RÚV
Víðsjá
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: www.ruv.is
Gdzie słuchać?
Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótcePodcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów
Odcinki
Veðurskeytin, Jinn andar, Ifigenía í Ásbrú/rýni, Myrkir músíkdagar/rýni 30.01.2025 54:37
Veðurskeytin er leikin heimildarmynd sem verður frumsýnd í Rotterdam um helgina. Myndin fjallar um tímamót í lífi ástríðufulls fræðimanns, en Marteinn Helgi Sigurðsson, doktor í miðaldafræðum frá Cambridge-háskóla, þarf að endurskoða líf sitt þegar hann er greindur með geðhvörf. Bergur Bernburg leikstýrir og skrifar einnig handritið ásamt Jóni Atla Jónassyni, en þeir eru æskuvinir Marteins Helga....
Gallery Port / Svipmynd 29.01.2025 53:08
Þeir Árni Már Þórdísar Viðarsson og Skarphéðinn Bergþóruson stofnuðu Gallery Port í litlu bakhúsi í dimmu porti við Laugaveginn árið 2016. Galleríið hefur fest sig rækilega í sessi á undanförnum árum sem eitt framsæknasta rými borgarinnar, en þar er hlúð að grasrótinni og einblínt á unga og upprennandi listamenn, þó eldri og reyndari listamenn sýni þar líka í bland. Eftir fjögur ár í dimmu skúmask...
Innviðir í Árnastofnun, Árið án sumars, Ferðalok 28.01.2025 55:00
Húsnæði Árnastofnunnar í Árnagarði hefur verið táknmynd eða hulstur utan um efnismenningu handritasafns Árna Magnússonar í rúm 50 ár. Nú hefur stofnunin verið flutt yfir Suðurgötuna og í Eddu en um liðna helgi stóð hópur listamanna, fræðimanna, hönnuða og arkitekta að sýningu í yfirgefnu húsnæði Árnastofnunnar sem þau kölluðu Innviði. Um sýningarstjórn sáu þeir Marteinn Sindri Jónsson og Unnar Örn...
Skógarhögg Thomas Berhard, karókílög Alter-Eyglóar á Ölveri, Ungfrú Ísland/rýni 27.01.2025 57:48
Við lítum inn á eina elstu krá bæjarins, Ölver sportbar, en þar stendur tónskáldið og sviðslistakonan Eygló Höskuldsdóttir Viborg fyrir viðburðum í vikunni í nafni hliðarsjálfsins Alter-Eyglóar. Í tilraun til þess að snúa á alræði streymisveitanna og finna leið til að lifa á tónlistinni ákvað Eygló, sem stundaði framhaldsnám í tónsmíðum í Berklee og NYU, að skella í nokkur poppkennd karókílög. Á Ö...
Elín Gunnlaugsdóttir á Myrkum, Anna Rós Árnadóttir ljóðskáld, Rakarinn í Sevilla /rýni, Jelena Ciric pistill 23.01.2025 53:21
Við hefjum þáttinn á því að taka á móti Önnu Rós Árnadóttur, handahafa Ljóðstafs Jóns úr Vör. Anna Rós les sigurljóðið Skeljar og segir frá innblæstrinum að baki. Myrkir músíkdagar hefjast á morgun og standa yfir fram á sunnudagskvöld með fjölda viðburða. Meðal þeirra eru tvær öróperur Elínar Gunnlaugsdóttur fluttar í stigunum í opnu rými Hörpu. Elín segist hafa sérstaklega gaman af því að leika s...
Hjálmar H Ragnarsson / Svipmynd 22.01.2025 50:38
Hjálmar H Ragnarsson er fæddur og uppalinn á Ísafirði, sonur Sigríðar Jónsdóttur Ragnar og Ragnars H Ragnar. Faðir hans var skólastjóri tónlistarskólans á Ísafirði, sem þá var hýstur að stórum hluta á heimili þeirra, svo Hjálmar ólst bókstaflega upp umkringdur tónlist. Hann segir þó að ýmislegt annað hafi komið til greina, þegar hann velti fyrir sér framtíðinni, því á heimilinu voru hin ýmsu mál r...

Listmeðferð Sigríðar Björnsdóttur, David Lynch og Undir eplatrénu/rýni 21.01.2025 54:13
,,Ég treysti sjálfri mér og hef trú á þessu tæki sem listmeðferðin er. Hún er tæki til að tjá tilfinningar sínar og vinna með og losa sig við erfiðar tilfinningar. Myndsköpunin er þá notuð til að vinna með sig persónulega og til að þroskast í gegnum." - er meðal þess sem haft er eftir myndlistarkonunni og listþerapistanum Sigríði Björnsdóttur í bók þeirra Ágústu Oddsdóttur og Egils Sæbjörnssonar u...

Hallgrímur Árnason/Ró og Æði, David Lynch og árið 2024 í arkitektúr/Magnea Guðmundsdóttir 20.01.2025 54:53
David Lynch sótti Ísland heim árið 2009 og þá tók kvikmyndafræðingurinn Sigríður Pétursdóttir viðtal við hann í útvarpsþættinum Kviku. Þau ræddu meðal annars innhverfa íhugun, en David Lynch hefur verið mikill talsmaður hugleiðslu í sinni nálgun. Hann líkti hugmyndum við fiska; Ef þú vilt veiða litla fiska, haltu þig í grunnu vatni. En ef þú vilt ná stórum fiskum þarftu að fara á dýpið, sagði hann...

Gréta Kristín Ómarsdóttir um Ungfrú Ísland, Schoenberg og bruninn í LA, Helen Cova 16.01.2025 53:56
Annað kvöld verður frumsýnd í Borgarleikhúsinu ný leikgerð upp úr skáldsögu Auðar Övu Ólafsdóttur, Ungfrú Ísland. Sagan hverfist um fjóra einstaklinga í Reykjavík árið 1963 sem allir hafa sína drauma en misjöfn tækifæri til að láta þá rætast. Þetta eru tímar samfélagslegra jarðhræringa og handan við hornið eru baráttur og byltingar. Við ræðum við leikstjórann Grétu Kristínu Ómarsdóttur í þætti dag...

Birnir Jón Sigurðsson 15.01.2025 50:37
Birnir Jón Sigurðsson, sviðslistamaður og rithöfundur, segist ekki hafa átt sterkar fyrirmyndir á unga aldri. En hann dáist almennt að listafólki sem er áhugasamt, jákvætt, spennt og drífandi. Honum líður best í óvissunni, þegar það er ekkert handrit, og planar aldrei langt fram í tímann. Kannski þess vegna er hann svo hrifinn af samsköpun í leikhúsinu. Birnir hefur gefið út bækurnar Strá og Fugla...

Fermented Friendship, Ljósmyndahátíð Íslands og Veðrun 14.01.2025 51:05
Píanóleikarann Magnús Jóhann Ragnarsson og saxófónleikarann Óskar Guðjónsson þarf vart að kynna fyrir hlustendum. Leiðir þessara tveggja listamanna hafa legið saman í gegnum ólík verkefni en nú í vetur gáfu þeir saman út plötuna Fermented Friendship þar sem afrakstur samtals þeirra fær að njóta sín. Við heyrum af samstarfinu í þætti dagsins, og einnig vináttunni sem gerjaðist í sköpunarferlinu. Ei...

Tóma rýmið, Molly Drake og Kundera: Vesturlönd í gíslingu/rýni 13.01.2025 54:08
Í yfirgefnu bílaverkstæði við Skeljanes í Reykjavík hefur hópur sviðslistafólks komið sér fyrir með starfsemi undir yfirskriftinni Tóma rýmið. Þar hafa þau æfingaaðstöðu og rými til þess að prófa áfram og sýna verk á mismunandi stigum í undirbúningsferlinu. Hluti af starfsemi Tóma rýmisins felst í mánaðarlegum tilraunakvöldum, þar sem meðlimir hópsins bera á borð verk í vinnslu eða gera tilraunir...

Vínartónleikar, Áslaug Jónsdóttir og Yerma/rýni 09.01.2025 54:35
Í gær var veisla hér í Útvarpshúsinu þegar Menningarviðurkenningar RÚV fyrir árið 2024 voru afhentar að viðstöddum viðurkenningarhöfum og gestum. Veittar voru tvær viðurkenningar úr Rithöfundasjóði og tilkynnt um styrki úr Tónskáldasjóði Ríkisútvarpsins og STEFs á árinu. Mugison fékk Krókinn, verðlaun fyrir framúrskarandi lifandi flutning, og tilkynnt var um valið á orði ársins 2024, sem er hraunk...
Ifigenía í Ásbrú, Unnar Örn í Óminnissafni, Moldin heit/rýni 07.01.2025 53:34
Í Glerhúsinu stendur nú yfir sýning sem ber titilinn Óminnissafnið - varðveislu- og rannsóknardeild. Þar sýnir myndlistarmaðurinn Unnar Örn Auðarson afrakstur vangaveltna um tilraunir okkar til að skjalfesta tímann með söfnun og skrásetningu á upplýsingum úr umhverfi og samfélagi. Við hittum Unnar Örn í þætti dagsins. Við heyrum einnig bókarýni en að þessu sinni rýnir Gréta Sigríður EInarsdóttir í...
Mörsugur, Augljós í Neskirkju, Köttur á heitu blikkþaki / rýni 06.01.2025 53:03
Við hefjum þáttinn á því að fara í kirkju. Augljós kallast sýning sem opnaði þann 8.desember í Neskirkju og stendur yfir fram til 20.janúar. Þar sýnir Þórdís Erla Zoega ljósaverk sem sækja innblástur í kirkjuglugga og vinnur með sjónrænar skynvillur sem hvetja áhorfandann til að líta inn á við. Við kynnum okkur einnig nýtt verk, Mörsugur, óperu fyrir rödd með rafhljóðum og myndbandsverki, byggða á...

Víðsjá og Lestin líta yfir farinn veg og til framtíðar - Fyrri hluti 02.01.2025 50:41
Sameiginlegur þáttur Víðsjár og Lestarinnar í upphafi ársins 2025. Í þáttum dagsins höldum við úr húsi, förum inn í lágvöruverslunina Prís í Kópavogi, verslunarmiðstöðina Eiðistorg á Seltjarnarnesi, vöðum slabbið út í strætóskýli og tökum líka upp tólið og hringjum út á land: austur, vestur, norður og suður. Hvað var fólk í Prís að hugsa rétt eftir jólin og hvað finnst unglingum á Eiðistorgi um bæ...
Menningarárið 2024 30.12.2024 51:31
Víðsjá og Lest setjast niður í hljóðstofu og rifja upp árið 2024.
Podobne podcasty
Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS