Álhatturinn

Álhatturinn

Arts EN ↓ 72 Folgen

Þrír vinir með enga sérfræðiþekkingu ræða samsæriskenningar á vitrænum og glórulausum nótum. Kostar aðeins 1290 kr. á mánuði og þú færð aðgengi að +50 þáttum af hreinni samsæriskenninga snilld 💥 ➡️ Áskriftarhlekkurinn: https://pardus.is/alhatturinn

Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: www.buzzsprout.com

Autor

Álhatturinn

Kategorie

Arts

Podcast-Website

www.buzzsprout.com

Neueste Folge

11. Sep 2026

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android fast 10 Mio. Downloads · Bewertung 4,7+ iOS bald

Folgen

Avril Lavigne er dáin eða horfin og staðgengill hennar er loddari 11.09.2026

Í þessum þætti af Álhattinum ræða Guðjón, Haukur Ísbjörn og Ómar þá umdeildu en jafnframt áhugaverðu kenningu að kanadíska tónlistarkonan Avril Lavigne sé dáin eða horfin og í stað hennar sé komin staðgengill eða jafnvel klón. Sérstakur málsmetandi gestur þáttarins er stjórnmálafræðingurinn Viktor Orri Valgarðsson sem gefur sitt álit á kenningunni. Fólk skiptist í fylkingar. Sumir segja kenninguna...

P1: Geimverur hafa heimsótt jörðina og yfirvöld hylma yfir tilvist þeirra | Hluti 1 11.09.2026

Í þessum þætti af Álhattinum ræða Guðjón Heiðar, Haukur ísbjörn og Ómar hvort geimverur hafi heimsótt jörðina og yfirvöld hilmi yfir tilvist þeirra. Öll höfum við horft uppí stjörnubjartan næturhiminn og velt fyrir okkur hvort við séum ein í þessu sólkerfi, þessari vetrarbraut, þessum alheim. Eru geimverur til? Eru þær greindar eða bara einfaldar örverur? Hafa þær heimsótt jörðina? Ef svo er, hvar...

Titanic var grandað vísvitandi af klíku auðjöfra sem svífast einskis 11.09.2026

Hver kannast ekki við söguna um Titanic? Stærsta og glæsilegasta skipi sögunnar sem sigldi á ísjaka og sökk í sinni jómfrúarsiglingu frá Southampton í England til New York í Ameríku? En er sagan sönn?  Í þessari viku ræða félagarnir í Álhattinum lítt þekkta og ef til vill umdeilda samsæriskenningu um afdrif og örlög Titanic.  Getur verið að Titanic hafi í raun aldrei farist og að  um annað skip ha...

Leynireglan Illuminati er raunveruleg og stjórnar heiminum á bakvið tjöldin ▲ 11.09.2026

Í þessum þætti af Álhattinum ræða Guðjón, Haukur Ísbjörn og Ómar það sem sumir kalla samsæriskenningu allra samsæriskenninga, er leynireglan Illuminati til og stjórnar hún heiminum? Til eru hin ýmsu leynifélög og reglur um allan heim með misjafnlega göfug eða yfirlýst markmið. Næstum öll höfum við einhverntímann heyrt talað um félög einsog Skulls & Bones, templarana, frímúrara ofl. En þekktast...

Díana prinsessa var ráðin af dögum að undirlagi Bresku konungsfjölskyldunnar 11.09.2026

Diana Frances Spencer, betur þekkt sem Díana prinsessa af Wales, var ein þekktasta og dáðasta kona veraldar seint á síðustu öld. Hún giftist Karli, þá bretaprinsi og nú konungi, í júlí 1981 og naut hún strax mikilla vinsælda á Bretlandseyjum og víðar. Hjá að er virtist öllum nema konungsfjölskyldunni. Samband hennar og Karls var strax frá upphafi mjög óhamingjusamt og stormasamt og fljótt fóru að...

Háþróuðum örbylgjuvopnum var beitt til að kveikja skógareldana á Maui 11.09.2026

Í nýjasta þætti Álhattarins velta Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór fyrir sér þeirri glænýju og afar áhugaverðu samsæriskenningu að háþróuðum örbylgjuvopnum hafi verið beitt til þess að kveikja skógareldana á Maui og þá hvers vegna? Skógareldarnir á Maui, Hawaii, sem áttu sér stað síðsumars og í haust 2023 eru sagðir vera umfangsmestu skógareldar í sögu Hawaii og mestu náttúruhamfarir sem...

Handritshöfundar The Simpsons eru með dulda vitneskju um atburði framtíðarinnar, sem þau setja í þættina sína 11.09.2026

Sjónvarpsþættirnir um Simpsons fjölskylduna eru einhverjir farsælustu þættir allra tíma og lang langlífustu þættir sem sýndir eru í dag. Í rúm 30 ár hefur þessi gula og skondna vísitölufjölskylda og aðrir bæjarbúar Springfield skemmt áhorfendum með alls vitleysu og uppátækjum og mótað skopskyn fleiri kynslóða.   Út um allt á internetinu má finna greinar og myndbönd um allskonar atburði sem höfunda...

Eigendur Manchester City hafa óeðlileg áhrif á dómgæslu ensku úrvalsdeildarinnar í krafti auðæfa sinna 11.09.2026

Hvort sem fólk hefur áhuga á knattspyrnu eður ei, þá höfum við líklega flest heyrt um spillinguna og það bilaðslega magn peninga sem flæðir innan knattspyrnu hreyfingarinnar. Löngum hefur verið rætt um að peningar séu að eyðileggja íþróttina og að leikmenn séu á allt of háum launum sem séu úr takt við allan raunveruleika. En þó líklega aldrei eins mikið og eftir að olíufurstar og fjárfestingarsjóð...

Tungllending Bandaríkjamanna árið 1969 var sviðsett 11.09.2026

Tungllending Bandaríkjamanna árið 1969 er að margra mati eitt stærsta afrek mannkynssögunnar eða í það minnsta mesta tækniundur 20.aldarinnar. En einnig eru til þeir einstaklingar sem einfaldlega kaupa ekki opinberu skýringuna og hreinlega neita því að mannfólk hafi nokkurn tíma stigið fæti á tunglið. Í huga þessara Álhatta var einungis um einn allsherjar blekkingarleik og sjónarspil í boði Hollyw...

Hamskiptandi eðlufólk er meðal vor og gegnir áhrifastöðum í öllum krókum og kimum samfélagsins 11.09.2026

Hvað eiga Katy Perry, Karl Breta konungur, Justin Bieber, George Bush og Bill Clinton sameiginlegt? Þau eru öll eðlufólk ef eitthvað er að marka David Icke og fylgjendur hans.  En hvað er eiginlega eðlufólk og hvaðan kemur það?  Hvernig getum við aðgreint þau frá öðru fólki og hvað gengur þeim eiginlega til?  Kenningin um eðlufólkið, sem stundum er kallað geimeðlur, er líklega ein af furðulegri sa...

WEF stefna á hinu stóru endurræsingu (e. Great Reset) á fölskum forsendum 11.09.2026

Til eru fjölmörg samtök fyrir ríka, fræga og fína til þess að hittast, ræða málin fá sér einn til tvo kokteila og mynda tengsl.  En þekktust og alræmdust slíkra samtaka eru líklega WEF (World Economic Forum). Yfirlýst markmið þessara samtaka er iðulega að auka samvinnu, sjálfbærni og draga úr alls kyns hindrunum sem mögulega gætu staðið í vegi fyrir frekari þróun mannkyns. Það þarf að tryggja efna...

Tæknin til að klóna fólk er raunveruleg og stjörnum & stjórnmálafólki hefur verið skipt út 11.09.2026

Árið 1996 var kindin Dolly klónuð fyrst allra dýra. Í kjölfarið vöknuðu allskyns siðferðis og álita spurningar um klónanir og afskipti og íhlutanir mannsins af náttúrunni almennt. Stuttu síðar var klónun manna bönnuð í Bandaríkjunum og í kjölfarið fylgdu flestar aðrar þjóðir heims í fóstbor þeirra.  En getur verið að þrátt fyrir blátt bann við klónun manna hafi fólk samt verið klónað? Hvað ef að f...

