að vernda. Er einungis verið...
Guðjón Heiðar er Psyop 27.12.2025 21:43
Guðjón Heiðar Valgarðsson, borgarstjóra Samsæríu og Álhatt allra álhatta, þarf vart sérstaka kynningu meðal álhugafólks um samsæri. Í hugum margra er hann orðinn eins konar samnefnari fyrir samsæri og opinber fulltrúi íslenskra samsærissinna. Maðurinn sem stendur á horninu með gjallarhornið í hendi og reynir að vara grunlausan almenning við öllu því skuggalega sem gerist bakvið tjöldin. Hann hefu...
Michael Jackson var hafður að rangri sök og var ekki barnaníðingur 13.12.2025 25:18
Michael Jackson þarf vart að kynna fyrir nokkrum.. Barnastjarnan úr Jackson 5 sem skein, líkt og Betlehemstjarnan, skærast allra stjarna. Hann skaust fram á sjónarsviðið eins og eldibrandur á barnsaldri og heillaði heimsbyggðina með bræðrum sínum og systrum. En þó Jackson 5 nytu hylli almennings þá var það ætíð Michael sem lýsti upp stjörnuhiminn og þaut um himinskautin líkt og halastjarna. Han...
P2: Allt sem þú telur þig vita um Suðurskautslandið er lygi | Hluti 2 28.11.2025 27:17
Suðurskautið hefur lengi verið sveipað mikilli dulúð og leyndardóm sem vakið hefur forvitni og furðu margra. Þetta ógnarstóra landsvæði sem er að mestu leyti hulið ís er óðafjarri öðrum löndum og svo virðist sem enginn búi á þessu annars gríðarstóra og auðuga landsvæði. Þó svo að þó nokkur lönd hafi reynt að gera tilkall til þess að eignast landið virðist svo vera sem að á einhverjum tímapunkti h...
P1: Allt sem þú telur þig vita um Suðurskautslandið er lygi | Hluti 1 14.11.2025 24:56
Það má vera að sumir kunni að halda að Suðurskautslandið sé ekkert annað en auðn, ís og mörgæsir. En svo eru til þeir sem trúa því staðfastlega að mikil leyndarmál og heill huliðsheimur sé falin á suðurskautinu og að aðgengi að Suðurpólnum sé jafn takmarkað og það er til þess að fela risastór leyndarmál sem eru talin hættuleg almenningi. Huldar stórborgir falinna heimsvelda, gífurlega tæknivædda...
Ísraelar vissu af yfirvofandi áras Hamas 7. október og leyfðu henni að gerast 31.10.2025 24:46
Hryðjuverkaárásir Hamas á Ísrael 7.Október 2023 eru einn svívirðilegasti og grimmilegasti gjörningur seinni tíma, ef ekki sögunnar. Þar sem fjöldinn allur af blásaklausum borgurum allt frá ungabörnum til gamalmenna var myrtur á hrottafneginn og viðrustyggilegan hátt af blóðheitrum öfgamönnum. Allt í nafni trúar. Síðan þá hafa geysað gífurleg átök á Gaza sem hafa kostað gífurlegt magn mannslífa úr...
Fyrirboðum um áform hulduaflanna er plantað í dægurmenningu áður en þau raungerast (e. Predictive programming) 17.10.2025 29:13
Í þessum nýjasta þætti af Álhattinum ræða Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór áhugavert fyrirbæri sem kallað hefur verið forvirk forritun(e.predictive programming), þar sem dægurmenning virðist spegla eða jafnvel undirbúa almenning fyrir atburði áður en þeir raungerast. Sagan er þannig ekki einungis skrásett og skjalfest af sagnfræðingum heldur einnig skrifuð og skipulögð af handritshöfundum...
P2: Morðið á Charlie Kirk er plott til að koma af stað borgarastyrjöld í Bandaríkjunum | Hluti 2 03.10.2025 21:22
Kæru Álhattar! Álhatturinn er kominn yfir á Pardus Hlaðvarps samfélagið og alla þætti má finna á eftirfarandi slóð: www.pardus.is/alhatturinn Við munum halda áfram að setja teasera fyrir þættina á Spotify og Apple en fyrir þau sem vilja heyra okkur kryfja málefnið til mergjar þá eru þættirnir fullri lengd á Pardusnum. Bestu kveðjur, Guðjón, Haukur og Ómar ---- Charlie Kirk var ekki bara einhver ga...
P2: Við búum í hermiveröld (e. simulation) og raunveruleiki okkar er sýndarveruleiki | Hluti 2 22.08.2025 2:03:10
Hvað ef veruleikinn er ekki raunverulegur og við sitjum föst í meingallaðir hermiveröld? Í þessum síðari þætti Álhattsins um hermiveröldina og sýndarveruleikann kafa strákarnir enn dýpra ofan í kanínuholuna og draga fram stórfurðuleg og fremur ótrúleg dæmi sem virðast benda til þess að kóðinn sjálfur sé farinn að hiksta. Eins Brady Feigl og Brady Feigl, hafnabolta mennirnir tveir með sama nafn...
P2: Leynileg klíka stefnir að New World Order eða hinni nýju heimsskipan | Hluti 2 08.08.2025 2:48:24
Í þessum síðari hluta um hina svokölluðu nýju heimsskipan, e:New World Order, halda þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór lengra ofan í kanínuholuna og skoða djúpt ofan í kjölin á kenniingunni. Hvað er eiginlega málið með alla þessa undarlegum fundi duldra áhrifavalda með skrýtna framtíðarsýn sem virðist ætluð okkur öllum án þess að nokkur hafi nokkurn tíma spurt okkur álits eða...
P1: Leynileg klíka stefnir að New World Order eða hinni nýju heimsskipan | Hluti 1 25.07.2025 2:11:40
Til er fólk sem trúir því staðfastlega að heimurinn sé í óreiðu vegna vankunnáttu, mistaka vanhæfni stjórnmálafólks eða einhverskonar náttúrulegs glundroða. En svo eru aðrir, sem sumir hafa útnefnt Álhatta, sem telja að heimurinn sé í raun þaulskipulagður af myrkum og illum öflum og að heimurin sé vísvitandi að versna vegna áætlana þessara afla. Kenningin um hina svokölluðu nýju heimsskipan „New...
P2: Mannleg losun gróðurhusalofttegunda hefur lítil sem engin áhrif á hitastig jarðar (e. climate change) | Hluti 2 21.02.2025 2:10:05
Hver hefur ekki heyrt um gróðurhúsaáhrifin, loftslagsbreytingar og hamfarahlýnun? Hina meintu og svokölluðu ógn við allt lífríki jarðar sem mun grilla mannfólkið, drekkja öllu landi undir sjó og gera gjörsamlega út af við allt sem kvikt er á jörðu niðri á næsta stundarfjórðungi, ef við förum ekki öll að hugsa okkar gang og bæta um betur. a Al Gore, Greta Thunberg, Björk og Thom Yorke geta varla öl...
P1: Mannleg losun gróðurhúsalofttegunda hefur lítil sem engin áhrif á hitastig jarðar (e. climate change) | Hluti 1 07.02.2025 2:36:41
Það eru líklega fá málefni sem hafa verið jafn áberandi í umræðunni undanfarin ár og hlýnun jarðar. Já, eða öllu heldur loftslagsbreytingar eða hamfarahlýnun eða hvað sem að fólk vill kalla þetta fyrirbrigði. Loftslagsmótmæli barna og ungmenna hafa farið fram um allan heim með hina sænsku Gretu Turnberg í broddi fylkingar. Almenningur hefur verið varaður við óafturkræfum og stóirfenglegum breyti...
P1: Við búum í hermiveröld (e. simulation) og raunveruleiki okkar er sýndarveruleiki | Hluti 1 13.12.2024 1:56:36
Hvað ef allt sem þú sérð, finnur og upplifir er ekki raunverulegt? Hvað ef veröldin sem við búum í er ekkert annað en sýndarveruleiki, fullkomlega hannaður til að blekkja skynjun okkar og halda okkur frá hinum sanna raunveruleika? Þetta er spurningin sem liggur til grundvallar hermiveraldarkenningunni (e. Simulation Theory), sem hefur vakið ófáar vangaveltur heimspekinga, vísindamanna og samsæriss...
P2: Nafnlausir póstar sem birtust á 4chan með undirrituninni Q komu frá hátt settum aðilum með náin tengsl við Trump | Hluti 2 01.11.2024 3:15:52
Í október 2017 fóru að birtast undarlegir og nokkuð dularfullir póstar undir dulnefninu Q á umræðuþráðum á síðunni 4chan. Q þessi gaf sig út fyrir að vera háttsettan aðila úr Ríkisstjórn Donald Trump og sagðist vera að koma skilaboðum beint frá Trump sjálfum til stuðnings fólks hans. Q fór mikinn um hreinsunarstarf Trump í Washington og baráttu hans gegn djúp ríkinu(e.deep state) og tilraunir hans...
P1: Nafnlausir póstar sem birtust á 4chan með undirrituninni Q komu frá hátt settum aðilum með náin tengsl við Trump | Hluti 1 18.10.2024 2:32:16
Í október 2017 fóru að birtast undarlegir og nokkuð dularfullir póstar undir dulnefninu Q á umræðuþráðum á síðunni 4chan. Q þessi gaf sig út fyrir að vera háttsettan aðila úr Ríkisstjórn Donald Trump og sagðist vera að koma skilaboðum beint frá Trump sjálfum til stuðnings fólks hans. Q fór mikinn um hreinsunarstarf Trump í Washington og baráttu hans gegn djúp ríkinu(e.deep state) og tilraunir hans...
P2: Pizzagate: Comet Ping Pong Pizza og eigandi þess, James Alefantis, er viðriðinn barnamansalshring fyrir elítuna | Hluti 2 12.07.2024 2:42:59
Í þessum síðari hluta Álhattarins, um hið umdeilda en áhugaverða mál, Pizzagate kafa þeir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór enn dýpra ofan í kanínuholuna í leit að einhverskonar sannleika eða í það minnsta áhugaverðri umræðu. Þeir skoða undarlegar og tvíræðar færslur og ummæli James Alefantis, eiganda Comet Ping Pong, á samfélagsmiðlum, sem þykja í besta falli vafasamar ef ekki hreint ú...
P1: Pizzagate: Comet Ping Pong Pizza og eigandi þess, James Alefantis, er viðriðinn barnamansalshring fyrir elítuna | Hluti 1 28.06.2024 2:11:12
Í Október og Nóvember 2016 birtu Wikileaks fjölda tölvupósta úr persónulegu tölvupóstfangi John Podesta, kosningastjóra Hillary Clinton. Fljótlega lagðist fólk, og þá kannski sérstaklega úr röðum andstæðinga Hillary, yfir tölvupóstana og hóf leit að einhverju bitasstæðu og krassandi sem mögulega mætti nýta til þess að koma höggi á Hillary. Ekki leið á löngu þar til fólk áttaði sig á að það væri...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.