Á ég að hend'enni?
Á ég að hend'enni?
Halldóra Geirharðsdóttir og Steinunn Ólína hafa marga fjöruna sopið, stundum saman, stundum sundur. Nú í miðju lífsins er tiltekt innra jafnt sem ytra efst á baugi og því ætla þær að bera saman bækur sínar í orðsins fyllstu merkingu. Þær ætla að byrja á því að gera rassíu í bókaskápunum. Skilja sauði frá höfrum, finna gersemar og handsama lygaþvælu og rusl. Í hverjum þætti draga þær fram skruddur og meta hvort nauðsynlegt sé að eiga skræðuna áfram, hvort lærdómur hafi verið meðtekinn eða alls ekki. Fer hún í öndvegi, í Hirðinn, eða er öruggast að brenna hana á báli? Rannsóknarspurningin er:...
Author
Á ég að hend'enni?
Category
Podcast website
Latest episode
Feb 4, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Bless - Halló - Lokaþáttur 2025-2025 04.02.2026 1:13:15
Send us Fan Mail Tímabær andlátsfrétt en afskaplega eldheitur útfararstjóri;) Á ég að hend´enni kveður því hér, í bili að minnsta kosti, því nú leita vinkonurnar á ný mið eftir ríflega 70 þætti sem allir eru aðgengilegir á öllum helstu streymisveitum. Í lokaþættinum réða þær til sín útfararstjóra enga aðra en manneskjuna sem þekkir og jarðar þær vitanlega best, æskuvinkonu beggja, Möggu Örnólfs...
72. Braselíski frumskógurinn og íslenska lækningakonan Ravi 07.01.2026 42:05
Send us Fan Mail Á veitingastaðnum Mama áttu þær Halldóra og Steinunn óvæntan fund við lækningakonuna Raví Jenný en hún er nýkomin til Íslands eftir 11 mánuða dvöl með Huin- Kuin þjóðflokknum. Raví segir okkur frá ferðum sínum, hvers hún leitaði og hvera hún var vísari. Kannski er lykillinn að okkar eigin plöntu og alþýðulækningamenningu fundin með hjalp þjóða sem enn hafa varðveitt lækningavisku...
70. Áramótaþáttur II.hluti 05.01.2026 44:55
Send us Fan Mail Þessi II. hluti Áramótaþáttarins fer einnig fram á uppáhaldsstaðnum, Mama, í Bankastræti og þar taka þær Steinunn Og Halldóra á móti gestum við hringborð. Þar er sötrað heilagt Kakó og Kambucha og rýnt í himinhvolfin. Nú æsast leikar! Fegurðardrottningar, völvur, lögmenn, kærastar, söngkonur og atvinnu álfkonur mæta á svæðið! Takk fyrir samstarfið Eldum Rétt og Sjáðu Support the...
71. Áramótaþáttur III. og síðasti hluti 05.01.2026 48:17
Send us Fan Mail Þessi III. hluti Áramótaþáttarins er rúsínan í pylsuendanum! Hér fer stuðið fram úr hófi og auðvitað fer nánast allt úr böndunum. Gleðilegt ár kæru hlustendur! Takk fyrir samstarfið Eldum rétt og Sjáðu Support the show
69. Það eru að koma áramót 25/26 - Spjallað við merkar konur I. hluti 31.12.2025 44:34
Send us Fan Mail Í þessum þætti sitja vinkonurnar á sínum uppáhaldsstað, Mama, í Bankastræti og taka á móti gestum við hringborð. Þar er sötrað heilagt Kakó og Kambucha og rýnt í himinhvolfin. Í þessum fyrsta hluta eru gestir enginn annar en Nikkó, eða Nicolas Pétur Blin eiginmaður Halldóru sem er neyddur í stutt viðtal en svo kemur engin önnur en Esjudóttirin vitra, Linda Mjöll Stefánsdóttir, d...
67. Gleðilegur jólaþáttur 2025 24.12.2025 45:16
Send us Fan Mail Það eru lúnar vinkonur sem fara yfir jólaundirbúninginn sem virðist vera lítill sem enginn en þó, Halldóra, keypti sófa og Steinunn Eldar rétt um jólin í fyrsta sinn! Annars er sagt frá tilurð skemmtilegasta skötuboðs aldarinnar sem fram fór á Þorláksmessu 2025. Geta líksnyrtar gefið ráð gegn ólykt, Steinunn hringir í besta útfararstjóra landsins og fær hjá honum góð ráð! Börnin,...
66. Virk-ilega farið yfir víðan völl 17.12.2025 9:41
Send us Fan Mail Steinunn vill gjarnan vinna við að ferðast um heiminn og stofna fyrirtæki sem hitir Tent-Living en Dóra segir þetta bara vera glorified tjaldútilegu. Varnarkerfi líkamans er til umræðu en er kerfi eins og hænsnanet Takk fyrir samstarfið Eldum Rétt og Sjáðu Gleraugnaverslun Fullan þátt má hlusta á hér: https://feeds.buzzsprout.com/2419952.rss Support the show
65. Dauði hjartans viðtal við Jared Wholeheart 09.12.2025 10:35
Send us Fan Mail Í þessum þætti fá Halldóra og Steinunn til sín enn að leiðbeinendum Halldóru, Jared Wholeheart, en hann er sprenglærður ráðgjafi og hefur átt litríkan starfsferil. Einnig ræða þær um andlega vakningu, dauða hugans og hjartans á þeirri leið. Hvað sambönd geta kennt okkur um okkur sjálf og um hið magnaða samspil hins kvenlega og karlmannlega í fari hvers og eins. Hvernig getum við...
64. Steinn um Stein frá Steini til Steins (Steinn Steinarr) 03.12.2025 46:33
Send us Fan Mail Halldóra hefur tekið upp huggulegan lífsstíl og fræðir Steinunni um þær raunir sem hún hefur komist í við að gera hýbíli sín að tímaritaverðu ljósmyndaefni. Magga Erla Húsahvíslari kemur til sögunnar en hún kemur og galdrar inn á heimilum með því að færa til húsgögn, færa til myndir og leikur sér og endurnýtir eigur fólks sem fyrir er á staðnum - Kona með auga eins og Steinunn seg...
63. Einsetukonur og tækifærissinnar 25.11.2025 10:05
Send us Fan Mail Steinunn ver sig fimlega þegar Halldóra reynir að fá hana til að axla ábyrgð á gengdarlausri leti sinni og vinnuframlagsleysi. Halldóra er langþreytt á gangi mála og reynir að ala vinkonu sína upp án árangurs. En Human Design þeirra vinkvennanna er undir og ýmislegt er gaman að skoða í kortum beggja enda eru þær báðar í því sem þær kalla ´transision´ án þess að þær skýri það nokku...
61. ,,Ég er eiginlega alveg orðlaus“ Ólafur Stefánsson eins og hann er bestur 19.11.2025 10:22
Send us Fan Mail Steinunn þekkir tvo íþróttamenn og annar er gestur þeirra Halldóru í þessum mjög þætti. Gesturinn er enginn meðalmaður, óvanalegur og einlægur, sá einstaki Óli Stef! Í fyrstu er gesturinn orðlaus, sem hann segir hollt.en þetta einlæga samtal fer um víðan völl enda þrír sveimhugar í leit að kjarna sem hvergi er að finna. Takk Íslandsbanki, Eldum rétt og Sjáðu. Við kunnum að me...
60. Þetta er fyrsti verulega SEXÝ þátturinn! 12.11.2025 11:08
Send us Fan Mail Í þessum þætti verður farið yfir óvenjulegt boðskort sem Halldóra hlaut á dögunum. Þar verður í boði að vera allsber en töluverður áhugi er að myndast hjá þeim stöllum um að ganga um naktar en sérstaklega ber á þessu hjá Halldóru. En hvað er nánd og hversu mikil nánd er Ok, of mikil o.s frv. Allt þetta of fleira á lendum þess erótíska verður rætt og krufið. Elsku áskrifendur, þ...