Aaron Swartz stofnanda Reddit var komið fyrir kattarnef af andstæðingum málfrelsis 11.09.2026

Aaron Swartz einn stofnanda Reddit var sínum tíma, af mörgum talinn, einn fremsti forritari og hugsjónamaður heims, sem barðist af fullum þunga fyrir auknu tjáningarfrelsi, frjálsara interneti og betri veröld. Ungur að árum vakti hann athygli fyrir gífurlegar gáfur og forritunar hæfileika og sem dæmi má nefna að strax á unglingsaldri átti hann þátt í að þróa RSS staðalinn og seinna var hann m.a hl...

Samráð milli plötufyrirtækja & einkarekinna fangelsa í BNA ýtti vísvitandi undir vinsældir bófarapps (e. Gangsta Rap) 11.09.2026

Bófarapp (e. Gangsta Rap) naut mikilla vinsælda á 10.áratug síðustu aldar og þá sér í lagi undir lok áratugarins. Menn einsog 2pac, Biggie Smalls og Coolio nutu mikilla vinsælda og sveitir á borð við Wu Tang Clan og Cypress Hill ómuðu á öldum ljósvakans.  Líf og lífstíll glæponsins sem síslaði með ýmis eiturlyf og aðra glæpi og hreykti sér svo af því í textum sínum þótti eftirsóknarvert og kvikmyn...

Stórfótur (e. Bigfoot) er til 11.09.2026

Hver kannast ekki við að hafa heyrt eða lesið sögur um stórfót hinn ógurlega, eða sambærilega veru? Einhverskonar risavaxinn og kafloðinn mannapa sem gengur uppréttur og virðist ráfa um mannheima hrellandi fólk og ýmsan búfénað á afskekktum svæðum? Til eru mýmargar sögur víðvsvegar um heiminn af fjöldanum öllum af stórfótum allt frá Bandaríkjunum og Kanada til Ástralíu, Namibíu og Braselíu og víða...

Valdarán á Seðlabanka Bandaríkjanna leiddi af sér algjöra stjórn á landinu 11.09.2026

Seðlabanki Bandaríkja Norður-Ameríku (e. federal reserve) hefur löngum verið umdeild stofnun sem mikið hefur verið karpað um. Sú staðreynd að bankinn sé í einkaeigu fremur en ríkiseigu þykir afar sérstakt og hefur margur álhatturinn bent á að slíkt hljóti að teljast í hæsta máta óeðlilegt. Hversvegna ættu einkaaðillar að fá að stjórna magni og flæði peninga í hagkerfinu fremur en ríkið sjálft og h...

Jörðin er flöt 11.09.2026

Getur í raun verið að jörðin sé ekki hnöttur og að geimvísindastofnanir Bandaríkjanna og Evrópu og vísindasamfélagið í heild sinni sé vísvitandi að blekkja okkur? Hvað ef að geimurinn er hreinlega ekki til og þetta er allt saman eitt stórt sjónarspil og svikamylla fégráðugra einstaklinga? Ef eitthvað er að marka flatneskjufræðinga og ákveðna Álhatta á borð við Eric Dubay, Mark Sargent og Patricia...

Nýlenduherrar létu granda flugvél Dag Hammarskjöld, framkvæmdastjóra Sameinuðu Þjóðanna 11.09.2026

Dag Hammerskjöld, framkvæmdarstjóri sameinuðu þjóðanna, lést er flugvél hans og fylgdarmanna hans, fórst á leið til friðarviðræðna í Kongó 18.September 1961. Upphaflega var talið að mistök flugmansins eða veðuraðstæður leitt til þess að flugvélin brotlenti, en fljótlega fóru að renna tvær grímur á fólk og ýmsa fór að gruna að ekki væri allt með felldu og mögulega væri þarna eitthvert óreint mjöl í...

Paul McCartney lést í bílslysi árið 1966 og var skipt út fyrir loddara 11.09.2026

Flest könnumst við eflaust við Bítlana, eina vinsælustu og sigursælustu hljómsveit allra tíma, sem fór sigurför um heiminn um miðbik síðustu aldar.  Þeir félagarnir George, John, Paul og Ringo, stofnuðu hljómsveitina í Liverpool á Englandi árið 1960 og voru nánast í Guðalíki á tímabili og þá sér í lagi hjá unga fólkinu. Plötur þeirra seldust í bílförmum og hvert sem þeir fóru voru þeir eltir á rön...

