Á ég að hend'enni?

Á ég að hend'enni?

Comedy IS ↓ 72 episodes

Halldóra Geirharðsdóttir og Steinunn Ólína hafa marga fjöruna sopið, stundum saman, stundum sundur. Nú í miðju lífsins er tiltekt innra jafnt sem ytra efst á baugi og því ætla þær að bera saman bækur sínar í orðsins fyllstu merkingu.  Þær ætla að byrja á því að gera rassíu í bókaskápunum. Skilja sauði frá höfrum, finna gersemar og handsama lygaþvælu og rusl.  Í hverjum þætti draga þær fram skruddur og meta hvort nauðsynlegt sé að eiga skræðuna áfram, hvort lærdómur hafi verið meðtekinn eða alls ekki.  Fer hún í öndvegi, í Hirðinn, eða er öruggast að brenna hana á báli? Rannsóknarspurningin er:...

Author

Á ég að hend'enni?

Category

Comedy

Podcast website

www.buzzsprout.com

Latest episode

Feb 4, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

46. Alversti eða besti þátturinn hingað til! (Konur og ástir, Nýja testamentið) 13.08.2025

Send us Fan Mail Það kveður við nýjan tón í þessum þætti þar sem Halldóra gerist djörf hvað innslög og klippingar varðar. Hljóðið í þættinum reyndist ekki vera fullkomið og því þurfti að bútasauma þáttinn eins og handverkskonum einum er lagið. Útkoman – algjör nýlunda í hlaðvarpsþáttagerð á Íslandi ef ekki í heiminum!  En tvær bækur koma við sögu þessu sinni, sem lesið er úr af handahófi verða því...

45.Partý, partý, partý! Öll Heimsins partý! 06.08.2025

Send us Fan Mail Halldóra er skemmtanasjúk og kemur með partýbók og Steinunni langar strax á kjötkveðjuhátíðina í Ríó. Verður Freezing Man svar Íslands við Burning Man in the US of A!? Það er óviðeigandi hvað Halldóra talar mikið og oft um það að hún vilji vera allsber, hvað gengur konunni til? Báðar hafa þær verið Fjallkonur og þurfa að rifja upp þá óhæfu að Steinunn hafði verið fjallkona eftir m...

44. Breytum bulli í gull (Kría siglir um suðurhöf) 30.07.2025

Send us Fan Mail Ef við byggjum í landi þar sem bara er hægt að týna ávexti sér til matar sem nota á samdægurs því annars myndi allt skemmast þá yrði okkur aldrei kalt en þannig er það í Frönsku -Pólónesíu þar sem Halldóra dvaldi ásamt fjölskyldu sinni. Sjöl eru mesta þarfaþing á ferðalögum en í þessum þætti má læra um notagildi sjala í tískuinnslagi frá Dóru. Ýmislegt er rætt um gleraugu í þessum...

43. Þar sem háir hælar hálfan dalinn fylla (Leikrit eftir AI og Ljóð eftir RUMI) 23.07.2025

Send us Fan Mail Tröllskessurnar Fossatussa og Fjallatussa létu AI skrifa fyrir sig leikrit og um það skal fátt sagt utan það að það er ansi lélegt en stóra spurning dagsins er: Ertu dropinn í hafinu eða hafið í dropanum? Er auðveldara að vera allt en að vera eitthvað afskaplega smátt?  Töluverð hætta virðist vera á því að Steinunn sé að gerast súfisti því hún leggur nú stund á snúningsdans sem ke...

42. Fjallatussur og hin guðdómlegi kvenleiki (Gullkorn úr íslenskum bókmenntum) 16.07.2025

Send us Fan Mail Þessi þáttur er tekin upp á uppáhalds hang-outi þeirra vinkvenna, andlega menningarheimilinu Mama í bakarabrekkunni. Nú er loks hægt að velta fyrir sér kvenleikanum þar sem þær eru báðar komnar fram yfir síðasta söludag og í Halldóru er að fæðast fjallatussa. Ljósu og dökku hliðar kvenleikans og karlmennskunnar eru krufnar til mergjar enda löngu komin tími til að í það mál allt fá...

41. Þrettán vasaklúta þáttur (Bróðir minn Ljónshjarta e. Astrid Lindgren) 09.07.2025

Send us Fan Mail Steinunn fór í fyrra lífi i fyrralífslestur og reyndist hafa verið svört ambátt og breskur grasafræðingur seint á 18. öld. Halldóra reynist vera frambærileg á kínversku enda downloadar hún bara tungumálum í gegnum Akashic-skjölin og svo var hún náttúrlega Kínverji í fyrra lífi að sögn. Konur eru að taka yfir heilbrigðiskerfið enn og aftur enda eru það ætíð þær sem sjá um aðhlynnin...

40. Nærföt útfararstjórans og The 4 fucks (Speki Konfúsíusar) 02.07.2025

Send us Fan Mail Það kemur í ljós að Steinunn átti nærfataskúffu sem hæfði útfararstjóra en hefur nú, af því að hún las það einhverstaðar, kannski á Smartlandi, að það væri hollara að klæðast glaðari litum næst sér. Halldóra byrjaði hinsvegar að klæðast björtum litum í hruninu og dvaldi langdvölum með fjölskyldu sína í sundlaugum Reykjavíkur til að forðast skarkala heimsins. Ef þetta hljómar undar...

39. Að selja sig eða selja sig ekki (Spámaðurinn Kahil Gibran) 25.06.2025

Send us Fan Mail Að vera þræll markaðarins en vilja það eiginlega ekki er efst baugi. Stöllurnar Steinunn og Halldóra viðurkenna á sig vandræðagang miðaldra kvenna sem reyna að fóta sig á samfélagsmiðlum í ýmsum tilgangi. Þær leggjast svo lágt að biðla til hlustenda að dreifa fagnaðarerindinu þ.e podcasti þeirra - ekki er öll vitleysan eins. Sálarferðalagið er áfram til umræðu enda eru allir í rus...

38. Er sálin á eilífðarferðalagi? (Feður og synir e. Ivan Sergeyevich Turgenev) 17.06.2025

Send us Fan Mail Halldóra er að spá í vaxtarferðalag sálarinnar og hvar hún sjálf er stödd í því ferðalagi. Steinunn heldur því fram að í verönd hverrar manneskju búi þrír þræðir innra barnið, innra foreldrið og svo hið innra fullorðna sjálf. Þær eru óvanalega djúpar og einlægar í þessum þætti. Já það má segja að þessi þáttur sé á dýpinu, andlega dýpinu. Það er búið að vara ykkur við...hlustið ef...

37. Stóru vinkonurnar eru bestu vinkonurnar! ( She is my sweetheart) 11.06.2025

Send us Fan Mail Þær Halldóra og Steinunn eiga báðar því láni að fagna að hafa átt fjölmargar sterkar og góðar fyrirmyndir í lífinu og hvað er betra en að eignast slíkar að vinkonum. Þórunn Elísabet Sveinsdóttir listakona með meiru en ein þeirra ofurkvenna sem hafa fylgt þeim stöllum stóran hluta ævinnar og til umfjöllunar í þessum þætti, er eins og Steinunn kallar það einhver fallegasta ástarjátn...

36. Það eru allir og amma þeirra að taka sveppi 04.06.2025

Send us Fan Mail Í þessum þætti dregur aldeilis til tíðinda því Steinunn nuddar hendurnar og fæturnar á Halldóru þar til hún sofnar næstum. Þetta ku vera heimsviðburður. Ætla má að Steinunn hafi með ráðum boðið upp á nuddið svo hún sjálf gæti talað svo gott sem í viðstöðulausum. Halldóra fær ferðasögu af heilsudvöl í Portúgal þar sem Steinunn borðaði ofskynjunarsveppi og talaði við blóm, býflugur...

35. Erum við stjörnuryk eða zombie-ar? Er hugsanlegt að sumir séu hvortveggja. 28.05.2025

Send us Fan Mail Fyrst segir frá kuðungum sem Halldóra bar yfir hálfan hnöttinn. Fermingar ber á góma en hvorki Steinunn né Halldóra fermdust og þess vegna kannski er þetta podcast þeirra svona undarlegt.  Er náttúrutrúin það merkilegasta sem við Íslendingar eigum í menningu okkar?  Það finnst Steinunni. Halldóra segir frá óvanalegum uppeldisaðferðum þar sem hún hræddi börn sín til varkárni með tr...