59. Viðtal við algjöran Eðalmann - ADI ÆVINTÝRI 04.11.2025 47:57
Send us Fan Mail Sumir þættir podcastsins eru teknir upp á matsölu-og samfélagsstaðnum Mama í Bakarabrekkunni. Þar er fallegt og ört stækkandi samfélag fólks sem kýs að leggja stund á andlega iðkun, borða heilnæma náttúrufæðu og drekka gullna túrmerik drykki og draga sér svo sem eins og eitt tarot spil. Einn höfuðpaurinn á Mama er Adi Ævintýri, andlegur kennari og leiðbeinandi. Hann leggur ástundu...
58. Hjónalíf, James Bond á Bora Bora – Halldóra ræðir við eiginmann sinn 28.10.2025 46:26
Send us Fan Mail Steinunn skrópaði í þennan þátt og því brá Halldóra á það ráð að taka viðtal við eiginmann sinn Nikkó en um engan er þeim Steinunni meira tíðrætt um. Hjónin stikla á hjónamálum, Nikkó segir sögur frá uppvaxtarsögur frá Marokkó, kostulegar sögur af skurðlækninum pabba hans og einhver óskiljanlegur galdur er í því að heyra hjón tala saman þó þau viti vel að það er verið að taka þa...
57. Veitingahúsið Mensa og minningarnar 22.10.2025 44:36
Send us Fan Mail Hvað gerist þegar kakóbolli kveikir á minningu og bók breytist í brú á milli heima? Við sitjum saman yfir Mensu, matreiðslu- og minningabók sem setur fjölskyldu, unglingsár og samfélagið okkar við saman borð þar sem rababarabaka, salöt og glæstar kökur voru meira en bara matur. Sögur sem eru bæði fyndnar og hjartnæmar: konan sem borgaði með fallegum steinum, draugurinn sem tók hl...
56. Frá verkjum til visku – Viðtal við lækningakonu (Ana Bloom) 14.10.2025 48:51
Send us Fan Mail Ljós kviknar á í öllum hornum hugans þegar Anna Bloom stígur inn og segir okkur frá ferli sem byrjar í líkamanum en endar í rýminu þar sem hugrekki, húmor og heilun mætast. Galdra og lækningakonan Ana Bloom hefur frá mörgu að segja og hagnýt galdaráð leynast í samtalinu sem má prófa strax—gulur pýramídi til að finna týndan hlut, grænn styrkur fyrir plöntuna sem á erfitt. Ana afhjú...
55. Frá kvíða til sjálfsmildi: reynslusögur af sveppum, microdósing og Ayahuasca 08.10.2025 46:21
Send us Fan Mail Bókahillan varð að hliði inn í hugrekkið. Við förum frá hæðni og hálfkæringi yfir í djúpar sögur af microdósum, sveppum og ayahuasca, þar sem kvíði ´ breytingaskeiðinu, svefnleysi og stjórnsemi víkja fyrir mildi, leikgleði og heiðarlegri skuggavinnu. Á leiðinni skoðum við hvernig Portugal nálgast afglæpavæðingu og hvers vegna skaðaminnkun, öryggi og umgjörð skipta öllu þegar fólk...
54. Frá fordómum til fræðslu: Tóta töfrakona og kannabishjúkka 01.10.2025 44:39
Send us Fan Mail Þórunn Thors Jónsdóttir er gestur Halldóru og Steinunnar en hún hefur um árabil leiðbeint Íslendingum sem nota kannabis í lækningaskyni. Þú heyrir sögur sem kveikja von—frá sjúklingunum sem endurheimta svefn og matarlyst til kvenna sem finna loksins tök á endómetríósu og miklum tíðaverkjum. Við förum frá bókaskápnum og brandaranum yfir í djúpa, heiðarlega umræðu um lífsgæði, virði...
52. Hinn fullkomni Gestur: Gildakerfin okkar (Gestur Pálmason) 24.09.2025 51:49
Send us Fan Mail Þegar þú skilur gildakerfi þín sérðu heiminn í allt öðru ljósi. Í þessum spennandi þætti förum við í djúpt ferðalag í gegnum þróun mannlegra gilda, allt frá grunnþörfum um að lifa af upp í heimsmiðaða hugsun. Hvað rekur þig áfram? Er það öryggið í að tilheyra hópi, löngunin til að hafa áhrif, reglur og skipulag, eða kannski draumurinn um betri heim? Með hjálp Gests Pálmasonar föru...
53. Hinn fullkomni Gestur II ( Lífsskoðanir og gildi) Seinni hluti viðtals við Gest Pálmason 24.09.2025 38:24
Send us Fan Mail Í kjarna mannlegrar tilveru er samband okkar við reglur, gildi og samfélagið grundvöllur alls. Þessi framhaldsþáttur með Gesti Pálmasyni kafar djúpt í þessar pælingar og kannar hvernig mótþrói gegn yfirvaldi getur verið hluti af erfðamengi okkar og uppeldi. Þátturinn skoðar líka ólíkar nálganir á markmiðasetningu og skipulag. Sumir einstaklingar setja sér aldrei markmið en ná sam...
51. Leiðin heim er í gegnum eldinn, ekki framhjá honum (instagram viska) 17.09.2025 46:18
Send us Fan Mail Lífið er ferðalag sem krefst þess að við horfumst í augu við allar hliðar okkar sjálfra - ekki bara þær fallegu. Í þessu samtali skoða Steinunn og Halldóra eðli sjálfsvinnu og BREAKING NEWS er að sjálfsþroski snýst ekki um að losna við erfiðu hlutina. Margir leita að "betri útgáfu" af sjálfum sér í gegnum andlegar æfingar, hugleiðslu eða jóga. En hvað ef sú leit er bara...
50. Að sitja með sjálfum sér og elska illmenni (Vigfús Bjarni í viðtali) 10.09.2025 59:02
Send us Fan Mail Hvað gerist þegar við sleppum tökunum? Hér hefst ferðalag inn í kjarna mannlegrar reynslu þar sem við könnumst við mikilvægi æðruleysis í daglegum æfingum. Enginn verður óbarinn biskup svo þær Steinunn og Halldóra fá til sín Vigfús Bjarna Albertsson til spjalls og ráðagerða. Hann sleppur reyndar óbarinn enda ekki biskup heldur rithöfundur, prestur og sálgætir. Í þessu einlæga samt...
49. Móðurhlutverkið og kannabislækningar 03.09.2025 45:26
Send us Fan Mail Móðurástin! Þurfum við hana? Getum við lifað án hennar? Uppeldisfræðingarnir ...hm...Steinunn og Halldóra tala fjálglega um uppeldi en það er lán að þær skuli ekki hafa nokkurt átorítet í þeim efnum. Umræðan snýst svo dálítið mikið um heilsu kvenna enda hafa þær stölluð hótað að tóra lengur en gott þykir. Steinunn talar annars nánast í viðstöðulausum um ráðstefnu sem er væntanleg,...
48. Skuggavinna og drullan í sálinni (Endurtekin bók Papalangi) 27.08.2025 48:54
Send us Fan Mail Andans dýr Steinunnar, eða spirit animal, er ugla og hún holdgerðist sem ugla í samkvæmi nú fyrir stuttu og veit nú hvernig það er að vera fiðraður. Fróðlegt fyrir fuglaáhugamenn. Dóra er sem oft áður að velta fyrir sér the dark female sem hún reynir nú að styrkja í sér með því að vera meiri tík svona dags daglega. Það er líka töluvert talað um hvernig ljósið lýsir upp myrkrið og...
47. Að koma út úr skápnum sem völva (Völva Suðurnesja) 20.08.2025 46:54
Send us Fan Mail Það kemur á daginn að bæði Halldóra og Steinunn telja sig völvur svo það er um að gera að fara að panta hjá þeim tíma. Þær ræða hvernig sýnir og hlutir birtast þeim eins og þetta rugl sé einhver vitniburður um forspárgáfu þeirra. En til umhugsunar er bókin, Völva Suðurnesja um alvöru íslenska völvu sem sagði: Ég er að sjá“, þegar hún var lítil og fór sálförum. Steinunn fær afmæli...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.