Efnarákum (e.chemtrails) er spreyjað í andrúmsloftið án vitneskju almennings, með annarleg markmið að leiðarljósi 11.09.2026

Hvaða rákir eru þetta sem  standa aftan úr þotum og flugvélar, sem þekja himininn?  Er þetta einfaldlega saklaust samanþjappað loft og raki eða eru einhverjir illa innrættir fantar og fúlmenni, með annarlegar hvatir, mögulega að dreifa einhverjum hroðbjóði í andrúmsloftið? Ef svo er, hverju er verið að spreyja og hversvegna?  Ganga þessir aðilar erinda lyfjarisa og tryggingafélaga, sem hagnast ver...

Dularfullt andlát Kurt Cobain var ekki sjálfsvíg, heldur skipulagt morð 11.09.2026

Ef þú ólst seint á síðustu öld þá manstu eflaust eftir söngvaranum Kurt Cobain og hljómsveit hans Nirvana. Fáar, ef einhverjar, hljómsveitir höfðu jafn mikil áhrif á tónlistarsmekk tíunda áratugarins og meðlimir sveitarinnar voru dýrkaðir og dáðir af síðhærðum unglingum í snjáðum gallabuxum um allan heim.  Gruggið(e.grunge rock) tröllreið gjörsamlega  öllu á tímabili og þar fóru Nirvana svo sannar...

Mandela áhrifin eru raunveruleg, og eru ekki afleiðing sameiginlegra falsminninga 11.09.2026

Manstu þú eftir því þegar Nelson Mandela dó í fangelsi? Eða eftir myndinni Shazaam með Sinbad? Ef svo er þá ert þú ertu mögulega víddaflakkari eða einfaldlega eitthvað að misminna.  Þó að mörg hver okkar munum kannski ekki eftir dauða Nelson Mandela í fangelsi eða myndinni Shazaam með Sinbad þá er til fólk sem á mjög sterkar og ljóslifandi minningar af þessum hlutum og fjölmörgum öðrum hlutum sem...

Dauði Adolf Hitler var sviðsettur, hann lifði af og flúði til Argentínu 11.09.2026

Adolf Hitler er líklega eitt þekktasta illmenni og fauti mannkynssögunnar. Framganga hans og nasista sveita hans í seinni heimsstyrjöldinni var ekki beint til fyrirmyndar og hvorki þeim né neinum öðrum til framdráttar. Milljónir saklausra borgara létu lífið að ósekju vegna galinna ranghugmynda Hitlers og fylgisveina hans, sem vildu draga fólk í dilka eftir kynþætti og útrýma þeim sem þeir álitu óæ...

Hollywood og Netflix eru heilaþvottavélar hulduaflanna 11.09.2026

Kvikmyndir og sjónvarpsþættir eru gífurlega vinsælt afþreyingarefni og líklega eftirsóttasta dægurmenning samfélagsins. Iðnaðurinn veltir gífurlegum fjárhæðum og 5 stærstu kvikmyndaverin í Hollywood hafa ótrúlega mikil tök á samfélaginu öllu og ráða að stærstum hluta hvaða efni á upp á pallborð og erindi við almenning og hvað ekki.  Almenningur drekkur í sig þessa afþreyingu og hámhorfir af áfergj...

Valdastéttin mótar menntakerfið til að framleiða undirgefna borgara 11.09.2026

Stundum er sagt að mennt sé máttur og góð menntun sé lykillinn að árangursríku og góðu lífi. Nám erv vinna og vinnan göfgar manninn, ekki satt?  En hvaðan kemur menntakerfi okkar og á hvaða grunni eða hugmyndafræði er það byggt? Er markmið yfirvalda að undirbúa okkur öll sem best fyrir lífið svo við höfum sem mesta möguleika opna á vinnumarkaði og tilgangurinn að tryggja sem flestum velgengni eða...

Höre den Podcast Álhatturinn in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet