Á ég að hend'enni?

Á ég að hend'enni?

Comedy IS ↓ 72 episodes

Halldóra Geirharðsdóttir og Steinunn Ólína hafa marga fjöruna sopið, stundum saman, stundum sundur. Nú í miðju lífsins er tiltekt innra jafnt sem ytra efst á baugi og því ætla þær að bera saman bækur sínar í orðsins fyllstu merkingu.  Þær ætla að byrja á því að gera rassíu í bókaskápunum. Skilja sauði frá höfrum, finna gersemar og handsama lygaþvælu og rusl.  Í hverjum þætti draga þær fram skruddur og meta hvort nauðsynlegt sé að eiga skræðuna áfram, hvort lærdómur hafi verið meðtekinn eða alls ekki.  Fer hún í öndvegi, í Hirðinn, eða er öruggast að brenna hana á báli? Rannsóknarspurningin er:...

Author

Á ég að hend'enni?

Category

Comedy

Podcast website

www.buzzsprout.com

Latest episode

Feb 4, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

21. Ég bið að heilsa eftir Inga T. (Söngbókin) 19.02.2025

Send us Fan Mail Er Halldóra gerviflautuleikari  eða alvöruflautuleikari, þar er efinn! Finnst öllum gaman að dansa?  Hver vill vera athyglissjúka leikkonan sem lætur á sér bera á viðburðum annara?  Steinunn deilir því að amma hennar hnerraði sjö sinnum en er augljóslega eftirbátur hennar því í þættinum hnerrar hún aðeins fimm sinnum. Er það forboði um eitthvað? Ferðasöngbók er til umræðu enda ætt...

20. Bylting miðaldra þjónustufulltrúa..kvenna (Birna, Rósa, Bára) 12.02.2025

Send us Fan Mail Eru konur alltaf að gerast þjónustufulltrúar án þess að gera sér grein fyrir því? Halldóra og Steinunn vilja nýja vængi enda búnar að vera þjónustufulltrúar í þrjá áratugi. Halldóra er meira miðaldra en Steina því hún heldur að það heiti ,,að larpa“ þegar unglingar eru ,,að lana.“ Eru barnaherbergi og stærð þeirra misskilningur frá upphafi til enda?  Um það tjáir Steinunn sig enda...

19. Hugleiðsla, Botox og betri líðan (Hugleiðsla) 05.02.2025

Send us Fan Mail Flensa dró Steinunni nær til dauða og henni batnaði ekki fyrr en henni höfðu verið færðir svo margir blómvendir að heimilið minnti á líknardeild. Dóra vænir vinkonu sína um að hafa farið í botox en Steinunn segir þetta nýja 'look' stafa af massívum varaþurrk. Báðar gangast vinkonurnar við útlitsröskun en spurningin er; Afhverju byrjar svona geðveiki að búa um sig? Dóra l...

18.Einu sinni langaði okkur að gerast Dýragarðsbörn (Christiana F) 29.01.2025

Send us Fan Mail Unglingsárin einkenndust af hangsi á Hressó og reykingum í sjoppum en aðal fyrirmyndin var ungur heróínisti frá Berlín, Kristjana F.  Var bókin um hana forvörn eða fyrirmynd? Ekki alveg gott að segja en Halldóra fór á söguslóðir bókarinnar sem ung stúlka enda lærdómsfús með endemum. Takk fyrir samstarfið: Íslandsbanki, Icelandair, Hagkaup og Alfreð atvinnumiðlun. Support the show

17. Ég negli og saga og smíða mér bát (Í kjölfar Kríunnar) 22.01.2025

Send us Fan Mail Í kjölfar kríunnar, er bók sem breytti lífi Dóru og hafði mikil áhrif á Steinunni líka. Dóra komst að því við lestur bókarinnar að hún hugsaði of smátt og að hún ætti ekki að láta neitt stoppa sig í að láta drauma sína rætast. Steinunni finnst alltaf gaman að vakna þótt þyrmt geti yfir hana stuttu síðar. Dóra talar um frelsið sem hún upplifir á skíðum en nennir ekki að tala um það...

16. Manngerðirnar og baslið eilífa við egóið (Manngerðirnar) 14.01.2025

Send us Fan Mail Steinu fannst á unglingsárunum Dóra alltaf vera há og spengileg á meðan hún upplifði sig sem litla kiðfætta buddu. Dóra segir Ólöfu Skaftadóttur vera alvöru knattspyrnukonu en sjálf hafi hún aðeins leikið handboltamanneskju. Steinunn hefur gaman af kvartsáru fólki upp að ákveðnu marki en Dóra hefur litla elsku fyrir slíku. Ef sá sem kvartar fer í taugarnar á manni þá hlýtur sá hin...