34. Hægra heilahvelið, Freud og ferðalagið. (Kuan Yin og Freud) 21.05.2025

Send us Fan Mail Halldóra dregur spil frá gyðju samkenndarinnar Kuan Yin og færir spilið Halldóru nýja sýn enda á hún að leita að auganu sem býr í hjartanu, hvernig sem hún fer nú að því. Hvað segja ferilskrár um manneskjur yfirleitt? Eru manneskjurnar oft og tíðum fangar fortíðarinnar því hver ertu ef þú sleppir tökum á sögunni þinnii? Freud ber á góma og salfræðingur sem Halldóra þekkir kemur í...

33. Má bjóða þér far? Til Helvítis? Í gegnum hreinsunareldinn? ( Guðdómlegi gleðileikurinn) 14.05.2025

Send us Fan Mail Í fjarska heyrist mófuglasöngur enda er vorið á hátindi sínum. Heimsbókmenntirnar eru undir og ferðast þær Halldóra og Steinunn eftir leiðakerfi sjálfsvitundarinnar í gegnum sjálft helvíti og hreinsunareldinn í leitinni að paradís. Eru örvæntingarfyllstu augnablik í lífi okkar tækifæri í dulargervi? Hvernig komumst við úr limbói tvíhyggjunnar og aftur heim til hjartans? Halldóra á...

32. Skjalasafn alheimsins - megum við fara þangað í beinni? (Akashic hugleiðsla) 07.05.2025

Send us Fan Mail Þessi þáttur er tekin upp í Skorradal í sumarbústað Halldóru þar sem Steinunn á griðastað og myndar samband við friðland og fiðraða.  Halldóra umskapar sjálfa sig og breytist í transmiðil snemma þáttar og þá kemur við sögu hinn kvensjúki Pétur og reyndar ein vinnukona sem hann barnaði margoft í sveitinni. Napóleonsskjölin eða Akashic skjölin eru heimsótt og hauslaus geimvera vill...

31.Á mörkum raunveruleikans (Macbeth) 30.04.2025

Send us Fan Mail Halldóra fékk eiginmann sinn til að nálgast Alheimsskjalasafnið  eða Akashic skjölin í hugleiðslu og má segja að þau hafi bæði lent í töluverðum ógöngum því þegar þangað er komið er nauðsynlegt að stimpla sig út því annars er maður fastur milli tveggja heima. Steinunn segist svo jarðbundin að hún festist frekar í Napoleonsskjölunum eftir Arnald Indriðason. Fyrirvaralaust breytist...

30. Viljiði vita leyndarmál? (The Secret) 23.04.2025

Send us Fan Mail Fyrir leyndarmálasækna er þessi þáttur kannski nákvæmlega það sem þið voruð að leita að. Reyndar eru töluverðar líkur á að þið munið eiga erfitt með að skilja hvað fer fram, en það er vegna þess að Steinunn er komin á það sem hún kallar Tea n' Biscuits aldurinn! Dóra gerir uppgötvun! og mun svara því í þættinum, hvaða peningarnir koma! En það er sumsé bókin THE SECRET...fornf...

29. Voru páska-endurnar í Biblíunni? (páskaþáttur) 16.04.2025

Send us Fan Mail Það er ekki gott að segja hvað fer fram í þessum þætti.  Sjálf Biblían er undir en Halldóra getur ekki fyrir sitt litla líf fundið það sem hún ætlaði að lesa í hinni Helgu Bók!  Krossfestinguna ber á góma enda styttist mjög í píslargöngu alls mannkyns og allir örugglega fyrir löngu búnir að afflísa litlu krossana sína. Þær ráðast nú heldur betur á garðinn þar sem hann er lægstur þ...

28. Ferðaskrifstofan Gaman Gaman! ( Ennegram) 09.04.2025

Send us Fan Mail Framtíðarplönin eru ljós, þær vinkonurnar Steinunn og Halldóra ætla að setja á fót leikjabúðir fyrir fullorðna og Dóra ætlar að sjá um excelskjölin og raða fólki á leigubíla. Steinunn hefur eftir ónefndum sérfræðingi að manneskjan hafi ekki  bolmagn til að melta allar heimsins hörmungar, þegar við rétt náum utan um að hugsa um okkar nánustu aðstaðdendur. Halldóra kemur færandi hen...

27. Þegar þú berð ljósið að myrkrinu verður myrkrið stórkostlega fallegt (Píkusögur) 02.04.2025

Send us Fan Mail Gervigreindin veit allt um Halldóru og frægðarsól hennar og segir að hún hafi náttúrulegan en hráslagalegan kynþokka. AI harðneitar að gefa Steinunni ráðleggirngar um hvernig best væri að snúa sér ef hún vill sænga með Halldóru. Þær stöllur sökkva sér ofan í leiktexta úr verkinu Pikusögur og reyna fyrir sér í stunutúlkun með afdrifaríkum hlátursköstum því þroskinn er bara ekki mei...

26. Hversu oft í lífinu á maður að skipta um persónuleika? (Steina sofnar) 26.03.2025

Send us Fan Mail Á þessi þáttur að taka breytingum og hætta að vera bókmenntaþáttur og verða þess í stað að henda fötum þáttur? Steinunn og Halldóra telja sig hafa ,,larpað“ allt lífið og myndu alla daga velja að ,,larpa“ umfram það að ,,lana“. Dóra segir frá því þegar hún kortlagði á annað hundruð einstaklinga sem hún tók í undarlega einstaklingsmeðferð. Kvíða ber á góma en hvað er til ráða þegar...

25. Lemdu á þér mjaðmirnar til að ná jarðsambandi (Jónas Hallgrímsson) 19.03.2025

Send us Fan Mail Steinunn er svo róleg í þessum þætti að halda mætti að hún eigi stutt eftir. Misgóðar ráðleggingar til stúlkna frá fyrri öldum koma fyrir þótt þær þættu nú ekki góðar tvíbökur í dag! Er gott að reyna að gleyma öllu því sem höfuðið spinnur upp og hugsa bara með hjartanu? Þegar Dóra fær áhuga á einhverju kviknar orka í líkamanum á henni, hvað meinar hún? Jónas Hallgrímsson svífur yf...

24. Kattaskítur og rándýr ilmvötn (Ilmurinn) 12.03.2025

Send us Fan Mail Halldóra hefur lagt í vana sinn að kaupa rándýr ilmvötn en nota þau síðan bara í einn dag á meðan Steinunn notaði sama ilmvatnið í þrjá áratugi en smyr sig nú eingöngu með ilmkjarnaolíum. Bókin Ilmurinn kemur við sögu, en á að hend'enni?  Pablo, köttur á heimili Steinunnar skítur í blómapott og er hótað lífláti í miðjum þætti. Mun hann hálshogginn verða? Verður aftakan í bein...

23. Ástin er alheimsundrið mesta! (Jóhannes úr Kötlum) 05.03.2025

Send us Fan Mail Þetta er allra andlegasti þátturinn hingað til því smáskammtar á hugvíkkandi sveppum koma til tals og áhrif þeirra á þeytivindu hugans. Halldóra er gift vísindamanni og veit því allt um spegilfrumur sem eru alveg stórmerkilegur hluti af viðbragðskerfi okkar. Steinunn les ljóð Jóhannesar úr Kötlum og hann Jesús kemur við sögu enda erum við manneskjurnar eilíflega að fara í hans spo...

22. Þið munið öll! Þið munið öll! (Lokaæfing Svövu Jakobs) 25.02.2025

Send us Fan Mail Fæddar 68´og 69' ólust þær vinkonurnar upp við kjarnorkuvána ógurlegu og núna ríflega 50 árum síðar eru kjarnorkustríðsógnanir að trenda aftur. Þá er bara eitt í stöðunni að skella sér niður í kjarnorkubyrgi Svövu Jakobsdóttur og leikrit hennar LOKAÆFINGU sem fjallar um íslensk hjón sem loka sig inni í einu slíku. Vill maður reyna að lifa af í slíku stríði eða deyja bara drot...

Listen to the Á ég að hend'enni? podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.