15. Spáðu í mig... þá mun ég spá í þig (Spámaðurinn) 09.01.2025

Send us Fan Mail Rósir eru sköpunarverkið sjálft enda er rósin tvíkynja. Og fíflið í Tarot heldur á rós sem sannar þvælukenningar Steinunnar um að við séum í raun öll rósir eða meðlimir í Rósareglunni. Halldóra umber kjaftæði Steinunnar og rifjar upp road-trip þeirra vinkvennanna en þá var með í för kynlífsdúkkadúkkuna Nína sem var gerð ódauðleg í tónlistarmyndbandi hljómsveitarinnar Oxzmá. Dóra v...

14. Spáum í spilin 2025 (Áramóta spá) 01.01.2025

Send us Fan Mail Steinunn er afburða beinþýðandi á meðan Halldóra fattaði á ögurstundu hvað hún er léleg í ensku. Köttur hefur hægðir í beinni. Tsjíkú-ví er ákall til kakaóguðsins og það skal hrópa þegar drukkið er alvöru- kakaó sem að þessu sinni er bragðbætt með stjörnuanís og einhverju sem enginn getur munað hvað heitir! Mun bókin deyja drottni sínum í framtíðinni eða er myndmálið það sem koma...

13. Jólaóratoría Steinunnar og Halldóru (Biblían, jólaguðspjallið) 24.12.2024

Send us Fan Mail Þetta mun þegar fram líða stundir verða valinn jólalegsti jólaþáttur allra tíma. Halldóra beygir af yfir Jólaguðspjallinu, Steinunn er engu skárri og þusar eitthvað í gegnum tilinningasemina sem grípur þær báðar. Saman sitja þær vinkonurnar, hámiðaldra, jóla yfir sig og ræða fæðingu frelsarans. Barn allra barna. Og auðvitað ástina skilyrðilslausu. Takk fyrir samstarfið Íslandsbank...

12. Guðsríki er að velja sér góða leikfélaga (Jólin koma) 22.12.2024

Send us Fan Mail Steinunn syngur Disney lög með börnunum sínum því henni misfórst að kenna börnum sínum íslensku jólalögin þegar hún bjó í Bandaríkjunum. Hversu mikilvægt er að eiga góða leikfélaga? Er það himnaríki þegar maður á slíkan? Halldóra var alveg frjáls til að gerast poppari á meðan að í ljós kemur að Steinunn þorði alls ekki að leggja slíkt fyrir sig. Takk fyrir samstarfið Íslandsbanki,...

11. Hvar er boðið upp á svæfingar á hárgreiðslustofum? (Jólagrauturinn) 18.12.2024

Send us Fan Mail Halldóra var rétt um tvítugt þegar hún byrjaði að grána og nennur ekki að lita á sér hárið. Einu sinni hljóp kona þvert yfir götu til að ráða henni heilt í þeim efnum. Steinunni finnst svo leiðinlegt á hárgreiðslustofum að hún óskar þess að klippingu væri hægt að fá undir svæfingu. Hvernig stendur á því að börn eru svona treg að hjálpa til, eru þau kannski bara útgáfur af okkur sj...

10. ...Þau verða leið á lestri í bók, en lángar að sofa hjá...(Brot frá Laxnes) 11.12.2024

Send us Fan Mail Í þessum þætti er það ástin og augun og ástin í augunum. Hvað má sjá í augum þeirra sem eldri eru...? Steina heldur að hún gæti verið dóttir leikarans Marty Feldman af því að hún er með svo útstæð augu en Dóra er örugglega dóttir foreldra sinna. Steina kann ljóð utan að sem Dóra kann ekki en það kemur ekki að sök því þær hafa báðar fengið hrós fyrir að vera vel máli farnar. Er hæg...

9. Eru öll börn dramadrottningar? (Dísa Ljósálfur) 06.12.2024

Send us Fan Mail Dísa Ljósálfur var mikill örlagavaldur í lífi Steinunnar Ólínu enda sólgin í drama en eru þær bækur sem við lásum í æsku áhrifavaldar í lífi okkar sem fullorðinna kvenna? Dóru er tíðrætt um froska og glæpastorka...verðum við ekki að læra að skilja og elska glæpadýr líka, því erum við ekki öll bæði vond og góð? Steinunn og Halldóra eru alveg sammála um eitt; það er glatað að láta k...

8. Það er of mikið pláss fyrir ofan höfuðið á okkur! (Jóhannes úr Kötlum) 04.12.2024

Send us Fan Mail Dóra er með hendur ömmu sinnar– en af afhverju vill hún ekki mála sig?  Steina þarf að hætta að vera hávær og að misþyrma lyklaborðum en Dóra getur ekki þegar eggin kenna hænunni. Kötturinn Pablo sem er úr Dölunum dregst að ljóðskáldinu Jóhannesi úr Kötlum. Steina er ekki sátt við að þátturinn sé að breytast í virðulegan bókmenntaþátt en Dóru finnst það flott og segist geta klippt...

7. Nennir einhver að kenna köttum mannasiði? (Hámarks Árangur) 26.11.2024

Send us Fan Mail Halldóra dregur upp handbók sem breytti lífi hennar en hún man ekki hvernig. Steinunn vill ekki ná árangri í lífinu. Hvernig á að vera ekki alltaf í viðbragsstöðu ef kötturinn þinn kemur fram við þig eins og þú sért vinnukona. Hvers vegna eru börn nútímans förðunarfræðingar? Takk fyrir samstarfið  Icelandair, Hagkaup og Alfreð atvinnumiðlun Support the show

6. Helvíti er engin skemmtiganga! (Mahabarata Indiandia) 23.11.2024

Send us Fan Mail 100.000 erindi er slatti en fólk hafði svosem nægan tíma í eld eld gamla daga. Hvernig er í neðsta víti Dantes? Er maður þar botnfrosinn til eilífðar eða er leið fær til að losna út úr myrkrinu og finna leiðina í paradís. Smá átök en upprisan er freistandi og mannbætandi. Í ilmvötnum eru olíur sem leiða aðrar olíur og gera það að verkum að ilmvötn endast og endast á manni. Kannski...

5. Jónas í hvalnum og hvað ef Oliver Twist væri Guðmundsson? (Orwell og Engill meðal áhorfenda) 20.11.2024

Send us Fan Mail Jesúbarnið er um það bil að fæðast undir Úranusi og vitringarnir eru stressaðir. Vill María gull, reykelsi og myrru eða vill hún kannski bara fá að vera í friði?  Það er ekki gaman að vera fastur í hvalsmaga, það veit Jónas öðrum betur.  Kynæsandi örleikrit dregur fram hliðar í persónuleika Halldóru sem ekki hafa sést áður. Steinunn spyr hvernig það hefði verið, hefði Oliver Twist...

4. Bráðum munu allir vilja halda upp á afmælið sitt í Hvalfjarðargöngunum (Papalangi) 13.11.2024

Send us Fan Mail Gætu Íslendingar vanist því að hafna búningum lífsins og ganga um naktir? Matvöruverslanir á föstudegi, sjáið þetta fyrir ykkur? Tæknihornið hefur göngu sína því þegar konur sem eru búnar með einn þriðja af ævinni búa til podcast þurfa þær að gefa sig tækninni gjörsamlega á vald. Dóra deilir reynslusögu sem má ekki fara lengra. Hvað getum við lært af frumbyggjaþjóðum? Allt og meir...

3. Hvernig getum við vitað hvern við eigum að éta og hvern ekki? (Ljóna bókin) 09.11.2024

Send us Fan Mail Í þessum þætti eru sálfræðingshæfileikar katta ræddir því heimili án katta er eins og spítali án hjúkrunarfræðinga. Steinunni dreymdi um að vera tökubarn og Halldóra ætlar að standa fyrir hópfjármögnun fyrir vísindagrein sem staðfestir með óyggjandi rökum að hún sé besta leikkona í heimi. Eru öll dýrin í skóginum vinir, já þangað til þeir taka upp á því að éta vini sína. Eru þau þ...

2. Andardráttur og myrku öflin (Andardráttur og Mein Kampf) 05.11.2024

Send us Fan Mail Í þessum þætti ræða þær Steinunn Ólína og Halldóra mikilvægi þess að draga andann, nokkuð sem flestir gera hugsunarlaust. það kemur í ljós að áralangt svefnleysi Steinunnar stafaði af nálægð við hræðilega bók sem olli straumhvörfum í mannkynssögunni en hvað á að gera við hræðilegar skruddur, brenna þær, éta þær, selja þær eða...vá nú er vandi á höndum. Takk fyrir samstarfið Alfreð...

1. Er bókaskápurinn spegill sálarinnar? (Trevor Noha, Glæpur við fæðingu) 05.11.2024

Send us Fan Mail Í þessum þætti podcastsins  – Á ég að hend'enni – drekka þær vinkonurnar Halldóra Geirharðsdóttir og Steinunn Ólína, sparneytið myntuvatn, þvælast um S-Afríku og Los Angeles, ræða barnauppeldi eða kannski ofeldi og kafa ofaní bókaskápa hvor annarrar þar sem bók Trevor Noah, Glæpur við fæðingu, kemur við sögu. ATH! Óheimilt er að vinna fréttir upp úr efni þáttanna fyrir prent...

Teaser 31.10.2024

Send us Fan Mail Fyrsti þáttur kemur út á miðvikudaginn 6. nóv! Support the show

Listen to the Á ég að hend'enni? podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.